Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Page 14
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 189,6 kr. verð á lítra 187,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 192,4 kr. verð á lítra 190,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,9 kr. verð á lítra 191,7 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 192,3 kr. verð á lítra 190,3 kr.
Melabraut verð á lítra 192,4 kr. verð á lítra 190,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 192,6 kr. verð á lítra 190,6 kr.
Biðin StyttiSt
Á mánudaginn var í Hæstarétti
tekið fyrir prófmál um svoköll-
uð myntkörfulán. Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur dæmdi snemma í
sumar að lánin skyldu bera óverð-
tryggða vexti Seðlabanka Íslands í
stað samningsvaxta. Um það er nú
tekist á í Hæstarétti en óumdeilt
er að gengistrygging er ólögmæt.
Vaxtamunurinn á samnings- eða
óverðtryggðum Seðlabankavöxtum
er gríðarlegur og því er um mikið
hagsmunamál fyrir tugþúsund-
ir Íslendinga að ræða. Niðurstöðu
Hæstaréttar er að vænta innan
fárra vikna. Biðin eftir niðurstöðu
í útreikningum myntkörfulána
styttist því óðum.
góður DAgur í
BónuS?
n Lastið fær Bónus á Völlunum í
Hafnarfirði. Viðmót afgreiðslustúlku
á kassa var kaldranalegt. Hún af-
greiddi hratt en svaraði ekki kveðju
viðskiptavinar sem bauð hátt og
snjallt góðan dag fyrr en
hann hafði endurtekið
kveðjuna. Þá muldraði
hún „daginn“ á móti.
Hún þakkaði auðvitað
ekki fyrir viðskiptin
heldur – jafnvel þótt við-
skiptavinurinn gerði það.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
BæjArinS
lAngBeStu
n Lofið fá Bæjarins bestu fyrir glað-
legt viðmót og þrautþjálfuð vinnu-
brögð. Viðskiptavinur, sem
fær sér regluleg pylsu þar,
hefur lengi veitt því athygli
að viðmótið er alltaf til
fyrirmyndar og starfs-
fólkið glaðlegt – jafnvel
þótt röðin nái langt út
á götu. Engin furða að
viðskiptin blómstri.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 8. september 2010 miðvikudagur
ÓdýrAST hjá OLíS Bensínið og dísilolían
reyndust ódýrust hjá Olís, þegar DV kannaði bensín-
verð hjá olíufélögunum um hádegisbil í gær, þriðju-
dag. Fátítt er að verðið sé lægst hjá Olís en það reynd-
ist um þremur krónum ódýrara en hjá Orkunni, óB, N1
og Atlantsolíu. Lítrinn kostar 189,6 krónur en lítrinn af
dísilolíu 187,6 krónur. Hann er líka ódýrastur hjá Olís.
Hæst er verðið hjá Skeljungi, hvar bensínlítrinn kostar
193,9 krónur, þegar þetta er skrifað.e
L
d
S
n
e
y
T
i
Veigamesta atriðið, þegar kaupa á
tölvu, er að gera sér grein fyrir því til
hvers á að nota tölvuna. Sá sem vill
eignast tölvu fyrir þung myndvinnslu-
forrit, tölvuleiki eða kvikmynda-
vinnslu ætti ekki að kaupa sömu tölv-
una og sá sem notar hana einungis til
bóknáms og til að skoða vefsíður.
Skólarnir eru óðum að komast á
fullt. Fyrir lengra komna í námi getur
góð tölva verið mikilvægt tæki til að
auðvelda námið. DV ræddi við Hjörv-
ar Frey Hjörvarsson, deildarstjóra
í ELKO, sem fór vandlega yfir það
hvaða þátta fólk þarf að taka tillit til
þegar hefðbundin skólatölva er keypt.
Hann segir að hægt sé að kaupa fín-
ar skólafartölvur í fullri stærð frá 80
þúsund krónum en minni vélar (með
mini skjái) sé hægt að fá frá 60 þúsund
krónum.
Fyrir þá sem illa skilja skammstaf-
anir á borð við GHz, MB, GB, WiFi,
LED, DDR og Mbps er hér leiðarvís-
ir að því hvað skiptir máli þegar tölva
er valin. Upplýsingarnar eru að hluta
byggðar á samtali við Hjörvar.
þegar velja
á fartölvu
Tegundin skiptir ekki mestu máli þegar ný fartölva er valin.
Þættir eins og vinnsluminni, stýrikerfi og örgjörvi eru veiga-
meiri. DV hefur sett saman leiðarvísi að því hvernig velja skal
réttu tölvuna. Blaðið naut aðstoðar Hjörvars Freys Hjörvars-
sonar, deildarstjóra í ELKO.
baldur guðmundsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Vinnsluminni Stundum kallað
innra minni. Innra minnið getur haft áhrif á það
hversu hratt vélin ræður við að framkvæma það
sem þú biður hana um. Tölvunotendur þekkja
eflaust flestir hvað það getur verið þreytandi að
bíða eftir að tölvan opni forritið eða myndina
sem beðið er um. Þetta á sérstaklega við þegar
mörg forrit eða margir gluggar eru opnir í einu.
Hjörvar ráðleggur fólki að taka vél með 2GB
vinnsluminni eða stærra.
Örgjörvi Það getur skipt miklu máli að
hafa góðan örgjörva en hann hefur mjög mikið
að segja um hraðvirkni vélarinnar. Dual-core
örgjörvar eru til að mynda mjög hraðvirkir en
einnig nýir örgjörvar sem kallast I3 og I5. með
góðan örgjörva eru minni líkur á að tölvan sé
lengi að vinna. Fyrir þá sem nota aðallega einföld
forrit á borð við Word og Excel skiptir örgjörvinn
litlu máli. Allar nýjar vélar ráða vel við slíka vinnslu.
Harður diskur
Harður diskur er í raun gagnageymsla
tölvunnar. Þar eru allar skrár og
allar upplýsingar úr vélinni geymdar.
Algengt er að nýjar fartölvur hafi 500
GB disk. Það jafngildir 500.000 mB.
Til glöggvunar má benda á að eitt
lag er um 3 til 5 mB og ein bíómynd
í fullri lengd er um 700 mB. ógrynni
af Word-skjölum er hægt að geyma á
diski sem telur nokkur GB og þeir sem
ekki ætla að geyma þungar skrár á
tölvunni hafa ekkert með sérstaklega
stóran harðan disk að gera. Gætið þess
að eiga afrit af mikilvægum gögnum,
til dæmis á geisladiskum, USB-lyklum
eða utanáliggjandi hörðum diskum, ef
tölvan skemmist eða glatast.
Netkort Þetta
getur verið mikilvægt ef nám
er stundað í skólum þar sem
netsamand er misjafnlega gott.
Gott netkort, til dæmis með
N-staðal er mikið hraðvirkara
og langdrægara en eldri gerðir.
Gagnaflutningur tekur minni
tíma.
Skrifari Flestar tölvur eru með
DVD-skrifara svo hægt sé að setja
myndir, myndbönd eða
skjöl á disk. Flestir nota
þó USB-lykil eða stærri
harðan disk undir
slíkt. Skrifari er ekki
þarfaþing ef nota á
tölvuna fyrir skólann.
Ábyrgð Tveggja ára ábyrgð er á
flestum vélum – í það minnsta í Elko.
Á sumum vélum er lengri ábyrgð
og þá er hægt að kaupa
kaskótryggingu sem bætir
tjón við fall eða högg, svo
dæmi sé tekið. Ársábyrgð
er á flestum rafhlöðum.
Hvað skiptir mestu máli
þegar fartölva er keypt?