Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Síða 19
Lovísa Ósk GunnarsdÓttir
dansari er einn skipuleggjanda
Reykjavík Dance Festival sem stóð yfir
dagana 1. til 5. september. Hátíðin
þótti vel heppnuð en hún hóf göngu
sína árið 2002. Lovísa Ósk segir mikinn
áhuga á dansi á Íslandi og vaxandi
með hverju árinu.
Byrjaði
að dansa í
leikskóla
Icesave er beisk-
ur kaleikur sem
þjóðin situr uppi
með sama hversu
mjög lagapróf-
essorar fram-
leiða geðþótta-
rök um að ríkið
beri enga ábyrgð
á innstæðum í
Landsbankan-
um í Bretlandi
og Hollandi.
Sama hversu
InDefence-menn belgja sig um of-
ríki nágrannaþjóða, um að Icesave sé
einkamál Landsbankans og um rétt
íslensku þjóðarinnar til að skjóta mál-
inu til dómstóla. Sama hversu villta
vinstrið í VG reynir að nota málið til
þess að berjast gegn meintri heims-
valdastefnu AGS, ESB og koma í veg
fyrir erlendar fjárfestingar í landinu.
Sama hversu mjög Davíð Oddsson,
yfirhrunkvöðull, reynir að ná sér nið-
ur á stjórnvöldum eftir að hafa ver-
ið rekinn með skömm úr embætti
seðlabankastjóra. Með forstokkaðri
vænisýki í garð útlendinga nær hann
fram hefndum á stjórnvöldum með
liðsinni landbúnaðarmafíu á vinstri-
kanti VG og samvinnumanna af þjóð-
ernisvæng Framsóknarflokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, lætur yfirhrunkvöð-
ulinn einnig berja sig til hlýðni.
Þetta eru í hnotskurn þeir drag-
bítar sem stjórnvöld og meirihluti
þjóðarinnar glíma við þessa dagana.
Dragbítur merkir nagli eða tréflís sem
stendur neðan úr meið á sleða og
kemur í veg fyrir að hann renni greið-
lega.
Einfaldar staðreyndir
Lærðir lagatæknar telja að hrun ís-
lenska fjármálakerfisins hafi ver-
ið kerfishrun. Þeir hafa líka haldið
því fram að Tryggingarsjóður inn-
stæðueigenda sé ekki ríkisstofn-
un og ríkið beri ekki ábyrgð á
sjóðnum. Stundum eru sótt-
ir álitsgjafar til útlanda til að
styðja þessi sjónarmið.
Orðið kerfishrun hef-
ur enga lagalega þýðingu.
Þar að auki er augljóst að
Icesave -málið varðar að-
eins einn banka en
ekki heilt fjár-
málakerfi.
Trygging-
arsjóður inn-
stæðueig-
enda var
settur á
fót með
samning-
um við
erlend-
ar þjóð-
ir. Ríkið
ábyrgðist
að slíkum sjóði yrði
komið á laggirn-
ar. Sjóðurinn er í
umsjá efnahags-
og viðskiptaráðu-
neytisins, er vistaður hjá Seðlabank-
anum og stjórnað af opinberum
embættismanni. Bönkum er skylt að
leggja honum til fé með iðgjöldum.
Uppfylli banki ekki lagaskyldur sínar
gagnvart sjóðnum skal stjórn sjóðs-
ins tilkynna það ráðherra og Fjár-
málaeftirlitinu tafarlaust. Í lögunum
segir einnig að sérhver banki beri
ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðs-
ins umfram þau iðgjöld sem hann
leggur í sjóðinn.
Skýrara verður það varla. En þar
með er ekki allt upp talið. Í lögum
um fjármálafyrirtæki er kveðið á um
skyldu FME til þess að senda yfir-
völdum gistiríkis upplýsingar um
gjaldfærni banka sem stofnar
útibú (til dæmis í Hollandi
eða Bretlandi). Jafnframt er
FME skylt að gera gistiríki
grein fyrir tryggingum inn-
lána og bótakerfis sem vernd-
ar viðskiptavini útibús (til
dæmis útibús Landsbankans í
Hollandi).
Hér falla öll vötn
til Dýrafjarðar. Ef
Tryggingarsjóður
innstæðueigenda
er ekki ríkisstofn-
un er FME það
ekki heldur, ekki
heldur Seðla-
bankinn eða
Landspítal-
inn.
Enda hef-
ur ESA, eftir-
litsstofnun EFTA,
áminnt íslensk
stjórnvöld um
ábyrgð ríkisins á
lágmarksinnstæð-
um svo sem kveð-
ið er á um í tilskipun ESB. Hollenski
fjármálaráðherrann telur að áminn-
ing ESA sé ígildi gerðardóms.
við dauðans dyr með vitund
stjórnvalda
Dragbítarnir hafa gert rök Stef-
áns Más Stefánssonar lagaprófess-
ors að sínum. Stefán telur ástæðu-
laust að óttast þótt málið færi fyrir
EFTA-dómstólinn. Varla er líklegt
að niðurstaða dómstólsins verði Ís-
lendingum hagfelld. Líklegt er að
forherðingu íslenskra stjórvalda
yrði mætt með því að vísa til brota
gegn EES-samningnum og krafist
riftunar hans.
Í skaðabótamáli gegn íslenska
ríkinu gætu Hollendingar rökstutt
að svo seint sem 29. maí árið 2008
hafi Landsbankinn opnað Icesave-
reikninga í Hollandi og safnað 300
milljörðum af sparifé almennings
með vitund, vilja og samþykki ís-
lenskra stjórnvalda. Væri það ekki
skelfilegt í ljósi þess að hægt er nú
að sýna fram á að ráðherrar vissu
á þessum tíma að Landsbankinn
var tæplega gjaldfær og vanhöld af
hálfu stjórnvalda á tryggingum hér
heima fyrir hollenska sparifjáreig-
endur? Verði stjórnvöld dæmd fyr-
ir lögbrot í málaferlum er ekki víst
að Hollendingar og Bretar sætti sig
við greiðslu lágmarksupphæðar fyr-
ir Icesave.
„Ég held að þetta sé komið inn
á braut sem mun leiða til farsællar
niðurstöðu sem bæði þing og þjóð
sættir sig við,“ sagði nýr innanríkis-
ráðherra í samtali við DV fyrir helgi.
Eftir er að sjá hvaða fórn þessi
sami ráðherra færði þegar hann
sagði af sér ráðherradómi vegna
Icesave fyrir tæpu ári.
Hrunkvöðlar og dragbítar
1 Konan á baK við Rooney-sKandalinn: Vændiskonan Jenny
Thompson sem átti vingott við
Wayne Rooney er úr ríkri fjölskyldu
og var erfiður unglingur.
2 „Ég þaRf eKKi á þÉR að halda lenguR“ Hjónabandi Waynes og
Coleen Rooney virðist okið ef marka
má bresku götublöðin í dag.
3 hundRuð milljóna í aRðgReiðsluR Viðskiptafélagarnir
Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn
Karlsson greiddu sér samtals
450 milljónir króna í arð í fyrra úr
eignarhaldsfélögum sínum.
4 þessu eRum við eKKi vön Katrínu Jakobsdóttur var mjög brugðið
þegar hún heyrði ummæli færeyska
þingmannsins Jenis av Rana, um
Jóhönnu Sigurðardóttur og konu
hennar.
5 baRnsmóðiR KöRfubolta-stjöRnu sigaði löggunni á
hana Barnsmóðir NBA-stjörnunnar
Dwights Howard sigaði lögreglunni
á hann .
6 myRt fyRiR að hRópa Rangt nafn Breti stakk kærustu sína fyrir
að kalla rangt nafn er þau stunduðu
kynlíf.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er konan? „Lovísa Ósk Gunnars-
dóttir, dansari og einn af skipuleggjend-
um Reykjavík Dance Festival.“
Hvar ertu uppalin? „Í Reykjavík.“
Hvað drífur þig áfram? „Gott fólk.“
Hvenær byrjaðir þú að dansa? „Ég
byrjaði að dansa pínulítil, á leikskóla-
aldri.“
afrek vikunnar? „Ótrúlega vel
heppnað Reykjavík Dance Festival.“
Hvar líður þér best? „Heima í sófanum
mínum.“
Er mikill áhugi á dansi á íslandi? „Já,
og hann eykst með hverju árinu. Ég á von
á að við höfum slegið enn eitt aðsókn-
armetið á Reykjavík Dance Festival.
Hingað til er búið að vera troðfullt á allar
sýningar. Það er gott að finna fyrir þessari
jákvæðu orku og áhuga á danslistinni.“
Hvernig dans finnst þér skemmti-
legastur? „Ég er alæta, erfitt að hólfa
niður eitthvað ákveðið.“
Hvort er skemmtilegra að dansa
eða leika? „Það er skemmtilegra að
dansa.“
Átt þú þér fyrirmynd? „Já, mömmu
mína. Sterk kona sem hefur farið sínar
eigin leiðir.“
Hvað er fram undan? „Íslenski
dansflokkurinn og Erna Ómars á
Keðju-Reykjavík í október.“
maður dagsins
kjallari
„Ekkert sérstaklega.“
inGi tandri traustason
36 ÁRA ATViNNuLAuS
„Já, já.“
Pétur Guðmundsson
34 ÁRA GRAFÍSKuR HöNNuðuR
„Möller átti að vera inni. Hann á svo
mikið óunnið sem er á góðri leið hjá
honum.“
marGEir Eiríksson
65 ÁRA yFiRVÉLSTJÓRi
„Mér líst bara vel á þau.“
rÓsi Árnason
77 ÁRA ELLiLÍFEyRiSÞEGi
„Ég er löngu hættur að fylgjast með
þessu.“
Árni Pétur arnarsson
21 ÁRS öRyGGiSVöRðuR
eRtu ánægð/uR með RáðheRRasKiptin?
dómstóll götunnar
föstudagur 8. september 2010 umræða 19
mótmælakvartett Það var fámennur en nokkuð öflugur hópur mótmælenda sem beið ríkisstjórnarinnar að loknum fundi í
Stjórnarráðinu í gær. Mótmælin beindust gegn fátækt í þetta skiptið. Vel fór á með ráðherrum og mótmælendum jafnvel þótt
málefnið væri í eðli sínu viðkvæmt. mynd siGtryGGur ari jÓHannsson
jóhann
hauksson
blaðamaður skrifar
Bjarni Benedikts-son, formaður
Sjálfstæðisflokksins,
lætur yfirhrunkvöðul-
inn einnig berja sig til
hlýðni.