Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Síða 20
Níðþungur Polanski
KlassíK í
sundhöllinni
Hið vinsæla sundbíó RIFF fer fram
föstudagskvöldið 24. september í
Sundhöll Reykjavíkur. Þar verður
sýnd myndin Some Like It Hot frá
árinu 1959 með Marilyn Monroe
í aðalhlutverki. Gestir geta fengið
sér sundsprett á meðan þeir horfa á
myndina en auk þess verður efnt til
sérstaks „trópikal partís“ á meðan
á sýningu myndarinnar stendur, en
sandi og pálmatrjám verður komið
fyrir í Sundhöllinni og verða föngu-
legar dansmeyjar á svæðinu, auk ex-
ótískra ávaxtadrykkja.
nýjar sýningar
í listasafni
reyKjavíKur
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnar-
húsi næstkomandi fimmtu-
dag, 9. september, kl. 17. Þetta
eru Indian Highway – Skjáverk
í indverskri samtímalist og sýn-
ing Magnúsar Helgasonar í D
salnum. Á sýningunni Indian
Highway er ljósi varpað á þró-
un indversks samfélags með
26 skjáverkum eftir indverska
listamenn, sem allir eru fæddir á
áttunda áratug síðustu aldar. Yfir-
skrift sýningar Magnúsar Helga-
sonar er: Ég er ekki safnhaugur,
ég er ánamaðkur – Garðyrkju-
störf með málningu, en verk hans
mótast af röð tilviljana, sem eru
færð í stílinn til að ná fram rétta
yfirbragðinu.
styrKja
reyKjadal
Fjölmargir landsfrægir listamenn
munu leggja dvalarheimilinu
Reykjadal í Mosfellsdal lið á fimmtu-
dag þegar haldnir verða styrktar-
tónleikar. Fram koma meðal annars
Diddú, Hafdís Huld, Gildran, Berm-
úda, Íris Hólm og dúettinn Hljómur
svo einhverjir séu nefndir. Tónleik-
arnir eru partur af styrktarátaki sem
hefur staðið yfir í sumar þar sem
safnað er fé til þess að tryggja rekst-
ur Reykjadals í vetur. Þar dvelja fötl-
uð börn og ungmenni á aldrinum 5
til 23 ára. Miðaverð er 1.500 krónur
og hefjast tónleikarnir klukkan 20.00
í Reykjadal.
20 fókus 8. september 2010 miðvikudagur
ÓsKir til handa aKureyringum
Á Alþjóðadegi læsis, miðvikudaginn 8. september, verður
opnuð sýning í Gallerí Ráðhúsi í bæjarstjórnarsalnum á
4. hæð í ráðhúsinu á Akureyri. Þá er almenningi boðið að
koma frá klukkan 8.15 – 16.00 og skrifa eða teikna óskir sínar
handa Akureyringum fram til ársins 2015. Sýningin mun
standa fram til áramóta og að fimm árum liðnum verða
óskirnar teknar fram til skoðunar. Öllum er velkomið að
koma og mega óskirnar vera fleiri en ein og fleiri en tvær.
hvað heitir lagið?
„En mér finnst ef að miðað er
við þig, að menn séu komnir
af flóðhestum en ekki öpum.“
svar: Feitar konur – kátir piltar
skrifborðslöggurnar Allen Gamble (Will Ferrell) og Terry Hoitz (Mark Wahlberg) skrifa skýrslur og sinna
pappírsvinnu fyrir svölu löggurnar á
lögreglustöðinni. Þeirra tækifæri til
að komast af botni fæðukeðjunnar
kemur þegar þeir rannsaka vafasama
kaupsýslumanninn David Ershon
(Steve Coogan). Sú rannsókn gengur
þó ekki eðlilega fyrir sig og gera þeir
félagar sig margsinnis að athlægi.
Adam McKay hefur leikstýrt
nokkrum frábærum myndum með
Will Ferrell undanfarin ár og má þar
helst nefna Anchorman: The Legend
of Ron Burgundy, sem er fyrir löngu
orðin klassísk. Það er ekki hægt að
segja að The Other Guys nái sömu
hæðum, en hún er vissulega mjög
fyndin á köflum þó svo að söguþráð-
urinn sé að mestu leyti kjaftæði og
virkilega óáhugaverður.
Will Ferrell er að venju fyndinn í
sínu hlutverki og eru flest fyndnustu
atriði myndarinnar tengd honum og
hans persónu, sem hefur vægast sagt
óvenjulega forsögu. Mark Wahlberg
er ágætur en er þó mest í því að væla
yfir hversu slæmt líf hans er orðið og
er oft erfitt að átta sig á því hvort hann
eigi að vera hetja eða lúði.
Steve Coogan er ekkert sérlega
fyndinn og minnir einna helst á
grannan Gordon Brown. Hans per-
sóna hafði engan sjarma eða aðdrátt-
arafl og voru flest hans atriði leiðinleg.
Samuel L. Jackson og Dwayne John-
son eiga frábærar innkomur í upphafi
myndarinnar sem súperlöggurnar
sem Ferrell og Wahlberg líta svo upp
til og gaman er að sjá Michael Keaton
í hlutverki lögreglustjórans. Að öðru
leyti er leikarahópurinn að mestu
leyti skipaður sömu leikurum og í
fyrri myndum Adams McKay.
Fyrri helmingur The Other Guys
er ótrúlega fyndinn en eftir það ligg-
ur leiðin niður á við. Þá er grínið orð-
ið þreytt og eftir stendur ruglingsleg-
ur söguþráður sem enginn mun hafa
áhuga á. Henni er þó ekki ætlað að
vera tímamótakvikmynd. Hún á ein-
ungis að vera fyndin og það er hún í
u.þ.b. klukkutíma.
Jón Ingi Stefánsson
the other guys
Leikstjóri: Adam McKay.
Aðalhlutverk: Will Ferrell, Mark
Wahlberg, Steve Coogan, Michael
Keaton, Eva Mendes, Damon Wayans
Jr., Rob Riggle, Samuel L. Jackson,
Dwayne Johnson.
kvikmyndir
LÚÐALEGT
löggulíf
góðir vinir Allen
og Terry á góðri stund.
Þegar ævisagnaritari fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands finnst
látinn vantar einhvern til að klára
verkið. Ungur rithöfundur frá Eng-
landi, leikinn af Ewan McGreg-
or, er fenginn til að klára bókina
og honum sagt að ekki sé mikið
eftir af henni. Hann ferðast því til
Bandaríkjanna þar sem forsætis-
ráðherrann fyrrverandi, leikinn af
Pierce Brosnan, býr ásamt konu
sinni, leikinni af Oliviu Williams, í
lúxushúsnæði á afskekktri eyju.
Fljótlega eftir að hann kem-
ur þangað fer hann að gruna að
ekki sé allt með felldu en á meðan
hann á að vera að skrifa bókina er
mikið deilt á forsætisráðherrann
fyrir að hafa samþykkt pynting-
ar afganskra hermanna á breskri
grund. Fer rithöfundurinn ungi
að rannsaka málið jafnhliða því
að reyna að skrifa bókina auk þess
sem hann nær góðu sambandi við
konu forsætisráðherrans sem er
ekki öll þar sem hún er séð.
Það verður seint sagt að The
Ghost Writer sé eitthvert gaman-
efni enda á hún ekki að vera það.
Mér finnst ég taka vægt til orða
þegar ég segi að myndin sé níð-
þung því öll er hún grámyglu-
leg með alvarlegum leikurum
sem reyna til hins ítrasta að vera
eins alvarlegir og hægt er í þess-
ari mynd. Nánast út alla myndina
er annaðhvort rigning eða rok auk
þess sem ekki einn einasti tónlist-
arbútur heyrist þá rúmu tvo tíma
sem myndin er í gangi.
Hún er samt afskaplega vel
leikin og vel skrifuð. Þokki Ewans
McGregors á skjánum er alltaf vel
séður og þá gerir Pierce Brosnan
vel sem forsætisráðherrann fyrr-
verandi. Sá sem ætlar að sjá The
Ghost Writer verður að vera tilbú-
inn að fylgjast vel með og ekki láta
glepjast af stiklum úr myndinni,
þær gefa gjörsamlega kolranga
mynd af því sem svo sést á skján-
um.
Þetta kannski hljómar voða
neikvætt en myndin er ekki vond.
Hún er þung en auðvitað þurfa
ekki allar myndir að vera gerðar
af Will Ferrell eða Farrelly-bræðr-
um. Polanski gerir vel með þessa
fínu mynd sem unnendur „alvöru“
bíómynda ættu að vera nokkuð
ánægðir með.
Tómas Þór Þórðarson
the ghost
Writer
Leikstjóri: Roman Polanski
Aðalhlutverk: Ewan McGregor, Pierce
Brosnan, Olivia Williams, Kim Cattrall.
kvikmyndir
Stórfínn
Ewan McGreg-
or er alltaf
sjarmerandi.