Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Page 22
22 úttekt umsjón: símon örn reynisson simon@dv.is 8. september 2010 miðvikudagur
lönd heimsinsDV tók saman lista yfir þau tíu lönd sem hættulegast er að ferð-ast til. Á listanum er tekið tillit
til morð- og glæpatíðni, átaka í
viðkomandi landi og auðvitað
hættunnar sem gæti stafað af
náttúruhamförum. En tölur eru
auðvitað ekki allt, því mestu
máli skiptir að nota hyggjuvitið
og fara varlega.
Sómalía
Sómalía trónir á toppi listans sem hættulegasta land heims í dag. Stríðsherrar og
skæruliðar berjast um yfirráð í landinu, en þar hefur staðið yfir borgarastyrjöld
frá árinu 1991. Ekki bætir úr skák að þar er allt krökkt af sjóræningjum, en upp-
gangur þeirra varð í kjölfar flóðbylgja sem gerðu út af við stærsta hluta útgerða til
fiskveiða við strendur landsins. Þessir sjóræningjar hafa vakið athygli fyrir skips-
og mannrán, bæði á láði og legi. Glæpatíðni í landinu er mjög há, en átök á milli
íslamskra öfgahópa og ríkishers landsins eru tíð. Margar ríkisstjórnir hafa gefið út
viðvörun gegn ferðum þangað, þar sem áréttað er að best sé að sleppa slíkri för.
Morðtíðni á hverja 100.000 íbúa: Liggur ekki fyrir
HÆttUleGUStU
Haítí
Haítí hefur lengi talist fremur hættulegur stað-
ur, en í kjölfar uppreisnar árið 2004 varð ástand-
ið þar mjög óstöðugt og mikið hefur verið um
erjur á milli fylgjenda mismunandi stjórnmála-
afla. Jarðskjálftinn sem varð í janúar á þessu ári
bætti gráu ofan á svart og grunnstoðir í landinu
voru í rúst. Aðeins hluti af íbúum landsins hefur
aðgang að hreinu vatni og nauðsynjum. Helstu
hætturnar fyrir ferðamenn auk þessa eru rán,
ofbeldisfullir glæpir og hin almenna lögleysa
sem fylgir oft náttúruhamförum. Höfuðborgin
Port-Au-Prince er glæpahrjáð og mikið er um
morð og mannrán þar.
Morðtíðni á hverja 100.000 íbúa: Liggur
ekki fyrir
Jamaíka
Stundum er sagt að Jamaíka sé tveir
ólíkir heimar. Annar heimurinn
samanstendur af fullkomum strönd-
um og nærri því vernduðu umhverfi
fyrir ferðamenn. Hinn heimurinn er
sóðaleg fátækrahverfi í borgum þess-
arar litlu eyju. Þar fara glæpagengi
með völdin, beint og óbeint. Tveir af
stærstu stjórnmálaflokkunum hafa
bein tengsl við glæpagengin í land-
inu. Ekki er að sjá að yfirvöld í land-
inu séu að ná tökum á ástandinu því
morðum þar hefur fjölgað ár frá ári.
Af hverjum hundrað þúsund íbúum
í landinu eru 58 myrtir.
Morðtíðni á hverja
100.000 íbúa: 58
Simbabve
Meðalmaðurinn í Simbabve getur búist við því að ná 44 ára aldri. Meðalævi íbúa í landinu
er ein sú lægsta í heiminum. Algjört efnahagslegt hrun varð í landinu í kjölfar þess að land-
eignir hvítra manna voru gerðar upptækar og þeim dreift að nýju. Við það féll landbúnaðar-
framleiðsla landsins saman og efnahagur landsins hefur ekki komist á réttan kjöl eftir það.
Gjaldmiðillinn er verðlaus, en bandaríski dollarinn er mikið notaður í stað hans. Sjúkdómar
og hætta á vopnuðum átökum eru hluti háskans, ásamt hárri morð- og glæpatíðni.
Morðtíðni á hverja 100.000 íbúa: 49