Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Page 23
miðvikudagur 8. september 2010 úttekt 23
lönd heimsins
HÆttULeGUStU
PakiStan
Harðar og blóðugar deilur á milli talíbana og stjórn-
valda eru tíðar í Pakistan. Saga landsins hefur að geyma
valdarán, pólitísk morð og uppþot. Vestræn fyrirtæki á
borð við hótelkeðjur hafa orðið skotspónn talíbana og
hið sama gildir um vestræna ferðamenn. Á dögunum
gengu hrikaleg flóð yfir landið sem ollu miklum skaða
á grunnstoðum landsins. Þúsundir týndu lífinu í flóð-
unum. Það getur þó verið göfgandi reynsla að ferðast
um landið, bæði vegna ríkrar sögu landsins og fjölda
minja og vegna þess hve fáir kjósa að sækja það heim.
Það orð fer af Pakistönum að þeir séu ein vingjarnleg-
asta þjóð í heimi.
Morðtíðni á hverja 100.000 íbúa: 6,86
Srí Lanka
Borgarastyrjöld á milli aðskilnaðarsinna og ríkisstjórnarinnar geisaði í
rúm 26 ár alveg til ársins 2009. Tamiltígrar vildu stofna sitt eigið ríki í kjölfar
strangra laga um tungumálakunnáttu og trúmál, en kröfurnar um hið fyrra
gátu þeir ekki uppfyllt. Borgarastyrjöldinni lauk, en íbúar landsins glíma
enn við afleiðingar stríðsins. Deilur gætu blossað upp að nýju nærri fyr-
irvaralaust. Fáir ferðamenn féllu í valinn í stríðinu, en nokkrir ferðamenn
særðust þó í sprengjuárásum í landinu.
Framtíð landsins gæti verið björt eftir hina löngu borgarastyrjöld. Ódýrt er
að ferðast um landið og náttúrufegurðin er mikil, þrátt fyrir að mörg svæði
séu sködduð eftir langt stríð. Það er þó full ástæða til að hafa varann á í
ferðum um landið.
Morðtíðni á hverja100.000 íbúa: 6,69
SUðUr-
afríka
Tíðni morða og glæpa er
ein hin hæsta í heiminum í
Suður- Afríku. 20. öldin ein-
kenndist af mismunun á milli
svartra og hvítra íbúa í Suð-
ur-Afríku og mikil fátækt hefur
stuðlað að þessari háu glæpa-
tíðni. Samkvæmt tölum frá Sam-
einuðu þjóðunum um glæpi í
heiminum á árunum 1998-2000,
var hæsta tíðni nauðgana og lík-
amsárása þar í landi, en um 52
voru myrtir daglega. Helst ber
að forðast ferðir að næturlagi
og á afviknum stöðum, en í slík-
um tilvikum eiga flestir ofbeld-
isglæpir sér stað. Landið dreg-
ur þó marga að, vegna fagurrar
náttúru og ríks menningararfs,
og margir hafa ferðast klakklaust
um landið.
Morðtíðni á hverja
100.000 íbúa: 37
aLSír
Borgarastyrjöld var í Alsír alveg fram undir lok
9. áratugarins, þar sem rúmlega 160.000 manns
týndu lífi. Átökin hjöðnuðu og regla komst á í
landinu. Þrátt fyrir lok stríðsins eru enn átök í Alsír.
Hópar herskárra múslima með tengsl við al-Kaída
hafa verið með starfssemi í landinu frá árinu 2002.
Fjöldi fólks hefur látið lífið í sprengingum og
hryðjuverkaárásum sem þessir hópar hafa staðið
fyrir. Á þessu ári var til að mynda 78 ára gamall
franskur ferðamaður tekinn af lífi, er hann var
í haldi íslamista. Hryðjuverka árásum og of-
beldisverkum hefur þó aðallega verið beint
gegn opinberum stofnunum í landinu og
starfsmönnum þeirra. Hóparnir halda sig
við ákveðin svæði í Alsír og því er hættan
ekki um allt landið.
Morðtíðni á hverja
100.000 íbúa: 0,64
BraSiLía
Glæpir á götum úti eru mjög stórt vandamál í Brasilíu og þar er morðtíðnin með
því hæsta sem gerist í heiminum. Hún hefur lækkað seinustu ár, en er enn mjög
há. Mikið er um átök á milli gengja á strætum borga í landinu og bæði heimamenn
og ferðamenn verða fyrir barðinu á þeim. Hættulegustu svæðin í landinu eru í
kringum landamæri Brasilíu og í úthverfum borganna. Úthverfin eru oft fátækra-
hverfi þar sem glæpagengi ráða för. Talið er að bróðurpartur ofbeldisglæpa séu
afleiðingar eiturlyfjaneyslu, en umfangsmikil kókaínframleiðsla er víða í landinu.
Morðtíðni á hverja 100.000 íbúa: 25,2
kóLUmBía
Tíðni ofbeldisglæpa í Kólumbíu var ógn-
arhá á áttunda og níunda áratug sein-
ustu aldar, en seinustu fimm árin hefur
ástandið batnað gríðarlega. Eiturlyfja-
stríðunum lauk að mestu árið 1993 með
morðinu á Pablo Escobar, og á seinustu
árum hefur bæði landsframleiðsla hækk-
að og tíðni glæpa lækkað. Morðtíðn-
in hefur lækkað um helming síðan árið
2000, þegar hún var mældist næsthæst
í heiminum. Verulega hefur dregið úr
starfsemi skæruliðahreyfinga, en hreyf-
ingar á borð við byltingarher Kólumbíu
(FARC) eru þó enn starfræktar á afskekkt-
um svæðum landsins. Þessar hreyfing-
ar standa enn í mannránum til að fjár-
magna starfsemi sína, ásamt því að vera
stórtækar í eiturlyfjaviðskiptum.
Morðtíðni á hverja
100.000 íbúa: 35