Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Side 24
Hverjir fara í 2. deild? Í kvöld, miðvikudag, kemur í
ljós hvaða lið leika í annarri deild að ári. Þá fara fram seinni undanúrslitaleik-
irnir í úrslitakeppni 3. deildar karla. Tindastóll mætir Árborg á Sauðárkróki og
Dalvík/Reynir tekur á móti KB fyrir norðan. Stólarnir eru í kjörstöðu eftir að
hafa unnið fyrri leikinn, 3-0, á útivelli og eins eru norðanmenn í fínum málum
gegn Reykjavíkurliði KB eftir 1-0 sigur í Breiðholtinu. KB og Árborg eru bæði
hálfgerð varalið, KB hjá Leikni og Árborg hjá Selfossi. Margir muna kannski
eftir liði KB en það mætti stórliði KR í bikarkeppninni fyrir tveimur árum og
tapaði með aðeins einu marki í Frostaskjólinu.
arnór svekktur Sóknarmaðurinn stórefnilegi, Arnór Smára-
son, sem leikur með Esbjerg í Danmörku, sagði við danska netmiðilinn bold.
dk að hann væri mjög svekktur að hafa misst af landsleik Íslands gegn Dan-
mörku. Arnór var í byrjunarliði Íslands gegn Lichtenstein í ágúst en var síð-
an ekki valinn í hópinn og lék með U21 árs liðinu í Tékklandi. „Ég var mjög
svekktur þegar ég komst að því að ég hefði ekki verið valinn,“ sagði Arnór
við bold.dk. „En ég átti í kjölfarið gott samtal við landsliðsþjálfarann, sem út-
skýrði málið vel fyrir mér, og það er allt í fína. Sem betur fer er fullt af leikjum
eftir í keppninni og ég verð bara að leggja hart að mér.“
MOlar
Í strÍði við trapattoni
n Darron Gibson, írski miðjumað-
urinn hjá Manchester United, á
í miklum deilum við landsliðs-
þjálfara Írlands,
Giovanni
Trapattoni.
Hinn aldni
þjálfari hef-
ur sagt Gibson
að hann verði
að yfirgefa
Manchester
United því hann
fái ekki að spila nægilega mik-
ið. Trapattoni valdi Gibson ekki
fyrir landsleikina gegn Armeníu
og Andorra en Írar hófu undan-
keppnina með 1-0 sigri. „Hvert á
ég að fara frá Manchester United?
Hjá hvaða klúbbi get ég bætt leik
minn meira en hjá Manchester
United? Stoke? Þótt ég fengi meira
að spila þar yrði ég ekkert endilega
betri,“ segir Darron Gibson reiður.
LiverpooL bauð fyrst
n Franski vængmaðurinn Florent
Malouda hefur upplýst að hann
hafi hafnað bæði Liverpool og Real
Madrid þegar
hann gekk í rað-
ir Chelsea í júlí
árið 2007. „Eftir
að Drogba skrif-
aði undir fór ég
oft á Stamford
Bridge. Þar voru
einnig Makel-
ele og Michael
Essien. Mér fannst að ef ég ætti að
spila á Englandi yrði ég að vera þar
sem mér liði vel því þannig gæti
ég mest bætt mig. Þannig að ég
sagði við forseta Lyon að ég vildi
frekar fara til Chelsea en Liverpool
og Real og bað hann um að redda
því,“ segir Florent Malouda.
rooney verður
ekki fyrirLiði
n Enska götublaðið Daily Mir-
ror greinir frá því að Sir Alex
Ferguson , knattspyrnustjóri
Manchester
United, hafi nú
bakþanka um
að gera Wayne
Rooney að
næsta fyrirliða
liðsins. Blað-
ið segist hafa
heimildarmann
sem segir Fergu-
son gríðarlega svekktan yfir vænd-
iskaupum Rooneys. „Sir Alex talaði
mikið um að hann ætlaði Rooney
fyrirliðastöðuna en nú hafa þau
plön farið út um gluggann,“ segir
heimildarmaðurinn, en Rooney
átti að taka við fyrirliðabandinu
þegar Gary Neville og Rio Ferdin-
and kveddu félagið.
svaraði ekki Í sÍmann
n Hinn eldhressi stjóri nýliða
Blackpool, Ian Holloway, upplýsti
að hann hafi ætlað sér framherj-
ann David Nug-
ent á lokadegi
félagaskipta-
gluggans. Það
heppnaðist þó
ekki því ekki
var hægt að ná
í Nugent þegar
mest á reyndi.
„Ef leikmað-
urinn hefði ekki týnst væri David
Nugent í okkar liði. Þegar það voru
tuttugu mínútur eftir af félaga-
skiptaglugganum vorum við búnir
að landa Nugent. En það gat eng-
inn náð í hann þannig hann gat
ekki skrifað undir samninginn
og því varð ekkert úr þessu,“ segir
Holloway.
24 spOrt UMSjón: TóMAS þóR þóRðARSoN tomas@dv.is 8. september 2010 miðvikudagur
Tiger Woods mun leika með
Bandaríkjunum gegn Evrópu í
Ryder -bikarnum sem fram fer á
Celtic Manor-vellinum í Wales 1. til
3. október. Woods hefur gengið af-
leitlega á mótum undanfarin miss-
eri og tókst því ekki að verða einn
af þeim átta sem sjálfkrafa kom-
ust í liðið. Hann var aftur á móti
einn af þeim fjórum sem fyrirliði
Bandaríkjanna í ár, Corey Pavin,
valdi. Auk Tigers valdi Pavin Stew-
art Cink, Zack Johnson og Rickie
Fowler.
Nánast frá því að Tiger Woods
gerðist atvinnumaður hefur hann
verið einn af þeim fyrstu, ef ekki
langfyrstur, til þess að tryggja sér
sæti í Ryder-liðinu. Fyrirliðinn
Corey Pavin segist þó ekkert hafa
hugsað til þess að Tiger hafi ekki
komist sjálfur í liðið.
„Það sem ég reyndi að gera
var að reyna að mynda mér engar
skoðanir fyrr en um þessa helgi,“
sagði Pavin um valið en leikmenn
hans voru uppteknir á lokaspretti
PGA-mótaraðarinnar um helgina.
„Ég vildi ekki vera að íþyngja sjálf-
um mér þannig að ég bara beið og
beið og beið. Tiger er einn af þeim
tólf sem voru valdir og verður lið-
inu jafnmikilvægir og hinir,“ segir
Pavin.
Woods hélt snögga ræðu um
valið þegar það var orðið ljóst og
þakkaði hann Pavin sérstaklega
fyrir að minnast á hversu vel hon-
um hefur gengið í Wales. „Ég hef
komið áður til Wales og spilað í
Walker-bikarnum. Ég hlakka mik-
ið til að fara með liðinu og vonandi
að koma með titilinn heim,“ segir
Tiger.
Bandaríkin eiga titil að verja en
þau hafa ekki unnið Ryder-bikar-
inn á evrópskri grund frá því 1993.
Heilt yfir hefur Evrópa haft vinn-
inginn undanfarin ár en Evrópa
hefur unnið fimm af síðustu sjö
Ryder -bikurum.
tomas@dv.is
Einn af fjórum síðustu í hópinn:
tiger vaLinn Í ryder-Liðið
Fær að vera með Tiger Woods leikur
með Bandaríkjunum í Ryder-bikarnum
þrátt fyrir afleitt gengi að undanförnu.
MyND AFP
Baráttan algjör
uppskeran engin
Ísland er án stiga eftir fyrstu tvo leik-
ina í undankeppni Evrópumótsins
sem fram fer í Póllandi og Úkraínu
árið 2012. Íslendingar töpuðu í gær-
kvöld fyrir Dönum á Parken í Kaup-
mannahöfn, 1-0, en mark heima-
manna skoraði Thomas Kahlenberg
á fyrstu mínútu í uppbótartíma. Úr-
slitin eru sárgrætileg fyrir íslenska
liðið sem barðist hatrammlega í
leiknum og átti skilið stigið sem það
hóf leikinn með. Íslendingar léku
betur og börðust meira en í langan
tíma. Uppskeran er þó því miður sú
sama og hefur verið í flestum leikjum
sem skipta máli, engin.
Áttu meira skilið
Það fór ekkert á milli mála að íslenska
liðið ætlaði að leyfa Dönum að halda
boltanum, vera skipulagt til baka og
sækja hratt fram. Sú taktík gekk líka
vel nær allan leikinn. Danir fengu
nokkur mjög góð færi en í ramm-
anum var Gunnleifur Gunnleifsson
óstöðvandi og ekki bara varði hann
allt sem kom á markið heldur hélt
hann einnig boltanum. Þrátt fyrir
nokkrar bagalegar og óhnitmiðaðar
vinstri fóta sendingar fram á við frá
varnarmönnum Íslands tókst liðinu
alla jafnan að spila boltanum ágæt-
lega út úr vörninni.
Í seinni hálfleik fékk Ísland kjörið
tækifæri til að skora. Birkir Már Sæv-
arsson, sem kallaður var inn í liðið
fyrir leikinn vegna meiðsla Grétars
Rafns, þeyttist þá upp hægri væng-
inn og var kominn upp að marki
Dana hægra megin áður en hann
vissi af. Því miður eins og hefur loð-
að við Birki fraus hann á ögurstundu
og reyndi skot úr þröngu færi í stað
þess að renna boltanum á dauðafrían
Gylfa Sigurðsson. Kolbeinn Sigþórs-
son átti einnig ágætisskot aftur fyrir
sig undir lokin sem minnstu munaði
að hitti rammann.
Þegar allir voru orðnir þokkalega
sáttir við jafntefli og fyrstu úrslit-
in gegn Dönum önnur en tap í 19 ár
kom reiðarslagið. Eftir misskilning í
vörninni, röð tilviljana og einskæra
óheppni lak laflaust skot Thomas
Kahlenbergs í netið á fyrstu mínútu
uppbótartíma. Grátlegt, glatað og
svekkjandi!
Eins og spark í punginn
„Við spiluðum vel varnarlega og
héldum hreinu í níutíu mínútur en
því miður dugði það ekki í dag,“ sagði
sársvekktur Ólafur Jóhannesson,
landsliðsþjálfari, í viðtali við Guð-
mund Benediktsson á Stöð 2 Sport
eftir leikinn. „Ég sagði við strákana
inni í klefa að við ættum að bera höf-
uðið hátt. Við spiluðum frábærlega,
héldum góðu skipulagi og allir lögðu
sig hundrað prósent fram. Í flestum
tilfellum myndi þetta duga,“ sagði Ól-
afur.
Aron Einar Gunnarsson var engu
minna svekktur þegar hann var tek-
Ísland þurfti að sætta sig við tap, 1-0, gegn
Danmörku á Parken í gærkvöldi í leik
liðanna í undankeppni EM 2012. Íslensku
strákarnir börðust eins og grenjandi ljón
en mark Thomas Kahlenbergs í uppbótar-
tíma kostaði Ísland eitt stig. Ísland er án
stiga eftir fyrstu tvo leikina í riðlinum.
TóMAS þóR þóRðARSoN
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
1-0 Thomas Kahlenberg (90.+1)
ByRjuNARlIðIð
Gunnleifur Gunnleifsson, Birkir Már
Sævarsson, Kristján Örn Sigurðsson,
Sölvi Geir Ottesen, Indriði Sigurðs-
son, Aron Einar Gunnarsson, Eggert
Gunnþór jónsson, Rúrik Gíslason,
Gylfi Þór Sigurðsson, jóhann Berg
Guðmundsson (Birkir Bjarnason
88.), Heiðar Helguson (Kolbeinn
Sigþórsson 75.).
óNoTAðIR
Árni Gautur Arason, Ragnar Sigurðs-
son, ólafur Ingi Skúlason, Veigar
Páll Gunnarsson, Arnór Sveinn
Aðalsteinsson.
danMörk 1
ísland 0