Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Blaðsíða 32
n Heil hersing af málurum hefur
unnið að því síðustu daga að mála
hús Karls Wernerssonar fjárfest-
is hvítt. Hús Karls, sem er einkar
glæsilegt einbýlishús í Engihlíðinni,
hefur orðið fyrir nokkrum árásum
frá bankahruninu haustið 2008.
Málningu var skvett á húsið í skjóli
nætur í nokkur skipti og hefur verið
fölbleik slikja á því æ síðan þrátt fyr-
ir að reynt hafi verið að gera húsið
drifhvítt aftur með því að mála það.
Nú virðist Karl
ætla sér að afmá
slikjuna með
öllu, slíkur er
fjöldinn sem
vinnur að því
að hreinsa
ummerkin
um árás-
ina af
hús-
inu.
KARL MÁLAR
FÖLBLEIKT HÚS
n Leiðari Morgunblaðsins á mánu-
daginn vakti verðskuldaða athygli.
Þar djöflaðist leiðarahöfundur
blaðsins á Ríkissjónvarpinu fyrir
það meðal annars að láta Jóhönnu
Vigdísi Hjaltadóttur fjalla um
hrunið. Slíkt þótti leiðarahöfundi
ekki heppilegt þar sem Jóhanna
er systir Erlendar Hjaltasonar,
forstjóra Exista, og kallaði við-
komandi Jóhönnu „systur Exista“.
Svo skemmtilega vill reyndar til að
sonur Erlendar var í sumarvinnu á
Mogganum í sumar og var und-
irmaður helsta leiðarahöfundar
Moggans, Davíðs Oddssonar, og er
því réttnefndur „sonur Exista“, sam-
kvæmt hugsuninni í leiðaranum.
Davíð er án vafa ofarlega í röðinni
yfir helstu gerendur hrunsins og
þeirra atburða sem bjuggu til jarð-
veginn fyrir það. Leiðarahöfundur
Moggans getur því með góðri sam-
visku hengt stimpilinn „Pabbi Ex-
ista“ eða jafnvel „Pabbi hrunsins“ á
Davíð ritstjóra því fáir
menn greiddu
götu stórbokka
þessa lands
betur en Davíð
með einka- og
græðgisvæðingu
íslensks samfé-
lags.
Deyr Icesave, deyr Landsbanki
en orðstír deyr aldregi!
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
VEÐRIÐ Í DAG KL. 15 ...OG NÆSTU DAGA
SÓLARUPPRÁS
06:04
SÓLSETUR
20:51
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
PABBI EXISTA
REYKJAVÍK
16/14
16/10
16/14
11/10
20/9
21/11
18/14
24/20
28/24
17/13
16/12
16/14
13/8
17/13
18/14
15/14
24/21
27/24
18/13
18/12
16/12
16/14
17/8
18/16
18/14
25/22
28/24
16/14
16/10
16/14
11/10
20/9
21/11
18/12
24/21
28/24
Fim Fös Lau Sun
vindur í m/s
hiti á bilinu
Stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Fim Fös Lau Sun
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Höfn
Reykjavík Egilsstaðir
Ísafjörður Vestmannaeyjar
Patreksfjörður Kirkjubæjarkl.
Akureyri Selfoss
Sauðárkrókur Þingvellir
Húsavík Keflavík
3-5
16/13
0-3
15/11
0-3
14/11
0-3
14/10
0-3
15/11
3-5
12/6
3-5
14/11
3-5
12/11
8-10
11/10
5-8
12/11
3-5
12/12
3-5
16/12
3-5
16/12
3-5
16/13
3-5
12/11
0-3
12/11
3-5
11/10
0-3
13/10
5-8
14/8
3-5
12/6
3-5
14/11
0-3
15/10
3-5
11/10
3-5
12/11
5-8
12/11
3-5
12/10
3-5
12/11
3-5
12/11
3-5
10/9
3-5
10/9
3-5
9/7
0-3
12/10
5-8
10/7
3-5
10/8
0-3
10/10
0-3
12/10
3-5
11/10
3-5
12/9
5-8
11/10
3-5
10/9
3-5
11/10
3-5
10/10
3-5
11/9
3-5
11/8
5-8
10/9
0-3
11/10
5-8
11/9
3-5
9/5
3-5
12/6
0-3
12/7
5-8
11/10
3-5
10/6
5-8
11/10
3-5
10/6
3-5
10/9
0-3
11/9
Mið Fim Fös Lau
hiti á bilinu
Kaupmannahöfn
hiti á bilinu
Osló
hiti á bilinu
Stokkhólmur
hiti á bilinu
Helsinki
hiti á bilinu
London
hiti á bilinu
París
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
Tenerife
hiti á bilinu
Alicante
VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA
16
15
16 15
14
14
13
14
18
18 13
16
6
3 3
8
6
16
7
6
5
8
105
8
Hitakort Litirnir
í kortinu tákna
hitafarið á landinu
(sjá kvarða)
BJARTAST NYRÐRA – HLÝJAST VESTRA
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Þó
búast megi við skúraveðri í
höfuðborginni sem vissulega
dregur úr gæðum veðursins
verður afskaplega hlýtt
eða 16 til 17 stig þegar
best lætur. Það verður
áfram ákveðinn vindur
af austri eða suðaustri, þetta 5-8 m/s en
hvassara á sjónum.
LANDSBYGGÐIN Líkt og verið hefur
verður áfram allhvasst með suðurströnd
landsins en það veður hefur valdið Eyjaferj-
unni Herjólfi nokkrum vandræðum með
siglingar í Landeyjahöfn. Ég á hins vegar
von á að í dag verði heldur hægari vindur
þar en verið hefur. Annars staðar verður
vindur hægari af austri eða suðaustri en á
Vestfjörðum slær fyrir norðaustanátt. Almennur
vindhraði verður 5-10 m/s, stífastur úti við austur-
og norðausturströndina. Það má búast við skúrum
allvíða í dag, síst þó á norðanverðu landinu þar
sem verður þurrt og skýjað með köflum. Hitinn á
landinu verður þegar best lætur á bilinu 12-20 stig,
hlýjast til landsins á Vesturlandi og síðan jafnvel
einnig til landsins vestan til á Suðurlandi.
NÆSTU DAGAR OG HÆSTI HITINN Í SUMAR Eftir því sem
líður á daginn dregur úr vindi sunnanlands og smám saman
tekur við hægviðri á landinu. Ekki er að sjá neitt kuldakast
þó heldur dragi nú úr mestu hlýindunum, en hitastigið á
landinu hefur verið með afbrigðum hátt í september. Raun-
ar svo hátt að hæsti hitinn í sumar og einnig sá næsthæsti
varð nú í september, þann fjórða. Þá fór hitinn í 24,9 stig á
Möðruvöllum í Hörgárdal ekki langt frá Akureyri og 24,7
stig á Mánárbakka á Tjörnesi. Fram að því hafði orðið hlýjast
í 25. júlí eða 24,6 stig.
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.VEÐRIÐ MEÐ SIGGA STORMI siggistormur@dv.is
Ein merkilegasta frétt síðari ára á
Íslandi er tvímælalaust þegar DV
sagði frá því árið 2005 að Björgólfur
Thor Björgólfsson hefði fengið synj-
un á gullkortið sitt í Bónusvídeó við
Laugalæk.
Björgólfur hafði ætlað að kaupa
sér sjeik og súkkulaði en svo fór að
kortinu hans var hafnað og mamma
hans, Þóra Hallgrímsson, þurfti
að koma í sjoppuna og greiða fyr-
ir kruðer íið. Með sögunni fylgdi að
Björgólfur hefði komið í sjoppuna á
gulllituðum jeppa. Einnig kom fram
að Björgólfur hefði farið út í gullbíl-
inn og leitað að klinki til að greiða
fyrir nammigottið en ekki haft erindi
sem erfiði. Gullkortið var því látið
í pant þar til móðir Björgólfs kom
í sjoppuna og bjargaði syni sínum
undan ísskuldinni og færði honum
kortið aftur.
Á þessum tíma var framhalds-
fréttin af málinu hins vegar aldrei
sögð. Hún er sú að þessi frétt ærði
Björgólf Thor svo mjög að hann
hringdi tæplega fimmtíu sinnum
í tiltekinn mann hjá fjölmiðlafyr-
irtækinu 365, sem átti og gaf út DV
á þeim tíma, til að kvarta undan
henni.
Þetta er merkilegt í ljósi þess að
Björgólfur hefur nánast aldrei haft
fyrir því að hringja og kvarta undan
fréttaflutningi fjölmiðla þegar fjall-
að er um alvarlegri mál sem tengjast
honum. Umræða um skuldaupp-
gjör, skuggastjórnun, afskritir, maf-
íutengsl í Rússlandi, Landsbankann
og Icesave fær ekki eins mikið á Björ-
gólf og saklaus frétt um að kortinu
hans hafi verið synjað þegar hann
keypti sér gotterí í hverfissjoppunni
fyrir 500 kall.
Símtölin fimmtíu sýna því hvað
Björgólfi er umhugað um ímynd
sína, jafnvel þegar kemur að
tittlinga skít eins og að líta út fyrir að
eiga ekki aur fyrir sjeik. Slíkt getur
Björgólfur ekki þolað.
Fjárfestirinn hringdi oft í starfsmann 365 vegna fréttarinnar um ísinn og gullkortið:
ÍSFRÉTTIN ÆRÐI BJÖRGÓLF
Æfur Björgólfur Thor varð
æfur þegar sögð var frétt um
að hann ætti ekki fyrir ís.