Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Síða 2
2 fréttir 29. október 2010 föstudagur Daníel ernir kominn heim n Hjónin Dagbjört Þóra Tryggva- dóttir og Jóhann Árnason létust í bílslysi í Tyrklandi. Hjónin létu eftir sig sex mánaða son, Daníel Erni Jóhannsson, sem var með í bílnum og slapp ómeidd- ur. Daníel Ernir er kominn til Íslands og dvelur hjá móðurbróður sínum, Gunnari Tryggvasyni. Gunnar seg- ir foreldra Daníels hafa bjargað lífi hans og að það sé honum ljúf skylda að annast lítinn frænda sinn meðan annað hefur ekki verið ákveðið. Daníel slapp án allra meiðsla. Gunnar segir það foreldrum hans að þakka. „Bíllinn er tiltölulega illa far- inn og við fengum að vita að þau hafi farið fljótt og þjáðst lítið. Daníel slapp hins vegar við öll meiðsl og á honum fannst ekki skráma. Hann á foreldrum sínum lífið að launa. Tómas ingi Tapaði n Þetta er búið að vera mjög erfitt fjárhagslega og ekki síst andlega,“ segir Tómas Ingi Tómasson, athafnamaður og knatt- spyrnuþjálfari. Tómas Ingi tapaði rúmum níu milljónum króna þegar forsvarsmenn Choose Holding A/S, handhafar rekstursleyfis Build-A-Bear-versl- unarkeðjanna á Norðurlöndum, ákváðu skyndilega að hætta við að opna útibú hér á landi. Tómas Ingi og eiginkona hans, Helga Lund, ákváðu að stefna fyrirtækinu og á dögunum kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þess efnis að höfða þurfi málið í Danmörku með tilheyrandi kostnaði fyrir Tóm- as og eiginkonu hans. skulDasúpa sigurjóns n Danskt dreifingar- og framleiðslufyrirtæki í eigu Sigurjóns Sighvatssonar kvikmyndaframleiðanda, Scanbox Entertainment Group, skuldaði fjárfest- ingarbankanum Straumi-Burða- rási tæpa 6 milljarða króna við bankahrunið árið 2008. Skuldin er tilkomin vegna yfirtöku Sigurjóns á fyrirtækinu sumarið 2007. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Sonur Sigurjóns, Þórir, segir að félagið sé ennþá í rekstri og að greitt sé af skuldunum. „Félagið er ennþá í rekstri. Við erum í stjórn, ég og pabbi. Straumur er með okk- ur í þessu. Félagið er bara að sýna kvikmyndir í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð,“ segir Þórir og bætir því við aðspurður að félagið líkist íslenska afþreyingarfyrirtækinu Senu. 2 3 1 „KONUR ERU ÞERNUR KARLA“ Á MÖMMU OG PABBA LÍFIÐ AÐ LAUNA HARMLEIKURINN Í TYRKLANDI: MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 25. – 26. OKTÓBER 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 123. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 MÆLTI MEÐ 100 MILLJARÐA STÖÐUTÖKU n MINNISBLAÐ HEIÐARS MÁS LÝSIR OPERATION SUPERSHORT KVENNAFRÍ- DAGURINN: FRÉTTIR 2–3 FRÉTTIR 13 ÍRANA VÍSAÐ ÚR LANDI: „HELD AÐ HANN EIGI EKKI EFTIR AÐ LIFA ÞETTA AF“ MÓTMÆLT FYRIR UTAN: LÍFVERÐIR Á FUNDI ASÍ TAPAÐI MILLJÓNUM Á BÖNGSUM TÓMAS INGI FÉKK EKKI BUILD-A-BEAR: FRÉTTIR 6 FRÉTTIR 8 FRÉTTIR 16 n DANÍEL ERNIR KOM HEIM UM HELGINA n FORELDRAR HANS TÓKU SÉR TÍMA Í AÐ VELJA VANDAÐAN STÓL n „ÞAU VORU AFAR ÁBYRGIR FORELDRAR“ n EKKI ÁKVEÐIÐ HVER FER MEÐ FORSJÁ DANÍELS n LJÚF SKYLDA AÐ ANNAST HANN, SEGIR MÓÐURBRÓÐIR HANS VILL AÐ ÍSLAND BIÐJIST AFSÖK- UNAR FRÉTTIR 10–12 6 fréttir 25. október 2010 mánudagur F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0 O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6 ÞÆGILEGIR & LÉTTIR www.gabor.is Sérverslun með Stærðir 35-42 Verð kr. 16.495.- „Forsetinn tók okkur afskaplega vel og lagði við hlustir. Væntanlega hef- ur hann aldrei lent í því að fá svona marga brotna við borðið,“ segir Guð- mundur Guðlaugsson, fulltrúi í gras- rótarsamtökunum Bót, samtökum um bætt samfélag gegn fátækt og mis- munum þegnanna. Fulltrúar hópsins gengu á fund Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Íslands, síðastliðinn miðvikudag þar sem umfjöllunarefn- ið var fátækt á Íslandi. Samtökin ákváðu að freista þess að fá fund með Ólafi til að ræða við hann um ákvæði í Stjórnarskrá Íslands sem heimila forseta Íslands að taka til varna fyrir þjóðina þegar hætta steðj- ar að þegnunum. „Við vísum í 25. greinina sem kveð- ur á um að hann geti lagt beint fyrir þingið frumvarp,“ segir Guðmundur og bætir við að frumvarpið myndi meðal annars fela í sér að reiknuð yrði út framfærsla, svipað og gert er víðs vegar í Evrópu, og tryggt að enginn Íslendingur yrði undir þeim mörk- um sem duga til nauðþurfta. „Það eru hinir og þessir hagsmunaaðilar sem eru að reikna þessa framfærslu. Okkar vilji er sá að þetta verði gert vísinda- lega þannig að það sé tryggt að allir Ís- lendingar verði yfir þessum mörkum,“ segir Guðmundur. Aðspurður hvernig forsetinn hafi tekið þessari beiðni segir Guðmundur að hann hafi verið fullur skilnings. „Ólafur ætlaði að hugsa málið og tók undir að það væri skelfingarástand. Hann gaf engin loforð en ég þykist vita að hann sé þegar byrjaður að tala við menn.“ Guðmundur segir að fátækt á Íslandi sé orðin að raunverulegu vandamáli og það sé lögbundið hlut- verk sveitarfélaga að tryggja fólki nauðþurftir. „Það er alveg skeflilegt ástand og skelfilegt að ríkið og sveit- arfélög skuli vísa á hjálparstofnanir til að uppfylla sínar lögbundnu skyldur.“ einar@dv.is Vilja að forsetinn beiti sér beint gegn fátækt á Íslandi: „Skelfilegt ástand“ Funduðu með forsetanum Hópurinn gekk á fund með forseta Íslands. Guðmundur er fjórði frá hægri. „Þetta er búið að vera mjög erfitt fjár- hagslega og ekki síður andlega,“ segir Tómas Ingi Tómasson, athafnamað- ur og knattspyrnuþjálfari. Tómas Ingi tapaði rúmum níu milljónum króna þegar forsvarsmenn Choose Holding A/S, handhafar rekstrarleyfis Build- A-Bear-verslanakeðjanna á Norður- löndum, ákváðu skyndilega að hætta við að opna útibú hér á landi. Tóm- as Ingi og eiginkona hans, Helga Lund, ákváðu að stefna fyrirtækinu og á dögunum kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þess efnis að höfða þyrfti málið í Danmörku með tilheyrandi kostnaði fyrir Tómas og eiginkonu hans. Smáralind varð fyrir valinu Það var árið 2006 að Tómas Ingi og eiginkona hans settu sig í sam- band við höfuðstöðvar fyrirtækisins í Bandaríkjunum með það fyrir aug- um að opna verslun á Íslandi. Var þeim hjónum bent á að snúa sér til handhafa rekstrarleyfis fyrir Norður- löndin, Choose Holding A/S, sem tók beiðninni vel. Tómas fór meðal ann- ars á fund tveggja fyrirsvarsmanna fyrirtækisins, framkvæmdastjórans Sörens Nielsens og fjármálastjórans Johns Kristensens. Í stefnu Tómasar sem lögð var fyrir héraðsdóm kem- ur fram að þeir höfðu fullan hug á að vinna með þeim að opnun verslun- ar hér á landi. Hafi gróf fjárhagsáætl- un verið sett upp og Tómasi og eig- inkonu hans falið að finna hentugan stað fyrir verslunina. Undirbúnings- vinna hófst í mars 2007 og fékkst vil- yrði frá Smáralind um að opna versl- un þar. Til stóð að opna verslunina í október 2008. Sagði upp starfinu Svo virðist sem snurða hafi hlaupið á þráðinn í júní 2008 þegar forsvars- menn Choose Holding A/S fóru fram á að auka þyrfti hlutafé óstofn- aðs félags, sem halda átti utan um rekstur verslunarinnar á Íslandi, um eina milljón danskra króna. Sören, framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins, dró sig þá út úr verkefninu og benti Tómasi á að vera í sambandi við framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins. Þann 2. júlí sama ár átti Tóm- as símafund með forsvarsmönnum Build-A-Bear í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum þar sem fram kom að ekki væru uppi áform um að opna verslun á Íslandi vegna skipulagsbreytinga. Þá var Tómas búinn að ganga frá samkomulagi við Smáralind, fara til Danmerkur á námskeið um rekstur verslunarinn- ar og segja starfi sínu lausu í verslun Sævars Karls. Mikill tími og kostnaður Tómas ákvað að stefna fyrirtækinu fyrir dómstólum á Íslandi þar sem hann krafðist skaðabóta að upphæð tæplega sex milljónir króna, auk 171 þúsunds danskra króna. Héraðs- dómur tók undir málstað forsvars- manna Choose Holding A/S, að ekki væri hægt að stefna fyrirtæk- inu á Íslandi. „Þessu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ef allt fer á versta veg þarf ég að sækja málið í Danmörku og maður hefur ekkert sérstaka burði til þess. Ég ætla að reyna eins og ég get,“ segir Tómas og bætir við að fjár- hagslega tjónið hafi verið mun meira en gefið er til kynna í stefnunni. „Það fór gígantískur tími í þetta og mað- ur hefur aldrei mælt hann. Við erum bara að leitast eftir því að fá borg- að það sem við lögðum í þetta með beinhörðum peningum.“ Ekki ætlað að eiga bangsabúð Þrátt fyrir áfallið hefur Tómas ekki setið auðum höndum síðan málið kom upp. Hann er aðstoðarmaður Eyjólfs Sverrissonar, landsliðsþjálf- ara U21 landsliðsins í knattspyrnu, sem komst í úrslitakeppni Evrópu- mótsins sem fram fer í Danmörku á næsta ári. Þá hefur hann getið sér gott orð sem sparkspekingur á Stöð 2 Sport. „Maður er sennilega kominn í það sem manni var ætlað. Manni var greinilega ekki ætlað að eiga bangsa- búð,“ segir Tómas að lokum. Tapaði milljónum á bangsaævinTýri Einar þór SigurðSSon blaðamaður skrifar: einar@dv.is Manni var greini-lega ekki ætlað að eiga bangsabúð. Tómas ingi Tómasson og eiginkona hans hugðust opna Build-A-Bear-verslun hér á landi árið 2008. Málið var langt komið þegar forsvarsmenn fyrirtækisins á Norðurlöndum hættu skyndilega við. Tómas hafði lagt mikið fjármagn og ómældan tíma í verkefnið en óvíst er hvort hann fái nokkuð til baka. Build-a-BEar er stór bandarísk verslanakeðja sem sérhæfir sig í böngsum af öllum stærðum og gerðum. Yfir 400 verslanir eru til og eru þær um allan heim. Sérstaða fyrirtækisins felst í því að viðskiptavinir geta skapað sína eigin bangsa sem felst í átta skrefum. Fyrst er bangsinn valinn, svo geta viðskiptavinir sett hljóðupptöku í bangs- ann, næst er bangsinn fylltur og satínhjarta sett í hann sem viðskiptavinir pumpa til að glæða hann lífi. Bangsinn fær svo eigið fæðingarvottorð og er loks klæddur í föt sem eigandinn velur. Þá má geta þess að sérstakt strikamerki er á bangsanum sem er skráð á eigandann. Ef bangsinn týnist getur sá sem finnur bangsann skilað honum í næstu verslun Build-A-Bear sem kemur honum aftur í réttar hendur. Hvað er build-a-bear? ósáttur Tómas Ingi segist ekki hafa mikla burði til að sækja málið í Danmörku. Hann ætlar þó að reyna eins og hann getur. Mynd HEiða HElgadó TTir Tekur undir orð biskups Félag kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði segir samþykkt Mannréttindaráðs skerða möguleika kennara til að beita fjöl- breyttum kennsluháttum. Tekur það undir orð Karls Sigurbjörnssonar biskups um að skefjalausir fordómar og andúð á trú ráði för. Félagið telur bann við vettvangsferðum í kirkj- ur og trúarlegri listsköpun brjóta í bága við aðalnámskrá grunnskóla. Félagið hvetur til þess að samþykkt Mannréttindaráðs verði dregin til baka. Samþykktin kveður á um að starfsmenn kirkjunnar fái ekki leng- ur að heimsækja skóla auk þess sem kirkjuferðir verði bannaðar. jóhanna fagnar með gerplu Lið Gerplu braut blað í sögu fimleika á Íslandi um helgina þegar liðið sigraði í úrslitum á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fór í Malmö í Svíþjóð.  „Við slátruðum þeim,“ sagði Ásdís Guðmundsdóttir, ein stúlknanna í liði Gerplu. Kvennalið Gerplu og landslið stúlkna í hópfimleikum fékk hamingjuóskir frá Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra í tilefni af gullverðlaunum liðsins. Í tilkynn- ingu frá forsætisráðherra segir að með árangri sínum hafi stúlkurnar skipað sér í hóp bestu íþróttamanna sem Ísland hefur átt fyrr og síðar. Snæland ekki Snædal Í miðvikudagsblaði DV var sagt frá Hafsteini Snæland sem lét fjarlægja nafn sitt úr símaskránni 2011 vegna óánægju með Egil Gilzenegger Einarsson sem meðhöfund skrárinnar. Nafn Hafsteins misritaðist því miður við gerð fréttarinnar og var hann sagður heita Hafsteinn Snædal. Hans rétta nafn hans er Hafsteinn Snæland. SIGURJÓN SIGHVATS Í VANDA miðvikudagur og fimmtudagur 27. – 28. október 2010 dagblaðið vísir 124. tbl.100. árg. – verð kr. 395 Hollywood-framleiðandi í skuldasúpu: „eitthvað sem fáir fá að upplifa“: SVEITA- STúlkA SEM VAR pIlTUR n „mamma og pabbi tóku þessu bara ágæt- lega“ viðtal 22–23 n skuldar sex þúsund milljónir n stefnt fyrir dóm n „Hann skrifaði upp á fyrir mig“ n tapaði 242 milljónum í fyrra m Y N d r Ó b er t r eY N is sO N fréttir 6 ísleNdiNgur í jarðskjálfta: FÉkk EÐlU Í FANGIÐ erlent 16–17 arON eiNar: RÆNDUR n „þetta er leiðinlegt“ NettÓ í mjÓdd: Sorgleg uppsögn kerru- pilts fólkið 26 fréttir 8 Heiðar fer með rangt mál fYrrveraNdi baNkaráðsmaður í laNdsbaNka: n „það er af og frá“ fréttir 2–3 landsbankinn leynir ennþá kaupendum lYfjadreifiNg: n lektor einn skráður fréttir 12 Þessar fréttir bar hæst í vikunni þetta helst Sóley Björk Axelsdóttir, sem notast við hjólastól, sat föst í Smáralind í þrjá klukkutíma á mánudagskvöld. Hún fór í bíó klukkan átta en kom að lokuðum dyrum að sýningu lokinni. Þegar klukkan var langt gengin eitt komst hún loks út. hitt málið Verð: 9.750 kr. Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Er slakandi og bætir svefn • Notkun 10-20 mínútur í senn • Gefur þér aukna orku og vellíðan Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Nálastungudýnan „Ég var orðin dálítið lúin og ég var eftir mig daginn eftir þessa uppá- komu,“ segir hin 41 árs gamla Sóley Björk Axelsdóttir. Sóley, sem notast við hjólastól, komst í hann krapp- ann þegar hún skellti sér í bíó á kvik- myndina Brim í Smáralind klukkan átta á mánudagskvöld. Áður en að bíósýningunni kom fór Sóley í versl- unarleiðangur um Smáralindina með vinkonu sinni en fór síðan ein í bíó. Þegar sýningunni lauk, rétt fyrir klukkan tíu, kom hún að læstum dyr- um þar sem hún lagði bíl sínum við vesturenda hússins. Rúmlega þremur klukkustundum síðar komst hún út. Myrkur og grenjandi rigning „Mér finnst gott að leggja í nýja bíla- stæðahúsið. Það eru yfirleitt fáir þar og maður getur nokkurn veginn valið sér stæði,“ segir Sóley. Hún bjóst við að komast út um sömu dyr og hún kom inn um fyrr um daginn. Raun- in varð hins vegar önnur. „Það var búið að harðlæsa útidyrunum þar og ég fór þá eitthvað að reyna að flækj- ast um. Ég fór út hinum megin og at- hugaði hvort ég kæmist yfir á stæðið þaðan,“ segir Sóley en vegna þess að hún notast við hjólastól, auk þess að komið var myrkur og mikil rigning, hafi hún ekki treyst sér til þess. „Ef ég hefði ekki komist alla leið þá hefði verið erfitt að fara til baka þannig að ég fór ekkert að ana út í það,“ segir hún. Þreytt í öxlum og höndum Sóley segir að hún hafi því far- ið aftur inn í Smáralindina til að freista þess að finna öryggisvörð sem gæti hleypt henni út. Þegar þarna var komið sögu var klukkan að ganga ellefu. Þrátt fyrir að hafa flakkað um alla Smáralindina fann hún engan nema stúlku sem var að skúra gólfið á kaffihúsi í vestur- enda Smáralindar. „Ég talaði við hana og hún sagðist ætla að reyna að ná í öryggisvörð. Ég ákvað þá að fara og taka mér stöðu við dyrnar aftur. Svo líður og bíður og enginn kemur,“ segir Sóley sem var orð- in þreytt í öxlunum og höndun- um vegna þvælingsins. Hún ákvað því að bíða í þeirri von að einhver kæmi en skaust reglulega fram á gang til að athuga hvort einhver ætti leið hjá. En enginn kom. Fann loks öryggisvörð Þegar klukkan var farin að nálgast miðnætti ákvað Sóley að fara aftur af stað til að freista þess að athuga hvort hún yrði vör við einhvern eftir síðustu sýningar Smárabíós. „Það eru oft einhverjir krakkar að þvælast eftir svona sýningar en svo var ekki í þetta skiptið,“ segir Sól- ey en henni gekk erfiðlega að finna skilti sem vísuðu henni á skrifstofu öryggisvarðanna í Smáralind. „Svo fór ég inn á gang þar sem var alveg myrkur og þar sá ég svona grunn- mynd af öllum þremur hæðun- um. Þá loksins fann ég hvar ör- yggisvörðurinn er,“ segir hún og tók hún því lyftuna upp á þriðju hæð á skrifstofu öryggisvarðanna. „Þá var klukkan orðin hálf eitt. Ör- yggisvörðurinn var ekkert nema elskulegheitin þegar ég birtist honum að óvörum og hann opn- aði fyrir mig.“ Aðspurð hvort hún hafi óttast að þurfa að dúsa í Smáralindinni alla nóttina segir hún: „Ég velti því vissulega fyrir mér. En ég veit ekki hvort ég trúði því nokkurn tímann. Maður bjargar sér alltaf, sem bet- ur fer,“ segir hún en hún var kom- in heim til sín þegar klukkan var að verða eitt um nóttina. Gripið verður til ráðstafana Kristinn Jóhannesson, rekstrar- stjóri Smáralindar, staðfestir að málið hafi komið upp og að gripið verði til ráðstafana til að tryggja að þetta endurtaki sig ekki. „Við ætl- um einfaldlega að laga þetta. Það er engin ástæða til annars en að fólk geti farið þarna út,“ segir Krist- inn. Hann segir að á kvöldin sé band strengt yfir ganginn þar sem veitingahúsin eru í þeirri viðleitni að koma í veg fyrir hópamynd- un unglinga. „Það hefur tekist vel. Við læsum þá vesturendanum af því að það er engin umferð þar um nema í undantekningartilfell- um. En þetta er góð ábending og við þurfum einnig að merkja bet- ur hvernig hægt er að ná sambandi við öryggisgæsluna.“ Bjargarlaus í smáralind EInAr Þór SIGurðSSon blaðamaður skrifar: einar@dv.is Við ætlum ein-faldlega að laga þetta. Löng bíóferð Sóleyfóríbíó klukkanáttaámánudagskvöld envarekkikominheimfyrren fimmklukkustundumsíðar. MynD SIGTryGGur ArI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.