Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Síða 18
18 FRÉTTIR 29. október 2010 FÖSTUDAGUR Bandaríski hagfræðingurinn Frede- ric Mishkin fær háðulega útreið í nýrri heimildarmynd sem Banda- ríkjamaðurinn Charles Ferguson hefur gert um bankakreppuna sem reið yfir heiminn haustið 2008. Fram kemur í þættinum að hagfræðingar við virta háskóla séu hluti vandans að svo miklu leyti sem þeir taka að sér verkefni og hafa svimandi háar tekj- ur af öðru en kennslu og rannsókn- um við háskólana sjálfa. Vísað er til þess að Mishkin hafi fengið 124 þús- und dollara þóknun frá Viðskiptaráði Íslands árið 2006 fyrir skýrslu sem hann gerði ásamt Tryggva Þór Her- bertssyni, þá forstöðumanni Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands. Vandaðar ríkisstofnanir? Mishkin fékk sem svarar um 14 millj- ónum króna fyrir skýrsluna, en hún kom út á vormánuðum 2006 í lok „mini-krísunnar“ sem svo er stund- um nefnd. Skýrslan var kostuð af Viðskiptaráði Íslands eftir að tveir sérfræðingar hjá Danske Bank drógu snemma árs 2006 upp afar dökka mynd af íslensku bönkunum og horf- um í íslensku efnahagslífi í skýrslu sem bar heitið Iceland – The Geyser Crisis. Skýrsla Mishkins og Tryggva Þórs gaf íslensku bönkunum heilbrigðis- vottorð þrátt fyrir það sem á undan var gengið. Þar segir meðal annars að þótt áhyggjur af hættunni sam- fara hröðum vexti bankanna á nýjum sviðum viðskipta séu ekki með öllu ástæðulausar sé gott til þess að vita að Fjármálaeftirlitið sé meðvitað um slíka hættu. Einnig ætti það að hafa róandi áhrif að vita til þess að Íslend- ingar ráði yfir vönduðum ríkisstofn- unum sem fáist við öryggi og heil- brigði íslenska bankakerfisins. En bankakerfið hrundi haustið 2008 og rannsóknarnefnd Alþingis gefur ríkisstofnunum, eins og Seðla- bankanum og Fjármálaeftirlitinu, ekki háa einkunn. Tryggvi Þór var orðinn ráðgjafi Geirs H. Haarde for- sætisráðherra þegar bankakerfið hrundi. Hann er nú þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Í bankaráð seðlabanka BNA Mishkin neyddist til að gera grein fyrir öllum tekjum sínum utan Col- umbia-háskólans í New York, þar sem hann er prófessor, þegar hann var valinn til setu í bankaráði Seðla- banka Bandaríkjanna árið 2006. Þar sat hann til ársins 2008. Í umræddri mynd Fergusons er Mishkin spurður um greiðslurnar frá Íslandi og má greinilega merkja van- líðan og óróleika hans þar sem hann situr fyrir framan tökuvélarnar. Mishkin ritaði eftir þetta grein í Financial Times þar sem hann bar hönd fyrir höfuð sér og sakaði Charl- es Ferguson um að vega að sér úr launsátri. Ferguson heldur fast við skýring- ar sínar á fjármálakreppunni og tel- ur að þekktir háskólamenn glími ekki aðeins við vandann heldur séu þeir hluti vandans. Hann talar um kunn- ingjasamfélag sem hvíli á nánast innræktuðum tengslum milli Wall Street, stjórnvalda í Washington og þekktra sérfræðinga úr háskólun- um. Hann vísar til þess að á undan- förnum 20 árum hafi verið dregið úr regluverki og samkeppnishömlum. Stjórnlaus græðgi hafi tekið völdin sem borin var uppi af kunningjaveldi og klíkuskap. Lausbeislað kerfi Á viðskiptavef Yahoo-finance segir Ferguson að meirihluti tekna margra áberandi háskólaprófessora komi frá fjármálafyrirtækjum á almennum markaði sem þeir selji þjónustu sína. „Þessi staðreynd hefur augljóslega komið niður á rannsóknarvinnu og stefnumarkandi ráðgjöf sem fengin er úr háskólunum.“ Við gerð myndar sinnar, The In- side Job, kveðst Ferguson hafa rætt við Mishkin í um klukkustund. „Ég bað um álit hans á kreppunni en eftir því sem leið á viðtalið kom á daginn að hann hafði eitt og annað að fela og leið greinilega mjög illa undir spurn- ingum mínum.“ Ferguson svaraði Mishkin í Fin- ancial Times og gerði aukatekj- ur háskólamannanna að umtals- efni. „Það sem truflaði mig einna mest við gerð myndarinnar „The Inside Job“ er að bandarískir há- skólar krefjast þess ekki að prófess- orar og aðrir starfsmenn geri grein fyrir mögulegum fjárhagslegum hagsmunaárekstrum, leggja eng- ar kvaðir á þá varðandi umfang og afla engra upplýsinga um hversu miklar þessar tekjur utan skólanna eru.“ Frederic Mishkin, hagfræðiprófessor við Columbia-háskóla, er talinn í hópi hag- fræðinga sem hafa miklar tekjur af því að selja fjármálastofnunum ráðgjöf sína fyrir offjár. Þetta er talið skaða rann- sóknir, kennslu og orðspor háskólanna. Mishkin vann skýrslu ásamt Tryggva Þór Herbertssyni árið 2006 sem kostuð var af Viðskiptaráði Íslands. GAGNRÝNIR MISHKIN FYRIR SÖLUMENNSKU JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þessi staðreynd hefur augljóslega komið niður á rannsókn- arvinnu og stefnumark- andi ráðgjöf sem fengin er úr háskólunum. Skýrsluhöfundar á veiðum HagfræðingarnirFredericMishkin (t.h.)ogTryggviÞórHerbertsson(t.v.) viðhreindýraveiðaráAusturlandi sumarið2009. Þingmaðurinn og ráðgjafinn Tryggvi ÞórHerbertssonfékkeinniggreittfyrir skýrslunasemgafíslenskumbönkunum heilbrigðisvottorðvorið2006. Hagsmunaárekstrar Mishkinleiðilla þegarþáttarstjórnandinnspurðiútí tekjurhansutanColumbíu-háskólans, meðalannars14milljónakrónagreiðslu fráViðskiptaráðiÍslands2006.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.