Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Page 44
Jana María Guðmundsdóttir leikkona leikur eitt aðalhlutverka í söngleiknum Rocky Horror sem Leikfélag Akureyrar sýnir í Hofi. Jana María er einhleyp og hamingjusöm og segir lífið of stutt fyrir líkamleg hryðjuverk á við megrun. Nafn og aldur? „Jana María Guðmundsdóttir, 29 ára.“ Atvinna? „Söng- og leikkona, starfandi hjá Leikfélagi Akureyrar.“ Hjúskaparstaða? „Einhleyp og hamingjusöm.“ Fjöldi barna? „Engin ennþá, kenni fjölda nemenda sem eru mér sem börn.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já, áttu ekki allir hamstur hérna einu sinni?“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Pétur og úlfinn með Bernd brúðumeistara og Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Ehm, já. Alveg óvart.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Dökkblár plíseraður H&M-kjóll, af því að hann getur verið glerfínn þannig en breytist í hversdagsflík með hvítu belti.“ Hefur þú farið í megrun? „Nei, lífið er of stutt fyrir líkamleg hryðjuverk sem þessi.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum? „Nei, skammarlegt að segja frá því.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Hiklaust, sem og fyrri líf, engla og karma.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Skjóttu mig í nótt – Skítamórall.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Akkúrat núna er það „Það snjóar“ með Memfismafíunni – jólin eru að koma!“ Til hvers hlakkar þú núna? „Jólanna, ekki spurning.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „In the mood for love, myndatakan, tónlistin, sagan – allt.“ Afrek vikunnar? „Að leikstýra í atvinnuhúsi í fyrsta skipti - Pétur og úlfurinn með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Já, þó nokkrum sinnum. Stórhættulegt að vita of mikið stundum.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Ég spila á píanó fyrir söngnemendur mína – enga aðra!“ Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið? „Já og nei. Of margir faktorar til að geta sagt það í einni setningu.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Að vera samkvæmur sjálfum sér og þakklátur fyrir það sem maður fær.“ Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan og fara á trúnó með? „Varla nokkrum manni.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Blossom Dearie, sem er amerískur djasspíanisti og söng- kona sem hafði svo yndislega barnslega og bjarta rödd.“ Hefur þú ort ljóð? „Já, er á lúmsku ljóðatímabili núna – allt er innblástur einhvern veginn.“ Nýlegt prakkarastrik? „… ;)“ Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest? „Skosku bekkjarsystkinin mín sögðu Björk, er það eitthvað?“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Með ótakmarkaða lyst á ís og Cocoa Puffs.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei. Punktur.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Eyjafjörður, fallegasti staður á Íslandi.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Að velja tónlist við hæfi og umla svo yfir hvað koddinn minn er alltaf mjúkur þegar ég leggst.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Það besta sem Guð hefur skapað er nýr dagur – vera bjartsýn og harðdugleg með sól í hjarta því það mun birta til á ný.“ Með ótakmarkaða lyst á Cocoa Puffs M Y N D IR B JA R N I E IR ÍK SS O N 44 HIN HLIÐIN 29. október 2010 FÖSTUDAGUR www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. komdu í áskrift! 512 70 80 dv.is/askrift frjálst, óháð dagblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.