Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Side 53
FÖSTUDAGUR 29. október 2010 SPORT 53
Strákarnir okkar í Þýskalandi 2. HLUTI
ÆVINTÝRALEGUR ÁRANGUR
ÁNÆGÐIR Í BERLÍN Dagur
Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlín
og Alexander Petersson, leikmaður
liðsins. Með þeim á myndinni er
Sigurður, átta ára sonur Dags.
Þeir Dagur og Alexander segjast
ánægðir með lífið í Berlín.
MYND ANNAS SIGMUNDSSON
Dagur: „Það er öllum velkomið
að gera það sem þeir vilja. Þeir mega
þó ekki gleyma því að þeir eru fyrir-
myndir. Logi hefur alltaf verið góð fyr-
irmynd svo hann verður að passa sig
á því að viðskiptahópurinn er líklega
yngri en hann heldur. Hann verður
líka að átta sig á því þegar hann fjall-
ar um atvinnuheiminn að svona var
þetta þegar hann var ungur og ekki í
sambandi. Það eru líka menn hérna
sem eru búnir að vera hér í tíu til tólf
ár og eru bara með sínar fjölskyldur.
Það er allt annar heimur.“
Hvernig er lífið hérna í Þýskalandi.
Lifið þið venjulegu fjölskyldulífi?
Dagur: „Í mínu tilfelli snýst þetta
aðallega um fjölskylduna. Það skipti
gríðarlega miklu máli hvernig það
heppnaðist að fara út. Hvernig krökk-
unum gengur í skólanum og tóm-
stundir og annað. Það segir sig sjálft
að ef það gengur ekki upp þá hefur
maður lítið hingað að sækja.“
Hvernig myndir þú lýsa leikmönn-
um þínum?
Dagur: „Það er allt frá 19 ára
leikmönnum sem eru nánast enn í
menntaskóla og upp í Stian Vatne, 36
ára, þriggja barna föður, sem er bú-
inn að búa erlendis í 15 ár. Við erum
með leikmenn frá alls konar lönd-
um þannig að staða manna er ansi
breytileg. Auðvitað höfum við all-
ir verið ungir að koma út í atvinnu-
mennsku. Það er ákveðinn skóli að
ganga í gegnum það að kaupa sér
fyrsta BMW-bílinn, blæjubíllinn og
mótorhjólið. Eftir stendur að menn
róast með aldrinum.“
Nú hefur þú haft atvinnu af hand-
bolta síðustu 15 árin. Var þetta alltaf
stefnan eða áttirðu þér aðra drauma?
Dagur: „Já. Ég átti mér allt aðra
drauma. Fór á sínum tíma heim frá
Austurríki af því að ég ætlaði ekki
að fara að þjálfa. Hafði miklar hug-
myndir um að taka þátt í einhvers
konar rekstri og viðskiptum. Það var
ótrúlega gaman að starfa sem fram-
kvæmdastjóri Vals. Síðan þegar ég
fékk símtal frá Füchse Berlín gat ég
Alexander Petersson
HÆGRI SKYTTA
FÆÐINGARDAGUR
02. 07. 1980.
FYRRI LIÐ
Riga, Grótta/KR, Düsseldorf, Grosswalldstadt og
Flensburg.
HÆÐ OG ÞYNGD
186 cm og 94 kg.
FJÖLSKYLDUSTAÐA
Giftur Eivoru Pálu Blöndal. Börn: Lúkas Jóhannes, 6 ára
og Tómas, 19 mánaða.
Dagur Sigurðsson
ÞJÁLFARI
FÆÐINGARDAGUR
03. 04.1973.
FYRRI LIÐ
Valur, Wuppertal, Wakunaga og Bregenz.
HÆÐ OG ÞYNGD
192 cm og 92 kg.
FJÖLSKYLDUSTAÐA
Giftur Ingibjörgu Pálmadóttur. Börn: Sunna, 13
ára, Birta, 11 ára, og Sigurður, 8 ára.
FRAMHALD Á
NÆSTU SÍÐU