Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Side 6
6 fréttir 3. desember 2010 Föstudagur
10x21 cm - 15x15 cm = 152 kr./stk.
10x15 cm = 135 kr./stk.
Þönglabakka 4 - 109 Rvk - Sími: 557 4070 - www.myndval.is
Sendu myndarlega jólakveðju
Jólakort 2010
Samkeppni um flutning farþega til og frá Keflavíkurflugvelli:
Barátta um farþega
Þann 27. mars næstkomandi mun
samkeppni hefjast í farþegaflutning-
um á milli Reykjavíkur og Keflavíkur-
flugvallar, þegar fyrirtækið Iceland
Excursions hefur áætlunarferðir á
þessari leið, allt að 10 ferðir á dag.
Kynnisferðir höfðu um árabil sérleyfi
á þessari leið, en fyrir nokkrum árum
tóku Samtök sveitarfélaga á Suður-
nesjum það yfir í formi einkaleyf-
is og sömdu við Kynnisferðir um að
sinna akstrinum. Við þessa breytingu
opnaðist möguleiki á samkeppni, því
einkaleyfið gildir aðeins innan sveit-
arfélaganna en ekki á akstursleiðinni
á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflug-
vallar.
Þórir Garðarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri hjá Iceland Excursions, seg-
ir málið hafa verið lengi í skoðun, en
hefur trú á að nú sé réttur tímapunkt-
ur vegna sívaxandi fjölda erlendra
ferðamanna hingað til lands. Ice-
land Excursions rekur sína eigin um-
ferðarmiðstöð í Hafnarstræti 20, við
Lækjartorg, en farþegum hinnar nýju
flugrútu verður boðið upp á að vera
bæði sóttir og keyrðir upp á hótel
án aukakostnaðar. „Það verður eitt
gjald hjá okkur og innifalið í því er
„pickup“ af hótelunum og markmið-
ið er að vera ódýari en samkeppnis-
aðilinn. Þeir sem eru til dæmis bú-
settir í Laugarneshverfi geta tekið
rútuna á Grand Hótel. Rútan kemur
líka við á hótelunum á leiðinni út úr
bænum, þannig að fólk getur kom-
ið inn á öllum hótelum og tekið rút-
una þaðan,“ segir Þórir. Hann bend-
ir einnig á að Iceland Excursions reki
sína umferðarmiðstöð án ríkisstyrkja
en Kynnisferðir fái hins vegar 1,7
milljón krónur í styrk á mánuði frá
Vegagerðinni. solrun@dv.is
Samkeppni Farþegar munu loks hafa
val um fleiri en eina flugrútu. mynd PhotoS
260 þúsund í
launauppbót
Útgerðarfélagið Samherji hefur
ákveðið að greiða starfsmönnum í
landi 260 þúsunda króna launaupp-
bót í desember til viðbótar umsam-
inni 46 þúsund króna desemberupp-
bót. Í tilkynningu frá Samherja segir
að þetta sé í annað skiptið á árinu
sem Samherji greiði uppbót á laun.
Starfsmaður í fullur starfi hefur því,
frá og með 15. desember, fengið sam-
tals 320 þúsunda króna aukagreiðslur
á árinu.
Í apríl lagði stjórn Samherja til að
780 milljónir króna yrðu greiddar út í
arð til hluthafa á þessu ári fyrir rekstr-
arárið 2009.
Arctic Trucks
semur við herinn
Arctic Trucks í Noregi hefur skrifað
undir samning við norska og sænska
herinn um smíði á fjórhjóladrifsbíl-
um. Í fyrstu mun fyrirtækið afgreiða
53 brynvörð ökutæki, en samning-
urinn hljóðar upp á 130 milljónir
norskra króna, eða rúma tvo millj-
arða íslenskra króna. Samningurinn
er gerður í kjölfar alþjóðlegs útboðs
sem þjóðirnar stóðu sameiginlega
að. Mun fyrirtækið meðal annars
annast þjálfun ökumanna og við-
halds- og varahlutaþjónustu. „Við
erum afar stolt af því að fá þetta
verkefni,“ segir Örn Thomsen, fram-
kvæmdastjóri Arctic Trucks í Noregi.
Hrossabændur
gefa bjúgu
Hrossabændur á Suðurlandi í
samstarfi við Sláturfélag Suður-
lands og kjötvinnsluna Krás á
Selfossi hafa gefið Hjálparstarfi
kirkjunnar 450 kíló af reyktum
folaldabjúgum og hrossabjúgum.
Hjálparstarfið veitir bágstöddum
um allt land aðstoð árið um kring.
Tveir félagsráðgjafar eru starfandi
hjá stofnuninni og eru þeir í sam-
starfi við presta og djákna kirkj-
unnar vítt og breitt um landið.
„Við erum þakklát fyrir þennan
stuðning,“ segir Jónas Þórir Þóris-
son, framkvæmdastjóri Hjálpar-
starfsins í tilkynningu.
Brynjólfur skilur
við skipTi í sárum
Um síðustu mánaðamót var tilkynnt að Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, hefði
sagt starfi sínu lausu. Nokkrum dögum síðar var greint frá því að Skipti væri metið
verðlaust félag í bókum Exista, móðurfélags þess. Ef ekki tekst að endurfjármagna
langtímaskuldir er óvíst hvort félagið standi undir skuldunum.
Brynjólfur Bjarnason lét af störf-
um sem forstjóri Skipta um mán-
aðamótin. Nú hefur verið greint frá
því að Skipti er talið verðlaust félag
í bókum móðurfélag þess, Exista.
Skipti, sem er móðurfélag Sím-
ans, er skráð einskis virði, meðal
annars vegna þeirrar miklu óvissu
sem ríkir um greiðslugetu félags-
ins. Brynjólfur hefur verið for-
stjóri Skipta frá stofnun félagsins
árið 2007, en honum voru þökkuð
vel unnin störf í þágu félagsins af
Rannveigu Rist, stjórnarformanni
Skipta, í tilkynningu um uppsögn
hans.
„Fyrirtækið hefur dafnað und-
ir hans stjórn og það sýnir styrk
rekstrarins að á þessum tímamót-
um stefnir eiginfjárhlutfall fyrir-
tækisins í 33% og það hefur stað-
ið við allar sínar skuldbindingar
gagnvart lánardrottnum, þrátt fyr-
ir þau áföll sem dunið hafa yfir
íslenskt samfélag,“ var haft eftir
Rannveigu í fréttatilkynningunni.
Langtímaskuldir á skömmum
tíma
Þrátt fyrir að eiginfjárhlutfall fé-
lagsins sé um tuttugu og eitt pró-
sent, sem telja mætti ágætt, er að
finna veikleika í efnahagsreikningi
félagsins. Þetta kemur fram í gögn-
um sem Magnús Guðlaugsson,
eftirlitsmaður með nauðasamn-
ingum Exista, vann. Í gögnunum
kemur fram að langtímaskuld-
ir Skipta falla að stærstum hluta á
gjalddaga á tiltölulega stuttu tíma-
bili. Ef litið er til baka á afkomu fé-
lagsins í fyrra og fyrstu sex mánuði
þessa árs, sem hefur verið neikvæð
um samtals 16,7 milljarða króna,
er ljóst að erfitt mun reynast að
greiða þessar skuldir.
Í tilkynningu sem barst fjöl-
miðlum á fimmtudag kom þó fram
að samið hefði verið um hluta af
skuldum Skipta. Nemur upphæðin
19 milljörðum króna. Samkvæmt
upplýsingum DV er upphæðin
fengin af handbæru fé félagsins en
Skipti hefur að undanförnu selt er-
lendar eignir sínar.
Skuldirnar sem um ræðir eru
rúmir sjötíu og fjórir milljarðar
króna, eða um sjötíu og átta pró-
sent af öllum skuldum félagsins.
Tap félagsins fyrstu sex mánuði
ársins nam sex og hálfum milljörð-
um króna og á síðasta ári nam tap-
ið tíu komma tveimur milljörðum.
Eigið fé félagsins er um tuttugu og
fimm milljarðar króna.
Eimreiðarhópurinn
Brynjólfur Bjarnason var ráðinn
forstjóri Landssíma Íslands 2002
þegar fyrirtækið var einkavætt.
Hann hafði þá verið forstjóri út-
gerðarfélagsins Granda hf. Brynj-
ólfur var forstjóri hjá Almenna
bókafélaginu 1976 til 1983. Brynj-
ólfur tengist einnig svonefndum
Eimreiðarhópi, en flestir meðlima
þess hóps hafa verið valdamenn
innan Sjálfstæðisflokksins síðasta
aldarfjórðung, þeirra á meðal Dav-
íð Oddsson, Geir H. Haarde, Frið-
rik Sophusson, Baldur Guð-
laugsson og Hannes
Hólmstein
Gissurar-
son.
AðALStEinn KjArtAnSSon
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
Brynjólfur tengist einnig
svonefndum Eimreið-
arhópi, en flestir með-
lima þess hóps hafa
verið valdamenn innan
Sjálfstæðisflokksins.
móðurfélag Símans Ekki væsti um
Brynjólf í starfi en hann var með tugi
milljóna í árslaun árið 2009 og 2008.