Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 52
52 tækni umsjón: páll svansson palli@dv.is 3. desember 2010 föstudagur
Frábærar
viðtökur
Kinect, Xbox-jaðartækið frá
microsoft sem kom á markað í byrjun
nóvember, hefur hlotið frábærar
viðtökur að undanförnu. með þessu
áhugaverða jaðartæki geta eigendur
Xbox-leikjatölva nú notað líkama
sinn og handahreyfingar í Xbox
360-leikjum sem samhæfðir eru við
þessa tækni. Á fyrstu 25 dögunum
seldust rúmlega 2,5 milljónir slíkra
tækja í verslunum og microsoft
vonast til að eftir hátíðirnar verði um
fimm milljónir Kinect-tækja komin í
hendur notenda.
Microsoft
sjónvarp?
microsoft á nú í viðræðum við ýmsa aðila
varðandi fyrirhugaða áskriftarþjónustu
fyrirtækisins sem felst í því að streyma
vinsælu mynd- og sjónvarpsefni í
heimilis- og leikjatölvur. Ef af verður fer
fyrirtækið í beina samkeppni við Hulu,
netflix og Apple sem öll hafa nokkurra
ára forskot á microsoft á þessum
markaði. stærstu sjónvarpsfyrirtækin í
Bandaríkjunum eru líka efins um kosti
þess að efni þeirra sé streymt beint
í gegnum netið og hafa sem dæmi
nokkur þeirra heft slíkan aðgang fyrir
Google TV.
Apple iPad er enn sem komið er vinsælasta snertitölvan á markaðnum. Á seinni hluta
ársins bættust nokkrar álitlegar tölvur í hópinn og gera má ráð fyrir því að á næsta ári
nái úrval snertitölva nýjum hæðum.
Áhugaverðar
snertitölvur
Árið sem er að líða átti í hug-um margra að verða ár snertitölvunnar. Það varð
þó aldrei raunin, margir framleið-
endur biðu eftir því að Google legði
þeim til til stýrikerfi sem hentaði
slíkum tölvum. Næsta ár verður þó
að öllum líkindum ár snertitölv-
unnar en fjölmörg fyrirtæki eru nú
að leggja lokahönd á sínar tölvur
og hafa þegar kynnt þær fyrir fjöl-
miðlum. Við bárum saman nokkr-
ar vinsælar snertitölvur sem þegar
eru komnar á markað, bæði hvað
varðar verð og helstu eiginleika.
n Frá því að ipad kom á markað í
apríl síðastliðnum hafa selst um sjö og
hálf milljón slíkra tölva. iPad er seld í
nokkrum mismunandi útgáfum og er
vinsælasta snertitölvan á markaðnum
í dag.
n slate Frá Hewlett-packard
kom á markað í október. Tölvan
keyrir á uppfærðri útgáfu Windows 7
fyrir snerti tölvur og markhópurinn er
fyrirtæki frekar en almenningur enda
verðið í hærri kantinum.
n dell var eitt aF Fyrstu fyrirtækjunum sem brugðust við útspili Apple. streak,
sem kom á markað í ágúst, er eins konar millivegur snjallsíma og snertitölvu og er
með fimm tommu skjá.
n Galaxy tab er eini alvöru keppinautur iPad eins og er. Tölvan keyrir á Android
2.2-stýrikerfinu og býður upp á nánast allt sem hugurinn girnist í heimi snertitölva.
Branson
Project
Breski auðkýfingurinn og ævintýra-
maðurinn Richard Branson, eigandi
Virgin-fyrirtækisins, var með sérstaka
uppákomu og fréttamannafund í new
York-borg í vikunni. Branson kynnti
þar Project-tímaritið, mánaðarlegt
tímarit sem er sérstaklega hannað fyrir
iPad-tölvur. spurningar fréttamanna
snérust að mestu um hvort Branson væri
kominn í stríð við fjölmiðlamógúlinn
Rupert murdoch sem undirbýr nú útgáfu
stafræna dagblaðsins Daily. Branson
sagði fréttamönnum að ef um nokkurt
stríð væri að ræða, væri það stríð um
gæði! Hinn yfirlýsingaglaði Branson
sagði Project vera „fyrsta eiginlega
stafræna tímaritið, búið til af skapandi
fólki fyrir skapandi fólk.” Project, sem er
um 100 síður, er hægt að kaupa í App
store á 2,99 Bandaríkjadali eða tæpar
350 krónur.
Apple iPad
stýrikerfi iOs
Forrit 40.000+ iPad-forrit í Apple App store og
300.000+ samhæfð iPhone-forrit
Flash-stuðningur nei
Fjölvinnsla já, með nýjustu iOs-uppfærslunni
skjástærð/hlutföll 9,7 tommur 4:3 IPs
skjáupplausn 1024 x 768 pixlar
Myndavél Engin
tengi Apple kvíar-tengi
leiðsögukerfi Áttaviti, assisted GPs (aðeins í 3G
útgáfu)
Geymslurými 16, 32 eða 64 GB
þráðlaust Wi-Fi, Blátönn, 3G (sumar útgáfur)
áætluð rafhlöðuending 10 klukkutímar, 1 mánuður í bið
(standby)
stærð 9,56 tommur x 7.47 tommur x 0,5
tommur
þyngd 0,68-0,73 kg (fer eftir útfærslu)
verð (Bandaríkjadalir) 500–830 (fer eftir útfærslu)
Dell Streak
stýrikerfi Android
Forrit meira en 100.000 Android-forrit
Flash-stuðningur já
Fjölvinnsla já
skjástærð 5 tommu TFT LCD
skjáupplausn 800 x 480 pixlar
Myndavél VGA vefmyndavél fyrir myndspjall, 5mP
myndavél á bakhlið
tengi usB
leiðsögukerfi Áttaviti, GPs
Geymslurými Rauf fyrir microsD-kort (16GB kort
innsett)
þráðlaust Wi-Fi, Blátönn, 3G
áætluð rafhlöðuending 10 klukkutímar, 400 klukkutímar í bið
(standby)
stærð 6 tommur x 3,1 tommur x 0,4 tommur
þyngd 0,220 kg
verð (Bandaríkjadalir) 550
H.P. Slate
stýrikerfi Windows 7 (uppfærð útgáfa fyrir
snertitölvur)
Forrit Flestöll forrit fyrir Windows
Flash-stuðningur já
Fjölvinnsla já
skjástærð 8,9 tommu breiðtjaldsskjár
skjáupplausn 1024 x 600 pixlar
Myndavél VGA-vefmyndavél fyrir myndspjall, 3mP
myndavél á bakhlið
tengi usB
leiðsögukerfi Ekkert
Geymslurými 64 GB
þráðlaust Wi-Fi, Blátönn
áætluð rafhlöðuending 5 klukkutímar
stærð 5,91 tommur x 9,21 tommur x 0,58
tommur
þyngd 0,68 kg
verð (Bandaríkjadalir) 800
Samsung Galaxy Tab
stýrikerfi Android
Forrit meira en 100.000 Android-forrit
Flash-stuðningur já
Fjölvinnsla já
skjár 7 tommu breiðtjalds-TFT LCD
skjáupplausn 1.024 x 600 pixlar
Myndavél 1,3mP myndavél fyrir myndspjall, 3mP
myndavél á bakhlið
tengi usB
leiðsögukerfi Áttaviti, GPs
Geymslurými Rauf fyrir microsD-kort (16GB kort
innsett)
þráðlaust Wi-Fi, Blátönn, 3G
áætluð rafhlöðuending 7 klukkutímar
stærð 7,48 tommur x 4,74 tommur x 0,47
tommur
þyngd 0,38 kg
verð (Bandaríkjadalir) 600
Vinsælli
sem lestölva
iPad-snertitölvan er nú komin í fyrsta
sæti yfir vinsælustu lestölvurnar
samkvæmt nýrri könnun í Bandaríkj-
unum. Þrátt fyrir mun lægra verð og
sérstakan E Ink-skjá er Amazon Kind-
le-lestölvan nú fallin í annað sætið
og eru helst leiddar líkur að því að
iPad-tölvan hafi það fram yfir Kindle
að vera mun fjölhæfari. samkvæmt
könnuninni hafa 42 prósent þeirra
sem ætla að kaupa lestölvu fyrir þessi
jól ákveðið að fjárfesta í iPad en 33
prósent í Kindle.