Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 40
40 ÆTTFRÆÐI UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kjartan@dv.is 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
60 ÁRA Á LAUGARDAG
Jón Ólafur
Jónsson
FYRRV. BANKAFULLTRÚI Í REYKJANESBÆ
Jón Ólafur fæddist á Ísafirði og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskólanum á Ísafirði
1957.
Jón stundaði verslunarstörf á Ísa-
firði 1957–63, vann í versluninni
Kyndli hf. í Keflavík 1963–64, var
deildarstjóri hjá Kaupfélagi Suður-
nesja 1964–70, starfaði við Fríhöfnina
á Keflavíkurflugvelli 1970–81 og var
síðan fulltrúi í gjaldeyrisdeild, fyrst
Útvegsbanka Íslands í Keflavík, síðan
Íslandsbanka, þar til hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir.
Jón Ólafur spilaði knattspyrnu
með ÍBK á gullaldartímabili liðs-
ins 1963–77, var um skeið landsliðs-
maður í knattspyrnu, er áhugamaður
um snóker, brids, skák og skíðaiðkun
og hefur þrisvar keppt fyrir hönd Ís-
lands á Evrópumeistaramóti öldunga
í golfi, í Finnlandi 1997, í Sviss 1998 og
Slóveníu 2004.
Jón Ólafur sat í bæjarstjórn Kefla-
víkur 1986–90, var þar varafulltrúi
1978–82, var gjaldkeri hjá Billiard-
sambandi Íslands, sat í stjórn Golf-
klúbbs Suðurnesja um árabil, sat
í Íþróttaráði Keflavíkur, sat í stjórn
Landssambands eldri kylfinga og var
gjaldkeri þess.
Fjölskylda
Jón Ólafur kvæntist 8.10. 1966 Sigur-
björgu Gunnarsdóttur, f. 8.5. 1946,
bankastarfsmanni í Sparisjóði Kefla-
víkur. Hún er dóttir Gunnars Sig-
urfinnssonar, húsgagnabólstrara í
Keflavík, og k.h., Sigrúnar Ólafsdóttur
húsmóðir sem bæði eru látin.
Börn Jóns Ólafs og Sigurbjargar
eru Guðbjörg, f. 8.2. 1967, kennari við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en mað-
ur hennar var Ómar Ellertsson flug-
þjónn og eiga þau tvo syni, Jón Óla og
Ellert Björn; Gunnar Magnús, f. 27.8.
1968, íþróttakennari í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og þjálfari meistaraflokks
Njarðvíkur í knattspyrnu, en kona
hans er Björg Ólafsdóttir kennari og
eru börn þeirra Tinna Björg, Ólaf-
ur Þór og Sigurbjörg Diljá; Thelma,
f. 18.9. 1973, markaðsstjóri Háskóla
Íslands, en eiginmaður hennar er
Steinbjörn Logason, grafískur hönn-
uður og eru synir þeirra Máni Mar og
Óttar Uni.
Hálfsystir Jóns Ólafs, samfeðra,
er Auður Þorgerður, f. 7.11. 1938, d.
2009, var búsett í Hnífsdal.
Hálfsystkini hans, sammæðra:
Sigurður Magnússon, f. 12.1. 1947, d.
21.5. 1974; Finnur Magnússon, f. 13.1.
1948, verslunarmaður á Ísafirði; Guð-
rún Bjarnveig Magnúsdóttir, f. 12.6.
1955, fyrrv. skólastjóri Tónlistarskól-
ans í Bolungarvík.
Foreldrar Jóns Ólafs voru Jón Ól-
afur Júlíusson, f. 25.11. 1910, d. 19.2.
1941, frá Atlastöðum í Fljótavík, og
Guðbjörg Veturliðadóttir, f. 27.8.
1918, d. 20.9. 1982, húsmóðir.
Jón Ólafur og Guðbjörg voru
heitbundin þegar Jón lést í sjóslysi.
Skömmu síðar giftist Guðbjörg Magn-
úsi Guðnasyni, f. 26.8. 1914, d. 1999,
frá Seljalandi í Álftafirði, sjómanni.
Magnús reyndist Jóni Ólafi ætíð sem
faðir. Guðbjörg og Magnús bjuggu
lengst af á Ísafirði eða til 1970. Þá
fluttu þau til Keflavíkur. Skömmu eft-
ir andlát Guðbjargar flutti Magnús til
Bolungarvíkur þar sem hann bjó fyrst
hjá dóttur sinni, Guðrúnu, en var síð-
an á sjúkraskýlinu í Bolungarvík.
70 ÁRA Á SUNNUDAG
Haraldur fæddist á Akranesi og ólst
þar upp. Innan við fermingu byrj-
aði hann til sjós en það hefur síð-
an verið hans aðalstarf. Haraldur
var á Sæfaxa AK-57, þá á fjórtánda
ári. Hann var síðan á ýmsum ver-
tíðar- og nótaskipum frá Akranesi
og má þar m.a. nefna Rán AK-34,
Sigurborgu SI-275, Harald AK-10,
Höfrung III AK-250, Skírni AK-16
og Sólfara AK -170. Á skipum utan
Akraness hefur Haraldur m.a. starf-
að á Þorra ÞH-10, Haferni VE-23
og Jóni Finnssyni RE. Í mörg ár var
Haraldur á loðnuveiðum á Rauðsey
AK-14 og Höfrungi AK-91. Frá 1992
hefur Haraldur verið á frystitogar-
anum Höfrungi III AK-250.
Haraldur og kona hans hafa
búið á Móum í Innri-Akranes-
hreppi frá 1998 þar sem kona hans
starfrækir gistiheimili. Haraldur er
góður sagnamaður og hefur sagt
margar reynslu- og skemmtisögur
á þeim skipum og bátum sem hann
hefur verið á í gegnum árin.
Fjölskylda
Kona Haralds er Sólveig Jóna Jó-
hannesdóttir, f. 17.11. 1961, gisti-
húsaeigandi. Foreldrar hennar
voru Jóhannes Þorsteinsson, bif-
reiðstjóri á BSR, og Amelía Magn-
úsdóttir húsmóðir en þau eru bæði
látin.
Dóttir Haralds og Sólveigar: Ásta
Laufey, f. 29.3. 1989, d. 16.4. 1989.
Systkini Haralds eru Helga, bú-
sett á Akureyri; Elísabet, búsett í
Reykjavík; Guðrún, búsett í Hraun-
gerði í Hraungerðishreppi; Guð-
mundur Páll, búsettur á Akranesi.
Foreldrar Haralds: Jón E. Guð-
mundsson, f. á Þingeyri 16.9. 1912,
d. 17.7. 1995, sjómaður, ættaður frá
Lokinhömrum í Arnarfirði og Ingj-
aldssandi í Önundarfirði, og Ásta L.
Haraldsdóttir, f. 15.7. 1920, d. 25.6.
2005, frá Reyni í Innri-Akranes-
hreppi.
Haraldur Jónsson
SJÓMAÐUR Á MÓUM Í INNRI-AKRANESHREPPI
50 ÁRA Á LAUGARDAG
Anna fæddist á Hólmavík og átti
þar heima til 1965. Þá flutti hún
til Bolungarvíkur þar sem hún átti
heima til 1970. Fjölskyldan flutti
þá til Keflavíkur þar sem Anna átti
heima til 1989 er hún flutti í Hafn-
arfjörð þar sem hún býr enn.
Eftir grunnskólanám stundaði
Anna nám við Húsmæðraskólann í
Reykjavík, lauk prófi frá Skrifstofu-
og ritaraskólanum 1990, mat-
sveinsnámi 2002 og útskrifaðist á
skrifstofubraut við Menntaskólann
í Kópavogi 2010.
Anna starfaði hjá Ræsi 1990–96
og 2003–2008 og er nú kokkur við
Kaffi Dix.
Fjölskylda
Anna giftist 8.5. 1993 Elfari Jó-
hannesi Eiríkssyni, f. 2.2. 1963,
skipstjóra. Þau skildu 2003.
Dóttir Önnu og Elfars Jóhann-
esar er Kolbrún Ágústa Elfarsdótt-
ir, f. 13.1. 1997.
Hálfbróðir Önnu, sammæðra:
Sigurður, f. 9.7. 1951, d. 5.2. 1968.
Hálfsystir Önnu, samfeðra:
Hólmfríður, f. 4.3. 1955, bókasafns-
fræðingur á Amtsbókasafninu, bú-
sett á Akureyri.
Alsystkini Önnu: Kolbrún Svala,
f. 15.5. 1955, d. 11.3. 1992; Bára, f.
10.8. 1956, starfar hjá Þroskahjálp
á Suðurnesjum, búsett í Reykja-
nesbæ; Oddur, f. 24.9. 1957, vél-
stjóri, búsettur í Hafnarfirði; Guð-
mundur, f. 18.11. 1963, vélstjóri,
búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Önnu eru Anders
Guðmundsson, f. 23.1. 1928, d. 1.7.
2007, vélstjóri, og Guðrún Sigur-
laug Þóroddsdóttir, f. 23.3. 1929, d.
25.3. 2010, húsmóðir.
Anna Guðrún
Andersdóttir
KOKKUR Í HAFNARFIRÐI
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Vala fæddist á Akranesi og ólst
þar upp til sjö ára aldurs en síð-
an í Reykjavík. Hún var í Brekku-
bæjarskóla og Álftamýrarskóla,
stundaði nám við Kvennaskólann
og lauk stúdentsprófi frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri, lauk
BSc.-prófi í tölvunarfræði frá Há-
skólanum í Reykjavík 2005 og lauk
prófi í kennslufræði frá sama skóla
2008.
Vala hefur verið tölvukennari
og kerfisstjóri við Ísaksskóla frá
2005.
Fjölskylda
Unnusti Völu er Ingólfur Bjarni
Sveinsson, f. 8.4. 1980, tæknimað-
ur.
Dóttir Völu
og Bjarna er
Helena Kristín
Bjarnadóttir, f.
25.1. 2008.
Bræður
Völu eru Oli-
ver Pálmason,
f. 1.2. 1971,
framkvæmda-
stjóri í Reykjavík; Pálmi Sveinn
Pálmason, f. 26.10. 1976, fram-
kvæmdastjóri á Miami í Banda-
ríkjunum.
Foreldrar Völu eru Pálmi
Pálmason, f. 23.4. 1951, skrif-
stofustjóri, búsettur í Víetnam, og
Helga Ólöf Oliversdóttir, f. 18.3.
1954, sjúkraliði við Landspítalann.
Matthildur Vala
Pálmadóttir
TÖLVUNARFRÆÐINGUR OG KENNARI VIÐ ÍSAKSSKÓLA
Anna Dagmar Daníelsdóttir
HÚSMÓÐIR Í HAFNARFIRÐI
Davíð Freyr Sigurvinsson
VERKAMAÐUR Á ÁLFTANESI
Anna fæddist á Kolmúla í Reyðar-
firði og ólst þar upp við öll almenn
sveitastörf en útræði var einnig
frá Kolmúla. Hún naut forkennslu
nokkra mánuði á ári, oftast á Vatt-
arnesi.
Anna var í vist í Vestmannaeyj-
um einn vetur og á Seltjarnarnesi
hjá Guðna Jóhannssyni skipstjóra
og Jóhönnu Þorsteinsdóttur, auk
þess sem hún starfaði á sauma-
stofu.
Eftir að Anna gifti sig, annað-
ist hún barnmargt heimili en vann
auk þess utan heimilis við ýmis
störf. Þá starfaði hún við St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði frá 1980.
Anna var einn af stofnendum
Hrundar í Hafnarfirði 1964, kven-
félags eiginkvenna iðnaðarmanna,
sat í stjórn þess frá upphafi, var þar
gjaldkeri og lengi formaður, og for-
maður Bandalags kvenna í Hafnar-
firði í tvö ár.
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu er Sigurður
Kristinsson, f. 27.8. 1922, d. 4.9.
2009, málarameistari í Hafnar-
firði, sonur Maríu Albertsdóttur og
Kristins J. Magnússonar málara-
meistara þar í bæ.
Börn Önnu og Sigurðar eru
María Kristín, f. 8.2. 1947, skrif-
stofumaður í Hafnarfirði, gift
Kristni G. Garðarssyni húsasmíða-
meistara og eiga þau tvö börn; Dag-
ný Bergvins f. 1.6. 1948, þroskaþjálfi
í Hafnarfirði, gift Guðmundi Þórar-
inssyni rafvirkjameistara og eiga
þau fjögur börn; Kolbrún Jóhanna,
f. 20.12. 1949, starfsmaður hjá Öss-
uri, gift Elíasi Rúnari Elíassyni mál-
arameistara, og eiga þau þrjú börn;
Albert Júlíus, f. 5.5. 1951, málara-
meistari í Hafnarfirði, og á hann
tvö börn með fyrrv. konu sinni,
Vilhelmínu Ólafsdóttur; Daníel, f.
18.7. 1952, hönnuður í Garðabæ,
kvæntur Ethel B. Sigurvinsdótt-
ur hjúkrunarfræðingi og eiga þau
fjögur börn; Hafdís, f. 9.10. 1954,
skrifstofumaður í Hafnarfirði, gift
Pálma Helgasyni blikksmíðameist-
ara og eiga þau þrjú börn; Hjördís
Anna, f. 10.8. 1959, skrifstofumað-
ur í Hafnarfirði, gift Vilhelm Péturs-
syni flugvélavirkja, og eiga þau þrjú
börn.
Systkini Önnu eru Sigrún f.
16.12. 1911, d. 23.11. 2001, hús-
móðir og ekkja á Reyðarfirði; Guð-
jón, f. 18.3. 1913, fyrrv. bóndi á Kol-
múla; Guðbjörg, f. 16.2. 1915, d.
1.1. 2000, húsmóðir í Hafnarfirði;
Elís, f. 14.2. 1917, nú látinn, bóndi
í Dölum í Fáskrúðsfirði.
Foreldrar Önnu voru Daníel Sig-
urðsson, f. 12.2. 1882, d. 13.3. 1960,
bóndi á Kolmúla, ættaður úr Breið-
dal og Papey, og k.h., Guðný Jóns-
dóttir, f. að Viðborði á Mýrum 8.5.
1886, d. 25.5. 1964, húsfreyja.
Anna tekur á móti ættingjum og
vinum í Hamri, Flensborgarskól-
anum í Hafnarfirði, laugardaginn
4.12. kl. 12.00.
Davíð fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í Fellaskóla.
Davíð starfaði hjá Gatnamála-
stjóra Reykjavíkurborgar í Breið-
holti 1991–96, starfaði hjá Timbri
og stáli 1996–97, vann síðan hjá
Eimskipum í fimm ár til 2006 og
starfaði síðan hjá Íslenskum aðal-
verktökum í Helguvík.
Fjölskylda
Systir Davíðs er Kristín Soffía
Kristmarsdóttir, f. 31.3. 1978, bú-
sett á Álftanesi.
Foreldrar Davíðs eru Sigurvin
Þorkelsson, f. 1956, búsettur á Sel-
fossi, og Áslaug Guðný Jónsdóttir,
f. 27.6. 1958, fyrrv. dagmóðir.
85 ÁRA Á LAUGARDAG
30 ÁRA Á FÖSTUDAG