Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 44
44 SAKAMÁL UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON kolbeinn@dv.is 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR Henry Lee Lucas var bandarískur raðmorð-ingi, var sakfelldur fyr-ir ellefu morð og naut þess vafasama heiðurs að vera á sínum tíma talinn skæðasti rað- morðingi Bandaríkjanna. Þó eru þeir til sem telja að Henry hafi ver- ið jafn-óforbetranlegur lygari og Münchhausen barón, því eftir að hafa gerst trúaður í fangelsi ákvað hann að játa syndir sínar, þeirra á meðal nánast stjarnfræðilegan fjölda morða. Síðar dró hann játn- ingar sínar til baka og í dag er ekki vitað um fjölda fórnarlamba hans sem samkvæmt játningu voru um fimm hundruð talsins. Hægt er að leiða líkur að því að Henry Lee hafi verið fórnarlamb geggjaðrar móður og ofríkis henn- ar. Auk þess sem móðir Henrys Lee beitti hann líkamlegu ofbeldi í tíma og ótíma þá neyddi hún hann til að klæðast stúlknafötum og til að bæta gráu ofan á svart þá setti hún krullur í hár hans og sendi hann síðan í skólann. Það er því kannski ekki að undra að Henry Lee hafi ekki verið eins og fólk er flest þegar hann óx úr grasi. Fyrsta morðið Henry Lee fullyrti að hann hefði framið sitt fyrsta morð árið 1954 þegar hann kyrkti sautján ára stúlku, Lauru Burnsley, sem hafði veitt honum mótspyrnu þegar hann hugðist nauðga henni. Líkt og með margar aðrar játningar hans dró hann þessa til baka síðar. Sama ár var hann dæmdur til sex ára fangelsisvistar fyrir innbrot og losnaði úr fangelsi árið 1959. Í janúar 1960 lenti hann í heiftar- legu rifrildi við aldraða móður sína. Móðir hans vildi að hann kæmi heim og hugsaði um hana, en það hugnaðist Henry Lee ekki. Lyktir rifrildisins urðu þær að móðir hans lá í eigin blóði á gólfinu. Henry Lee fullyrti að móðir hans hefði bar- ið hann í höfuðið með kústskafti og hann hefði slegið hana í háls- inn og hún fallið á gólfið. „Ég sá að hún var dauð. Síðan tók ég eftir því að ég hélt á hníf og hún hafði feng- ið skurð,“ sagði Henry Lee síðar, en hann yfirgaf húsið í kjölfar atviks- ins. Reyndin var hins vegar sú að móðir hans var ekki dáin. Syst- ir hennar kom að henni liggjandi blóðugri á gólfinu, en með lífs- marki. En hún gaf upp öndina áður en sjúkraliðar náðu á vettvang, og var dánarorsökin hjartaáfall. Fangelsi, frelsi og félagi Henry Lee fékk fjörutíu ára dóm fyrir annarrar gráðu morð og end- aði á geðdeild. Sagan segir að hann hafi mótmælt harðlega þegar hann fékk reynslulausn tíu árum síðar: „Ég sagði að ég væri ekki reiðubú- inn. Ég sagði öllum … að ég myndi drepa.“ Átján mánuðum síðar var hann aftur kominn á bak við lás og slá fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart tveimur táningsstúlkum. Árið 1970 var Henry Lee frjáls maður að nýju sökum plássleysis í fangelsinu og við tóku nokkur ár sem hann eyddi í flæking um suð- urríki Bandaríkjanna þar sem fékk tímabundna vinnu hér og þar. Árið 1976 kynntist hann Ottis Toole í Flórída. Henry Lee átti í ástarsambandi við tólf ára frænku Ottis, „Becky“ Powell, sem hafði strokið af ungl- ingaheimili og þrenningin var fullkomnuð. Tveimur árum síð- ar lögðu Ottis og Henry Lee upp í morðferðalag sem beindist eink- um og sér í lagi að samkynhneigð- um karlmönnum og síðar fullyrti Henry Lee að hann hefði á þessu tímabili drepið hundruð manna og að Ottis hefði aðstoðað hann við 108 morð. Þrenningin yfirgaf síð- an Flórída og settist að í Stoneburg í Texas, trúarlegu samfélagi þar sem Henry Lee fékk vinnu við þak- viðgerðir. En Adam var ekki lengi í paradís og áður en langt um leið fylltist Becky heimþrá og á endan- um samþykkti Henry Lee að flytjast búferlum með henni. Að hans sögn lentu þau í rifr- ildi á umferðarmiðstöð í Bowie sem endaði með því að Becky, þá fimmtán ára, fór ein til Flórída. En raunin var önnur því höfuðkúpa sem úrskurðað var að væri af Becky fannst síðar ásamt beinflísum í arni. Handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Henry Lee Lucas var handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð í júní 1983 og í kjölfarið var hann ákærð- ur fyrir morðið á Becky og konu að nafni Kate Rich, áttatíu og tveggja ára frá Ringold í Texas. Henry Lee játaði á sig morðin, en sagði síðar að hann hefði eingöngu gert það til að hljóta betri meðferð af hálfu lög- reglunnar. Í reynd játaði Henry Lee sig sek- an um nánast öll morð sem hann var spurður út í og játningagleði hans var slík að tvær grímur fóru að renna á lögregluna, enda fjöldi glæpa sem Henry Lee sagðist við- riðinn að nálgast þriðja þúsundið. Eitt þeirra morða sem Henry Lee játaði á sig hafði upphaflega verið úrskurðað sjálfsmorð. Án efa varð ekkja þess manns him- inlifandi, þrátt fyrir allt, því játn- ingin gerði henni kleift að krefjast líftryggingar sem henni hafði ver- ið neitað um vegna þess að um „sjálfsmorð“ hafði verið að ræða. En Phil Ryan, löggæslumanni frá Texas, var hætt að lítast á blik- una og bar á borð fyrir Henry Lee morðmál sem voru hreinn upp- spuni frá rótum, en aldrei stóð á Henry Lee að játa aðild að þeim. Jimmy Hoffa og Jim Jones Ef vafi hafði leikið á trúverðug- leika játninga Henrys Lee fyrir varð hann nánast að engu þegar hann fullyrti að hafa verið meðlimur í söfnuði mannæta og djöfladýrk- unar, Hönd dauðans, og hafa tekið þátt í „snuff“-myndum. Og stein- inn tók úr að mati lögreglunnar og fleiri þegar hann fullyrti að hann hefði drepið stéttarfélagsleiðtog- ann alræmda Jimmy Hoffa, sem hvarf árið 1975, og að hann hefði útvegað Jim Jones, leiðtoga sértrú- arsöfnuðar í Jamestown í Gvæjana, eitrið sem síðar var notað til fjölda- sjálfsmorða innan söfnuðarins árið 1978. Þegar upp var staðið var Henry Lee Lucas sakfelldur fyrir ellefu morð og dæmdur til dauða fyr- ir morð á ónafngreindri konu sem hlotið hafði nafngiftina „Rauðgulu sokkarnir“ eftir einu fataplöggun- um sem voru á líkinu þegar það fannst. Reyndar eru talin mik- il áhöld um að Henry hafi yfirhöf- uð komið nálægt morðinu á þeirri konu. Síðar var dauðadómnum yfir Henry Lee breytt í lífstíðarfangelsi og hann endaði líf sitt innan fang- elsisveggjanna. Hann dó eðlileg- um dauðdaga í mars 2001, 64 ára að aldri. Félagi hans, Ottis Toole, dó 1996 í fangelsi á Flórída þar sem hann afplánaði sexfalt lífstíðarfangelsi. Hraðlyginn RAÐMORÐINGI Lítill vafi er talinn leika á því að Henry Lee Lucas hafi ver- ið harðsvíraður raðmorðingi, en almennt er viðurkennt að hann hafi játað á sig helsti of marga glæpi, enda hlupu þeir á þúsundum. Hann fullyrti meðal annars að hafa komið stéttar- félagsleiðtoganum Jimmy Hoffa fyrir kattarnef. Ég sagði að ég væri ekki reiðu- búinn. Ég sagði öllum … að ég myndi drepa. Játaði á sig fjölda morða Henry Lee sagðist jafn- vel sekur um morð sem aldrei höfðu verið framin. Kaldrifjaður og hraðlyginn Henry Lee Lucas í höndum lögreglunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.