Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 15
föstudagur 3. desember 2010 fréttir 15
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Þú getur lækkað
greiðslubyrðina
á láninu þínu
Ræddu við ráðgjafann þinn í útibúinu þínu um úrræði Íslandsbanka
Það bar til tíðinda nýlega í Fljótshlíðinni að bændur í sveitinni urðu varir við framkvæmdir við glæsisum-
arhús Lýðs Guðmundssonar Bakkavararbróðurs. Bóndinn sagði framkvæmdir standa yfir í neðanjarðar-
byrgi hússins, sem samkvæmt heimildum, hýsir að minnsta kosti nokkra bíla. Gólfflötur byrgisins mun
vera um 350 eða 400 fermetrar svo ljóst er að ýmislegt má geyma þar.
Bændur í Fljótshlíðinni urðu ný-
lega varir við framkvæmdir í glæsi-
sumarhúsi Lýðs Guðmundssonar
Bakkavararbróðurs sem staðsett er
þar. „Það er eitthvað verið að djöflast
þarna. Þeir eru að draga eitthvað
drasl þarna út úr kjallaranum og eru
þarna með flutningavagn og gröfu til
að hífa eitthvað upp,“ sagði bóndi á
svæðinu í samtali við DV. Hann sagð-
ist þó ekki sjá nógu vel hvað verið var
að hífa upp. Bóndanum sýndist sem
þeir væru aðallega að vinna í kjall-
aranum á húsinu, en gólfflötur hans
mun vera 350 eða 400 fermetrar og
er meira í ætt við neðanjarðarbyrgi
en kjallara. „Hann er undir öllu hús-
inu og alveg norður af barðinu. Það
er fullt af bílum og dóti þarna inni og
alls konar drasl,” sagði bóndinn
Aðstaða fyrir þjónustufólk
Framkvæmdir við glæsihúsið hófust
í miðju góðærinu, árið 2006, en DV
fjallaði um framkvæmdina haust-
ið 2008, rétt eftir að kreppan skall á.
Þá var landsvæðið í kring undirlagt
af vinnuvélum, meðal annars stór-
um byggingarkrana. Bygging neð-
anjarðarbyrgisins var þá greinilega
að hefjast og gröfumenn unnu þar
hörðum höndum við að grafa sig
niður í jörðina. Húsið sem talið er
að sé fullbúið um þúsund fermetr-
ar, virtist að mestu leyti tilbúið utan-
frá. Á sínum tíma hafði DV það eft-
ir heimildarmönnum sem tengdust
byggingariðnaðinum að sumarhúsið
væri líklega eitt það veglegasta sem
nokkur Íslendingur hefði ráðist í að
byggja. Þeir sögðu jafnframt að erfitt
væri að gera sér grein fyrir kostnaði
við bygginguna en miðað við teikn-
ingar og ljósmyndir af húsinu gæti
hann hlaupið á hundruðum milljóna
króna.
Það var arkitektinn Guðmund-
ur Jónsson sem teiknaði glæsihúsið.
Neðanjarðarbyrgið mun ekki hafa
verið á fyrstu teikningum hans en var
bætt við eftir á. Samkvæmt heimild-
um DV átti að nýta byrgið sem bíla-
geymslu og aðstöðu fyrir þjónustu-
fólk. Nú er ljóst að þar eru að minnsta
kosti geymdir nokkrir bílar en ekki er
vitað hvernig aðstaða þjónustufólks-
ins hefur verið nýtt.
Lifa hátt
Lýður Guðmundsson stofnaði
Bakkavör Group árið 1986 ásamt
Ágústi Guðmundssyni bróður sín-
um og föður þeirra, Guðmundi
Lýðssyni. Það var upphaflega stofn-
að sem sérhæft hrognavinnslu-
fyrirtæki til að útvega Svíum og
Norðmönnum söltuð þorskhrogn.
Fyrirtækið óx þó hratt og árið 1994
hófst útrás til Bretlands. Þeir bræð-
ur auðguðust mikið og lifðu hátt,
keyptu lystisnekkjur og einka-
þotur. Þeir virðast lítið hafa látið
kreppuna á sig fá þó svo að minnstu
hafi munað að fyrirtækið yrði gjald-
þrota í kjölfar fjármálakreppunn-
ar. Það gerðist þó ekki og í mars á
þessu ári fögnuðu þeir með við-
eigandi hætti, nauðasamning-
um Bakkavarar, í einum frægasta
einkaklúbbi Lundúna, Annabels.
Klúbburinn mun vera einn sá dýr-
asti og flottasti þar í borg.
Þess ber að geta að Lýður Guð-
mundsson var, ásamt bróður sín-
um Ágústi, á lista DV yfir arkitekta
bankahrunsins, sem var birtur um
síðustu áramót.
Framkvæmdir haFnar
aFtur við lúxussetrið
SóLrún LiLjA rAGnArSdóttir
blaðamaður skrifar: solrun@dv.is
Þeir eru að draga eitthvað drasl
þarna út úr kjallaranum
og eru þarna með flutn-
ingavagn og gröfu til að
hífa eitthvað upp.
Glæsilegt sumarhús Framkvæmdirviðhúsiðhófustígóðærinu2006.
Óslesið