Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 31
Nýtt frá Hemm Hemm Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm sendi frá sér sína fjórðu breiðskífu á miðvikudaginn. Hún heitir Skot en áður hafa komið út Benni Hemm Hemm árið 2006, Kajak árið 2007 og Murta St. Calunga 2008. Að þessu sinni er Benni öllu poppaðari en áður í lagasmíð og textagerð. Um undirleik á plötunni sjá hljómsveitin Retro Stefson, Róbert Reynisson gítarleikari og Þórarinn Már Baldurs- son víóluleikari og var platan tekin upp í Sundlauginni í sumar. Útgáfutónleikar verða á Bakkusi þann 11. desember. myNdskreytt jólasaga Birgir Sig- urðsson, myndlistarmaður og rafvirki, verður um næstu helgi með ljósverkasýningu í íbúð sinni, 002 Gallerí, ásamt frænku sinni Þóru Björg myndlistarnema sem hefur myndskreytt frumsamda jólasögu eftir Birgi. Verkið heitir Ljósverk en Birgir flytur út úr íbúð sinni um helgar til þess að geta sett upp 002 Gallerí. Sýningin opnar klukkan 14.00, laugardaginn 4. desember og er opin til 17.00 á laugardag og sunnudag. föstudagur n Fáklæddir jólasveinar á Players Sigga Kling stjórnar konukvöldi á Players. Beggi og Pacas sjá um að elda ofan í gesti og slá á létta strengi. Bjarni töframaður þeytir skífum og Brynja Valdís leikkona verður með uppistand. Síðast en ekki síst munu jólasveinar fækka fötum og ganga um gólf.  n Hvatningarverðlaun ÖBÍ Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands verða veitt í Salnum í Kópavogi milli kukkan 14 og 16 á alþjóðlegum degi fatlaðara. n VAX á Faktorý Hljómsveitin VAX heldur tónleika á Faktorý. Leikin verða lög af hljómskífum sveitarinnar í bland við sígilda standarda sem hafa verið á lagaskrá sveitarinnar lengur en menn vilja muna. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.30. laugardagur n Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju Björn Steinar Sólbergsson organisti Hallgrímskirkju leikur á Klais-orgelið á hádegistónleikum laugardaginn 4. desember klukkan 12.00. n SSSól á Players „Eru ekki allir sexí?!,“ mun án efa heyrast frá Helga Björnssyni þegar hann stígur á svið ásamt SSSól á Players á laugardag- inn. Ekkert vesen og 1.800 krónur inn. suNNudagur n Jóladagskrá Þjóðminjasafns Íslands Hefst með pompi og prakt sunnudaginn 5. desember. Dagskráin hefst klukkan 14 og er aðgangur ókeypis. Fram koma Pollap- önkararnir Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason. Grýla, Leppalúði og jólakötturinn kíkja í heimsókn og spjalla við börnin um íslenska jólasiði. Auglýsing án hjarta David Duchovny og Demi Moore leika Steve og Kate Jones, ham- ingjusömustu hjón í heimi sem eiga tvö fullkomin börn, þau Jenn og Mick. Jones-fjölskyldan er þó ekki venjuleg fjölskylda. Hún er hópur fjögurra fallegra einstakl- inga sem sendur er í ríkt úthverfi til að selja lífstíl sinn. Engin í fjöl- skyldunni er skyldur, allt saman er þetta eitt stórt söluplott. Þau eru fljót að afla sér vin- sælda á meðal nágrannanna og alltaf eru þau að kaupa sér eitt- hvað nýtt. Þau eru svo fullkomin að fólkið í kringum þau langar í líf þeirra og til þess að eignast það kaupir það sér sömu hluti og Jo- nes-fjölskyldan á. Það sem fólkið veit ekki er að vikulega kemur yfir- maður þeirra og fer yfir sölutölur vikunnar. Því fer þó fjarri að „fjöl- skyldan“ sé fullkomin. Það er smákaldhæðni í því að mynd um fjölskyldu sem er ein stór auglýsing virki í raun sem ein stór auglýsing. Jones-fjölskyld- an er svo svakalega köld að mað- ur nær engri tengingu við hana. Eigin maðurinn, Steve, er sá eini sem hefur raunverulegar tilfinn- ingar í myndinni þannig að hann heldur uppi því litla hjarta sem hún hefur upp á að bjóða. Það verður seint sagt að Demi Moore eigi einhvern stjörnuleik og hvað þá krakkarnir sem leikn- ir eru af Amber Heard og Ben Hollingsworth. Dóttirin Jenn er afar lausgirt og kemur mönnum í vandræði með brókarsótt sinni. Vandamál hennar eru þó svo til- gerðarleg að maður fær kjána- hroll. Einu atriði myndarinnar þar sem mér leið eins og ég væri að horfa á bíómynd en ekki rúmlega 90 mínútna auglýsingu voru þegar Duchovny og hinn vanmetni Gary Cole deildu sínum innstu áhyggj- um. Það samband er þó byggt á lygum eins og öll Jones-fjölskyld- an. Tómas Þór Þórðarson föstudagur 3. desember 2010 fókus 31 Hvað er að GERAsT? itt með að finna tónlist sem hún hefði orðið fullkomlega sátt við. Eru bæði lífsglöð og forvitin Blaðamann leikur forvitni á að vita hvort þau, úr svona ólíkum áttum, eigi eitthvað sameiginlegt. „Ég held að það sem við eigum sameiginlegt sé að við höfum áhuga á svo mörgu í lífinu og erum mjög lífsglöð. Svo erum við bæði svo forvitin,“ segir María Sigrún. Reyn- ir Pétur viðurkennir þó að hann detti stundum niður í smáþunglyndi, þó hann sé að öllu jöfnu mjög lífsglaður. „Þetta eru svona eins og dýfur en þá reyni ég alltaf að horfa fram á við og hugsa jákvætt,“ segir hann. „Þegar þú gekkst hringinn í kring- um Ísland þá var ég bara lítil stelpa, ég var 6 ára. Ég man rosavel eftir þessu þegar ég var heima í Vesturbænum og fylgdist með þér í sjónvarpinu,“ seg- ir María Sigrún við Reyni Pétur sem þykir gaman að heyra það. „Það er dýrmætt sem við eigum, endurminn- ingar fortíðar,“ segir hann og María Sigrún samsinnir því. „Mér finnst þú eiga svo mikið er- indi við þjóðina og að þú þurfir að- eins að deila því. Það er þetta sem þú ert svo þekktur fyrir, að vera jákvæð- ur og bjartsýnn og hafa vonina,“ seg- ir María Sigrún þegar Reynir Pétur spyr hana hvernig það hafi komið til að hún ákvað að gera heimildamynd um hann. Hún segist hafa gengið með hugmyndina að myndinni í maganum í nokkur ár en vildi finna rétta tímann. Í ár vill einmitt svo skemmtilega til að það eru 25 ár frá göngu Reynis Pét- urs og Sólheimar eiga 80 ára afmæli. „Svo small þetta bara einhvern veginn saman. Ég hafði tíma til að gera þetta og hann gat gert þetta með mér núna,“ segir María Sigrún sem heillaðist af fallegu lífsviðhorfi Reynis. „Hann seg- ir mjög skemmtilega frá og hefur svo mikið innsæi sem ég held að margir alheilbrigðir hafi ekki. Hann á brýnt erindi við þjóðina og ég held að hann geti veitt okkur innblástur.“ Vinnur við áhugamálið sitt María Sigrún segir myndina um Reyni Pétur vera skemmtilegasta verkefni sem hún hafi tekið sér fyrir hendur. Hún er í fullri vinnu sem fréttamað- ur hjá RÚV og segir allan sinn frítíma hafa farið í gerð myndarinnar síðustu vikurnar. María Sigrún segist þó aldrei hafa verið neitt stressuð eða bug- uð þann tíma sem tók að gera mynd- ina þó hún hafi þurft að setja önnur áhugamál sín til hliðar á meðan. „Ég er þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna við áhugamálið mitt. Ég hef áhuga á fólki og öllu mögulegu og ég fæ útrás fyrir það í vinnunni. Svo hef ég auðvit- að áhuga á heimildamyndagerð,“ segir María Sigrún en þetta er önnur mynd- in sem hún gerir. „Ég vil gjarnan gera meira af þessu. Mér finnst fínt að vera í fréttunum en mér finnst gott að hafa svona hliðarverkefni sem ég get nostr- að við.“ Þegar María Sigrún er ekki að vinna sem fréttamaður eða við heim- ildarmyndir þá finnst henni mjög gott að vera heima og gera fallegt í kring- um sig. Hún hefur mikla ástríðu fyrir matargerð og bakstri og á stóran vin- kvennahóp sem hún býður reglulega í mat. Líður best í joggingallanum María Sigrún hefur unnið sem frétta- maður á RÚV í fimm og hálft ár en í janúar á þessu ári hóf hún einnig að lesa fréttir og er því fastur gestur heima í stofu allra landsmanna. Hún seg- ist ekki hafa orðið vör við að fólk veiti henni meiri athygli á almannafæri síð- an hún hóf fréttalestur í sjónvarpinu. „Ég er með margar vinabeiðnir á Face- book, það er líklega það eina,“ segir María Sigrún hlæjandi. Hún hefur það þó fyrir reglu að samþykkja ekki vina- beiðnir frá fólki nema hún þekki það. Hún segist ekki vera alveg þessi týpa sem birtist okkur á skjánum, stífmál- uð, með túperað hárið dagsdaglega og það geti verið að fólk þekki hana ekki á förnum vegi. „Mér líður best bara svona í joggingallanum heima, ómál- uð og þegar ég fer út í búð þá er ég bara eins og Guð skapaði mig.“ María Sigrún er fegin því að fá almennt ekki mikla athygli á almannafæri og vill halda einkalífi sínu frá sviðsljósinu. „Mað- ur verður aðeins að setja upp girðing- ar og hafa sitt fyrir sig, maður má ekki alveg opna allar dyr.“ Hún laumar því þó brosandi út úr sér að hún sé að fara að gifta sig næsta sumar og finnst allt í lagi að það komi fram. Hinn heppni er unnusti hennar, Pétur Árni Jónsson eigandi Viðskiptablaðsins. Það eru því spennandi hlutir á döfinni hjá Maríu Sigrúnu en heimildamyndin Reynir Pétur, gengur betur verður sýnd á RÚV sunnudaginn 5. desember. solrun@dv.is á brýnt erindi við þjóðina MEStu MátAr María Sigrún og Reynir Pétur eiga það sameiginlegt að vera bæði lífsglöð og forvitin. Mynd róBErt rEyniSSon á VinnuStoFunni María Sigrún er hér á leirvinnustofunni á Sólheimum ásamt Reyni Pétri og unnustu hans, Hanný Maríu. Mynd róBErt rEyniSSon ThE jonEsEs Leikstjórn: Derrick Borte. Handrit: Derrick Borte og  Randy T. Dinzler. Leikarar: David Duchovny, Demi Moore, Amber Heard, Ben Hollingsworth, Gary Cole. Hvað ertu að selja? Líf Jones-fjöl- skyldunnar snýst um að selja lífstíl sinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.