Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Page 17
in, sem embættið lagði hald á, einn-
ig aðgengileg öðrum sem vilja gera
bótakröfur.
Endurskoðendur eru ekki bein-
línis í lögregluhlutverki en verða að
fara eftir settum reglum og skilyrðum
endurskoðunar. Verði endurskoð-
andi var við eitthvað ámælisvert,
eitthvað sem ekki stenst almenn-
ar reikningsskilareglur en áritar þau
skjöl engu að síður gegn betri vitund
getur það verið refsivert.
Veikt eigið fé eða falsað
DV hefur heimildir fyrir því að skila-
nefnd og slitastjórn Landsbank-
ans hafi séð ástæðu til þess að senda
fjölda mála til sakamálarannsókn-
ar hjá embætti sérstaks saksóknara.
Ekki er þar með sagt að þau leiði öll til
ákæru.
Kjarni þessa máls snýst um það
hvort eigið fé Landsbankans hafi verið
falsað og hver beri ábyrgð á því að svo
var gert. „Þetta snertir eiginfjárhlutfall
bankans á þessum tíma. Það er líka
mat okkar að ekki hafi réttilega verið
staðið að tengingum milli aðila inn-
an bankans og að endurskoðendum
hafi mátt vera þetta ljóst,“ sagði Herdís
Hallmarsdóttir hæstaréttarlögmaður
við blaða- og fréttamenn eftir kröfu-
hafafundinn 1. desember, en hún sit-
ur í slitastjórn Landsbankans.
Stjórnendur bankans bera ábyrgð
á reikningsskilum hans. Rannsóknar-
nefnd Alþingis hefur rækilega bent á
það hvernig hluti eiginfjár bankanna,
ekkert síður hjá Landsbankanum en
hinum bönkunum tveimur sem féllu.
Á miðju árinu 2008 nam svokall-
að veikt eigið fé bankanna 300 millj-
örðum króna. Þetta merkir gróflega
að eigið fé bankanna hafi samanlagt
verið falsað upp á við um 300 millj-
arða króna með kaupum á hlutum í
bönkunum með lánsfé úr þeim sjálf-
um, oftast hjá innbyrðis tengdum að-
ilum. Slíkt skapaði að dómi nefndar-
innar gríðarlega áhættu. Athyglisvert
er að hvorki álagspróf eða önnur teg-
und eftirlits af hálfu Fjármálaeftirlits-
ins reyndist fært um að sjá við refjum
bankastjórnanna og meintum van-
rækslusyndum endurskoðunarfyrir-
tækjanna.
Stærsti eigandi bankans, Sam-
son eignarhaldsfélag ehf., var með
19 milljarða króna lán í bankanum
í lok árs 2006 og 31 milljarð í árslok
2007. „Ef frá er talin eign félagsins í
bankanum sjálfum og skuldir þess
við bankann námu skuldir Samson-
ar umfram eignir um 19 milljörðum
í lok árs 2006 og 29 milljörðum árið
2007. Hér er því litið svo á að um-
rædd lán hafi verið út á kjölfestu-
hlutinn í bankanum þar sem þau
voru líkleg til að tapast færi bankinn
í þrot,“ segir í skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis.
FÖSTUDAGUR 3. desember 2010 FRÉTTIR 17
PWC UNDIR SMÁSJÁNNI
Mér finnst því miður hægt að
draga úr bruðli hjá ÍTR í
stað þess að láta niður-
skurðinn bitna á ungl-
ingunum.
Eitt þeirra stóru Fyrir dómstólum
verður tekist á um hver beri ábyrgð á
því að eigið fé bankans var í raun falsað
undir það síðasta. MYNDIR RÓBERT
Heilsustofnun NLFÍ er gert að ganga frá niðurskurði fyrir jól:
Slæm jólagjöf fyrir starfsfólkið
„Við vorum búin að búa okkur und-
ir um það bil 40 milljóna niðurskurð
og sættum okkur við það,“ segir Ól-
afur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Heilsustofnunar Náttúrulækninga-
félagsÍslands í Hveragerði. Ríkið
hefur ákveðið að skera niður samn-
ingsbundnar greiðslur til stofnunar-
innar um 18 prósent eða 100 millj-
ónir á næsta ári. Búast má við að 20
starfsmönnum verði sagt upp í kjöl-
far þessa en nú starfa um 115 manns
á stofnuninni.
Ólafur segir að stofnunin hafi ver-
ið búin undir að þurfa að hagræða
og jafnvel minnka vinnu hjá starfs-
mönnum. Menn séu að sjálfsögðu
búnir að sjá að það er alls staðar ver-
ið að hægræða en þetta útspil hjá rík-
inu hafi komið aftan að þeim. „Við
fengum að vita þetta á þriðjudaginn
og eigum að ganga frá þessu fyrir jól
en það er bara ekki hægt,“ bætir hann
við. „Þetta er ekki sú jólagjöf sem við
hefðum viljað gefa starfsfólkinu.“
Ólafur telur að þar sem ríkið
bakkaði með niðurskurðaráætlun
sína frá því í sumar hafi þurft að finna
einhverja aðra leið til að skera nið-
ur. „Okkur er fórnað og við borgum
fyrir þann afslátt á kröfum sem aðr-
ir fengu,“ segir hann. Hann finni þó
til með landsbyggðinni vegna þess
skells sem hún hafa fengið.
Hann segir að nú sé fundað stíft
og þeir reyni að kynna sín mál. „Við
erum ósátt við hvernig þeir hafa
gengið í þetta án þess að tala við okk-
ur, án þess að láta okkur vita. Það er
alvarlegt mál,“ segir hann. „Svona er
Ísland í dag. Við erum eins og allir
hinir, göngum á milli og reynum að
útskýra okkar hlið en ég held að við
séum í einhverri biðröð.“
gunnhildur@dv.is
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri NLFÍ Okkur er fórnað.