Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Qupperneq 22
22 ERLENT 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Uppljóstrunarsíðan Wikileaks hóf
að birta gögn frá bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu síðastliðinn
mánudag. Vegna vaxandi spennu á
Kóreuskaga hafa gögn sem snerta
upplýsingaöflun um Norður-Kór-
eu vakið mikla athygli. Bandarísk
yfirvöld hafa lagt mikla áherslu á
að safna upplýsingum um ástand-
ið í landinu og ekki síst ástandið á
leiðtoga þess, Kim Jong-il. Það hef-
ur hins vegar reynst erfitt hingað til,
enda halda Bandaríkjamenn ekki
úti sendiráði í Pyongyang, höfuð-
borg Norður-Kóreu. Í raun hafa eng-
in formleg tvíhliða samskipti átt sér
stað milli ríkjanna síðan vopnahlés-
samningurinn milli Norður-og Suð-
ur-Kóreu var undirritaður árið 1953
í kjölfar Kóreustríðsins.
Mat bandarískra yfirvalda á
ástandinu í Norður-Kóreu er því að-
eins byggt á upplýsingum sem þau
fá frá annarri hendi. Þýska vikuritið
Der Spiegel, sem var einn þeirra fjöl-
miðla sem fékk aðgang að gögnum
Wikileaks, hefur tekið saman þau
atriði sem Bandaríkjamenn hafa
stuðst við til að byggja sýn sína á
gangi mála í Norður-Kóreu.
Komast í samband
í gegnum Kína
Í gögnunum er nokkuð um skeyta-
sendingar frá kínversku borginni
Shenyang, en þar starfar sendifull-
trúi Bandaríkjanna Stephen Wick-
man. Í borginni er einnig ræðis-
skrifstofa frá Norður-Kóreu, en
samkvæmt Wickman er henni hald-
ið úti einungis á viðskiptalegum for-
sendum. Norður-Kóreumenn bjóði
fyrsta flokks þjónustu, hverjum
þeim sem vilji skipta við þá og skila
þar með erlendum gjaldeyri í ríkis-
kassann. Þannig geta vel fjáðir ein-
staklingar frá Vesturlöndum komist
í samband við yfirvöld í Norður-Kór-
eu og jafnvel, ef viðskiptin eru nógu
stórtæk, komist í kynni við Kim
Jong-il sjálfan.
Kim keðjureykir og drekkur
Viðskiptakona nokkur, sem var ekki
nafngreind, stóð í slíkum viðskipt-
um. Hún sagði bandarískum ríkis-
erindrekum frá ferð sinni til Norður-
Kóreu, en þar tók Kim Jong-il sjálfur
á móti henni á sveitasetri sínu uppi
í hlíðum fjallsins Myohyang. Sagði
konan að Kim „væri við góða heilsu“.
Hún sagði að hann „hefði fulla stjórn
á hlutunum, væri nákvæmur, heill-
andi og með gott minni“. Það merki-
legasta sem konan sá var hins veg-
ar að Kim virðist ekki fara að ráðum
lækna en heilsa einræðisherrans
hefur verið talin slæm eftir að frétt-
ir bárust af heilablóðfalli sem hann
mun hafa fengið síðsumars 2008.
Konan sagði að „Kim kveikti sér í síg-
arettu um leið og formlegum fundi
okkar lauk. Fyrir kvöldverð drakk
hann kampavín, viskíkokteila með-
an á kvöldverðnum stóð og hann
hélt áfram að keðjureykja allan tím-
ann. Kim virðist ekki of umhugað
um heilsu sína.
Fita fólk
Önnur athyglisverð skýrsla barst ut-
anríkisráðuneyti Bandaríkjanna frá
sendiráði þess í Seoul, höfuðborg
Suður-Kóreu. Í skýrslunni kemur
fram að undanfarið hafi verið stund-
uð svokölluð „fjölskylduskipti“ til
að bæta álit umheimsins á Norð-
ur-Kóreu. Val á fjölskyldum byggist
á flokkshollustu þeirra, en eftir að
valið hefur farið fram gefst viðkom-
andi fjölskyldu tækifæri til að kynn-
ast lífi utan landamæra Norður-Kór-
eu. Fjölskyldurnar fá hins vegar ekki
að yfirgefa heimalandið fyrr en þær
hafa verið „fluttar til Pyongyang
og síðan „fitaðar“ með reglulegum
máltíðum og vítamínum til að ekki
komist upp um alvarlegan næring-
arskort sem herjar á íbúa Norður-
Kóreu“.
Árásin hluti af áætlun
Komið hefur fram í gögnum frá
Wikileaks að yfirvöld í Kína séu
ekki eins miklir bandamenn Norð-
ur-Kóreu og áður var talið. Nú þeg-
ar er orðin fræg tilvitnun í ónefnd-
an háttsettan embættismann í
Kína, að Norður-Kórea hagi sér
eins og „ofdekrað barn sem er
að reyna að ná athygli foreldr-
is“. En foreldrið í þessu tilfelli er
ekki Kína, eins og margir myndu
halda, heldur Bandaríkin. Í öðrum
skýrslum kemur fram að banda-
rískir ríkiserindrekar hafi heyrt
það oft frá kínverskum ráðamönn-
um að forgangsverkefni yfirvalda í
Pyongyang væri að bæta tengslin
við Bandaríkin og koma á tvíhliða
samskiptum. Kínverskir embættis-
menn væru á því máli að hernað-
artilburðir Norður-Kóreu á undan-
förnu ári tengdust hrakandi heilsu
leiðtogans, Kim Jong-il. Áætlun
Norður-Kóreumanna sé því sú „að
auka á hernaðarlega spennu gagn-
vart Bandaríkjunum uns eftirmað-
urinn, hugsanlega Kim Jong-un
[sonur Kim Jong-il], taki við stjórn-
artaumunum og lægi öldurnar.“
Gífurleg efnahagsvandræði
Á síðasta ári var mikið um skeyta-
sendingar milli ræðisskrifstofu
Bandaríkjanna í Shenyang og ut-
anríkisráðuneytisins í Washington
vegna gífurlegra efnahagsvanda-
mála í Norður-Kóreu. Samkvæmt
heimildum Bandaríkjamanna var
gerð örvæntingarfull tilraun til
að hressa upp á efnahaginn með
gengisfellingu won-sins, gjaldmið-
ils Norður-Kóreumanna. Með einu
pennastriki voru tvö núll klippt aft-
an af andvirði gjaldmiðilsins sem
átti að auka tekjur útflutnings-
greina. Aðgerðin skilaði ekki til-
ætluðum árangri og litlum tekjum
í ríkiskassann, auk þess sem verð
á neysluvöru hækkaði gífurlega
fyrir heimamenn með skelfilegum
afleiðingum. Samkvæmt ræðis-
skrifstofunni í Shenyang voru það
„aðeins börn háttsettra embættis-
manna sem sluppu við afleiðing-
arnar“.
Wickman, ræðismaðurinn í
Shenyang, hefur það eftir „valda-
miklum aðila“ í viðskiptalífi Norð-
ur-Kóreu, að gengisfellingin hafi
sýnt fram á síhækkandi stig ör-
væntingar ráðamanna í Pyong-
yang. Sami aðili sagði að Kim
Jong-un væri jafnvel að íhuga að
innleiða efnahagsumbætur, þótt
þær séu ekki á döfinni eins og er.
Norður-Kóreumenn munu hafa
móðgast við Kínverja þegar Norð-
ur-Kórea var ekki sett á lista Kín-
verja um 137 staði í heiminum þar
sem væri gott að fjárfesta. Sé það
ein ástæða þess að „Norður-Kór-
ea vonist eftir að tvíhliða samskipti
við Bandaríkin verði endurvakin,
sem hluti af metnaðarfullri þróun-
aráætlun fyrir árið 2012.“
Samkvæmt gögnunum sem uppljóstrun-
arsíðan Wikileaks hóf að birta á mánu-
dag, er greinilegt að bandarísk stjórnvöld
vilja ólm komast yfir upplýsingar um
Norður-Kóreu. Þar kemur fram að Norð-
ur-Kóreumenn vilja koma á samskiptum
við Bandaríkin og að árásin sem gerð var
á Yeonpyeong-eyju í síðustu viku gæti
verið hluti af stærri áætlun.
MYND MÁLUÐ AF
NORÐUR-KÓREU
BJÖRN TEITSSON
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Áætlun Norður-Kóreumanna sé
því sú „að auka á hern-
aðarlega spennu gagn-
vart Bandaríkjunum uns
eftirmaðurinn, hugsan-
lega Kim Jong-un [son-
ur Kim Jong-il], taki við
stjórnartaumunum og
lægi öldurnar.“
Borgarmynd Pyongyang
Bandaríkjamenneruforvitnirum
gangmálaíNorður-Kóreu.
Feðgarnir heilsa Kim
Jong-ilogKimJong-un.Sá
eldrivirðisternþráttfyrir
heilablóðfall,keðjureyking-
arogstífadrykkju.