Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Page 23
FÖSTUDAGUR 3. desember 2010 ERLENT 23
Lögreglumenn í Hertfordskíri á
Englandi héldu að þeir hefðu dott-
ið í lukkupottinn þegar þeir komu
að tómri íbúð þar sem talið var að
pyntingar hefðu átt sér sér stað.
Skömmu eftir að þeir höfðu geng-
ið úr skugga um að íbúðin væri
tóm kom aðvífandi pítsusendill
frá Dominos, og spurði lögreglu-
mennina hvort þeir hefðu áhuga á
að kaupa pítsur sem hann var með
meðferðis á hálfvirði. Lögreglu-
mennirnir hugsuðu sig ekki tvisvar
um og tóku þessu kostaboði. Þeir
áttuðu sig hins vegar ekki á, að með
því að gæða sér á pítsunum voru
þeir jafnframt að borða sönnunar-
gögn í pyntingarmálinu.
Málavextir voru þeir að glæpa-
gengi eitt hafði skipulagt fund með
lágt settum eiturlyfjasala í íbúðar-
húsnæði. Fundurinn var yfirvarp,
en eftir að eiturlyfjasalinn var þang-
að kominn var honum haldið nauð-
ugum og hann pyntaður grimmi-
lega. Eftir nokkurra daga pyntingar
tókst honum að flýja út um glugga,
en þá hafði nágranni gefið lögreglu
nafnlausa ábendingu um að eitt-
hvað óvenjulegt væri á seyði. Þeg-
ar lögreglan kom á vettvang voru
glæpamennirnir á bak og burt, en
áður en þeir flúðu höfðu þeir pantað
pítsu frá Dominos. Lögreglumenn-
irnir áttuðu sig ekki á að það hefðu
verið glæpamennirnir sem pöntuðu
pítsurnar, en á Dominos-kössum
eru nafn viðskiptavinarins og tími
pöntunar nákvæmlega skráð. Pít-
surnar voru því mikilvægt sönnun-
argagn, sem staðfesti að hinir grun-
uðu hefðu vissulega verið staddir í
íbúðinni þar sem pyntingarnar áttu
sér stað.
Til allrar lukku fyrir lögreglu-
mennina fundu þeir þó kassana
nokkrum dögum síðar og hafði mat-
arlyst þeirra því ekki teljandi áhrif á
gang rannsóknarinnar.
Lögreglumenn í Bretlandi gátu ekki hamið sig:
Átu sönnunargögn
NÝ SKÓSENDING
Í GYLLTA KETTINUM,
Allir skór á
12.800 kr.
stærð 36-41
AUSTURSTRÆTI 8-10 • SÍMI 534 0005
DANIR VILJA
EKKI TIL AFRÍKU
Ný skoðanakönnun í Danmörku leið-
ir í ljós að 47 prósent Dana eru því
mótfallnir að senda herlið til afrískra
ríkja á borð við Sómalíu eða Súdan
ef Atlantshafsbandalagið bæði um
slíkt. Ole Wæver, prófessor í alþjóða-
samskiptum við Kaupmannahafnar-
háskóla, segir að niðurstöður könn-
unarinnar séu „mesta sprengja sem
hefur fallið í utanríkisstefnu Dana
undanfarin 20 ár.“
Blendin viðbrögð
Könnunin var gerð fyrir dagblað-
ið Politiken og sjónvarpsstöðina
TV2 í kjölfar yfirlýsinga utanríkis-
ráðherra Danmerkur, Lene Esper-
sen, um framtíðarstefnu í utanrík-
ismálum. Sagði Espersen að Danir
væru tilbúnir til þess að senda her-
lið til Afríku, til að koma í veg fyr-
ir að hryðjuverkamenn næðu fót-
festu í svokölluðum „brostnum
ríkjum.“ Viðbrögð við niðurstöð-
unum hafa verið blendin. Mogens
Lykketoft, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, segir að það komi sér á
óvart hve margir styðji hugmynd-
ina um að senda herlið til Afríku,
en 40 prósent aðspurðra sögðust
styðja við bak núverandi utanríkis-
ráðherra. Sósíaldemókratar, sósí-
alistar og Danski þjóðarflokkurinn
hafa allir hafnað hugmyndinni um
að senda herlið til Afríku. „Stuðn-
ingurinn hlýtur að vera vegna þess
að fólk gerir sér ekki grein fyrir
því hversu erfitt verkefnið myndi
reynast,“ segir Lykketoft og benti á
að bandaríska hernum hefði til að
mynda mistekist að lægja öldurnar
í eldfimu ástandi í Mogadisju árið
1993.
Espersen ánægð
Þrátt fyrir að meirihluti Dana virðist
vera andsnúinn hugmyndinni seg-
ir Espersen að hún sé ánægð með
niðurstöðurnar. „Að mínu mati höf-
um fengið mikið út úr þessari um-
ræðu. Mín ósk er sú, að við veit-
um því athygli ef Danmörku stafar
ógn frá nýjum heimshlutum. Ef
svo er, þá verðum við að vera til-
búin til að senda herlið.“ Wæver
segir að 40 prósent stuðningur við
hernaðarstarfsemi á vegum Atl-
antshafsbandalagsins sé mjög lít-
ill í sögulegu tilliti, þar sem Danir
hafa yfirleitt sýnt aðgerðum banda-
lagsins mikinn stuðning. Nú er hins
vegar svo komið, að margir Dan-
ir hafa fengið sig fullsadda af stríð-
inu í Afganistan, þar sem Danir hafa
haldið úti herliði. Eru aðeins 22 pró-
sent Dana sem telja að aðgerðirn-
ar í Afganistan hafi verið einhvers
virði, en þar hafa nú þegar fallið 39
danskir hermenn. „Ef æ fleiri Danir
komast að þeirri niðurstöðu að að-
gerðin hafi verið góð hugmynd, en
einfaldlega ekki gengið upp, verð-
ur maður að spyrja sig hvers konar
stefna það sé,“ segir Wæver.
Meirihluti Dana er því mótfallinn að danski herinn taki að sér
verkefni í Afríku. Stuðningur við NATO er þar í sögulegu lág-
marki. Lene Espersen utanríkisráðherra segist samt ánægð
með 40 prósenta stuðning.
Mesta sprengja sem hefur fallið
í utanríkisstefnu Dana
undanfarin 20 ár.
Lene Espersen utanrík-
isráðherra Hún vill styðja
við bakið á NATO.
BJÖRN TEITSSON
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Rjúkandi pítsur Fáir slá hendinni á
móti góðri flatböku.