Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2010
DV árið 2000 Stuttar fréttir
Janúar 2000
„Því miður samþykkti ég fjar-
skiptalögin en í ljósi ruddalegra og
ógeðfelldra hótana sem ég og fleiri
hafa fengið í
gegnum síma
þá mun ég taka
málið upp í þing-
flokki Samfylk-
ingarinnar og
beita mér fyrir
því að ákvæði
um bann við seg-
ulbandsupptök-
um á símtölum
verði afnumið,“
sagði Margrét Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar, í sam-
tali við DV í upphafi ársins 2000.
Hún sagðist hafa keypt sér upp-
tökutæki til að verja sig en mætti
ekki nota það. Í aðdraganda síðustu
kosninga hafi henni borist hótan-
ir í gegnum síma. „Mér leist ekki á
blikuna þegar maðurinn var farinn
að ræða um barnabarn mitt og virt-
ist fylgjast með ferðum mínum frá
því klukkan 7 á morgnana og fram
að miðnætti. Hann vissi hvenær og
hvort ég fór með barnabarn mitt á
dagheimili. Hvort ég ók Þrengslin
eða Hellisheiðina til Reykjavíkur og
hann fylgdist jafnvel með því hvort
ég stoppaði og fékk mér kaffisopa
í Litlu kaffistofunni á Sandskeiði.
Það var engu líkara en hann hefði
kortlagt daglegt líf mitt. Þá kærði
ég,“ sagði Margrét.
En hvers vegna sam-
þykktir þú fjarskipta-
lögin?
„Mér brá heiftar-
lega þegar fjölmiðl-
ar vöktu athygli okk-
ar þingmanna á þessu
ákvæði í lögunum sem
banna segulbandsupp-
tökur en það er einu
sinni þannig að við
þingmenn komumst
ekki yfir að lesa allt
sem við samþykkjum.
Við erum með menn í
nefndum sem fara yfir málin með
okkur og ekki man ég að þetta
ákvæði hafi sérstaklega verið rætt
í þingflokki Samfylkingarinnar.
Þetta hefur bara slæðst
með,“ sagði Margrét
sem ætlar að taka mál-
ið upp og reyna að ná
fram nauðsynlegum
breytingum svo hún og
aðrir geti varið sig með
gögnum þegar ósvífnir
einstaklingar misnota
fjarskipti með þeim
hætti sem fyrr greindi:
„Það felst visst öryggi
í segulbandsupptök-
um á símtölum og þess
öryggis vil ég geta not-
ið þegar mér er misboðið símleið-
is," sagði Margrét Frímannsdóttir,
nú yfirmaður fangelsisins á Litla-
Hrauni.
Foringi Samfylkingarinnar setur sig upp á móti nýju fjarskiptalögunum:
Hótað lífláti
– vill hafa heimild til að verja sig með segulbandsupptökum
Margrét Frí-
mannsdóttir
...fyrir 10 árum
Titringur
Mars 2000 – DV greindi frá því
í mars árið 2000 að eignarhlutur
Kára Stefánssonar, forstjóra Ís-
lenskrar erfðagreiningar, væri
orðinn 11,3 milljarðar króna á þá-
verandi gengi. Hannes nokkur
Smárason, sem þá var aðstoðar-
forstjóri átti eignarhluti fyrir um 2
milljarða króna. „Alla þessa hluti
fékk hann frá fyrirtækinu í formi
kaupvilnana,“ segir í fréttinni.
Ég hef ekkert að fela
Mars 2000 – Jón Ásgeir Jóhann-
esson talaði um ímyndarkreppu,
öfund og kjaftasögur í helgarvið-
tali við DV í
mars árið 2000
– sem bar þessa
fyrirsögn.
Baugur var þá
farinn að færa
út kvíarnar og
var orðinn fyr-
irferðarmikill
í íslensku við-
skiptalífi. Jón Ásgeir var meðal
annars spurður hvort hann sakn-
aði þess að vinna í Bónus. „Ég hef
skýra framtíðarsýn eða landsýn
eins og ég vil kalla það. Það var
gaman í Bónusi og mörgum fannst
ágætt að hafa okkur þar og hafa
okkur litla en kunna ekki eins vel
við okkur í dag. Aðalatriðið er að
þurfa aldrei að kaupa sér stuðning
heldur vera alltaf frjáls og óháð-
ur,“ sagði hann.
Trúlofun Ólafs
Ragnars og Dorritar
Maí 2000 – Stór dagur var á
Bessastöðum í gær þegar Ólaf-
ur Ragnar Grímsson forseti og
unnusta hans, Dorrit Moussai-
eff, opinber-
uðu trúlofun
sína. Samband
þeirra hefur
staðið í rúmt ár
og hefur þjóð-
in allan þann
tíma verið
mjög forvitin
um sambandið
en að sama skapi ekki vitað mik-
ið um það. Eftir að forsetinn hafði
boðið fréttamenn velkomna, og
vinsamlega klappað á sæti sófans
sem merki um að Dorrit ætti að
sitja honum nær, sagði hann í upp-
hafi að það hafi verið honum mik-
il gæfa á hans erfiðustu tímum að
hafa kynnst Dorrit og með henni
hefði hann smátt og smátt fengið
trú á lífið, hamingjuna og ástina.
Amish-fólk í
Önundarfirði
Mars 2000 – Í mars árið 2000
áminnti sér Karl Sigurbjörnsson
biskup séra Gunnar Björnsson, þá
prest í Holti í
Önundarfirði,
fyrir fram-
komu sem þótti
ósamrýman-
leg embætti
prests. Deilur
höfðu sprott-
ið upp á milli
séra Gunnars
og sóknarbarna sem náðu hámarki
þegar bréfi frá Gunnari til prófast-
inum var lekið til DV. Þar líkti hann
sóknarbörnum sínum við Amish-
fólk. Hann var færður úr starfi.
Um áratug síðar hrökklaðist séra
Gunnar aftur úr starfi, á Selfossi,
vegna ásakana um ósæmilega
hegðun gegn unglingsstúlkum.
Ríkissjóður hallalaus
Október 2000 – „Ríkissjóð-
ur verður á næsta ári rekinn með
meiri afgangi en nokkru sinni fyrr
í sögu þjóðarinnar og hefur ríki-
sjóðsafgangur aukist ár frá ári að
undanförnu. Þriðja árið í röð verð-
ur afgangur af ríkissjóði meiri en
20 milljarðar...“ Davíð Oddsson,
forsætisráðherra í stefnuræðu
sinni á Alþingi.
Mars 2000
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, bauð öllum
starfsmönnum ráðuneyta sinna í
fimmtugsafmæli sitt á Grenivík
um síðustu helgi og lét ráðuneyt-
ið borga. Um var að ræða flug og
gistingu norður á Akureyri og
fengu makar starfsmanna 50 pró-
senta afslátt. Samkvæmt almennri
verðskrá kostaði þetta uppátæki
ráðherrans skattgreiðendur um
300 þúsund krónur. í ráðuneytum
Valgerðar Sverrisdóttur starfa 30
manns. „Það voru 14 starfsmenn
sem þáðu boðið og 10 makar,“ sagði
Þorgeir Örlygsson, ráðuneytis-
stjóri Valgerðar, í gær. „Í stað þess-
arar ferðar fellum við niður sumar-
ferð starfsmanna sem farin hefur
verið hér á hverju ári eins og í öðr-
um ráðuneytum og reyndar víða
í fyrirtækjum úti í bæ þannig að
þetta kemur út á eitt,“ sagði Þorgeir
Örlygsson sem neitaði því spurður
hvort ráðherrann hefði boðið fleir-
um í fimmtugsafmæli sitt á kostnað
ráðuneytisins. Mikið fjölmenni var
í afmælisveislu Valgerðar Sverris-
dóttur á Grenivík og starfsmenn
hennar og makar aðeins hluti
þess fjölda. Þeir gistu í sveitagist-
ingu miðja vegu milli Grenivíkur
og Akureyrar aðfaranótt síðastlið-
ins sunnudags að veislu lokinni og
héldu við svo búið heim.
Afmælisveisla viðskiptaráðherra á Grenivík:
Greiddi flug og gistingu
fyrir afmælisgestina
– kom í stað sumarferðar, segir ráðuneytisstjóri
Bensínverð í
sögulegu hámarki
Mars 2000 – „Olíufélögin
hér heima eru samstíga um að
hækka bensín í dag um tvær
krónur og fjörtíu aura. Lítri
af 95 oktana bensíni hækkar
því úr kr. 67.50 krónum í 89,90
krónur. Gasolía hækkar um
60 aura [...] Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB, seg-
ir að líklega sé toppnum náð í
bensínhækkunum.“ Ári síðar
hóf Samkeppniseftirlitið rann-
sókn á samráði olíufélaganna.
Þau voru síðar dæmd til hárra
sekta.
Íþrótta-
menn
ársins
Desember 2000 – Vala Flosa-
dóttir var útnefnd íþróttamað-
ur ársins af íþróttafréttamönn-
um. Hún hlaut bronsverðlaun
í stangarstökki á Ólympíuleik-
unum í Sidney.
Tilnefndir voru:
Birgir Leifur Hafþórsson golf,
Eiður Smári Guðjohnsen knatt-
spyrna, Eyjólf-
ur Sverrisson
knattspyrna,
Guðrún Arnar-
dóttir frjálsar
íþróttir, Her-
mann Hreið-
arsson knatt-
spyrna, Kristín
Rós Hákonardóttir íþróttir fatl-
aðra, Kristján Helgason snóker,
Ólafur Stefánsson handknatt-
leikur, Rúnar Alexandersson
fimleikar, Vala Flosadóttir
frjálsar íþróttir, Örn Arnarson
sund.
kaup sala
Dollar 73,240 73,620
pund 115,910 116,500
Dönsk kr. 9,503 9,5550
Norsk kr. 8,740 8,7880
sænsk kr. 8,397 8,4430
sviss. franki 44,050 44,2900
Þýskt mark 36,176 36,3934
Fra. franki 10,786 10,8512
Jap. yen 0,689 0,692900
sDR 98,410 99,000000
GeNGið 10.3. 2000