Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Qupperneq 30
MaMMa á MöMMukaffi Lilja Katrín
Gunnarsdóttir fer með einleikinn Mamma, ég?! á
Mömmukaffi á föstudag klukkan 21.00. Lilja Katrín
samdi verkið ásamt Svani Má Snorrasyni en það
fjallar um meðgöngu, fæðingu og sjálft móðurhlut-
verkið. Lilja skrifar verkið út frá sinni reynslu en hún
ætlaði aldrei að verða mamma og varð ólétt eftir
einnar nætur gaman. Miðaverð er 2.000 krónur og
miðapantanir fara fram í síma 571-5777.
Mozart requieM í langholtskirkju Óperukórinn í
Reykjavík ásamt sinfóníuhljómsveit og einsöngvurum heiðrar minningu Mozarts með
flutningi Requiem eftir tónskáldið í Langholtskirkju á laugardagskvöldið. Mozart lést
upp úr miðnætti aðfaranótt 5. desember 1791, en tónleikarnir eru að venju einnig
tileinkaðir minningu íslenskra tónlistarmanna sem hafa látist á árinu. Einsöngvarar
eru Þóra Einarsdóttir sópran, Sesselja Kristjándóttir mezzó-sópran, Snorri Wium tenór
og Jóhann Smári Sævarsson bassi. Stjórnandi er Garðar Cortes. Tónleikarnir hefjast
kl. 00.30 aðfaranótt sunnudags og er miðaverð er 4.000 krónur. Miðasala er á miði.is
og við innganginn, en húsið verður opnað tíu mínútum fyrir miðnætti.
The Game með tónleika á Broadway:
Leikurinn til landsins
Rapparinn The Game mun koma
fram á tónleikum á Broadway þann
18. desember. Þetta telst til stórtíð-
inda fyrir rappunnendur því The
Game hefur verið einn af vinsælli
röppurum Bandaríkjanna undanfar-
in ár, enda hefur hann selt rúmlega
tíu milljón plötur á heimsvísu. Allar
þrjár breiðskífur hans The Docum-
entary, Dr. Advocate og LAX komust
á Billboard-listann í Bandaríkjunum
en þess utan fengu þær allar frábæra
dóma gagnrýnenda.
The Game heitir réttu nafni Jay-
ceon Terrell Taylor og er 31 árs.
Frægðarsól hans hóf að rísa eftir að
rappgoðsögnin Dr.Dre tók hann upp
á sína arma árið 2004. Dre kom á
samstarfi milli Game og 50 cent og
G-Unit. Það samstarf gaf af sér smelli
eins og How We Do og Hate it or Love
it sem fór í efsta sæti Bill board-listans
og var tilnefnt til tveggja Grammy-
verðlauna. Snemma árs 2005 lenti
Game og 50 cent hins vegar sam-
an og enduðu deilur þeirra með því
að Game yfirgaf G-unit og gaf stuttu
seinna út The Documentary.
Fyrir utan Dr. Dre og 50 cent hefur
The Game starfað með stórstjörnum
á borð við Lil Wayne, Pharrel, Timba-
land, Snoop Dog og Kanye West.
Miðasala er þegar hafin á tón-
leikana og fer hún fram í Mohawks í
Kringlunni. Miðaverð er 3.500 krón-
ur í forsölu en húsið opnar klukk-
an 22.00 þann 18. desember sem er
laugardagur. Aldurstakmark er 18
ára. Samkvæmt upplýsingum frá tón-
leikahöldurum stóð til að panta Laug-
ardalshöll en vegna skamms fyrirvara
tókst það ekki. asgeir@dv.is
30 fókus 3. desember 2010 föstudagur
Þrettánda
árið í röð
13. árið í röð stendur umboðsmað-
ur Íslands, Einar Bárðarson, fyrir
tónleikum til styrktar Styrktarfé-
lagi krabbameinssjúkra barna. Að
þessu sinni fara tónleikarnir fram
fimmtudaginn 30. desember og í
Háskólabíói líkt áður. Á tónleikun-
um í ár koma fram Bubbi Morthens
og hljómsveit, Sálin hans Jóns míns,
Dikta, The Charlies, Ingó, Sveppi,
Buff, Hvanndalsbræður, Friðrik Dór,
Pollapönk, Skítamórall og Íslenska
sveitin, og Jónsi. Einar verður sjálf-
ur kynnir á tónleikunum en með
honum verður Kiddi nokkur Casino
úr Sólinni frá Sandgerði. Á undan-
förnum árum hafa yfir 34 milljónir
króna safnast á þessum tónleikum,
og nú er markmiðið að sú upp-
hæð hækki í 36.7 milljónir króna.
Styrktartónleikar fyrir SKB voru fyrst
haldnir í desember árið 1998. Hljóð-
og ljósakerfi hefur verið lánað af EB
Kerfi á hverju ári frá upphafi og eins
hefur Háskólabíó lánað aðstöðuna
endurgjaldslaust frá upphafi. Sömu
sögu er að segja um alla sem fram
koma en hver króna rennur óskipt til
SKB. Miðasala hefst í dag, föstudag,
klukkan 10.00 á midi.is.
skáLdsaga
svar við bréfi
helgu
eftir Bergsvein
Birgisson
„Þetta er í fáum
orðum sagt alveg
dásamleg bók.“
HeimiLdamynd
Catfish
Ágætlega upp-
byggð heimilda-
mynd um þrjá vini
sem komast að
því að ekki er allt
sem sýnist á internetinu. Myndin er þó
óþarflega löng.
kvikmynd
easy a
Emma Stone ber
myndina uppi
en þessi frábæra
gamanleikkona
virðist ekki geta
stigið feilspor.
mælir með...
mælir ekki með...
skemmti- og fræðirit
lífsleikni gillz
eftir Egil Einarsson
Þunn bók frá Þykka.
„Hápunkturinn
var þegar ég lagði
hana frá mér,“ segir
gagnrýnandi.
Þ
að er ansi tómlegt um að
litast í gróðurhúsinu á Sól-
heimum þegar blaðamann
DV ber að garði ásamt
frétta- og heimildamynda-
gerðakonunni Maríu Sigrúnu Hilm-
arsdóttur, enda uppskerutímabili
lokið og allar plönturnar hafa verið
fjarlægðar í bili. Gróðurhúsið virðist
vera mannlaust en við rennum fljót-
lega á hljóðið þar sem Reynir Pétur
sönglar lag við vinnu sína. Hann er
að undirbúa jarðveginn fyrir næstu
gróður setningu en tekur okkur fagn-
andi og kyssir Maríu Sigrúnu í bak
og fyrir. Hún lauk nýlega við heim-
ildamyndina, Reynir Pétur gengur
betur, sem fjallar um Reyni Pétur, Ís-
landsgönguna hans um landið fyrir 25
árum og líf hans í dag.
„Ertu blaðamaður? Ertu ekki
blaðakona? Það ætla ég rétt að vona,“
segir Reynir Pétur þegar blaðamað-
ur kynnir sig sem blaðamann DV. Í
framhaldinu bendir blaðamaður á
að konur séu líka menn. „Já, þær eru
það enn,“ heldur Reynir áfram að ríma
hlæjandi og býður okkur inn á kaffi-
stofu.
Reynir Pétur rifjar það dreyminn
upp þegar hann fyrir 25 árum fór fót-
gangandi hringinn í kringum land-
ið og hreif þjóðina með. Tilgang-
ur hans með göngunni var fjáröflun
fyrir íþróttaleikhúsi á Sólheimum
en athyglin sem Reynir fékk kveikti
umræður um málefni fatlaðra í sam-
félaginu. „Þessi ganga hún gaf mikið,
hún eiginlega gjörbreytti viðhorfi á
öllu og kom öðrum til góða, ekki bara
hvað varðaði íþróttaleikhúsið. Ég
sló margar flugur í einu höggi,“ segir
Reynir Pétur.
skipaði lögreglunni að drepa á
bílnum
Reynir Pétur gekk allan hringveginn
án þess að freistast nokkurn tíma til
að þiggja far hjá þeim fjölmörgu öku-
mönnum sem buðust til að létta hon-
um gönguna. „Einu sinni kom löggan
og vildi fá mig upp í bílinn í smá viðtal
og ég sagði „dreptu á vélinni, svo hann
renni ekki áfram“, og löggan drap á vél-
inni,“ segir Reynir Pétur sem vildi ekki
eiga það á hættu að svindla óvart með
því að renna áfram nokkra metra í lög-
reglubílnum. Reynir Pétur segir að
gangan hafi styrkt hann mikið. Hann
segist hafa þjáðst af bæði minnimátt-
arkennd og feimni hér áður fyrr en
öll sú jákvæða athygli sem hann fékk
vegna göngunnar hafi hjálpað honum
að takast á við það.
Reynir Pétur er búinn að vera í
sambandi með Hanný Maríu Haralds-
dóttur síðastliðin 26 ár og hann segir
unnustuna hafa tekið myndinni vel.
„Hún er mjög ánægð og ég skil hana
vel því hún nefnilega kemur fram í
myndinni,“ segir Reynir Pétur spennt-
ur og fer að spyrja Maríu Sigrúnu út í
nokkur atriði myndarinnar.
fékk prufudvöl á sólheimum
Reynir Pétur hefur búið á Sólheimum
síðan árið 1952. Hann kom þangað
fyrst í einhvers konar prufudvöl sem
var síðan framlengd og hefur varað í
58 ár. Honum líður vel á Sólheimum
og getur ekki hugsað sér að flytja það-
an. Hann hefur enga trú á að rekstur
Sólheima sé í hættu eins og hefur ver-
ið í umræðunni í tengslum við flutn-
ing málefna fatlaðra frá ríki til sveitar-
félaga þann 1. janúar næstkomandi.
„Það er bara verið að búa til drauga-
sögur um það, en það getur verið
óþægilegt. Það er bara verið að tala og
mala,“ segir Reynir Pétur sem er mjög
þenkjandi og notar myndlíkingu, eins
og hann gerir oft, til að gera frásögn
sína áhrifameiri. „Hugsið ykkur tréð
sem heitir reyniviður, eða önnur svip-
uð tré sem eru stór og mikil, ímyndið
ykkur að það sé rifið upp með rótum
og sett niður annars staðar. Hvernig
líður trénu? Ég held að þetta tré verði
bara vesalingur þegar það er komið
niður í moldina annars staðar. Þetta er
svo svakalegt rótarkerfi, þetta er eng-
inn leikur.“
samdi tónlistina sjálfur
Guðmundur Bergkvist myndatöku-
maður vann myndina með Maríu Sig-
rúnu, hann sá um upptökur og alla
myndgerðina. Reynir Pétur og María
Sigrún segja samstarfið á milli þeirra
þriggja hafa gengið mjög vel. „Svo
var líka svo gaman hvernig við gát-
um unnið með tónlistina þína,“ seg-
ir María Sigrún við Reyni Pétur og
hann tekur undir það mjög stoltur.
Þau létu útsetja fyrir myndina tvær
laglínur, sem Reynir samdi sjálfur og
raular oft fyrir munni sér þegar hann
vinnur í gróðurhúsinu. Annað lagið
heitir Leiðin til frelsis og hugsunin á
bak við það er afar falleg. „Þú ert með
sjúkdóm; liðagigt, krabbamein, blind-
ur eða heyrnarlaus og lagið fjallar um
að þú fáir að komast út í frelsið úr lík-
amanum. Komast úr álögunum. Það
getur líka þýtt að þú sért fangi eða í
fjötrum og að þú losnir og fáir að hitta
fjölskylduna þína á ný,“ segir Reynir
Pétur um lagið.
María Sigrún segir það fullkomna
lausn á tónlist myndarinnar að nota
lögin hans Reynis. Hún viðurkennir
að ef þessi hugmynd hefði ekki kom-
ið til þá hefði hún líklega átt mjög erf-
á brýnt erindi
við þjóðina
Fréttakonan maría sigrún Hilmarsdóttir lauk nýlega við gerð
heimildamyndar um hinn mikla göngugarp reyni Pétur á Sól-
heimum. Hún heillaðist af lífsgleði hans og jákvæðni og gekk
lengi með hugmyndina að myndinni í maganum. Í ár eru 25 ár
frá Íslandsgöngu Reynis og Sólheimar eiga 80 ára afmæli og
henni fannst því tilvalið að láta verða af þessu nú í ár.
Hann segir mjög skemmtilega
frá og hefur svo mikið
innsæi sem ég held að
margir alheilbrigðir
hafi ekki.
the game Heldur tónleika á Íslandi laugardaginn 18. desember. mynd reuters
Svar við
bréfi Helgu
Bergsveinn Birgisson