Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Qupperneq 32
32 VIÐTAL 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Fyrir sex vikum yfirgaf Halldóra Geir-harðsdóttir gamla einbýlishúsið sitt í Skerjafirðinum og hélt af stað í ferða-lag. Viku síðar kom hún heim aftur
sem önnur manneskja. Það breytti henni að
ræða við fórnarlömb stríðsins í Úganda. Þetta
var hennar fyrsta ferð til Afríku en hún er engu
að síður könnuður, hennar ferðalög hafa bara
oftast verið um andlega heima. Hún leitar inn
á við og tekst á við dauðasyndirnar í sjálfri sér,
reynir að yfirgefa helvíti og komast til paradís-
ar. Stærsta stríðið fer oftast fram í huganum.
BARÐIST VIÐ TILFINNINGARNAR
Húsið hennar Halldóru er í felum á bak við
annað hús. Stór garður er í kringum húsið og
þar liggur dót frá börnunum á víð og dreif.
Andinn í húsinu er nánast áþreifanlegur þeg-
ar inn er komið, hlýr og góður. Að koma heim
til Halldóru er eins og að koma í gamla franska
sveitavillu. Steypan fær að njóta sín á veggj-
unum, teppi liggja á gólfunum og blóm eru í
glugganum. Stór og hvítur vaskur, opin innrétt-
ing og smáhlutir sem raðað er upp hér og þar
skapa heimilislega stemningu. Ekki skemmir
fyrir að Tinnamyndir eftir Ísak Óla Sævarsson
skreyta veggina auk þess sem gamalt landakort
hangir á einum þeirra.
Halldóra, eða Dóra Wonder, eins og hún
kallar sig er í símanum þegar ég kem inn. Það
er alltaf nóg að gera. Áður en hún finnur næga
ró í sér til þess að setjast niður og spjalla þarf
hún að senda tölvupóstinn sem hún var að
skrifa og skrifa skilaboð til sjálfrar sín á gulan
post it-miða sem hún límir svo á tölvuna. „Ég
er bara hrædd um að gleyma þessu. En þetta
er komið. Ég get slakað á núna,“ segir hún og
brosir. „Ég fór til Afríku á vegum Unicef og ég
er ekkert búin að klára það ferðalag. Ég er ekki
vön að vinna úr svona miklum upplýsingum.
Af því að ég var að taka viðtöl horfðist ég í augu
við fólk og ræddi við það í fyllstu einlægni. Ég
var svo berskjölduð. Á meðan ég var að berj-
ast við tilfinningar mínar gat ég ekki sett upp
neina grímu.“
LEIÐ TIL AÐ LIFA
Hún fór út á vegum Unicef. Samtökunum
tengdist hún fyrst í fyrra þegar hún setti upp
rautt nef í sjónvarpssal en hún er ekki óvön því
að skella sér í hlutverk trúðsins, enda hluti af
leikhóp sem setur reglulega upp trúðasýning-
ar. „Við sem vorum í sýningunni Jesú litli tókum
upp lítil innslög með Peter Andersen, dansara í
Íslenska dansflokknum, fyrir Dag rauða nefsins
þar sem við vorum búin að setja niður regl-
ur um það hvernig hægt er að vera í núinu og
hvernig þú getur notað rauða nefið til að njóta
hverrar stundar. Því þú getur ekki hlegið nema
þú sért í núinu. Það er ekkert fyndið nema þú
sért í núinu og heyrir hvað er að gerast í kring-
um þig.
Trúðareglurnar eru skemmtilegar að því
leyti að ef þú gerir mistök fagnar þú þeim.
Þetta er leið til þess að lifa. Því það sem við
erum alltaf að gera í lífinu er að reyna að kom-
ast hjá því að gera mistök. En það er ekkert
stórkostlegra en þegar trúðurinn gerir mistök.
Með þessari trúðstækni viljum við meina að
öll mistök séu gjafir frá Guði og maður end-
urtekur þau eða undirstrikar þau og þar með
gengst maður við því hvað maður er gallaður.
Trúðurinn gengst alltaf við því hvað hann er
gallaður og það er eitthvað sem manneskjan
mætti temja sér. Það er allt í lagi að vera gall-
aður. Við erum öll bara á leiðinni eitthvert, að
reyna að verða betri manneskjur.
Okkur finnst þetta skemmtileg speki og við
vildum deila henni með öðrum á Degi rauða
nefsins. Okkur fannst það við hæfi af því að
við notum þetta rauða nef í sýningunum okk-
ar,“ segir hún áköf.
FÓRNARLÖMB STRÍÐS
„Sjálf á ég þrjú börn og samanlagt eigum
við hjónin fimm börn þannig að það er allt
Halldóra Geirharðsdóttir segir frá ferðinni til Úganda, afbrýðisseminni sem
hún upplifði gagnvart leikurum, samviskubitinu sem hún fékk þegar hún neytti
eiturlyfja, stjórnseminni sem leiddi hana í blindgötu og frelsinu sem hún öðlaðist
þegar hún tókst á við syndirnar. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ræddi við hana.
Því þú getur ekki hleg-ið nema þú sért í núinu.
Það er ekkert fyndið nema þú
sért í núinu og heyrir hvað er
að gerast í kringum þig.
HEIMSÆKIR HELVÍTI
á hverjum degi