Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Síða 51
FÖSTUDAGUR 3. desember 2010 LÍFSSTÍLL 51 Á hverju byggir hegðun okkar? Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Á grænni grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækning- abúðin, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja- víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek Vesturlands, Apótek Hafnafjarðar Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Bætir meltinguna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Velkomin að skoða www.weleda.is Weleda vatnslosandi Birkisafi unninn úr lífrænum Birkilaufum Inniheldur engin gervi-litar eða rotvarnarefni 101 jól hverfisgata 10 sími 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is hátíðarmatseðill undir dönskum áhrifum. gamalgrónir réttir með nýstárlegum blæ. alla daga fram að jólum. borðapantanir í síma 5800 101. Ofbeldi Ofbeldi hefur fylgt manninum frá örófi alda. Því telja sumir fræðimenn að við þurfum á ofbeldi að halda, það sé í genum okkar og að heilastarfsemi okkar njóti góðs af. Hins vegar, sam- kvæmt rannsóknum vísindamanna, voru forfeður okkar mun friðsamari en nútímamaðurinn. Í rannsókn frá 2008, sem birtist í tímaritinu Psychopharma- cology, kom í ljós að við þörfnumst of- beldis, líkt og við þurfum á kynlífi, mat og fíkniefnum að halda. Rannsóknin, sem var framkvæmd á músum, gefur til kynna að taugar í heila sem tengj- ast annarri umbun tengist einnig þörf fyrir ofbeldi. „Árásargirni finnst nánast hjá öllum hryggdýrum og tengist mök- un, yfirráðasvæðum og fæðu,“ segir Craig Kennedy sem stóð að rannsókn- inni. Margir vísindamenn telja því að að ofbeldi tengist lífsbaráttunni. Eng- um kemur líklega á óvart að mann- skepnan situr efst á lista ofbeldisfullra tegunda. Stuldur Skortur getur verið undirrótin að stuldi. Stelsjúkir stela hins vegar vegna spennunnar sem stuldurinn veitir þeim. „Þetta eru þeir sem stela jafn- vel þótt þeir hafa efni á að borga fyrir hlutina,“ segir Jon E. Grant við lækna- háskólann í Minnesota. Í rannsókn á 43 þúsund manns kom í ljós að 11 pró- sent höfðu stolið alla vega einu sinni á ævinni. Sumir fræðimenn telja okkur stela vegna gena. Jafnvel apar stelpa. Slæmir ávanar Við erum ekkert nema vaninn. Rann- sóknir hafa sýnt að þótt við gerum okkur grein fyrir skaðsemi ávanans eigum við erfitt með að gefa hegðun- ina upp á bátinn. „Við lifum í núinu,“ segir Cindy Jardine í háskólanum í Al- berta. Jardine, sem hefur rannsakað af hverju við höldum í slæma ávana, seg- ir tortryggni um að kenna auk þarfar á samfélagslegri viðurkenningu. Aðrar ástæður fyrir slæmum ávana séu að við skiljum ekki áhættuna, en einnig erfðafræðileg tilhneiging vegna fíknar. Fólk réttlæti lifnaðarhætti sína gjarna út frá tölfræðinni. „Amma mín reykti alla ævi og hún varð níræð.“ Krakkar sem eru óánægðir í skóla byrja fyrr að drekka áfengi og verða fyrr kynferðislega virkir. Þetta kemur fram í rannsókn BioMed Central og birtist í tímarit- inu Substance Abuse, Treatment, Prevention and Pol- icy. Dr. Mark Bellis framkvæmdi rannsóknina á yfir 3.500 börnum á aldrinum 11–14 ára í fimmtán skólum víðs vegar á Englandi. „Þrettán ára krakkar sem drekka áfengi eru mun líklegri til að vera farin að stunda kynlíf en jafnaldrar þeirra sem ekki drekka,“ segir Bellis sem lagði spurningalista fyrir börnin sem tók á atriðum eins og ánægju með eigið útlit, sambandi við foreldra og sambandi við kennara og skólafélaga. Niðurstöðurnar gáfu til kynna að 2,5 sinnum meiri líkur eru á að krakk- ar sem líkar illa í skóla verði kynferðislega virk fyrr en ella. „Niðurstaðan gefur til kynna að þau börn sem við þurfum sérstaklega að passa upp á eru þau sem er erf- iðast að ná til því samband þeirra við foreldra og skóla er slæmt,“ segir Bellis. Tengsl á milli óánægju og drykkju

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.