Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Side 62
Leikkonurnar Elma Lísa og Ilmur Kristjánsdóttir:
Selja af Sér Spjarirnar
62 fólkið 3. desember 2010 föstudagur
jón gnarr:
Rosa fín
brjóst
Verslunareigandinn ungi María Birta
sem lék í unglingamyndinni Óróa er
í afar athyglisverðu viðtali í nýjasta
hefti Monitors. Er hún meðal annars
spurð út í kynlífssenuna í myndinni
þar sem hún leikur á móti hinum sex-
tán ára gamla Atla Óskari Fjalarssyni.
„Fyrst var ég alveg: „Guð ég þarf að
fara í sleik við 16 ára strák?“ Vinkonur
mínar gerðu líka mikið grín að mér.
En við urðum svo góðir vinir og ég lít
á þessa krakka sem mína perluvini í
dag,“ segir María Birta sem er einnig
beðin um að velja kynþokkafyllsta
líkamshluta sinn. „Brjóstin. Ég er með
rosa fín brjóst,“ svarar María Birta
ófeimin.
Hræðilegt
HM
Knattspyrnusérfræðingur Íslands,
Hjörvar Hafliðason, var allt annað
en ánægður með ákvörðun FIFA
um að Rússland hýsi HM í fótbolta
2018. Hjörvar var með puttann á
púlsinum og skrifaði á Facebook tíu
mínútum áður en niðurstaða lá fyrir
að allt útlit væri fyrir að Rússlandi
yrði fyrir valinu: „Hræðilegt ef rétt
reynist.“ Knattspyrnuunnendur um
allan heim höfðu gert sér vonir um
að keppnin yrði haldin í heimalandi
knattspyrnunnar, Englandi, en svo
varð ekki.
„Ég hef gert þetta töluvert oft áður
en nú ætla Ilmur og Sara Jóns
að vera með mér,“ segir leikkon-
an Elma Lísa Gunnarsdóttir sem
ásamt vinkonu sinni og kollega,
Ilmi Kristjánsdóttur, ætlar að halda
fatamarkað í húsi Félags íslenskra
leikara á laugardaginn milli tólf og
sex. „Við verðum líka með strákaföt
en mest á stelpur og einnig barna-
föt,“ segir Elma Lísa, en fer ekki að
fækka fötum í fataskápnum þegar
maður heldur svona oft fatamark-
aði?
„Það er alveg ótrúlegt hvað
maður á enn mikið til,“ seg-
ir hún. „Sjálf elska ég að fara á
svona fatamarkaði. Maður finn-
ur oft uppáhaldsflíkurnar sínar
á einmitt svona stöðum. Það er
líka svo sniðugt að kaupa sér föt
á svona mörkuðum, sérstaklega
núna þegar allt er svo ógeðslega
dýrt. Við seljum þarna lítið not-
uð föt á góðu verði,“ segir Elma
Lísa sem boðar jólastemningu á
markaðnum.
„Það verður kaffi á boðstólum
og jafnvel einhverjar smákökur.
Þarna verður jólastemning og
við ætlum að vera duglegar við
að hjálpa fólki að velja sér flík-
ur ef það er í einhverjum vand-
ræðum. Við verðum líka með svo
fjölbreytt úrval fata. Þarna verða
fín föt, yfirhafnir, pelsar, skór og
glingur. Það ættu allir að finna
sér eitthvað við sitt hæfi,“ segir
Elma Lísa Gunnarsdóttir.
tomas@dv.is Kátar leikkonur Elma Lísa og Ilmur verða með fatamarkað í húsi Félags íslenskra leikara á Lindargötu 6 á laugardaginn.
SjónvarpS-
þættir
V erið er að vinna sjón-varpsþætti um borg-arstjórann og grín-istann Jón Gnarr
samkvæmt heimildum DV. Þætt-
irnir eru gerðir í beinu fram-
haldi af heimildarmyndinni
Gnarr sem frumsýnd var fyrir
skemmstu. Það er Gaukur Úlfars-
son sem gerir þættina en hann
gerði einnig myndina Gnarr sem
fjallar um lygilegan kosningars-
igur Besta flokksins undir for-
ystu Jóns í síðustu borgarstjórn-
arkosningum.
Eftir því sem DV kemst næst
verða þættirnir sýndir á Stöð 2 en
vinnsla þeirra mun vera skammt
á veg komin. Fylgst verður með
störfum Jóns í borginni en hann
hefur stokkað mikið upp eftir að
hann komst til valda.
Heimildamyndin Gnarr vakti
mikla athygli þegar hún var
frumsýnd fyrir nokkrum vikum.
Mikið var fjallað um myndina í
fjölmiðlum og var Gaukur með-
al annars sakaður um að leggja
oddvita minnihlutans í borginni
í einelti. Hann neitaði því þó al-
farið og hvatti landsmenn til að
leggja dóm á það sjálfir. Áhugi
landsmanna á myndinni virð-
ist þó ekki hafa verið jafn mikill
og fjölmiðla því á þeim þremur
vikum sem Gnarr hefur verið til
sýningar hafa aðeins um 3.300
manns lagt leið sína á
myndina, samkvæmt nýj-
ustu tölum Smáís. Þá hef-
ur myndin þénað rétt rúm-
ar þrjár milljónir. Þessi
litla aðsókn kemur eflaust
mörgum á óvart enda
hefur nánast allt sem Jón
hefur komið nálægt á
ferlinum breyst í gull.
Kosningasigur
Besta flokksins vakti
töluverða athygli á
heimsvísu enda nán-
ast einsdæmi. Þó svo
að myndin hafi ekki
fengið þá aðsókn
sem búist var við
hér heima þá er ekki
útilokað að myndin
eigi eftir að gera það
gott erlendis. Gauk-
ur og hans fólk bíða
til dæmis eftir svör-
um þessa dagana um
hvort myndin verði
sýnd á hinni heims-
frægu kvikmyndahátíð
Sundance í Bandaríkj-
unum.
Gaukur Úlfarsson
vildi ekki tjá sig um þætt-
ina að svo stöddu þar
sem vinnsla þeirra væri
svo skammt á veg komin
en staðfesti þó að hún væri
hafin. asgeir@dv.is
Samkvæmt heimildum DV er verið að vinna sjón-
varpsþáttaseríu um borgarstjóra Reykjavíkur, Jón
Gnarr. Þættirnir eru gerðir í framhaldi af
heimildarmyndinni Gnarr sem frum-
sýnd var fyrir skemmstu en þættirnir
eru skammt á veg komnir. Jón
settist í borgarstjórastólinn í vor
eftir ævintýralegan kosningasigur
Besta flokksins.
um borgarstjórann
Jón Gnarr Verður efni
sjónvarpsþátta á Stöð 2.