Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
Komu 1.600 millj-
óna skuld yfir á al-
menning
Heildar-
skuldir eign-
arhaldsfélagsins
Knattspyrnuaka-
demíu Íslands
ehf. námu 1.700
milljónum króna
í árslok 2009 og
var eigið fé félagsins neikvætt um
135 milljónir króna. Tap hafði orðið á
rekstrinum á árinu upp á tæpar 100
milljónir króna og lá fyrir að félag-
ið myndi eiga í erfiðleikum með að
standa í skilum við helsta lánardrott-
in sinn, Landsbanka Íslands. DV
greindi frá málinu á mánudag.
Eigendur Knattspyrnuakademíunnar,
Arnór Guðjohnsen, Eiður Smári og
fleiri þekktir knattspyrnukappar voru
því í erfiðri stöðu.
Glæsihús Steingríms
Fjárfestirinn
Steingrím-
ur Wernersson,
kenndur við hið
gjaldþrota Mil-
estone, byggði
óvenjuglæsilegt
einbýlishús í Ár-
landi í Fossvogi
rétt fyrir hrun.
Íburðurinn er slíkur að það hlýtur
að teljast eitt dýrasta einbýlishús á
landinu. Iðnaðarmaður sem vann í
húsinu orðar það þannig að það hafi
verið „ævintýralegt að sjá hvernig
maðurnin hagaði sér þarna“.
Húsið er svo ríkulega útbúið að þar
er að finna tvær sundlaugar. Þar af er
önnur sérstaklega útbúin öldusund-
laug í kjallaranum. Þá lét Steingrímur
útbúa sérstakt slökunarherbergi með
fossi sem rennur niður vegg flísalagð-
an með náttúrusteini. Herbergið er
einnig útbúið fyrir jóga.
Félag Kristins með
milljónir í Lúx
Félagið
Mercatura
ehf. sem er í eigu
Kristins Björns-
sonar, fyrrver-
andi forstjóra
Skeljungs, á 45
milljóna króna
bankainnistæðu
í Lúxemborg.
Mercatura átti að standa skil á öllum
langtímaskuldum sínum við Íslands-
banka á þriðjudag en þær nema um
260 milljónum króna. Félagið er með
11 milljóna króna neikvætt eigið fé.
Mercatura á þó eignir á móti stórum
hluta skulda félagsins. Má þar nefna
fasteign sem metin er á 160 milljónir
króna, 37 milljónir króna í hluta-
bréfum, auk 45 milljóna króna inni á
bankareikningi í Lúxemborg eins og
áður sagði.
Fréttir vikunnar í DV
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Kristinn Björnsson ekki af baki dottinn:
LUMAR Á
FÚLGU
2.–3. febrúar 2011 14. tbl. 101. árg. leiðb. verð 395 kr. miðvikudagur og fimmtudagur
„VIÐ HÓTUÐUM
BANKANUM“
Fréttir 12
Fréttir 10 n bræður skulda
Landsbankanum
fjórar milljónir
n Kenna bank-
anum um allt
n Hóta starfsfólki
SKYNDIDAUÐI
ÁN SKÝRINGA
n Hvað er hægt að gera?
„Ég er
feimni
strákurinn“
Siggi Sigurjóns:
Viðtal 22–23
Stærðfræðingur:
Hrekur dóm
Hæstaréttar
BROTIST
INN HJÁ
GUÐLAUGI
Fréttir 2–3
Fréttir 4
Fólk 26
Losnar ekki
við leigjendur
glæsihús
Steingríms n Með foss í slökunarherbergi n Verslun rukkaði um ranga upphæð og heimtar músina aftur
SkiLaðu
múSinni!
Neytendur 14
Neytendur 15
n Húsið á flórída til sölu Fréttir 6
n Átti 10 til 15 milljarða fyrir hrun
n Skuldar bankanum 260 milljónir
n nú á hann hús, jeppa
og reikning í Lúxemborg
Í LÚXFjölþrepa bakbrettið • Teygir á hrygg og bakvöðvum• Minnkar vöðvaspennu• Linar bakverki• Bætir líkamsstöðu• Auðvelt í notkun
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Fjárfestirinn Steingrímur Werners-
son, kenndur við gjaldþrota félag-
ið Mile stone, byggði óvenjuglæsilegt
einbýlishús í Árlandi í Fossvogi rétt
fyrir hrun. Íburðurinn er slíkur að það
hlýtur að teljast eitt dýrasta einbýl-
ishús á landinu. Iðnaðarmaður sem
vann í húsinu orðar það þannig að
það hafi verið „… ævintýralegt að sjá
hvernig maðurinn hagaði sér þarna.“
DV sagði frá því á mánudag að hús-
ið væri svo ríkulega útbúið að þar væri
meðal annars að finna tvær sundlaug-
ar. Þar af er önnur sérstaklega útbú-
in öldusundlaug í kjallaranum, sem
átti að gera íbúum hússins kleift að
synda á móti straumnum, í orðsins
fyllstu merkingu, án þess þó að færast
mikið úr stað. Öldulaugin mun hafa
verið keypt hjá Poulsen. Auk þess er
sem fyrr segir önnur sundlaug, eða
risastór heitur pottur, í húsinu. Þá lét
Steingrímur útbúa sérstakt slökunar-
herbergi með fossi sem rennur niður
vegg flísalagðan með náttúrusteini.
Herbergið er útbúið fyrir jóga og aðra
slökun, þar sem hlusta má á róandi
niðinn í fossinum renna niður vegg-
inn.
Nautsleður á baðherbergi
Svo virðist sem Steingrímur hafi ver-
ið staðráðinn í því að byggja eitt allra
íburðarmesta einbýlishúsið í Reykja-
vík og fullyrða kunnugir að hús Stein-
gríms í Árlandinu slái húsum flestra
annarra útrásarvíkinga við þegar
kemur að glæsileika og íburði.
Ekki er um neina smásmíði að
ræða því húsið er alls 584 fermetrar að
stærð og stendur á risastórri einbýlis-
húsalóð neðst í Fossvoginum.
Brunabótamat hússins er um 147
milljónir króna. DV hefur eftir áreið-
anlegum heimildum að eitt af fimm
baðherbergjum í húsinu sé leðurklætt
í hólf og gólf með flísum úr nautsleðri.
Fullyrt er að sturtuhaus í baðherberg-
inu kosti á aðra milljón króna. Þess
ber að geta að fjórar sturtur eru í hús-
inu. Í einu baðherberginu, sem ætlað
er fyrir börnin, var listakona fengin til
að gera skrautlegt listaverk úr mósaík-
flísum á veggi.
Í stóru rými í húsinu lét Steingrím-
ur útbúa bíósal, með að lágmarki 10
stólum og fullkomnu sýningarkerfi.
Sviðin jörð
Steingrímur var einn af eigendum fjár-
festingarfélagsins Milestone sem nú
er gjaldþrota. Kröfur í þrotabúið nema
tugum milljarða króna, svo ljóst er að
gjaldþrot félagsins er eitt það stærsta
í Íslandssögunni. Segja má að Miles-
tone hafi skilið eftir sig sviðna jörð því
að félagið keypti meðal annars trygg-
ingafélagið Sjóvá og veiktist staða þess
gríðarlega í eigendatíð Mile stone. Það
skýrist meðal annars af því að félög
tengd eigendunum fengu milljarða
lánaða út úr bótasjóði Sjóvár, þar af
lánaði tryggingafélagið 15,7 milljarða
króna út úr sjóðnum á einum degi í
febrúar 2008.
Heildartap vegna lánveitinga Sjó-
vár til þessara aðila nam rúmum 18
milljörðum króna árið 2008 og voru
eignir tryggingafélagsins færðar niður
um þessa upphæð í ársreikningum fé-
lagsins árið 2009.
Lánveitingar úr bótasjóðnum til
Milestone-manna leiddu til þess að
íslenska ríkið þurfti að bjarga Sjóvá.
Kostnaður íslenskra skattgreiðenda af
því verður að öllum líkindum á bilinu
3–4 milljarðar króna.
Þrátt fyrir að skattgreiðendur sitji
uppi með tapið er Steingrímur sjálf-
ur hins vegar ekki persónulega gjald-
þrota og á ennþá hið risastóra og rán-
dýra einbýlishús í Fossvoginum.
Íbúð fyrir þjónustufólk
Þrátt fyrir að komið væri fram á sum-
arið 2008 og óveðursskýin væru farin
að hrannast upp í íslensku efnahags-
lífi hélt Steingrímur áfram að byggja
húsið eins og ekkert hefði í skorist.
Hann flutti inn í einbýlishúsið ásamt
eiginkonu sinni, jafnvel þótt það væri
óklárað. Af íburðinum að dæma má
telja víst að Steingrímur og fjölskylda
hafi ætlað að lifa lúxus-lífi í húsinu,
sem langflesta Íslendinga gæti vart
dreymt um. Í kjallara hússins var til
að mynda útbúin tveggja herbergja
íbúð, ætluð þjónustufólki fjölskyld-
unnar.
Iðnaðarmenn sem komu að bygg-
ingu hússins lýsa því að Steingrím-
ur hafi látið útbúa sérstaka koníaks-
stofu með sérhönnuðu glergólfi, þar
sem átti að setja leðurstóla til þess að
skapa rétt andrúmsloft.
Tölvu- og rafkerfi í slíku húsi er
það tæknilegt að heilt herbergi þarf
undir rafmagnstöflur og stjórnkerfi.
Meðal annars er kallkerfi á milli her-
bergja. Svo virðist sem Steingrími og
fjölskyldu hafi verið umhugað um ör-
yggi sitt, því sérhannað öryggiskerfi
með fjölda myndavéla er í húsinu og
í kringum það. Steingrímur hefur ekki
vanmetið þörfina á öryggisgæslu,
því einbýlishús hans hefur orðið fyr-
ir barðinu á skemmdarverkamanni
sem kallar sig SkapOfsa, en sá sletti
rauðri málningu á veggi hússins sum-
arið 2009. Sjálfur býr Steingrímur nú
í London og neitar að tala við blaða-
menn. Árið 2009 flutti Steingrímur
snekkju í sinni eigu, af gerðinni Sea-
line S24, úr landi með gámaflutninga-
skipi. Verðmæti snekkjunnar er talið
vera á fimmta tug milljóna króna.
n Milestone-maðurinn Steingrímur Wernersson byggði eitt dýrasta einbýlishús landsins n Öldusundlaug í kjallaranum n Baðherbergi með nautsleðri n Íbúð fyrir þjónustufólk n Foss í slökunarherbegi n Skattgreiðendur borga tapið
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Með öldusundlaug
og íbúð fyrir þjóna
Árland Steingrímur Wernersson byggði eitt dýrasta
einbýlishús á landinu. Þrátt fyrir að skattgreiðendur þurfi að
borga milljarða í tengslum við fjárfestingar sem félag hans
bar ábyrgð á er hann ekki gjaldþrota og á húsið ennþá.
Steingrímur Wernersson Er búsettur í
London og talar ekki við blaðamenn.
4 | Fréttir
2. febrúar 2011 Miðvikudagur
Hannes í mál við
fjármálaráðu-
neytið
Hannes Smárason, fyrrverandi
forstjóri Fl Group, hefur höfðað
skaðabótamál á hendur fjármála-
ráðuneytinu á grundvelli meintrar
ólögmætrar kyrrsetningar sem skatt-
rannsóknarstjóri fór fram á í byrjun
síðasta árs. Kyrrsetningarinnar var
óskað vegna rannsóknar á meintum
skattalagabrotum FL Group. Málið
var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur á þriðjudag.
Skattrannsóknarstjóri óskaði
á sama tíma kyrrsetningar eigna
Skarpéðins Berg Steinarssonar, fyrr-
verandi stjórnarformanns FL Group,
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Jóns
Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra.
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að ekki hefði verið lagaheim-
ild fyrir kyrrsetningu eigna þeirra og
hefur Skarphéðinn Berg þegar höfð-
að skaðabótamál á hendur Ríkis-
sjóði Íslands vegna málsins.
Jóel á leið
til Íslands
Jóel Einarsson, drengurinn sem
fæddist með hjálp staðgöngumóður
á Indlandi fyrir jól, er loksins á leið
heim til Íslands. Í frétt Bylgjunnar
á þriðjudag kom fram að foreldrar
hans, Helga Sveinsdóttir og Einar
Færseth, hefðu flogið frá Indlandi á
mánudagskvöld áleiðis til Þýska-
lands. Þau dvelja þar þessa stund-
ina og ætla að gera næstu daga en
óvíst er hvenær þau koma heim til
Íslands. Foreldrarnir fengu brottfar-
arleyfi frá Indlandi eftir að íslensk
stjórnvöld gáfu út vegabréf fyrir Jóel
á fimmtudaginn í síðustu viku.
Ríkislögreglustjóra er kunnugt um rasistasamtök:
Ekkert eftirlit með rasistum
Lögreglunni er kunnugt um rasista-
félög á Íslandi en hún er ekki með
sérstakt eftirlit vegna þeirra. Einnig
er lögreglunni kunnugt um nokkrar
vefsíður þar sem haldið er úti áróðri
gegn útlendingum og kynþáttahatri.
Eins og fram kom í umfjöllun
DV um rasisma á dögunum eru að
minnsta kosti tvenn rasistasamtök
starfandi á Íslandi í dag. Bæði eru
tengd alþjóðlegu neti rasistasamtaka
og hafa þau verið bendluð við morð
og aðra hatursglæpi.
Guðmundur Guðjónsson, yf-
irlögregluþjónn hjá ríkislögreglu-
stjóra, segir aðspurður að lögreglan
hafi ekki sérstakt eftirlit með þessum
samtökum en henni sé þó kunnugt
um þau.
Svo virðist sem fámennur en
hávær hópur öfgaþjóðernissinna
starfi hér á landi. Blóð og heiður eru
alþjóðleg samtök sem heita á ensku
Blood and Honor. Samtökin hafa
tekið þátt í hrottafengnum og ofbeld-
isfullum aðgerðum erlendis og hafa
þá yfirleitt gert það undir nafninu
Combat18. Íslensku samtökin eru
hluti af þessum alþjóðlegu samtök-
um sem setja Ísland á lista yfir lönd
þar sem samtökin eru starfandi. Ekki
er vitað til þess að hatursglæpir hafi
verið framdir hér á landi en það er
hins vegar raunin í öðrum löndum
Evrópu.
Í umfjöllun DV um daginn var
rætt við fólk sem lýsti því opinber-
lega yfir að það aðhylltist rasisma og
berðist gegn fjölmenningu. Meðal
annars var rætt við mann sem sagðist
ekki vera á móti fólki af öðrum kyn-
þáttum, en guð bannaði honum hins
vegar að umgangast fólkið.hanna@dv.is
Ekkert eftirlit Ekki er vitað til þess að
hatursglæpir hafi verið framdir hér á landi,
en það er hins vegar raunin í öðrum löndum
Evrópu.
1
2
3
Unglingar í félagsmiðstöðinni Fjör-
gyn í Foldaskóla ætla að halda fjáröfl-
unarviku í næstu viku fyrir Davíð Örn
Arnarsson, þrítugan stuðningsfull-
trúa í Foldaskóla og starfsmann ÍTR til
margra ára, sem greindist nýverið með
krabbamein á fjórða stigi. Fjáröflunar-
vikan hefur fengið heitið Davíðsvikan
og hefst á þriðjudag þegar tugir ungl-
inga munu ganga í hús í Grafarvogi og
safna dósum til styrktar Davíð. Í bréfi
sem foreldrar barna í skólanum fengu
segir að Davíð hafi reynst nemendum
skólans afar vel og verið þeim traust-
ur félagi. Hann hefur síðustu ár unnið
að atriði skólans í Skrekk, hæfileika-
keppni grunnskólanna, og alltaf mætt
börnum skólans með einlægum kær-
leika.
Á miðvikudag verða 15 ára harm-
onikkuleikari og ungur saxófónleikari
fyrir utan verslunarkjarnann í hverf-
inu, þar sem þeir munu taka lagið og
safna frjálsum framlögum.
Þá hafa unglingarnir ákveð-
ið að efna til fjölskyldukvölds næsta
fimmtudag þar sem öllum nemendum
skólans og fjölskyldum þeirra verður
boðið. Aðgangseyrir verður 500 krón-
ur og hægt verður að kaupa kaffi og
veitingar og hlusta á lifandi tónlist. All-
ur ágóði af kvöldinu mun renna beint
til Davíðs.
Þakklátur unglingunum
Davíð Örn er einn af fyrstu íbúum
hverfisins og gekk sjálfur í Foldaskóla.
Hann hefur síðustu ár unnið bæði í
skólanum og á frístundaheimilinu
Regnbogalandi. Óhætt er því að segja
að flestir krakkarnir í unglingadeild
skólans hafi þekkt Davíð Örn árum
saman, jafnvel frá því þau voru í sex
ára bekk. Þegar unglingarnir í nem-
endaráði skólans og félagsmiðstöðinni
fengu fregnir af veikindum Davíðs,
ákváðu þeir að taka til sinna ráða og
styðja við bakið honum. Vegna veik-
inda sinna verður Davíð fyrir tekju-
missi og vilja unglingarnir létta undir
með honum og fjölskydu hans.
Í samtali við DV segist Davíð Örn
vera þakklátur unglingunum. „Ég og
fjölskyldan mín erum virkilega þakklát
fyrir hugulsemina sem þessir yndis-
legu unglingar Foldaskóla eru að sýna
okkur. Við erum virkilega stolt af þeim.
Þið eru frábær,“ segir Davíð.
Frábærar viðtökur
Magnús Sigurjón Guðmundsson er
verkefnastjóri í félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Hann segir hugmyndina að
Davíðsvikunni hafa kviknað hjá krökk-
unum í nemendaráði en starfsfólk fé-
lagsmiðstöðvarinnar hjálpi þeim að
útfæra hugmyndina. „Þau vildu gera
eitthvað honum til styrktar. Hann er
bæði búinn að vera með þeim í skóla
og á frístundaheimilinu árum saman,“
segir Magnús.
„Þetta framtak er búið að fá mjög
góðar viðtökur frá foreldrum sem vilja
leggja okkur lið. Foreldar er búnir að
bjóðast til að hjálpa okkur að baka og
aðstoða við að útvega ýmsar veitingar
fyrir fjölskyldukvöldið á fimmtudag.“
Magnús er vongóður um að fjár-
söfnun unglinganna muni ganga vel.
„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð
og treystum á að íbúar Foldahverfis
og Grafarvogs alls láti gott af sér leiða.
Þetta er illvígur sjúkdómur og hann
þarf á öllum stuðningi sem við getum
veitt honum að halda.“
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
n Unglingarnir í Fjörgyn í Grafarvogi halda fjáröflun til styrktar
starfsmanni n Greindist nýverið með krabbamein á 4. stigi n
Ganga í hús í næstu viku n Davíð hefur reynst krökkunum afar vel
Unglingar safna
fyrir starfsmann
„Ég og fjölskyldan
mín erum virkilega
þakklát fyrir hugulsemina
sem þessir yndislegu
unglingar Foldaskóla eru
að sýna okkur.
Nemendaráðið í Foldaskóla Krakkarnir vildu styðja við bakið á
Davíð Erni Arnarssyni starfsmanni skólans. Þeir efna til fjáröflunarviku.
Óánægja vegna Icesave:
Segja skilið
við Sjálfstæð-
isflokkinn
Tugir sjálfstæðismanna hafa sagt sig
úr flokknum síðan þingmenn hans
í fjárlaganefnd lögðu til að nýtt Ice-
save-samkomulag yrði samþykkt.
Þetta staðfestir Jónmundur Guð-
marsson, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, við DV.
Það er mat fulltrúa flokksins í
nefndinni að það þjóni hagsmun-
um þjóðarinnar best að ljúka málinu
á grundvelli þeirra samningsdraga
sem nú liggja fyrir eins og fram kom
á miðvikudag.
Stjórn Heimdalls, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur
sent frá sér ályktun þar sem félags-
menn lýsa yfir alvarlegum áhyggjum
af þessari afstöðu fulltrúa flokksins í
fjárlaganefnd. Þá efast þeir einn-
ig um umboð formanns flokksins,
Bjarna Benediktssonar. Heimdallur
bendir jafnframt á að á landsfundi
árið 2010 hafi flokkurinn ályktað
á þá leið að hafna bæri löglausum
kröfum Breta og Hollendinga í Ice-
save-málinu.
„Í ljósi þeirrar skýru afstöðu sem
landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók
gegn Icesave kröfunum, er ljóst að
ef formaður og þing-
menn Sjálfstæð-
isflokksins taka
þátt í að sam-
þykkja þær kröfur
er nauðsynlegt
að halda lands-
fund sem fyrst til
að kanna umboð
formanns-
ins,“ segir í
ályktun-
inni.
Jónmundur
Guðmarsson
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Rafknúnir
hægindastólar
sem auðvelda
þér að setjast
og standa upp
Fjölbreytt úrval