Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Svört Range Rover Sport-bifreið sem
skráð er á fjárfestinn Jón Ásgeir Jó-
hannesson er ekki lengur tryggð
samkvæmt upplýsingum frá Öku-
tækjaskrá. Algengasta ástæða þess
að bifreiðar eru ekki lengur tryggðar
er sú að hætta að borga af trygging-
unum.
Óljóst er hvort Jón Ásgeir ekur
ennþá um á bifreiðinni en ólöglegt
er að keyra ótryggða bíla. Fyrir slíkt
geta menn hlotið fjársektir. Í apríl
2010 kom Jón Ásgeir annarri Range
Rover-glæsibifreið yfir á fjölmiðla-
fyrirtækið 365 eftir að hún hafði verið
skráð á hann í einungis fimm daga.
Ekki náðist í Jón Ásgeir vegna máls-
ins.
Ógreiddar tryggingar
Range Rover-bifreiðin var fyrst skráð
á götuna þann 2. mars 2006 en hún
er skráð í skoðun 1. apríl næstkom-
andi. Hjá Tryggingamiðstöðinni
fengust engar upplýsingar um það
hvort og þá hvenær Jón Ásgeir hætti
að greiða af tryggingunum á bílnum,
en þar var bifreiðin tryggð síðast.
Óljóst er hvort ástæðan fyrir því
að bifreiðin er ekki lengur tryggð sé
sú að Jón Ásgeir hafi hætt að greiða
tryggingarnar, en það verður að telj-
ast líklegasta skýringin. Samkvæmt
upplýsingum frá Creditinfo er al-
gengasta ástæða þess að bifreiðar
eru skráðar ótryggðar í gagnagrunni
Ökutækjaskrár sú að tryggingar af
þeim hafa ekki verið greiddar. Leiða
má að því líkur að slíkt eigi við í þessu
tilfelli.
Númerin klippt af
Eins og fram hefur komið í fjölmiðl-
um hefur Jón Ásgeir þurft að heyja
baráttu fyrir dómstólum undanfarið
en skilanefnd Glitnis höfðaði mál á
hendur honum í upphafi síðasta árs
fyrir að keyra bankann í þrot. Nýlega
seldi hann móður sinni lúxusvillu á
Laufásvegi og sagði hann sjálfur frá
því að það hefði verið gert svo að
hann ætti fyrir lögfræðikostnaði og
gæti varist fyrir dómstólum í málinu.
DV hafði samband við umferð-
ardeild lögreglunnar og spurði hver
almenna reglan væri með ótryggða
bíla. Þar fengust þær upplýsingar
að almennt liðu ekki meira en þrír
mánuðir frá því að bifreið væri skráð
ótryggð hjá Ökutækjaskrá þar til lög-
reglan klippti númerið af bifreiðinni.
Séu númerin klippt af á bílastæði
eru engar fjársektir veittar en séu
ökumenn stöðvaðir af lögreglunni á
ótryggðri bifreið geta þeir fengið fjár-
sekt á bilinu 10 til 30 þúsund krónur.
Þá geta menn fengið endurkröfu á sig
frá Bótasjóði tryggingafélaga lendi
þeir í bílslysi á ótryggðum bíl, en slíkt
getur verið afar kostnaðarsamt.
Bílaflakk
Jón Ásgeir lét skrá gráa Range Rov-
er-bifreið í sinni eigu á fjölmiðlafyr-
irtækið 365 í apríl í fyrra. Hafði glæsi-
bifreiðin þá einungis verið í eigu Jóns
Ásgeirs í fimm daga. Sú bifreið virðist
hafa flakkað á milli eigenda á síðustu
árum. Árið 2005 var bíllinn keyptur
af Baugi Group. Í febrúar 2009 var
bíllinn færður yfir á félagið Baugur
Ísland. Mánuði síðar var bíllinn síð-
an færður yfir á Haga þar sem Baug-
ur var farinn á hausinn. Í lok mars í
fyrra færði Jón Ásgeir bifreiðina frá
Högum yfir á sjálfan sig.
Sama dag og Jón Ásgeir færði bif-
reiðina yfir á sjálfan sig frá Högum
seldi hann bifreiðina áfram til fjöl-
miðlafyrirtækisins 365 en eigenda-
skiptin tóku fimm daga að ganga í
gegn. Svo virðist því sem Jón Ásgeir
eigi í nokkru basli með bifreiðar sín-
ar þessi misserin.
RANGE ROVER JÓNS
ÁSGEIRS ÓTRYGGÐUR
n Range Rover-bifreið Jóns Ásgeirs Jóhannessonar er skráð ótryggð
í ökutækjaskrá n Lögreglan klippir númer af ótryggðum bílum n
Algengasta ástæðan er sú að hætt er að borga tryggingar
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Stendur í ströngu Jón Ásgeir Jóhannes-
son stendur í ströngu þessi misserin.
Ótryggður Bifreið í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar er ótryggð.
Dæmdur í 12 mánaða fangelsi:
Tældi stúlku
til samræðis
Hæstiréttur hefur staðfest tólf
mánaða fangelsisdóm héraðs-
dóms yfir karlmanni sem sak-
felldur var fyrir kynferðisbrot.
Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa tælt sautján ára stúlku
til samræðis og gagnkvæmra
munnmaka. Brotin voru
framin í
september
2009 og ját-
aði hann að
hafa haft
við hana
samfarir,
greitt fyrir
hana flug-
far, ekið
með hana
á gististað
á lands-
byggðinni, veitt henni áfengi
og amfetamín og vitað um ald-
ur hennar og bágar aðstæð-
ur. Stúlkan hafði glímt við
vímuefnavanda frá þrettán ára
aldri og átti að vera á meðferð-
arheimili þegar brotin voru
framin. Hún strauk hins vegar
af meðferðarheimilinu.
Maðurinn, sem var 33 ára
þegar brotin voru framin,
neitaði hins vegar að hafa tælt
hana til samræðis og nýtt sér
yfirburði sökum aldurs- og
þroskamunar. Stúlkan lýsti
því við skýrslutöku að mað-
urinn hefði tekið Viagra-töfl-
ur og gefið henni. Þá lýsti hún
því hvernig hann batt hana á
höndum þegar kynlífsathafn-
irnar stóðu yfir. Auk þess að
sæta tólf mánaða óskilorðs-
bundnu fangelsi var mannin-
um gert að greiða stúlkunni
800 þúsund krónur í miska-
bætur.
Hæstiréttur
Íslands
Kaup Stjörnugríss hf. á tveimur félög-
um sem hafa haft með höndum rekst-
ur svínabúa mynda markaðsráðandi
stöðu félagsins í svínarækt. Þrátt fyr-
ir það verður samruninn ekki ógiltur.
Þetta er samkvæmt niðurstöðu Sam-
keppniseftirlitsins. Samkvæmt niður-
stöðunni styrkja kaupin einnig mark-
aðsráðandi stöðu félagsins á markaði
fyrir slátrun á svínum. Félögin sem
Stjörnugrís keypti voru dótturfélög
Arion banka, Braut ehf. og LS2 ehf.
Þau fyrirtæki hafa haft með hönd-
um rekstur svínabúa og rak Braut
svínabú á Brautarholti á Kjalarnesi,
en LS2 fór með rekstur svínabúa á
Hýrumel og á Stafholtsveggjum í
Borgarfirði. Þessi svínabú höfðu kom-
ist í eigu Arion banka eftir að fyrir-
tækin sem ráku þau urðu gjaldþrota.
Þessar eignir voru seldar Stjörnugrís
eftir að bankinn hafði leitað tilboða í
þær.
Við rekstur málsins var því haldið
fram af samrunaaðilum að heimila
yrði samrunann vegna reglna sam-
keppnisréttarins um fyrirtæki á fall-
andi fæti. Viðurkennt er að slík að-
staða fyrirtækis geti leitt til þess að
heimila beri samruna. Ástæðan er sú
að í slíkum tilvikum stafa samkeppn-
ishömlurnar ekki af samrunanum
sem slíkum heldur af erfiðri stöðu
hins yfirtekna fyrirtækis.
Þrátt fyrir þetta er það mat Sam-
keppniseftirlitsins að sú breyting á
markaðnum sem felst í samrunanum
sé óhjákvæmileg miðað við þær að-
stæður sem eru í málinu.
Því er ekki unnt samkvæmt sam-
keppnislögum að ógilda samrunann.
Þess í stað verður fyrirtækinu skylt að
tilkynna fyrir fram allar mikilvægar
breytingar á háttsemi þess á markaði,
til dæmis breytingar á viðskiptaskil-
málum eða afsláttum.
hanna@dv.is
Samkeppniseftirlitið skoðar markaðsráðandi stöðu Stjörnugríss:
Samruninn staðfestur
Erfiður rekstur Að mati Samkeppniseftirlitsins er ljóst að kaup Stjörnugríss á svínabúun-
um skapar umtalsverðar samkeppnishömlur.