Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Side 15
Fréttir | 15Helgarblað 4.–6. febrúar 2011
Enn eitt reiðarslagið hefur riðið yfir
bæjarbúa Flateyrar en í janúar var
fiskvinnslufélagið Eyraroddi hf. úr-
skurðað gjaldþrota. Fiskvinnsla hefur
verið undirstaða í atvinnulífi byggð-
arlagsins og áttu því íbúar Flateyrar
mikið undir því að fyrirtækið stæði
af sér erfiðleikana. Mikil óvissa rík-
ir þar en íbúar bæjarins sýndu sam-
stöðu þriðjudaginn 18. janúar þegar
þeir söfnuðust saman á bryggjunni
og sendu út neyðarkall með tákn-
rænum hætti.
Mikið áfall fyrir
atvinnustarfsemi
Eyraroddi hf., sem var með 42 starfs-
menn í vinnu, hafði verið í greiðslu-
stöðvun síðan síðastliðið vor en von-
ast var til að það næði að rétta úr
kútnum. Öllum starfsmönnum var
sagt upp í október en íbúar Flateyr-
ar voru 250 í upphafi síðasta árs sam-
kvæmt Hagstofunni og því ljóst að
áfallið er mikið fyrir atvinnustarf-
semi í þorpinu. Teitur Einarsson,
stjórnarformaður Eyrarodda, sagði í
samtali við DV í haust að rekstrarum-
hverfið hefði verið erfitt en stjórn-
endur fyrirtækisins leituðu allra
leiða til að draga uppsagnir til baka.
Það gekk ekki eftir en eins og fyrr seg-
ir var fyrirtækið úrskurðað gjaldþrota
í janúar.
Fólk er þreytt og lúið
„Við erum búin að lifa við þetta síð-
an í maí, eða síðan fyrirtækið fór í
greiðslustöðvun. Fólk er þreytt og
lúið á þessu ástandi og bíður í ofvæni
eftir að fá svör um framtíðina,“ segir
Guðmundur Björgvinsson, formað-
ur íbúasamtaka Flateyrar. Hann seg-
ist muna þá tíð þegar fólk gat farið að
sofa öruggt um að hafa vinnu daginn
eftir en það sé tilfinning sem Flateyr-
ingar hafi ekki haft undanfarin tíu til
fimmtán ár. Hann bætir við að óör-
yggið sé allt of mikið og það sé nag-
andi til lengdar.
Hjúkrunarheimilinu lokað
Það er ekki einungis í fiskvinnsl-
unni sem fólk missir vinnuna því
í upphafi árs barst tilkynning frá
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða þess
efnis að hjúkrunarheimilinu Sól-
borg yrði lokað á árinu og var það
gert síðastliðinn mánudag. „Sól-
borg hefur verið lokað og gamla
fólkið okkar var flutt af heimilinu á
mánudaginn. Þetta var mikill sorg-
ardagur fyrir okkur á Flateyri. Við
fengum enga áheyrn með það mál,“
segir Guðmundur. Vistmennirnir
voru tveir og fékk annar þeirra inni
á hjúkrunarheimilinu á Þingeyri
en hinn fór á Ísafjörð. Guðmund-
ur bendir á að fyrir þá sem komnir
séu að fótum fram og búi fyrir vest-
an séu engin úrræði nema að vera
lagðir inn á sjúkrahús á Ísafirði en
eins og er sé fullt á Þingeyri og í Bol-
ungarvík.
Flateyringar háðu hetjulega bar-
áttu fyrir ári þegar þeir reyndu að
halda hjúkrunarheimilinu Sólborg
opnu en fyrirhugað var að loka því
í sparnaðarskyni og flytja vistmenn
til nærliggjandi bæjarfélaga. Allir
íbúar skrifuðu undir mótmælalista
sem var afhentur heilbrigðisráðu-
neytinu. Í ljósi þess var ákveðið að
fresta lokun hjúkrunarheimilisins
og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
fékk fjármagn til að reka heimilið
fyrir tvo vistmenn í ár í viðbót. Nú
þegar því hefur verið lokað hafa sjö
manns bæst í hóp atvinnulausra.
Miðstöð fyrir atvinnulausa
Á Flateyri er opið hús alla virka
daga sem Rauði krossinn held-
ur utan um og bærinn styður við.
Guðmundur segir það mjög vel
gert og að fólk nýti sér það. „Með
þessu er verið að halda utan um
fólkið og hvetja það áfram. Mér
heyrist fólk vera afar ánægt með
þetta og það er duglegt að nýta sér
íþróttahúsið og sundlaugina. Fólk
situr ekki heima og lætur sér leið-
ast. Lífið heldur bara áfram, eins
og sagt er.“
Opna húsið var opnað nokkrum
dögum eftir gjaldþrot Eyrarodda
en það voru Vinnumálastofnun,
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Rauðu
krossinn, Fjölmenningarsetur og
fleiri sem stóðu að opnun þess. Þar
getur fólk fengið leiðbeiningar og
farið er yfir réttindi þeirra. Guð-
mundur segir þetta sérstaklega
gott þar sem fjöldi fólks af öðru
þjóðerni en íslensku búi á Flateyri
sem þarfnist útskýringa á stöðu
sinna mála. „Hér er fjöldinn allur
af vinnufúsum höndum sem vilja
komast í vinnu sem allra fyrst.“
Hann segir að á Flateyri séu opin-
berar stofnanir, ferðaþjónusta og
önnur starfsemi en að grunnurinn
hljóti alltaf að vera sjávarútveg-
urinn. „Það þarf að eyða þessari
óvissu og því miður erum við ekki
þau einu á landinu sem lifum við
óvissuna. Þetta er víða um land.“
Skildu Flateyri eftir kvótalaust
byggðarlag
Gjaldþrot Eyrarodda er ekki fyrsta
áfallið sem dynur á atvinnulífi Flat-
eyrar. Árið 2007 var Kambur hf. ein
umfangsmesta fiskvinnsla landsins
og staðsett á Flateyri. Hjá fyrirtækinu
unnu 120 manns, á sjó og á landi, en
byggðin taldi þá rúmlega 300 manns.
Síðla sumars árið 2007 seldu eigend-
ur fyrirtækisins aflaheimildir Kambs
frá byggðarlaginu og hættu fisk-
vinnslu á Flateyri. Fyrirtækið var í
eigu Hinriks Kristjánssonar og Stein-
þórs Bjarna Kristjánssonar. Fjallað
var um málið í DV árið 2008 og sagt
að Hinrik hefði hagnast um hundr-
uð milljóna á sölunni og í kjölfarið
flutt til Hafnarfjarðar. Einnig að hann
hefði verið fimmti hæsti skattgreið-
andi landsins árið áður, samkvæmt
tölum frá skattstjóra. Steinþór Bjarni
á að hafa hagnast um 150 til 200
milljónir en hann flutti til Ísafjarð-
ar. Ljóst þótti að þeir fóru frá Flateyri
sem kvótalausu byggðarlagi en Flat-
eyringar byggðu afkomu sína á þessu
stóra fyrirtæki sem var í þeirra eigu.
Eyraroddi hleypti lífi í
samfélagið
Eftir brotthvarf Hinriks og Steinþórs
var fiskvinnslufélagið Eyraroddi hf.
stofnað en stærsti eigandi þess er
Oddatá ehf., félag í eigu Kristjáns Er-
lingssonar og fjölskyldu. Með tilkomu
þess var hleypt lífi í Flateyringa að
nýju þótt fyrirtækið væri rúmlega þri-
svar sinnum minna en Kambur var.
Aðspurður um reksturinn sagði Kristj-
án í viðtali við DV árið 2008: „Þetta er
fjandanum erfiðara. Við erum ekki í
þessu til að eignast peninga. Það sem
öllu máli skiptir er að viðhalda at-
vinnurekstri í byggðarlaginu. Það var
það sem við lögðum upp með í upp-
hafi. Hvort við græðum peninga á
þessu eða ekki er algjört aukaatriði.“
Nú eru örlög Eyrarodda ljós en
framtíð atvinnureksturs í byggðarlag-
inu óljós.
Velvilji í garð Vestfirðinga
„Við höfum útbúið tillögur sem verða
lagðar fyrir ríkisstjórn og verið er að
vinna í þeim málum. Vonandi fæst
niðurstaða í það sem fyrst,“ segir Eirík-
ur Finnur Greipsson, formaður bæj-
arráðs Ísafjarðarbæjar. Hann segir að
bæjaryfirvöld hafi sett fram þá ósk við
ríkisstjórnina að Vestfirðingar fái að
vera í hópi þeirra landshluta sem fari
af stað með úrvinnslu- og sóknaráætl-
un. Búið sé að samþykkja að Reykjanes
verði í forgangi en Vestfirðingar hafi
óskað eftir að vera í forgangshópi. „Við
höfum upplifað mikinn velvilja í okk-
ar garð í þeim efnum,“ bætir hann við.
Fiskvinnsla á ný
Blikur eru þó á lofti um að fiskvinnsla
hefjist á ný á Flateyri en í bráðaað-
gerðum vegna stöðu Flateyrar sem
Ísafjarðarbær hefur kynnt bæjarbú-
um segir: „Nokkrir aðilar hafa sýnt
áhuga á að hefja vinnslu á Flateyri og
að minnsta kosti tveir þeirra hafa sýnt
fram á raunhæfar hugmyndir sem
myndu tryggja vinnslu á um 1.500
tonnum að lágmarki. Ef allt gengur
samkvæmt áætlun ætti að vera hægt
að hefja fiskvinnslu á ný á næstu 2 til 3
mánuðum.“ Þar eru einnig settar fram
tillögur að verkefnum fyrir þá sem eru
án atvinnu þar til fiskvinnsla hefst á ný.
Þau verkefni eru á formi menntunar
og átaksverkefna.
Byggðarlag
á heljarþröm
n Flateyri varð kvótalaust byggðarlag árið 2007 n Stofnun Eyrarodda hleypti
lífi í bæinn n Mikil óvissa ríkir þar nú þar sem fyrirtækið er orðið gjaldþrota
n Sjö misstu vinnuna þegar hjúkrunarheimilinu Sólborg var lokað
Guðmundur Björgvinsson Formaður
íbúa samtaka Flateyrar segir fólk þreytt og lúið.
Hjúkrunarheimilið Ákveðið hefur verið að loka hjúkrunarheimilinu en við það tapast sjö
hlutastörf.
n Flateyri er sjávarþorp sem á sér 150
ára sögu en byggðarkjarni myndaðist
á Flateyri um miðja 19. öld. Fram undir
aldamótin 1900 voru hákarlaveiðar
undirstaða bæjarins og undir lok 19.
aldar var hvalveiðistöð á Sólbakka sem
átti stóran þátt í eflingu byggðarlagsins.
Íbúar Flateyrar voru á bilinu 220 til 550 á
síðustu öld. Árið 1995 féll snjóflóð úr Eyr-
arfjalli á þorpið með þeim afleiðingum
að 20 manns fórust. Eftir það fækkaði
íbúum en í lok árs 2010 voru þeir um 250
samkvæmt Hagstofu Íslands.
Flateyri
„Hér er fjöldinn all-
ur af vinnufúsum
höndum sem vilja kom-
ast í vinnu sem allra fyrst.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is