Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Side 16
16 | Fréttir 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
Alls töldu 82 prósent starfsmanna
tollgæslunnar á Suðurnesjum að
einelti þrifist á vinnustað þeirra.
Sama hlutfall starfsmanna svar-
aði neitandi þegar þeir voru spurðir
hvort þeir væru ánægðir með starfs-
mannastjórnun yfirmanna hjá Toll-
stjóraembættinu. Þetta kemur fram
í ánægjukönnun fyrir starfsfólk toll-
stjórans á Suðurnesjum, sem lögð
var fyrir starfsmenn í fyrra og DV hef-
ur undir höndum. Allir starfsmenn-
irnir sögðu að samskiptavandamál
væru hjá embættinu og nærri all-
ir svöruðu neitandi þegar þeir voru
spurðir hvort samstarfsmenn sýndu
sér almennt vingjarnlegt viðmót.
Langflestir svöruðu neitandi þegar
þeir voru spurðir hvort vinnustaður-
inn væri laus við hótanir og ofbeldi.
Ofríki
Ólga hefur ágerst meðal starfsmanna
tollstjórans á Suðurnesjum. Það
má meðal annars rekja til mikillar
óánægju með yfirstjórn tollstjórans
og óánægju með sameiningu á emb-
ættum landsins í eitt embætti. Í tíð
ríkisstjórnar Geirs Haarde var ákveð-
ið að sameina öll tollembættin í eitt
undir stjórn Snorra Olsen, tollstjór-
ans í Reykjavík. Þar með tók Snorri
yfir réttindi og skyldur allra starfs-
manna allra hinna tollembættanna
á landinu. Sameiningin hefur mælst
illa fyrir í Keflavík. Starfsmenn kvarta
einnig undan því að frí séu tekin af
þeim, vaktakerfið sé erfitt og samein-
ingin hafi frekar verið eins og fjand-
samlega yfirtaka.
Tollvörður sem DV ræddi við seg-
ir að veikindi starfsmanna hafi aldrei
verið meiri en síðustu mánuði. Það
gefi til kynna að fólk sé óánægt í
vinnu og kvíðið. Í bréfi sem DV hef-
ur undir höndum segir: „Þrátt fyrir
þessa slæmu útreið sem Tollstjóra-
embættið fékk í könnunum virðist
ekkert hafa breyst og starfsandinn
þar sagður liggja nálægt frostmarki.
Þarf enginn að vera hissa þótt öldu-
hreyfingar þessara leiðinda hafi nú
náð að ströndum Suðurnesja.“
Svo virðist sem óánægjan hafi
grasserað í nokkur ár. Í ályktun
starfsmanna tollgæslunnar á Suð-
urnesjum frá því í nóvember 2009
er fjallað um samskipti starfsmanna
við yfirstjórn embættisins. Í álykt-
uninni er kvartað yfir því að í kjölfar
breytinga á skipulagi embættanna
hafi samskipti við yfirmenn ekki ver-
ið góð. Þá er kvartað undan því að
yfir stjórnin hafi farið harkalega fram
gegn starfsmönnum. Orðrétt segir:
„Í sumum tilvikum hefur verið farið
fram gegn starfsmönnum eða ein-
staka starfsmanni með ofríki og ekki
virtar venjubundnar reglur eða laga-
legur réttur starfsmanna brotinn.
Það er ekki hægt að sætta sig við slíka
framkomu eða vinnubrögð hjá nú-
verandi yfirstjórn embættisins.“
Undir ályktunina skrifa Sigur-
vin Guðfinnsson og Ingvi Steinn Jó-
hannsson, trúnaðarmenn.
Telja sig beitta einelti
Í fyrra var gerð könnun á vegum
SFR um starfsánægju hjá opinber-
um stofnunum. Tollstjórinn í Reykja-
vík var í 49. og neðsta sæti í flokki
stærri stofnana. Spurt var um trú-
verðugleika stjórnenda, starfsanda,
launakjör, vinnuskilyrði, sveigjan-
leika vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd
stofnunarinnar, ánægju og stolt. At-
hygli vekur að embættið kom svipað
illa út úr könnuninni og Veðurstofa
Íslands, en þar ríkti á tímabili hálf-
gerð skálmöld vegna eineltismáls.
Árin 2008 og 2009 kom tollstjórinn í
Reykjavík einnig mjög illa út úr sömu
könnun.
Kannanir SFR eru ekki þær einu
á síðustu árum sem tollurinn kem-
ur mjög illa út úr. Árið 2007 var gerð
könnun á vegum fjármálaráðuneyt-
isins þar sem 73 prósent starfsmanna
í tollinum sögðu að fjórði hver starfs-
maður hjá embættinu væri beittur
einelti á vinnustað. Önnur könnun
sem var gerð á vegum Vinnueftirlits-
ins sýndi fram á að allir starfsmenn
teldu að samskiptin við yfirstjórnina
væru léleg eða engin. Tollvörður sem
vill ekki koma fram undir nafni, starfs
síns vegna, segir þetta sýna ástandið.
„Við erum að tala um skoðanakönn-
un í byrjun árs 2007 hjá ráðuneytinu,
síðan er könnun frá 2009 hjá Vinnu-
eftirlitinu og svo 2010 hjá SFR. Allar
þessar kannanir gefa sömu mynd af
ástandinu,“ segir tollvörðurinn.
Hneykslað starfsfólk
Dæmi um það ofríki af hálfu yfir-
stjórnar, sem starfsmenn telja sig
verða fyrir, eru hótanir yfirmanna
tollgæslunnar þess efnis að tollverð-
ir verði færðir frá starfsstöðvum sín-
um, þeir teknir úr vaktavinnu og sett-
ir í dagvinnu. Aðspurður um hvernig
tollvörðum líði að vinna undir þess-
ari stjórn, segir Sigurvin Guðfinns-
son trúnaðarmaður: „Þeim finnst
erfitt að vinna undir þessari stjórn
og finnst þeim sé sýndur ákveðinn
yfirgangur. Fólk hefur verið hneyksl-
að á ýmsum uppákomum gegn stöku
starfsmanni. Dæmi um það er að
menn töldu sig beitta svokölluðu
„shock-treatment“, þar sem menn
voru færðir um deild þar sem mein-
ingin var að stjórnendur væru látn-
ir gera þeim lífið leitt í þeirri deild.
Eitt dæmi er um starfsmann sem var
kvaddur til trúnaðarlæknis á fyrsta
degi í sumarfríi sínu. Hann var ekki
veikur en var látinn svara þar mjög
einkennilegum spurningum varð-
andi sín mál. Nema hvað, lögfræð-
ingur BSRB sendi bréf á tollstjóra og
spurði hvaða heimildir þeir hefðu
til að kanna þetta. Þá kom í ljós að
það átti að færa hann frá Keflavík til
Reykjavíkur og setja hann í dagvinnu
úr vaktavinnu. Um það hefur verið
talað hjá tollstjóranum í Reykjavík að
þetta sé einhvers konar „shock-treat-
ment.“ Lögreglumenn hafa lýst því
sama – að þeim sé gert lífið leitt með
því að færa þá til og frá í starfi.“
Í ljósi niðurstaðna umræddra
kannana má álykta að þetta sé einn
versti opinberi vinnustaður á land-
inu. „Samkvæmt skoðanakönnun-
um má álykta að svo sé,“ segir Sigur-
vin og er þá spurður hvort hann meti
ástandið þannig að skipta þurfi um
yfirstjórn hjá Tollstjóraembættinu?
„Ég hefði viljað velta þeim bolta yfir
í ráðuneytið og að þeir tækju ákvörð-
un um hvað eigi að gera og ráðherr-
ann segi okkur hver framtíð vinnu-
staðarins sé.“
Nemar upp við vegg
Snemma árs 2010 var tollskóli settur
á laggirnar í Reykjavík. Á þeim tíma
kom upp mál í tengslum við toll-
skólanema, sem tollverðir voru allt
annað en sáttir við. Ársæll Ársæls-
son, formaður Tollvarðafélags Ís-
lands, segir að yfirstjórnin hafi stillt
nemunum upp við vegg og tekið af
þeim dagpeninga og ferðakostnað
sem tollverðir hafa haft áratugum
saman. „Tollverðir fara í tollskóla og
enginn fær skipun fyrr en hann hefur
klárað skólann. Þeir sem hafa kom-
ið frá Keflavík hafa fengið greidda
dagpeninga og ferðakostnað. Það
var öðruvísi farið með fjóra nema.
Þeim var stillt upp við vegg. Starfs-
töðin var flutt frá Keflavík til Reykja-
víkur til þess að komast hjá því að
greiða þessar kjarabundnu greiðslur.
Þetta lagðist illa í félagsmenn. Þetta
voru lausráðnir starfsmenn og við
gátum ekki hrundið þessu frá vegna
lagalegra atriða. Það var ekki sérlega
vel að þessu staðið, hvernig farið var
með þessa starfsmenn,“ segir Ársæll.
Sigurvin trúnaðarmaður segir
tollverði ósátta við framkomu yfir-
stjórnarinnar við nemana: „Fólki var
bara stillt upp við vegg, það fór eitt
í einu inn á skrifstofu og var réttur
penni og það látið skrifa undir, ann-
ars færi það ekki í skólann. Þetta er
löglegt en siðlaust. Ráðuneytið vissi
um þetta og var ekki alveg sátt við
þessa aðferð tollstjórans.“
Sameining heppnaðist illa
Ársæll Ársælsson segist aðspurður
vel kannast við óánægju tollvarða
á Keflavíkurflugvelli. „Sameining
embætta virðist ekki hafa tekist alveg
nógu vel í Keflavík. Það var ekki mik-
ill undirbúningur áður en sameining
embætta gekk í gegn, heldur fór und-
irbúningurinn af stað þegar samein-
ingin hafði átt sér stað. Það var ekki
búið að skipuleggja þetta nægilega
mikið. Þarna mættust tvær stórar
stofnanir og starfsmenn í Keflavík
hafa lýst þessu sem yfirtöku. Þeirra
menning hafi orðið undir og menn-
ing tollstjórans í Reykjavík hafi verið
innleidd. Þar eru ýmis smátriði sem
fara illa í menn,“ segir Ársæll.
Sigurvin trúnaðarmaður tekur í
sama streng og segir tollverði upplifa
sameininguna sem fjandsamlega yf-
irtöku líkt og þekkist í viðskiptalífinu.
Ársæll segir það áhyggjuefni að
starfsánægja mælist svona lítil hjá
tollvörðum á Suðurnesjum. „Starfs-
andi og starfsánægja skipta miklu
máli í starfi. Annað sem er að skapa
þessa stöðu hjá tollvörðum er niður-
skurður sem við fáum á okkur ár eft-
ir ár.“
Aðspurður um samkiptin við yfir-
stjórnina segir Ársæll: „Við tölumst
við, ég get ekki kvartað undan því að
við fáum ekki fundi með tollstjóra.
Það eru hins vegar ákvarðanir sem
eru teknar sem hefði kannski sumar
hverjar mátt ígrunda betur.“
Tollverðir kvarta
undan einelti
n Tollverðir á Suðurnesjum kvarta undan ofríki n Telja einelti
beitt á vinnustað n Misheppnuð sameining embætta n Trúnað-
armenn hafa áhyggjur n Koma illa út í ánægjukönnunum
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„ Í sumum tilvikum
hefur verið farið
fram gegn starfsmönnum
eða einstaka starfsmanni
með ofríki og ekki virtar
venjubundnar reglur
eða lagalegur réttur
starfsmanna brotinn.
Snorri Olsen Samkvæmt ánægjukönnun sem gerð var hjá starfsfólki tollstjóra á
Suðurnesjum eru langflestir óánægðir með starfsmannastjórnun yfirmanna.
Bestu vinnustaðir
1. Umferðarstofa
2. Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra
á Austurlandi
3. Landgræðsla
ríkisins
Verstu vinnustaðir
47. Varnarmálastofnun
48. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæð-
inu
49. Tollstjórinn í Reykjavík
OPINBERAR STOFNANIR SAMKVÆMT KÖNNUN SFR 2010
Bestu og verstu