Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Qupperneq 19
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
hefur útilokað þá hugmynd um að
komið verði á kynjakvóta í stjórn-
endastöðum fyrirtækja á hluta-
bréfamarkaði. Stjórnmálaskýrendur
í Berlín hafa búist við aðgerðum að
hálfu Merkel til að auka hlut kvenna
í stjórnendastöðum. Samkvæmt
niðurstöðum þýsku efnahagsrann-
sóknarstofnunarinnar (Deutsches
Institut für Wirtschaftsforschung)
eru aðeins 11 konur í stjórnenda-
stöðum hjá 100 stærstu fyrirtækjum
í Þýskalandi en 479 karlar. Það er að-
eins 2,2 prósenta hlutfall og langt á
eftir viðmiðunarríkjum Þýskalands.
Ursula von der Leyen, atvinnumála-
ráðherra í ríkisstjórn Merkel, hefur
samt sem áður sagt, að kynjakvóti í
stjórnendastöðum sé óumflýjanleg-
ur.
Ekkert gerst í 10 ár
Von der Leyen sagði í viðtali við Der
Spiegel í vikunni að það væri kominn
tími til að setja á kynjakvóta. „Síð-
astliðin 10 ár hefur verið í gildi sam-
komulag stjórnvalda og fyrirtækja á
hlutabréfamarkaði, um að auka hlut
kvenna í stjórnendastöðum jafnt og
þétt. Þetta samkomulag hefur hins
vegar algjörlega brugðist.“
Málið virtist því borðleggjandi
fyrir Merkel sem hefur löngum tal-
að um að konur þurfi að vera meira
áberandi í atvinnulífinu. Hún er líka
flokkssystir von der Leyen og búist
var við því að tekið yrði undir mál-
flutning atvinnumálaráðherrans.
Merkel gerði það hins vegar ekki,
og talið er að ástæðan sé neikvætt
almenningsálit í garð kynjakvóta.
Þá sagði Horst Seehofer, formað-
ur Kristilegra sósíalista, systurflokks
Kristilegra demókrata í Bæjaralandi,
að honum hugnaðist ekki kynjakvóti.
Seehofer vill heldur gera nýtt sam-
komulag við samtök atvinnurekenda
og gefa þeim lengri tíma til að rétta
hlut kvenna.
Svo virðist sem Merkel taki undir
með Seehofer, en talsmaður hennar,
Steffen Seibert, sagði á miðvikudag
að „engin lög um kynjakvóta væru á
næsta leiti.“
Evrópulönd hafa tekið af skarið
Nú nýlega hafa verið staðfest lög um
kynjakvóta í stjórnendastöðum fyr-
irtækja á hlutabréfamarkaði, bæði
á Spáni og í Frakklandi. Svipuð lög
liggja fyrir hollenska þinginu og ætti
að koma í ljós á næstu dögum hvort
þau verði samþykkt. Þá hefur fram-
kvæmdastjóri sameiginlegs markaðs
Evrópusambandsins, Michel Barni-
er, gefið til kynna að hann sé að íhuga
lagafrumvarp um kynjakvóta fyrir öll
aðildarríki sambandsins. Ljóst er að
slíkt lagafrumvarp mun ekki ná fram
að ganga án stuðnings Þjóðverja, þar
sem öll aðildarríki ESB hafa neitun-
arvald í ráðherraráði sambandsins.
Á Íslandi eru lög um kynjakvóta í
ríkisstofnunum og ríkisreknum fyr-
irtækjum, þó fyrirtækjum á einka-
markaði sé í sjálfsvald sett hverjir sitji
að kjötkötlunum.
Erlent | 19Helgarblað 4.–6. febrúar 2011
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Blómaval, Á grænni
grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa
og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík,
Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækning-
abúðin, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykja-
víkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek
Vesturlands, Apótek Hafnafjarðar
Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi
apótek um allt land.
Safinn virkar vel á eðlilega
úthreinsun líkamans
Bætir meltinguna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr
líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
Velkomin að skoða
www.weleda.is
Weleda vatnslosandi Birkisafi
unninn úr lífrænum
Birkilaufum
Inniheldur engin
gervi-litar eða
rotvarnarefni
Merkel á móti
kynjakvóta
n Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir kynjakvóta ekki
á næsta leiti n Aðeins 2,2 prósent stjórnenda eru konur
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Ljóst er að slíkt
lagafrumvarp mun
ekki ná fram að ganga án
stuðnings Þjóðverja.
Merkel vill ekki kynjakvóta Kanslarinn hefur talað gegn atvinnumálaráðherra sínum
og hafnar kynjakvóta. MYND REUTERS
FRIÐURINN ÚTI
Kröftug mótmæli Hér sést mótmælandi kasta frá sér eldsprengju. Nokkrir hafa látist í
átökunum og fjölmargir slasast.
Ég er saklaus! Hér sést einn mótmælenda reyna að forðast grjótkast frá æstum mótmæl-
anda.