Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Síða 26
26 | Nærmynd 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
S
igmundur Ernir Rúnars-
son hefur ítrekað orðið fyrir
barðinu á óvægnum kjafta-
sögum um sig og einkalíf sitt.
Sumar þeirra hafa ratað í fjölmiðla
en verið hraktar. Samkvæmt heim-
ildum DV varð ein þeirra til þess að
Sigmundur neyddist nýverið til að
senda samflokksmönnum sínum í
þingflokki Samfylkingarinnar tölvu-
póst til að neita víðförulli kjaftasögu.
Samflokksmenn hans eru þöglir um
efni bréfsins. Sigmundur hefur náð
árangri á flestum sviðum sem hann
hefur reynt fyrir sér á en hann þykir
sérhlífinn en engu að síður skemmti-
legur og mikill vinur vina sinna.
Fjölskyldumaður
Sigmundur Ernir og eiginkona hans,
Elín Sveinsdóttir, eiga fjögur börn
saman, en fyrir átti Sigmundur tvö
börn úr fyrra hjónabandi. Sigmund-
ur komst að því daginn áður en hann
var rekinn af Stöð 2 að dóttir hans, Ey-
dís Edda, ætti skammt eftir ólifað. Frá
þessu sagði hann í viðtali í tímaritinu
Mannlífi. Sigmundur Ernir komst að
því skömmu eftir fæðingu Eydísar
Eddu að hún glímdi við óútskýrðan
hrörnunarsjúkdóm. Hann hafði lengi
gert sér grein fyrir að hún myndi lík-
lega kveðja þessa veröld á undan for-
eldrum sínum en það var engu að
síður mikið áfall þegar leiðir þeirra
skildu svo. „Innst inni vissi mað-
ur alltaf að þetta myndi fara svona,“
sagði Sigmundur.
Sigmundur Ernir leikur fótbolta
með áhugamannaliðinu Lunch Un-
ited. Í samtali við Fótbolta.net sagði
hann að liðið væri „knattspyrnufé-
lag heldri manna í borginni“ sem að
hann hefði fengið að spila með síð-
ustu tíu árin. Hann er þá mikill stuðn-
ingsmaður Chelsea í ensku úrvals-
deildinni, en hann tók ákvörðun um
að halda með liðinu árið 1971 þeg-
ar liðið spilaði á móti Leeds, uppá-
haldsliði bróður hans, í úrslitum bik-
arkeppninnar í Englandi. „Þá var ég
tíu ára og maður horfði á vikugamla
svarthvíta leiki í sjónvarpinu. Þarna
byrjaði ég að halda með Chelsea og
hef ekki gefist upp síðan þá,“ sagði
Sigmundur við vefinn, en hann tel-
ur upp aðild sína í fótboltafélögum
til hagsmunaskráninga á vef Alþingis.
Fréttamaðurinn
Sigmundur hóf störf sem fréttamaður
sama ár og hann lauk stúdentsprófi.
Hann hóf þá störf á Vísi og starfaði
þar þegar blaðið sameinaðist Dag-
blaðinu og myndaði DV. Eftir tveggja
ára starf sem blaðamaður á Vísi og
DV flutti hann sig yfir á Helgarpóst-
inn þar sem hann vann til ársins
1985. Þaðan fór hann í Ríkissjónvarp-
ið þar sem hann starfaði í eitt ár. Eftir
að hafa starfað hjá Ríkissjónvarpinu
flutti hann sig yfir á fréttadeild Stöðv-
ar 2 þar sem hann starfaði til ársins
2001, þegar hann snéri aftur í gamla
heimahaga og gerðist ritstjóri DV. Eft-
ir það var hann þáttastjórnandi á Skjá
Einum, fréttastjóri á Fréttablaðinu og
svo loks aftur fréttamaður á Stöð 2.
Á Stöð 2 gegndi Sigmundur Ernir
starfi forstöðumanns fréttasviðs, en
hann var starfandi fréttamaður fyr-
ir sjónvarpsstöðina. Hann tók einnig
þátt í annarri dagskrárgerð fyrir stöð-
ina, en þá einna helst með fréttatengt
efni. Eiginkona Sigmundar starfaði
með honum hjá 365, eiganda Stöðvar
2, en hún var einn fremsti útsending-
arstjóri Stöðvar 2. Sigmundur fylgdist
eftir brottreksturinn með stjórnmál-
um af hliðarlínunni, áður en hann sló
til og gerðist þátttakandi í þeim.
Valtur stóll
Stóll Sigmundar í fréttadeild Stöðvar
2 var orðinn valtur strax þegar Stein-
grímur Sævarr Ólafsson var ráð-
inn ritstjóri Íslands í dag. Þá gegndi
hann stöðu fréttastjóra og heyrði
bæði fréttatími Stöðvar 2 og dægur-
málaþátturinn Ísland í dag undir Sig-
mund. Algjörlega var gengið framhjá
Sigmundi þegar Steingrímur var ráð-
inn og var það gert að undirlagi Ara
Edwald, forstjóra samsteypunnar. Til
að halda andliti boðaði Sigmundur
samstarfsmenn sína á fund og sagði
þeim að hann hefði tekið ákvörðun-
ina um ráðningu Steingríms, en ekki
Ari.
Sigmundur Ernir var undir lok fer-
ils síns hjá Stöð 2 orðinn úthrópað-
ur sem hirðfréttamaður auðvaldsins.
Þar lék stórt hlutverk síðasti Krydd-
síldarþátturinn sem hann stjórnaði
á gamlársdag á Hótel Borg. Þar stýrði
hann hátíðlegum umræðum stjórn-
málaleiðtoga á meðan óánægðir
borgarar börðu búsáhöld fyrir utan
salinn. Útsendingin var á endanum
stöðvuð af óánægðum borgara sem
brenndi í sundur sjónvarpssnúrur
með þeim afleiðingum að útsending-
in stöðvaðist.
Latur en skemmtilegur
Samstarfsmaður Sigmundar frá tíma
hans í fjölmiðlum segir að hann hafi
verið skemmtilegur að vinna með.
„Hann var samt latur og sérhlífinn,“
segir viðmælandinn. Segir viðmæl-
andinn að Sigmundur hafi komið
seint og farið snemma úr vinnunni,
sem þykja ekki góð meðmæli með
fréttastjóra á dagblaði. „Hann var ekki
neitt sérstaklega vel liðinn af fólkinu
á blaðinu en það var bara vegna þess
hvernig hann vann, en ekki vegna
þess að hann hafi verið leiðinlegur.“
Þetta er samhljóma því sem viðmæl-
endur DV sögðu fyrir rúmu ári þeg-
ar Sigmundur var í nærmynd. Þá var
hann líka sagður forðast átök, sem
varla getur verið gott fyrir þingmann.
Sigmundur Ernir hefur á stund-
um orðið fyrir barðinu á hatrömm-
um kjaftasögum. Á dögunum var
hart gengið að honum og sögusagn-
ir gengu ljósum logum í samfélaginu.
Sigmundur brá þá á það ráð að senda
félögum sínum í þingflokki Samfylk-
ingar tölvupóst þar sem hann bað þá
lengstra orða að hlusta ekki sögurnar
sem væru rangar.
Samfylkingarmaðurinn
Sigmundur Ernir bauð sig fram í
Norðausturkjördæmi fyrir Samfylk-
inguna og tilkynnti hann framboð
sitt í prófkjöri flokksins í kjördæm-
inu stuttu eftir að honum hafði verið
sagt upp störfum á Stöð 2 árið 2009.
Sigmundur var þá formaður stjórnar
Leikfélags Akureyrar og hafði hann
gott bakland í kjördæminu og hreppti
hann annað sæti á lista flokksins.
Hann var þó ekki alveg viss um hvaða
flokk hann ætti að fara í framboð fyr-
ir og velti því meðal annars fyrir sér
að taka þátt í prófkjöri Framsóknar-
flokksins frekar en prófkjöri Samfylk-
ingarinnar. Framsóknarflokkurinn
hafði á þeim tíma fengið nýjan for-
mann, Sigmund Davíð Gunnlaugs-
son, sem boðaði stefnubreytingu hjá
flokknum. Ekkert varð af framboði
hans fyrir Framsóknarflokkinn en í
lok ársins 2010 lýsti hann yfir þeirri
skoðun sinni að hann vildi fá flokkinn
inn í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna.
Betri fjölmiðlamaður
Varaþingmaðurinn og fjölmiðlamað-
urinn Óli Björn Kárason hefur þekkt
Sigmund Erni frá því að þeir voru
bekkjarfélagar í Menntaskólanum á
Akureyri. Hann er sammála öðrum
viðmælendum DV um að Sigmund-
ur sé fyrst og fremst skemmtilegur
og góður félagi. „Simmi er náttúru-
lega bara mjög skemmtilegur maður,
léttur og kátur. Hann er góður vinur
og félagi. Hann kemur ekkert í bak-
ið á þér,“ segir Óli Björn. Hann tel-
ur þó að alltof stutt sé liðið á stjórn-
málaferil Sigmundar til að hægt sé
að segja hvort hann sé þar á heima-
velli. „Auðvitað líkar mér miklu bet-
ur við Sigmund Erni sem fjölmiðla-
mann en stjórnmálamann því ég er
ekki sammála honum,“ segir hann og
hlær. „Hann á sér nú ekki langa sögu
í pólitík svo við skulum bíða með að
úrskurða um það. Annars held ég að
fjölmiðlarnir hafi átt betur við hann
og ég held meira að segja að hann sé
sammála mér. Mig grunar það.“
Óökufær lánsbíll
Í prófkjörs- og kosningabaráttunni
keyrði Sigmundur um á bíl frá fyrr-
verandi vinnuveitanda sínum, fjöl-
miðlasamsteypunni 365. Bílinn hafði
verið hluti starfskjara hans en hon-
um var ekki gert að vinna uppsagn-
arfrest sinn en naut fullra kjara samt
sem áður. Mikil óánægja var innan
samsteypunnar vegna málsins en
bæði Sigmundi Erni og Ara Edwald
þótti málið ekkert óeðlilegt. „Ég nota
hana [bifreiðina] bara í samræmi við
mína samninga og svipað og ég hef
notað hann í minni vinnu. Ég hef að
sjálfsögðu bara verið á mínum bíl
samkvæmt mínum samningi. Ég er
enn á samningi hjá fyrirtækinu og
nýt þeirra réttinda og skyldna sem að
samningnum lúta,“ sagði Sigmundur
við DV um málið. Hann gerði enga at-
hugasemd við að keyra á bíl auðjöfr-
anna sem hann hafði áður sagst vera
fegin að losna undan. Bílnum skilaði
hann svo óökufærum eftir að upp-
sagnarfrestur hans rann út.
Drukkinn í bankapartíi
Eftir aðeins nokkurra mánaða setu
á Alþingi tókst Sigmundi Erni að
hneyksla þjóðina. Hann mætti drukk-
inn í ræðustól þingsins, eftir að hafa
verið á golfmóti og veislu í boði MP
banka, og tjáði sig um Icesave. Sjálfur
neitaði hann að hafa drukkið áfengi
en veislugestir í boðinu ljóstruðu því
upp að Sigmundur hefði „hellt í sig“
áfengi. „Ég ber mikla virðingu fyrir
Alþingi og alþingismönnum og mér
fannst ástand þingmannsins vera allt
að því óviðeigandi. Veislan var vegleg
og það var boðið upp á hvítvín, rauð-
vín og bjór. Ég veitti því eftirtekt að
þingmaðurinn hellti í sig rauðvíni,“
sagði veislugestur, sem vildi ekki láta
nafns síns getið, í samtali við DV. Sig-
mundur gekkst loks við því að hafa
neytt áfengis umrætt kvöld og baðst
afsökunar á athæfi sínu úr ræðustól
Alþingis skömmu síðar.
Sammála Árna Johnsen
Sigmundur Ernir var skráður með-
flutningsmaður að frumvarpi Árna
Johnsen, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins, sem snéri að veitingu rík-
isborgararéttar til rússneskrar konu
sem búsett hefur verið í Noregi um
langt skeið. Þegar sagt var frá mál-
inu í fjölmiðlum upphófst umræða
um málið og hlutu þeir félagar mikla
gagnrýni fyrir þegar í ljós kom að sú
rússneska hafði engan áhuga á að fá
ríkisborgararétt á Íslandi. Sigmund-
ur var þá fljótur að svara fyrir sig
og sagðist aldrei hafa ætlað að vera
meðflutningsmaður að frumvarpinu.
„Árni hafði ámálgað þetta við mig
en ég staðfesti aldrei meðflutning,“
sagði hann í samtali við Fréttablaðið.
„Í prinsippinu er ég sammála því að
illa hafi verið farið með þessa konu en
textinn í skjali Árna er ekki eins og út
úr mínum munni.“
Þegar Hæstiréttur ógilti kosning-
una til stjórnlagaþings var Sigmund-
ur Ernir ekki lengi að birta pistil á
vefsíðu sinni þar sem hann kallaði
eftir afsögn landskjörstjórnar, sem fór
með framkvæmd kosninganna. Sagði
hann á vefsíðu sinni að ekki væri
hægt að kenna Hæstarétti um ógild-
inguna, sem margir hafa viljað gera,
heldur væri við löggjafar- og fram-
kvæmdavaldið að sakast. Samt sem
áður sagði hann á síðunni: „Það á að
kjósa aftur. En við getum ekki kosið
aftur með sömu landskjörstjórnina
að verki. Hún verður að fara frá. Þeir
sem bera ábyrgð á framkvæmd sem
mistókst, framkvæma ekki aftur þeg-
ar sjálf stjórnarskráin er í húfi …“
Neitar golfferð
Stuttu eftir að Sigmundur flutti eld-
ræðu í ræðustól Alþingis um niður-
skurð til heilbrigðisstofnana á Norð-
ur- og Austurlandi skellti hann sér
í tveggja vikna frí til Indlands. Sig-
mundur lék þar golf með upplýs-
ingafulltrúa Icelandair og sviðsstjóra
alþjóðasviðs Rauða krossins. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
DV var hann ásamt þeim Guðjóni
Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa
Icelandair, og Þóri Guðmundssyni,
fyrrverandi fréttamanni Stöðvar 2
og núverandi sviðsstjóra alþjóða-
sviðs Rauða krossins, en tilefnið var
n Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur alltaf verið á milli tannanna á fólki n Hefur
náð árangri á mörgum sviðum en þykir þó sérhlífinn n Skemmtilegur
og góður félagi n Leikur með knattspyrnufélagi „heldri manna í borginni“
Hreyfist vel í vindi
„Þetta er góður
drengur og góður
samstarfsfélagi.
Þingmaðurinn Sigmundur settist á
þing eftir kosningar árið 2009.
Fjölskyldumaðurinn Sigmundur ásamt
eiginkonu sinni Elínu Sveinsdóttur.