Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Side 34
34 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
D
ean Corll fæddist í Fort Wayne
í Indiana í Bandaríkjunum á
aðfangadagskvöld árið 1939.
Samskipti foreldra hans ein-
kenndust af erjum og fóru Dean og
yngri bróðir hans ekki varhluta af
þeim. Faðir þeirra, Arnold Edwin Corll,
var strangur, en móðir þeirra, Mary,
verndaði þá svo jaðraði við öfgar.
Í bernsku var Dean feiminn og hlé-
drægur en fékk ágætis einkunnir í skóla
og var talinn kurteis drengur.
Foreldrar Deans skildu 1946 en
giftust að nýju árið 1950 og fluttu til
Pasa dena í Texas, en töldu fullreynt að
hjónabandið gengi árið 1953 og skildu
aftur. Skömmu síðar komst móðir
Deans í kynni við farandsölumann,
Jake West, og flutti með honum og son-
um sínum til smábæjarins Vidor.
Í Vidor stofnaði Mary litla sælgætis-
verksmiðju í félagi við Jake og fyrr en
varði var Dean farinn að vinna í henni
með skóla.
Sælgæti aflar Dean vina
En hlédrægnin minnkaði ekki með
unglingsárunum. Sælgætisverksmiðj-
an dafnaði og stækkaði og brátt byggð-
ist framfærsla fjölskyldunnar á henni.
Dean naut góðs af og var örlátur á sæl-
gæti í viðleitni sinni til að afla nýrra
vina. Eftir að Dean lauk menntaskóla-
námi árið 1958 flutti fjölskyldan til
Houston og settist að í Heights-hverfi.
Þar opnaði fjölskyldan nýja sælgætis-
búð, Pecan Prince, og lífið gekk sinn
vanagang.
Árið 1959 fór Dean til afa síns og
ömmu í Indiana og dvaldi hjá þeim um
tveggja ára skeið en snéri þá heim til
Houston til að hjálpa til í sælgætisverk-
smiðjunni.
Árið 1963 skildu Mary og Jake og
Dean varð aðstoðarforstjóri verksmiðj-
unnar. Þá fór að draga til tíðinda því
sama ár kom ungur karlmaður sem
vann í verksmiðjunni að máli við Mary
og kvartaði yfir því að Dean hefði haft
uppi kynferðislega tilburði gagnvart
sér. Mary brást skjótt við og rak starfs-
manninn með það sama.
Nammikarlinn
Árið 1965, þegar Dean hafði lokið her-
skyldu, var verksmiðja fjölskyldunnar
flutt um set og var nýja húsnæðið gegnt
Heights-grunnskólanum. Það var al-
kunna að skólakrakkarnir nutu góðs af
nánd við verksmiðjuna og Dean spar-
aði ekki nammið. Sérstaklega var hann
örlátur ef um var að ræða táningspilta.
Þriðja hjónaband Mary var rústir
einar og hún flutti til Colorado og sæl-
gætisverksmiðjunni var lokað árið
1968 og kemur ekki meira við sögu.
Um það leyti hafði Dean kynnst ung-
lingnum David Owen Brooks sem átti
eftir að verða honum innan handar á
komandi árum.
Dean var á þessum tíma farinn
að sýna tilhneigingu til kvalalosta og
fjötra kynlífs í samböndum sínum við
unga pilta og menn. Árið 1970 kom
Brooks heim til Deans og gekk inn á
hann naktan þar sem hann hafði bund-
ið tvo nakta drengi á heimagerðan
pyntingabekk. Dean varð hálfkindar-
legur, leysti drengina og lofaði Brooks
bíl ef hann þegði um uppá komuna.
Þetta átti eftir að breytast því brátt
þurfti blóð til að vekja losta hjá Dean og
var Brooks ætlað að útvega ung fórnar-
lömb og fékk 200 bandaríkjadali fyrir
hvert og eitt.
Tuttugu og sjö fórnarlömb
Fyrsta fórnarlamb Deans var Jef-
frey Konen. Konen var myrtur 25.
september, 1970, eftir að hafa þegið
far með Dean. En Jeffrey var bara sá
fyrsti af mörgum því talið er að 27 ung-
ir menn hafi fallið fyrir hendi Deans og
voru þeir á aldrinum þrettán til tuttugu
ára. Flestir komu úr Heights-grunn-
skólanum og voru lokkaðir heim til
Deans með fyrirheitum um gott partí.
Þangað komnir var þeim ýmist veitt
áfengi þar til þeir lognuðust út af, þeir
narraðir til að setja á sig handjárn eða
hreinlega yfirbugaðir. Síðan voru þeir
afklæddir og bundnir á pyntingabekk
Deans þar sem þeim var misþyrmt
kynferðislega, þeir pyntaðir og síðan
kyrktir eða skotnir – í sumum tilfellum
eftir nokkra daga. Lík drengjanna voru
vafin inn í plast og grafin á fjórum mis-
munandi stöðum.
Dean átti jafnvel til að neyða dreng-
ina til að hringja í foreldra sína og út-
skýra fjarveru sína þannig að leit að
þeim hæfist seinna en ella.
Vinna fyrir kaupinu
Um miðjan desember 1970 fór David
Brooks að vinna fyrir umbun sinni og
lokkaði tvo fjórtán ára drengi, James
Glass og Danny Yates, heim til Deans.
Brooks þekkti James Glass en lét það
ekki trufla sig. Báðir voru drengirnir
bundnir við pyntingabekk Deans og
eftir að Dean hafði fullnægt kvalalosta
sínum kyrkti hann drengina og voru lík
þeirra grafin í bátaskýli sem Dean hafði
tekið á leigu.
Þegar þarna var komið sögu var það
eingöngu Brooks sem aflaði sér skot-
silfurs með því að finna fórnarlömb
fyrir Dean og sex vikum síðar, í janúar-
lok 1970, hnaut Brooks um tvo bræður,
Donal og Jerry Waldrop, í keiluhöll. Ör-
lög bræðranna urðu þau sömu og James
og Dannys og hinsta hvíla þeirra sú hin
sama. Frá mars til ágúst myrti Dean
fjóra stráka á aldrinum 13 til 17 ára.
David Brooks narraði sautján ára
ungling, Ruben Watson, heim til Deans
á haustmánuðum 1970 og þurfti ekki
að spyrja að leikslokum.
Í kjölfarið kynnti Brooks Elmer
Wayne Henley, þá fimmtán ára, fyr-
ir Dean með það fyrir augum að hann
fengi útrás á honum. En raunin varð
önnur því Dean sá í Elmer efni í sam-
starfsmann og gerði honum sama til-
boð og Brooks – 200 dali fyrir hvert
fórnarlamb.
Elmer verður afkastamikill
Willard Branch var fyrsta fórnarlamb-
ið sem Elmer útvegaði Dean. Elmer
aðstoðaði við ránið á Branch í febrú-
ar 1972, kom á hann handjárnum og
skildi hann síðan eftir í félagsskap
Deans og fékk greidda 200 dali fyrir
vikið.
Mánuði síðar endurtók Elmer leik-
inn þegar hann kom Frank Aguirre, átj-
án ára unglingi sem hann þekkti per-
sónulega, í hendurnar á Dean. Þegar
þar var komið sögu var Elmer ekki full-
kunnugt um afdrif fórnarlambanna, en
Dean leiddi hann í allan sannleikann
um pyntingarnar og morðin.
Í stað þess að fallast hendur óx El-
mer ásmegin og fyrr en varði féll Brooks
í skuggann af honum og eitt sinn rank-
aði Brooks við sér, bundinn í rúmi þar
sem Elmer beitti hann ofbeldi. Engu að
síður héldu þeir samstarfinu áfram.
Frá febrúar til desember 1972 voru
að minnsta kosti átta unglingspiltar
myrtir í Heights-hverfinu í Houston.
Í febrúar 1973 myrti Dean Joseph
Lyles, en flutti sig nokkrum mánuðum
síðar um set til Pasadena. Þegar vika
var liðin af júlí hafði Dean fyrirkomið
þremur drengjum og þann 12. myrti
Dean 17 ára strák að nafni John Sell-
ars. Viku síðar féll Michael Baulch, 15
ára, fyrir hendi Deans og 3. ágúst hafði
hann myrt þrjá drengi til viðbótar.
Afdrifarík mistök
Aðfaranótt 8. ágúst kom Elmer með
ungling að nafni Tim Kerley til Deans,
en gerði þau mistök að koma einn-
ig með vinkonu sína, Rhondu Willi-
ams, 15 ára. Dean brást hinn versti við
en róaðist að lokum og á meðan ung-
lingarnir drukku og reyktu maríjúana
fylgdist Dean grannt með þeim. Eftir
tvær klukkustundir lognuðust ungling-
arnir út af.
Elmer vaknaði við það að Dean var
að skella á hann handjárnum og sá að
búið var að binda Kerley og Rhondu.
Dean dró Elmer inn í eldhús og hótaði
að skjóta hann, en Elmer tókst að róa
hann með því að lofa að taka þátt í að
fyrirkoma hinum tveimur. Ákveðið var
að Dean myndi sjá um Kerley og Elmer
myndi drepa Rhondu.
Þegar þar var komið sögu lyfti
Rhonda upp höfðinu, ekki alveg klár
í kollinum, og spurði Elmer: „Er þetta
raunverulega að gerast?“ Elmer kvað
svo vera og þá spurði Rhonda: „Ætl-
arðu að gera eithvað í því?“
Var þá eins og rofaði til í höfðinu
á Elmer og hann náði skammbyssu
Deans, miðaði á hann og sagði: „Þú
hefur gengið nógu langt, Dean!“
Dean ögraði og hæddi Elmer og
fóru leikar þannig að Elmer skaut Dean
í ennið og bætti um betur með því að
skjóta hann fimm skotum í viðbót og
Dean var allur. Að þessu loknu hringdi
Elmer í lögregluna.
Réttað var yfir Elmer Wayne Henley
og David Owen Brooks vegna aðild-
ar þeirra að morðunum og fékk Elmer
sex samfellda 99 ára fangelsisdóma og
David Brooks fékk lífstíðardóm. Þeir
sitja báðir inni.
n Dean Corll hneigðist til kvalalosta og fjötrakynlífs n Hann pyntaði fórnarlömb sín
á heimagerðum pyntingabekk n Tveir unglingspiltar fundu fórnarlömb fyrir hann
NammikarliNN
„Þegar þar var
komið sögu lyfti
Rhonda upp höfðinu,
ekki alveg klár í kollin-
um, og spurði Elmer:
„Er þetta raunveru-
lega að gerast?“