Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Qupperneq 37
Fókus | 37Helgarblað 4.–6. febrúar 2011
Borgarleikhúsinu boðið að sýna í Litháen:
Ofviðrið í útrás
Borgarleikhúsinu hefur verið boðið
að sýna leikritið Ofviðrið eftir Shake-
speare í Þjóðleikhúsi Litháens í sept-
ember. Í fréttatilkynningu frá Borgar-
leikhúsinu segir að leikhúsið sem um
ræðir, Lithuanian National Drama
Theatre sé það stærsta þar í landi og
njóti mikillar virðingar á alþjóðavísu.
Ofviðrið verður sýnt þar á stóra sviði
leikhússins.
Auk þess verður Ofviðrið í upp-
setningu Borgarleikhússins á að-
aldagskrá alþjóðlegu leiklistarhá-
tíðarinnar Sirenos en fyrir henni
stendur Borgarleikhúsið í Vilníus. Þar
eru sýnd þau litháísku verk sem hafa
skarað fram úr á leikárinu auk örfárra
erlendra sýninga.
Ofviðrið hefur verið sýnt fyrir fullu
húsi hér heima í Borgarleikhúsinu frá
frumsýningu í lok desember. Leik-
stjóri sýningarinnar er Litháinn Osk-
aras Koršunovas en í leikdómi stærsta
blaðs Litháens fékk verkið lofsamlega
dóma. Jón Viðar Jónsson, leikhúsrýn-
ir DV, var þó ekki jafn ánægður með
verkið en hann gaf því tvær stjörn-
ur með yfirskriftinni: „Þegar Shake-
speare sofnaði.“
Í fréttatilkynningu Borgarleikhúss-
ins er vitnað í leikhússtjórann Magn-
ús Geir Eyjólfsson þar sem hann seg-
ir: „Við erum afar þakklát og upp með
okkur yfir þessu boði sem er mikil við-
urkenning fyrir sýninguna og leikhús-
ið okkar. Ofviðrinu hefur verið afar vel
tekið hér heima og það er ánægjulegt
að áhugi sé fyrir sýningunni erlend-
is frá. Sýningin er stór og viðamik-
il í sniðum en vonandi tekst okkur
þrátt fyrir það að koma ferðinni inn
í dagskrá leikhússins næsta haust og
þekkjast þetta góða boð.“
tomas@dv.is
Hvað er að gerast?
n Svanasöngur Schuberts
Nýstárleg útgáfa af Svanasöng Schuberts
verður flutt í Íslensku óperunni föstudags-
kvöldið 4. febrúar kl. 20. Það eru þau Lára
Stefánsdóttir dansari, Ágúst Ólafsson barit-
ónsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari sem
flytja ljóðaflokkinn í nýstárlegri útfærslu
kanadíska danshöfundarins Kennets
Oberly. Verkefnið er samvinnuverkefni
Íslensku óperunnar og Pars Pro Toto.
n Ford-keppnin
15 upprennandi
fyrirsætur keppa um
titilinn Ford-fyrirsæta
ársins 2011. Keppnin
fer fram þann 4.
febrúar í Listasafni
Reykjavíkur. Feldberg
og Sykur spila undir,
sýnd verða vídeó-verk
eftir Silju Magg og
ný og upprennandi
hljómsveit treður upp fyrir gesti.
n Stríð og friður með
Sinfóníuhljómsveitinni
Það var ekki tekið út með sældinni að vera
tónskáld í Sovétríkjunum á Stalín-tímanum.
Árið 1948 var Sjostakovitsj úthúðað á
tónskáldaþingi og nokkur lykilverk hans
bönnuð. Hann var með fiðlukonsert í smíð-
um handa David Oistrakh en vissi sem var að
innihaldið myndi ekki falla yfirvöldum í geð.
Konsertinn beið í skúffunni þar til Stalín lést
sjö árum síðar, en þykir nú eitt áhrifamesta
verk meistarans. Sinfóníuhljómsveit Íslands
flytur verkið á föstudagskvöld.
n Grafík í Norræna húsinu
Grafíklistamaðurinn Jens Damkjær Nielsen
sýnir í anddyri Norræna hússins til 13.
febrúar. Ókeypis aðgangur.
n Brák í Kúlunni
Hin margrómaða og verðlaunaða sýning
Brák ferðast úr Borgarnesi í miðborgina og
er sýnd í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu.
n Þynnkubíó á Prikinu
Á sunnudögum heldur veitingastaðurinn
Prikið kvikmyndasýningar og um helgina
verður sýnd myndin The Warriors og að
vanda býður Prikið gestum upp á popp.
n Bessastaðaprinsessa Gerðar
Prinsessan á Bessastöðum var frumsýnd
á fimmtudaginn og vakti mikla lukku hjá
yngstu gestunum sem sumir hverjir vildu
áfjáðir sjá sýninguna aftur. Verkið er byggt
að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaða-
bókum eftir Gerði Kristnýju og tónlistin
er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem
meðal annars hefur getið sér gott orð með
Baggalúti og Memfismafíunni, en semur
nú í fyrsta sinn tónlist fyrir leikhús. Gerður
Kristný og Bragi Valdimar eiga heiðurinn af
söngtextum í sýningunni.
4
FEB
Föstudagur
5
FEB
Laugardagur
6
FEB
Sunnudagur
Sýna í Litháen í haust
Ofviðrið hefur gengið fyrir fullu
húsi hér heima. MYND GRIMUR BJARNASON
Þröngsýnn
tískuiðnaður
Þannig virðist vera auðveldara að
vekja athygli með verkum sem er
erfiðara að fá peninga fyrir.“
Peningar og myndlist
Hann segir að reyndar virðist mynd-
list og peningar eiga erfiða sam-
búð. „Sú myndlist sem höfundurinn
hagnast á virðist oft vera litin horn-
auga. Einkum ef hún tekur upp á því
að seljast vel. Það þykir eitthvað ljótt
við það.“
Listamennirnir þurfi þess í stað
að fá sér hefðbundna vinnu til þess
að eiga fyrir mat og þetta bitni á list-
inni sjálfri. „Slík vinna tekur gífur-
lega orku og tíma, í staðinn fyrir að
fólk geti leyft sér að einbeita sér að
listsköpun. Þetta viðhorf, að sú list
sé skörinni lægri sem selst vel, ger-
ir ekkert nema bitna á listinni. Þetta
viðhorf er mun erfiðara í myndlist
en til dæmis í tónlist, þar sem það er
alveg viðtekið að selja geisladiska og
selja inn á tónleika.“
sigtryggur@dv.is
Fjölhæfur Mundi vondi
hannar föt, sýnir teikningar
og gerir kvimyndir, meðal
annars. MYND SIGTRYGGUR ARI