Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Side 44
44 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
42" sjónvö
rp frá 99.9
89
Ótrúleg ti
lboð á þvo
ttavélum
Uppþvotta
vélar frá 5
9.989
Frábær my
ndavélati
lboð
Vestfrost
frystikistu
r - mikill a
fsl.
Opið mán. - fös. kl. 11-19
Laugardaga kl. 11-18
Sunnudaga kl. 12-18
MAX Kauptúni 1 - Garðabæ
Sími 412 2200 - www.max.is
YFIR 100
0 VÖRUR
MEÐ AFS
LÆTTI
ÚTSÖLUNN
I LÝKUR
NÚ UM HEL
GINA
ÚTSÖLUL
OKMA
X
G
oogle hélt sérstakan frétta-
mannafund á miðvikudag-
inn til að kynna Honeycomb,
nýjustu útgáfu Android-
stýrikerfisins. Til að undirstrika þær
miklu breytingar sem hafa orðið með
þessari útgáfu var Motorola Xoom-
spjaldtölvan, sem vakti hvað mesta
athygli á CES 2011-tæknisýningunni,
notuð til að sýna hið nýja viðmót
Android fyrir spjaldtölvur en hingað
til hefur stýrikerfið miðast að notk-
un í snjallsímum. Android er í þess-
ari útgáfu samhæft að fullu fyrir fjöl-
kjarna örgjörva og mun því geta nýtt
sér aukið afl þeirra fjölmörgu nýju
spjaldtölva sem von er á.
Áhugavert viðmót
Skjáborðið (home screen) hefur tek-
ið breytingum og er ekki lengur að-
eins samansafn forritaíkona en nú
verður hægt að birta þar ýmsar upp-
lýsingar og ábendingar, jafnvel með
gagnvirkum máta. Google kynnti
einnig Renderscript, forritunarmál
fyrir grafík, sem gerir forritaþróend-
um fyrir Android kleift að gera ótrú-
lega hluti fyrir tví- og þrívídd í forrit-
um sínum.
Hólfaskipting
Honeycomb gerir forritaþróend-
um einnig lífið léttara við hönnun
notendaviðmóts, til að mynda að
hólfaskipta ásýnd forritsins þannig
að einn hluti forritsins færist í for-
grunn þegar ýtt er á hann og aðrir
færast þá að sama skapi til hliðar. Á
fréttamannafundinum var sýnt nýtt
Gmail- forrit fyrir Honeycomb sem
býr yfir þessum eiginleikum, þegar
smellt er í skilaboð færist pósthólfið
sjálft til vinstri hliðar en skilaboðin
sjálf fylla síðan meginhluta gluggans.
Stækkuð upp?
Google hefur ekki útlistað hvernig
farið verður með öll þau forrit sem
þegar eru til fyrir Android og hönnuð
eru fyrir snjallsíma með mun minni
skjá. Apple gekk í gegnum þennan
feril á síðasta ári með þeim hætti að
gera notendum iPad mögulegt að
hreinlega stækka upp iPhone-forrit-
in þannig að þau fylltu út í skjáinn,
í mörgum tilvikum gerði þetta að
verkum að grafísk gæði urðu hrein-
lega ekki ásættanleg. Fjölmörg forrit
voru einnig endurforrituð og sam-
hæfð fyrir iPad.
Hitnar í kolunum
Líklegt þykir að Honeycomb verði
gefið út núna í febrúar og verði
Motorola Xoom fyrsta spjaldtölvan
sem skarti þessari nýju og jafnframt
áhugaverðu útgáfu stýrikerfisins. Í
kjölfarið kemur svo ný spjaldtölva
frá LG, G-Slate, einnig með Honey-
comb. Önnur kynslóð iPad kemur
svo að öllum líkindum á markað fyrir
sumarið og fer þá verulega að hitna í
kolunum á spjaldtölvumarkaðinum.
iPad 2 sést á
uppákomu
Fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch kynnti
nýtt dagblað, The Daily, sem er sérstaklega
hannað fyrir iPad-tölvu Apple, á sérstakri
uppákomu fyrir fréttamenn í Guggen-
heim-safninu í New York á miðvikudag.
Skarpskyggn áhorfandi sá að iPad-tölvan
sem notuð var við kynninguna virtist vera
búin myndavél á framhliðinni og gat sér
þess til að hér væri komin fram önnur
kynslóð iPad sem ekki er von á fyrr en í lok
vorsins. Apple vill ekkert gefa upp enn sem
komið er en fyrirtækið er þekkt fyrir að halda
upplýsingum um nýjar vörur leyndum fram í
rauðan dauðann.
Netið yfirfullt
Netið er orðið yfirfullt eða réttara sagt er
nánast búið að nota öll möguleg vefföng
(internet addresses). Næstum því fjórum
milljörðum veffanga hefur verið úthlutað
frá upphafi og síðustu stóru skömmtunum
fyrir IPv4-kerfið (Internet Protocol version
4) verður úthlutað í þessum mánuði, að
mestum hluta til Asíu og Kyrrahafsþjóða.
IPv6-kerfið sem var fullgert fyrir um áratug
og á að taka við af IPv4 mun hins vegar bjóða
upp á rými fyrir 340 þúsund milljarða vef-
fanga. Vandamálið liggur hins vegar í þeim
aragrúa vélbúnaðar og stýrikerfa sem miðast
eingöngu við gamla kerfið. Þannig geta
Windows 7 og Apple OSX lesið IPv6-kerfið en
tölvur sem keyra á Windows XP ekki. Ýmis
annar vélbúnaður fyrir netið skilur einungis
gamla kerfið og líklegt að við umskiptin yfir í
hið nýja kerfi myndist fjölmörg vandamál.
Honeycomb
kynnt í vikunni
Honeycomb Ýmsar breytingar hafa verið gerðar í skjáborði stýrikerfisins og viðmótið
hefur möguleika á vera meira gagnvirkt.
Búist er við Motorola Xoom með Honeycomb á markað í þessum mánuði:
Motorola Xoom Sú spjaldtölva sem hvað mesta
athygli og aðdáun hlaut á CES 2011-tæknisýningunni
var Xoom frá Motorola.
G-Slate frá LG Búin 8,9 tomm
a háskerpuskjá, 720p mynds
keiðsafspilun og einnig
verður hægt að skoða þrívídd
armyndir en sérstök þrívídda
rgleraugu fylgja tölvunni.