Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Page 47
Sport | 47Helgarblað 4.–6. febrúar 2011
Himinn og jörð þurfa nánast að falla
saman eigi Borussia Dortmund ekki
að verða Þýskalandsmeistari í maí.
Liðið er með ellefu stiga forskot og
þó fjórtán umferðir séu enn eftir er
ekki að sjá að nokkurt lið muni gera
atlögu að „Die Schwarzgelben“ eða
„Þeim svartgulu“ eins og liðið er kall-
að. Dortmund hefur borið höfuð og
herðar yfir öll önnur lið í vetur en liðið
er borið uppi af ungum og léttleikandi
strákum sem spila skemmtilegan fót-
bolta. Stuðningsmenn Dortmund
eru engum líkir og er suðurstúkan á
Signal Iduna Park (áður Westfalensta-
dion) líflegri en nokkru sinni fyrr.
Undanfarin ár hafa þó verið liðinu
erfið vegna bágrar fjárhagsstöðu en
hinir dyggu stuðningsmenn liðsins fá
án efa ærna ástæðu til að slá upp helj-
arveislu í maí.
Ungir menn á uppleið
Forráðamenn Dortmund virðast
hafa veðjað á hárréttan hest þegar
þeir réðu Jürgen Klopp til starfa fyrir
þremur árum. Klopp er mikið fyrir að
byggja upp lið en hann hefur aðeins
stýrt einu liði fyrir utan Dortmund,
Mainz. Mainz lyfti hann upp í efstu
deild í fyrsta skipti í sögu félagsins
og vann sér inn Evrópusæti, eitthvað
sem Mainz-arar höfðu aldrei upplif-
að áður. Hann féll með liðið 2006 og
stýrði því í næstefstu deild árið eftir.
Þegar liðinu tókst ekki að komast aft-
ur upp bað hann um að fara og fékk
það.
Dortmund sá að þarna var maður
sem gæti hægt og bítandi komið sínu
liði upp á þann stall sem það á að
vera á. Hann var ráðinn þjálfari 2008
og hóf strax að byggja upp ungt og
skemmtilegt lið. Dortmund endaði í
6. sæti á fyrsta tímabilinu og komst
í úrslitaleik bikarsins, í fyrra endaði
liðið sæti ofar og í maí bíður þeirra
Meistaratitill.
Þetta hefur Klopp afrekað með því
að gefa ungum leikmönnum tækifæri
til að blómstra. Helstu stjörnur liðs-
ins, Lucas Barrios (25 ára framherji),
Shinji Kagawa (21 árs miðjumaður),
Nuri Sahin (22 ára sóknartengiliður),
Mario Götze (18 ára miðjumaður),
Mats Hummels (22 ára miðvörður) og
Kevin Großkreutz (22 ára framherji),
hafa verið hreint óstöðvandi og bera
ekki virðingu fyrir nokkru liði. Árang-
ur Dortmund hefur ekki náðst með
varnarleik og háum spyrnum fram.
Þarna er spilaður fótbolti sem fólk vill
horfa á.
Sjö ára eymd
Gullöld Dortmund var á síðasta ára-
tug 20. aldarinnar en þá varð liðið tví-
vegis meistari, árin 1995 og 1996, auk
þess sem það vann Meistaradeildina
1997. Liðið vann sinn þriðja meist-
aratitil árið 2002 eftir ótrúlegan loka-
sprett í deildinni en eftir það fór að
halla undan fæti. Afskaplega illa var
staðið að peningamálum hjá félaginu
sem er eina þýska félagið á opnum
hlutabréfamarkaði. Eftir meistaratitil-
inn 2002 klikkaði félagið á að komast í
Meistaradeildina árið eftir og varð þar
af gífurlegum tekjum. Árið 2005 mun-
n Dortmund með ellefu stiga forskot í Bundes-
ligunni n Liðið borið uppi af ungum strákum
aði minnstu að félagið yrði gjaldþrota
og þurftu þá allir leikmenn að taka á
sig tuttugu prósenta launaskerðingu.
Til að stoppa í fjárhagslegu göt-
in neyddist félagið til að selja nafnið
á vellinum sínum, Westfalenstadion,
sem er einn sá frægasti í Evrópu. Heit-
ir hann í dag Signal Iduna Park og
er nefndur eftir tryggingafyrirtæki í
bænum. Sá samningur gildir út þessa
leiktíð þannig að það er aldrei að vita
hvort fólkið fái völlinn sinn aftur.
Það er nefnilega fólkið Í Dort-
mund og stuðningsmenn liðsins sem
gera völlinn svo magnaðan. Hann er
sá stærsti í Þýskalandi en hann tek-
ur 80.720 manns í sæti. Nánast er
uppselt á hvern einasta leik og þarna
eru engar „rækjusamlokur“. Á leikj-
um Dortmund er hoppað og hrópað
í níutíu mínútur samfleytt en mesta
stuðið er í hinni víðfrægu Südtribüne
eða suðurstúkunni. Inni í vítateign-
um fyrir framan þá stúku heyrist ekki
mannsins mál enda hávaðinn óbæri-
legur.
Ef einhverjir stuðningsmenn eiga
skilið að sjá lið sitt lyfta bikar er það
fólkið í Dortmund og þurfa þeir svörtu
og gulu heldur betur að klúðra sínum
málum illilega eigi ekki að fara svo.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Alvöru stuðningsmenn Á Signal Iduna Park er alltaf kjaftfullt og í suðurstúkunni eru
mestu lætin. mynD ReUteRS
Ungir og ferskir Nuri Sahin og
Kevin Großkreutz fagna einu af
mörgum mörkum Dortmund í vetur.
mynD ReUteRS
glaðvaknaður
Guli risinn
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Um helgina leikur
Hljómsveitin
feðgarnir
allar veitingar í boði s.s:
n BBQ svínarif, hamborgarar,
steikarsamlokur
n Hádegismatur m/súpu og kaffi
n Hópamatseðlar fyrir veislur,
smáréttaborð og fleira
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn
Tökum að okkur þorra-
veislur, árshátíðir og
annan mannfagnað
Verður haldið þann 5.febrúar
næstkomandi og hljómveitin
Feðgarnir spila fyrir dansi.
Borðapantanir í síma 554-2166
Sjá nánar www.catalina.is
Þorrablót
vestfirðinga
boltinn
alltaf í
beinni