Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Síða 2
2 | Fréttir 25.-27. febrúar 2011 Helgarblað
Sameiningar-
hugmyndir í skólum
Til stendur
að sameina
leik- og grunn-
skóla í borginni.
Undirbúningur
við sameininguna er í fullum gangi
og verið er að fara yfir 54 hugmyndir
með tilliti til athugasemda stjórnenda,
foreldra og annarra sem hafa látið sig
málið varða, og fjárhagslegs ávinn-
ings. Þegar starfshópur um grein-
ingu tækifæra til samrekstrar og/eða
sameiningu leikskóla, grunnskóla og
frístundaheimila hefur gert það mun
hann taka saman tillögur og leggja
fyrir borgarráð. Stefnt er að því að gera
það mánudaginn 28. febrúar.
Starfshópurinn hefur unnið að und-
irbúningi þessara tillagna frá því um
miðjan nóvember en þá var borgin
skoðuð úr lofti, vegalengdir mældar
og fleira.
Þjóðin fær
Icesave í fangið
Ólafur Ragn-
ar Gríms-
son forseti Íslands
synjaði lögum um
Icesave-samning-
inn staðfesting-
ar. Þetta tilkynnti
hann á blaða-
mannafundi á
Bessastöðum á
sunnudaginn. Í kjölfar ákvörðunar
Ólafs verður frumvarpið sent í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Reikna má með
því að þjóðaratkvæðagreiðslan fari
fram innan tveggja mánaða. Þetta er í
annað skipti sem Ólafur Ragnar synjar
Icesave-lögum staðfestingar.
Eftir að spurðist út um synjunina
lýstu mjög ósáttir fulltrúar hollenskra
stjórnvalda því yfir að tími samninga
væri liðinn.
Týnd stúlka
segir frá
„Mér fannst
það spenn-
andi að þeir ættu
flotta bíla, íbúð og
peninga. Líka það
að gera eitthvað
sem ég mátti ekki
og pabbi mætti
ekki frétta af. Þetta
var eins og að
vera í spennumynd,“ segir fimmtán
ára stúlka sem strauk að heiman fyrir
ári og sneri ekki aftur heim fyrr en
lögreglan lýsti eftir henni í fjölmiðl-
um. Hún var ein týndra barna sem DV
hefur fjallað um að undanförnu. Hún
sökk þó ekki eins djúpt í þetta líferni
og þær stúlkur sem rætt er við í helg-
arblaði DV um helgina. Faðir hennar
tók strax í taumana og sendi hana út
úr bænum þar til hún komst aftur á
rétt ról.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Fjölþrepa
bakbrettið
• Teygir á hrygg og bakvöðvum
• Minnkar vöðvaspennu
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
„Átakanlegt að sjá
litla krílið kveljast“
n Sex mánaða hvolpur drapst tveimur dögum eftir að hafa í sakleysi sínu nagað
baneitrað hylki úr flugeldatertu sem hann fann n Eigandinn segir sorg fjölskyld-
unnar mikla og varar alla við svona rusli sem liggur víða óhirt á förnum vegi
„Ég hvet alla til að vera á varð-
bergi gagnvart þessu því það hef-
ur verið gífurleg sorg á heimilinu.
Það var átakanlegt að sjá þetta
litla kríli kveljast svona,“ segir Þor-
björg Oddgeirsdóttir. Sex mánaða
gamall King Cavalier-hvolpur Þor-
bjargar og fjölskyldu hennar fann
á laugardaginn flugeldaleifar sem
fjölskyldunni yfirsáust við ítarlega
hreinsun garðsins eftir áramót-
in. Hvolpurinn, Bjargar Jaki, nag-
aði ruslið sem hann fann falið milli
steina. Tveimur sólarhringum síðar
var hann dauður. Þorbjörg hvetur
alla til að vera á varðbergi gagnvart
þessu flugeldarusli sem liggur víða
því fæstir átti sig á hversu baneitr-
að það er.
Nýrnabilun og taugaskemmdir
„Við erum skotglöð, eða maðurinn
minn, og svo er ég með tvo unglings-
stráka. Við hreinsuðum garðinn vel
og rökuðum eins og við gátum til að
hreinsa upp allar leifar af því að við vor-
um með litla hvuttann,“ segir Þorbjörg
í samtali við DV. Hún segir hvolpinn
hafa verið úti í garði á laugardaginn að
hnusa og leika sér eins og hvolpar gera
þegar hann fann lítið hylki milli steina.
„Hann nær í það og byrjar að naga það
og drengurinn minn hleypur til og nær
því af honum,“ segir Þorbjörg. Um var
að ræða lítinn hólk sem væntanlega
hefur verið í skottertu sem sprengd var
um áramótin en að sögn Þorbjargar
var enn duft inni í hylkinu.
Sólarhring síðar tók fjölskyld-
an eftir því að Bjargar Jaki var orð-
inn afar slappur. „Og sólarhring eftir
það er hann orðinn það veikur að ég
fer með hann til dýralæknis þar sem
hann er meðhöndlaður. Þá var hann
kominn með nýrnabilun og tauga-
skemmdir og hann deyr þarna síðar á
mánudagskvöldinu. Þannig að þetta
gerist fljótt.“
Fæstir vita af hættunni
Aðspurð segist Þorbjörg telja að gælu-
dýraeigendur sem og aðrir séu al-
mennt ekki meðvitaðir um hversu
baneitrað svona rusl getur verið. „Nei,
ég hef talað við marga hundaeigend-
ur og fleiri sem fæstir höfðu heyrt um
það. Það er alltaf talað um flugelda
og gæludýr í sambandi við hávaðann
en það gerir enginn sér grein fyrir því
hvað þetta er rosalegt eitur.“
Hún bendir á að þetta sé ekki bara
hættulegt litlum hvolpum, hún vill
vart hugsa þá hugsun til enda ef lítil
börn kæmust í tæri við svona afganga
sem hún segir að liggi út um allt á
víðavangi. „Maður hélt að maður væri
öruggur í garðinum heima hjá sér og
ég veit um einn hundaeiganda sem
fór og leitaði í garðinum hjá sér eft-
ir þetta og fann flugeldaafganga sem
honum hafði yfirsést.“
Verið á varðbergi
Harmur fjölskyldunnar er mikill eft-
ir að hafa misst litla hvolpinn sem
hafði aðeins verið á heimilinu frá 10.
desember síðastliðinn. Þorbjörg segir
átakanlegt að hafa þurft að horfa upp
á þetta . „Að sjá þetta litla kríli kveljast
svona, bara út af svona slysi þar sem
hann nagar eitthvað sem hann hélt
að væri saklaust. Við erum að takast á
við sorgina og þetta hefur verið mjög
erfitt fyrir drengina mína sem voru
búnir að tengjast honum svo vel. Þeir
gefa manni svo mikið þessir hundar.
Ég geri því allt til að vekja athygli á
þessu og hvet alla til að vera á varð-
bergi.“
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
„Þá var hann
kominn
með nýrnabilun og
taugaskemmdir.
Sorglegt Hvolpurinn Bjargar
Jaki var aðeins sex mánaða þegar
hann fann rusl úr flugeldatertu
í garði eigenda sinna og nagaði.
Tveimur sólarhringum síðar var
hann dauður.
MyNd RakEl ÓSk SiguRðaRdÓttiR
dæmdur fyrir líkamsárás:
Höfuðkúpubraut
fórnarlamb sitt
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á
fimmtudag 24 ára Keflvíking, Andra
Vilhelm Guðmundsson, í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir hrottalega lík-
amsárás. Árásin átti sér stað í Hafn-
arstræti í Reykjavík á nýársnótt.
Andra var gefið að sök að hafa
hrint fórnarlambi sínu niður tröpp-
ur í Hafnarstræti. Í framhaldi af því
sparkað í hann eða traðkað á höfði
hans og andliti. Fórnarlamb árás-
arinnar hlaut lífshættulega áverka,
meðal annars höfuðkúpubrot. Talið
er að hann muni þó koma til með að
ná sér að mestu.
Vitni lýstu átökunum þannig
að Andri og fórnarlamb árásarinn-
ar hafi rifið sig úr að ofan og Andri
síðan veist að fórnarlambinu með
karate-spörkum. Aðeins rúmum
mánuði áður var Andri dæmdur
í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir
frelsissviptingu og líkamsárás. Hann
tók sér frest til að áfrýja dómnum og
gekk því enn laus þegar brotið var
framið. Auk þess að sæta fangelsi
í þrjú og hálft ár var Andri dæmd-
ur til að greiða fórnarlambi sínu
eina milljón króna í skaðabætur og
dæmdur til að greiða 750 þúsund
krónur í sakarkostnað.
Íbúi kom upp
um innbrotsþjófa
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók á fimmtudagsmorgun par
sem hafði brotist inn í íbúðarhús við
Álfaheiði í Kópavogi. Íbúi sem var
á staðnum þegar parið braust inn
hringdi á lögreglu þegar hann varð
var við grunsamlegar mannaferðir.
Atvikið átti sér stað um hálf tíuleytið
og þegar lögregla kom á staðinn var
parið á bak og burt. Það var hins veg-
ar handtekið skömmu síðar þar sem
það var á rölti skammt frá. Fólkið var
handtekið og fært til yfirheyrslu.