Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Blaðsíða 30
30 | Fermingar 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað
Mjúku
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
fermingargjafirnar
Sængurfatnaður frá 6.960 kr
Sendum frítt úr
vefverslun
www.lindesign.is
T
íminn sem fer í að undirbúa
fermingu og veisluna sem
haldin er í tilefni hennar er
oft hlaðinn spennu og til-
hlökkun. Það er margt sem þarf að
skipuleggja og undirbúa og ferm-
ingarbarnið leikur oft stórt hlut-
verk í þeim undirbúningi. Það þarf
að undirbúa veisluna, kaupa föt og
skó, fá fermingarhárgreiðslu og svo
fylgir að fermingarbarnið fái veg-
lega gjöf, allt með tilheyrandi út-
látum. Með breyttum aðstæðum á
Íslandi má þó ætla að margir for-
eldrar kvíði þessum tíma þar sem
ferming krefst jafnan mikilla fjárút-
láta foreldra. DV hafði samband við
nokkrar af þeim stofnunum sem
veita foreldrum í fjárhagsvanda að-
stoð við fermingarveisluhöld.
Eflaust margir í vandræðum
Þeir foreldrar sem ekki hafa efni á að
halda fermingarveislu fyrir barnið
sitt geta leitað aðstoðar á nokkrum
stöðum. Mæðrastyrksnefndir sjá að
mestu um slíka aðstoð en í sam-
tali við Halldóru Guðmundsdótt-
ur, formann Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur, kemur fram að verið
sé að funda þessa dagana um stöðu
mála. „Þessu er ekki lokið hjá okkur
en við klárum eftir helgi. Við erum
sem sagt að búa okkur undir það
að taka á móti fólki og gera vel við
það. Við munum aðstoða þá sem
þess þurfa á einhvern hátt,“ segir
hún og bætir við að beiðnum um
fjárhagsaðstoð hafi fjölgað á milli
ára. Hún segist þó ekki vita til þess
að foreldrar hafi hreinlega þurft að
sleppa því að halda fermingarveisl-
ur fyrir börnin sín en sjálfsagt séu
þó allmargir sem eru í vandræðum
vegna þessa.
Ókeypis klipping hjá
Fjölskylduhjálp
„Við munum bjóða aftur upp á
ókeypis klippingu eins og við gerð-
um í nóvember og desember,“ segir
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað-
ur Fjölskylduhjálpar Íslands. Hún
segir að húsnæði Fjölskylduhjálp-
ar verði breytt í hárgreiðslustofu á
mánudögum á milli 12 og 16 en þar
munu hárgreiðslumeistarar klippa
bæði börn og fullorðna. Aðspurð
segir hún að því miður verði ekki
boðið upp á fermingargreiðslur.
„Það þurfa þó allir á klippingu að
halda og klipping er ekki ódýr,“ seg-
ir hún og bætir við að það sé gríðar-
lega stór hópur fólks sem hafi ekki
efni á að halda fermingarveislur
fyrir börnin sín.
Leita til þjónustumiðstöðva
Hjá Reykjavíkurborg fengust þær
upplýsingar að þeir sem þurfi á að-
stoð að halda geti leitað til þjónust-
miðstöðvanna. Undir heimildum
vegna sérstakra heimilisaðstæðna
er að finna þá aðstoð sem hægt er
að fá vegna barna þegar fjárhags-
staða er bág. Ef fólk telur sig eiga
rétt á aðstoð er best fyrir hvern og
einn að panta tíma hjá ráðgjafa á
sinni þjónustumiðstöð og fara yfir
málin. Eins fengust þær upplýsing-
ar að deildarstjórar þjónustumið-
stöðvanna hafa ekki orðið varir við
aukna eftirspurn vegna vandkvæða
út af fermingum sérstaklega.
Úthluta kortum
Hjálparstarf kirkjunnar sér um að
veita aðstoð á þeim stöðum þar sem
mæðrstyrksnefndinar eru ekki. Að-
stoðin felst ekki í peningastyrk held-
ur fær fólk kort sem það getur notað.
Vilborg Oddsdóttir sem er yfir inn-
anlandsaðstoð Hjálparstarfsins seg-
ist ekki hafa fundið fyrir aukningu
á erfiðleikum fólks vegna ferminga.
Vissulega sé ástandið í þjóðfélaginu
erfitt núna og erfiðleikar þeirra sem
leitað hafa til þeirra séu að dýpka.
gunnhildur@dv.is
Fleiri sem þurfa
aðstoð við veisluna
n Ferming á að vera gleðiviðburður sem barnið man eftir alla tíð n Miklar og dýrar veislur eru þó líklega
ekki mögulegar hjá fjölskyldum í fjárhagsvanda n Beiðnum um aðstoð vegna ferminga hefur fjölgað
Kransakaka Mörgum finnst kranskakan
ómissandi á fermingarveisluborðið.
Mynd RaKEL ÓsK siguRðaRdÓTTiR
Ragnhildur guðmundsdóttir
Formaður Mæðrastyrksnefndar segir
að þau muni aðstoða þá sem þurfa.
Mynd RaKEL ÓsK siguRðaRdÓTTiR