Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Blaðsíða 16
16 | Fréttir 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað
Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt
Enn á ný mælist TM efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni, árlegri
könnun sem mælir ánægju viðskiptavina íslenskra fyrirtækja.
Í 10 skipti af 12 hafa viðskiptavinir TM verið ánægðari en viðskiptavinir
hinna tryggingafélaganna.*
Starfsmenn og umboðsmenn TM hafa staðið sig frábærlega í því að
rækta samband við viðskiptavini á undanförnum árum.
Þessi viðurkenning er hvatning til þess að halda áfram á sömu braut.
* Samkvæmt niðurstöðum könnunar Capacent á ánægju viðskiptavina íslenskra fyrirtækja 1999 –2010.
TM Síðumúla 24 // Sími 515 2000 // tm@tm.is // www.tm.is
Ánægðustu
viðskiptavinirnir
eru hjá TM
Átröskun og kynlífsfíkn
eftir kynferðisofbeldi
Talið er að þrisvar til fjórum sinn-
um fleiri konur sem beittar hafa
verið kynferðisofbeldi greinist með
þunglyndi miðað við konur sem
ekki hafa verið beittar kynferðis-
ofbeldi. Auk þess er talið að þung-
lyndi meðal barna sem hafa ver-
ið beitt kynferðisofbeldi sé allt að
fjórum sinnum algengara en hjá
börnum sem ekki hafa verið beitt
kynferðisofbeldi. Talið er að afleið-
ingar af misnotkun í æsku séu meiri
og alvarlegri en af kynferðisofbeldi
sem fólk verður fyrir á fullorðinsár-
um.
Rannsóknir hafa einnig sýnt að
algengt er að þolendur kynferðisof-
beldis eigi í erfiðleikum með kynlíf
og tengslamyndun, eigi á hættu að
verða aftur fyrir kynferðisofbeldi og
einnig er talið að rekja megi ýmsar
persónuleikaraskanir til kynferðis-
ofbeldis.
Það kom til dæmis í ljós í nýlegri
rannsókn Önnu Bentínu Herman-
sen þar sem fram kom að 15 af þeim
18 konum sem tóku þátt höfðu átt
við áfengis- eða vímuefnavanda að
stríða. Sex höfðu verið haldnar fíkn
sem tengdist mat, ofáti eða svelti og
allar konurnar töluðu um ákveðna
erfiðleika tengda kynlífi. Þær töl-
uðu um að dofna upp, hverfa úr
líkamanum og aftengjast honum
þegar þær stunduðu kynlíf. Sumar
veigruðu sér því við að lifa kynlífi og
gerðu það aðeins í neyð eða undir
áhrifum. Afleiðingar kynferðisof-
beldisins komu líka fram í félags-
legum erfiðleikum sem fólust í því
að tengjast og treysta öðru fólki.
Fjögur viðtöl breyta miklu
Stígamót hafa nú starfað frá árinu
1990 og frá stofnun Stígamóta til
ársloka 2009 höfðu 5.347 einstak-
lingar leitað aðstoðar þeirra, þar
af 4.918 konur. Má því leiða líkur
að því að rúmlega þrjú prósent ís-
lenskra kvenna hafi leitað aðstoðar
n Afleiðingar margvíslegar og alvarlegar n Léleg sjálfs-
mynd, skömm og kvíði n Sumir leita í einhvers konar fíkn
n Hegðun og líðan betri eftir fjögur viðtöl á Stígamótum
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
„Út frá femínískum
viðhorfum er
ekki litið á þolendur
kynferðisofbeldis sem
sjúka einstaklinga eða
varnarlaus fórnarlömb
heldur einstaklinga sem
búa yfir miklum styrk eftir
að hafa lifað af ógnandi
ofbeldi.
Þolendur kljást við þunglyndi Talið
er að fleiri konur sem hafa verið beittar
kynferðisofbeldi glími við þunglyndi en
aðrar. Eins er talið að þunglyndi sé fjórum
sinnum algengara á meðal barna sem hafa
orðið fyrir kynferðisofbeldi.