Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Page 18
Fréttaskýrendur fullyrða að nú ríki
borgarastyrjöld í Líbíu. Á þriðjudag
síðastliðinn hvatti leiðtogi Líbíu,
Muammar al-Gaddafi, stuðnings-
menn sína til að berjast gegn mót-
mælendum. Ekki er ljóst hve marg-
ir óbreyttir borgarar svöruðu kalli
Gaddafis, en þeir munu líklega hafa
verið fáir. Þess í stað leitaði Gaddafi
út fyrir landamæri Líbíu og hafa
borist fréttir af sómölskum mála-
liðum sem herja á mótmælendur í
höfuðborginni Tripólí og víðar. Tala
fallinna er nú komin yfir 1.000 en
ofbeldið hefur stigmagnast dag frá
degi. Talið er að Gaddafi sé nú þeg-
ar búinn að missa bróðurpartinn
af austurhluta landsins úr greipum
sínum en hann virðist ekki ætla að
gefast upp.
Gaddafi safnar nú kröftum
ásamt sonum sínum sem leggja á
ráðin um gagnsókn til að ná austur-
hlutanum aftur á sitt vald. Það gæti
reynst honum erfitt ef miðað er
við orð eins íbúa í hafnarborginni
Bengasi sem sagði við blaðamann
Telegraph: „Við munum berjast
við hvern þann sem Gaddafi send-
ir hingað. Hann á enga leið aftur til
valda.“
En hver er þessi maður sem hef-
ur lýst því yfir að hann muni berjast
til síðasta blóðdropa og segist ætla
að verða „píslarvottur byltingarinn-
ar“?
Rætur Gaddafis
Muammar Abu Myniar al-Gaddafi
fæddist árið 1942 í útjaðri borg-
arinnar Sirt í norðurhluta Líbíu.
Foreldrar hans voru svokallað-
ir bedúínar, hirðingjar sem búa á
eyðimerkursvæðum í Norður-Afr-
íku og hafa sitt lifibrauð af sauðfjár-
og úlfaldarækt. Fáum sögum fer
af frumbernsku Gaddafis en hann
mun hafa verið ágætis námsmað-
ur sem hneigðist snemma til hug-
myndafræði Abdels Nassers, for-
seta Egyptalands, um sameinaða
Arabíu með sósíalísku stjórnkerfi.
Gaddafi tók þátt í mótmælum gegn
Ísraelsríki meðan á Súez-deilunni
stóð, en þá var hann aðeins 14 ára
að aldri.
Gaddafi braust til mennta í Kon-
unglega herskólanum í Trípólí og
sótti sér einnig menntun í hern-
aðarfræðum út fyrir landsteinana.
Hann fluttist til Englands þar sem
hann bjó um skeið, auk þess að
nema hernaðarlist í Grikklandi.
Gaddafi hefur aldrei sagt skilið
við bedúínarætur sínar. Til marks
um það gistir hann iðulega í tjald-
búðum eins og bedúína er siður, þó
tjaldbúðir hans sem leiðtoga Líb-
íu séu talsvert veglegri en þær sem
hann kynntist í æsku. Gaddafi held-
ur alla mikilvæga fundi sína inni í
tjaldi, þar sem þjónar starfa við að
veifa búntum af hrossahárum – til
að kæla loftið fyrir leiðtogann.
Valdarán „byltingarhetju“
Árið 1969 fór Gaddafi, ásamt öðr-
um ungum liðþjálfum i líbíska her-
num, að leggja á ráðin um hvern-
ig hann gæti hrifsað völdin í Líbíu
úr höndum Idris konungs. Gaddafi
settist að í Bengasi þar sem hann
útfærði áætlun sína en hann lét til
skarar skríða þegar Idris leitaði sér
læknisaðstoðar í Tyrklandi. Sayyid
as-Hanussi, prins og arftaki Idris,
var við stjórnvölinn á meðan kon-
ungurinn var á spítala. Hann réð
ekkert við byltingarher Gadda-
fis og gerði ekki einu sinni tilraun
til að stöðva hann. Valdaránið fór
þannig fram án blóðsúthellinga og
Gaddafi lýsti því stoltur yfir að kon-
ungsveldið hefði verið leyst upp og
í stað þess stofnað „lýðveldið Líbía“.
Gaddafi leit á sig sem mann
fólksins og kallaði sjálfan sig „hinn
arabíska Che Guevara.“ Rétt eins og
Guevara dreymdi um að sameina
Suður-Ameríku í sósíalískt ríki,
dreymdi Gaddafi um sameinaða
Arabíu, jafnvel sameinað ríki allra
múslima. Hann var vinsæll meðal
þjóðar sinnar til að byrja með og
vakti mikla athygli hvert sem hann
fór, aðeins 27 ára að aldri, ætíð
klæddur safari-fatnaði og ávallt
með sólgleraugu.
Óvinur Vesturlanda númer eitt
Gaddafi átti einnig sameiginlegt
með Che Guevara að fyrirlíta vest-
rænan kapítalisma og heimsvalda-
stefnu. Allt frá því að Gaddafi rændi
völdum tók hann sér stöðu með
hverjum þeim sem vildu gera Vest-
urlöndum grikk. Gaddafi bauð fram
aðstoð sína við að fjármagna og
þjálfa hryðjuverkamenn, en meðal
þeirra sem nutu aðstoðar Gaddafis
var Charles Taylor, fyrrverandi for-
seti Líberíu. Fjárstuðningur Gadda-
fis gerði honum kleift að stunda
skæruhernað og hefja borgarastyrj-
öld í Líberíu, sem kostaði að lokum
um 250 þúsund mannslíf.
Lengi vel virtust Vesturlöndin þó
vanmeta mátt Gaddafis. Stjórnar-
far hans var lítið gagnrýnt, ekki bar
á öðru en að friður ríkti í Líbíu og
olían flæddi þaðan óáreitt til Vest-
urlanda. Spennan fór þó vaxandi,
sérstaklega milli Bandaríkjanna og
Líbíu. Í stjórnartíð Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta náði þessi spenna
hámarki. Reagan kallaði Gaddafi
„óða hundinn í Mið-Austurlöndum“
og gerði tilraun til að koma honum
frá völdum. Reagan og ráðgjöfum
hans gramdist sérstaklega stuðning-
ur Gaddafis við Írani, þegar þeir áttu
í stríði við Írak. Á þeim tíma studdu
Bandaríkjamenn nefnilega Saddam
Hussein, forseta Íraks.
Um miðjan níunda áratuginn var
í raun óumdeilt að Gaddafi væri einn
helsti fjárhagslegi bakhjarl hryðju-
verkamanna. Hann studdi meðal
annars dyggilega við bakið á „Svarta
september“ sem stóð að gíslatök-
unni og morðunum á ísraelskum
íþróttamönnum á ólympíuleikun-
um í München árið 1972. Hann var
einnig sakaður um að hafa fyrirskip-
að „diskótekshryðjuverkið“ þeg-
ar sprengja var sprengd á diskóteki
í Vestur-Berlín árið 1986. Um 200
féllu í árásinni, þar á meðal fjöldi
bandarískra hermanna. Í kjölfarið
settu Bandaríkin viðskiptabann á
Líbíu og hættu að kaupa þaðan olíu.
Sömuleiðis hættu bandarísk yfir-
völd að gefa út vegabréfsáritun fyrir
þá sem vildu ferðast til Líbíu.
Stjórnmálaheimspeki Gaddafis
Gaddafi gerði grein fyrir stjórn-
málaheimspeki sinni í riti og í anda
Maós, sem skrifaði Rauða kverið í
Kína, skrifaði Gaddafi Græna kverið.
Ritið kom út í þremur bindum á ár-
unum 1975 til 1979 en það þarf vart
að taka það fram að Græna kverið er
skyldulesefni í líbískum skólum. Í
Græna kverinu er kveðið á um þjóð-
hollustu, hollustu við islam og sósí-
alíska velferð.
Í Græna kverinu kynnti Gaddafi
til sögunnar hugtakið Jamahiriya,
sem kveður á um „stjórnarfar í hönd-
um alþýðu“. Samkvæmt Gaddafi rík-
ir enn þann dag í dag beint lýðræði
í Líbíu, þar sem þúsundir nefnda á
sveitarstjórnarstigi fara með völd-
in. Efst í þessum valdastiga er svo
allsherjarþingið í Tripólí, þar sem
Gaddafi fór með hlutverk forseta.
Hann sagði síðar af sér sem forseti
þingsins og afsalaði sér einnig öllum
öðrum valdatitlum, nema þeim sem
hann heldur enn í dag: „Bróðurlegi
leiðtogi og vegvísir byltingarinnar
og Jamahiriya.“ Engum í Líbíu hefur
þó dulist að Gaddafi stjórni öllu sem
hann vill stjórna.
18 | Erlent 25. febrúar 2011 Helgarblað
Svalaskjól
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær
Sími: 554 4300 | www.solskalar.is
hf
-sælureitur innan seilingar!
Frábært skjól gegn
vindi og regni
Engir póstar
n Muammar al-Gaddafi kýs heldur borgarastyrjöld en að víkja
úr valdastóli n Ólst upp í eyðimörkinni og kann best við sig í
tjaldi n Var einn helsti bakhjarl hryðjuverkamanna um árabil
n Sneri sér til Vesturlanda á nýrri öld vegna viðskiptatækifæra
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Reagan kallaði
Gaddafi „óða
hundinn í Mið-Austur-
löndum“.
Fyrirskipaði Gaddafi Lockerbie-árásina?
Nú í vikunni sagði Mustafa Al Jeleil af
sér sem dómsmálaráðherra í ríkisstjórn
Gaddafis. Í kjölfarið sagði hann í viðtali
við sænska blaðið Expressen að það hefði
verið Gaddafi sem persónulega fyrirskipaði
Lockerbie-hryðjuverkaárásina.
Lockerbie-hryðjuverkið vakti mikinn ugg
á Vesturlöndum. Flugvél frá Pan Am lagði af
stað þann 21. desember 1988 frá Lundúnum
á leið sinni til New York. Um borð voru 243
farþegar og 16 í áhöfn. Þegar flugvélin var
stödd undan vesturströnd Skotlands sprakk
sprengja sem varð til þess að allir um borð létust. Brot úr flugvélinni lentu á skoska
bænum Lockerbie, þar sem 11 manns létust af þeim sökum. Abdelbaset al-Megrahi,
líbískur leyniþjónustumaður, var dæmdur fyrir verknaðinn en hann neitaði ávallt að hafa
tekið við fyrirmælum frá Gaddafi.
Ungur og reffilegur Gaddafi
árið 1969, rétt eftir valdaránið.
Hann var aðeins 27 ára þegar
hann komst til valda.
„Konungur konunganna“ Muammar Gaddafi situr
í hásæti sínu. Það kann að breytast á næstu dögum.
Mynd ReUteRS
„Píslarvottur byltingarinnar“