Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Síða 38
38 | Fermingar 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað
Þitt er valið
www.lydheilsustod.is
Stöldrum við og kynnum okkur innihaldið
áður en við svölum þorstanum.
Verndum tennurnar!
Kynnið ykkur veggspjald Lýðheilsustöðvar
Flest eigum við skondnar
fermingarsögur frá þessum
viðkvæma aldri í lífi okkar. DV
tók tal af nokkrum þjóðþekktum
einstaklingum og fékk þá til að
rifja upp þegar þeir voru teknir í
fullorðinna manna tölu.
Fermingar
frægra
Geir Ólafs:
Athyglin heillaði
„Ég opnaði fermingarveisluna mína með tónlist spilaðri af
Gretti Björnssyni heitnum. Það þótti nýjung að hafa lifandi
tónlist í fermingarveislu þegar ég fermdist árið 1987. Ég
man að á þeim tíma komst ekkert annað að hjá manni en
fótbolti og þegar ég var búinn að taka á móti gestum, skila
þeim af mér og fara heim með aurana mína í krukkuna, þá
var það fysta sem ég gerði að fara úr sparifötunum, beint í
drullugallann og út í fótbolta. Þannig að lífið gekk bara sinn
vanagang eftir ferminguna.“
Geir viðurkennir að hafa ekki verið neitt sérstaklega
trúaður á þessum tíma, heldur hafi athyglin sem hann
fékk út á athöfnina og gjafirnar heillað. „Ég gerði mér litla
grein fyrir hvað það þýddi að vera trúaður á þeim tíma, ég
er hins vegar mjög trúaður í dag. Í þá daga fylgdi maður
bara hópnum og mér fannst þetta spennandi. Ég vissi að
maður fengi einhvers konar athygli og það snérist allt um
mann í fjölskyldunni. Þetta var mjög spennandi og maður
sá svona ýmislegt í hillingum með þetta. Ég fékk ferð frá
foreldrum mínum til Kanada og 73 þúsund krónur alls í
fermingargjöf. Ég gat því keypt mér góðar fermingargræjur
fyrir peninginn.“
Sigurjón Kjartansson:
Græddi ferð til
Reykjavíkur
„Ég bjó á Ísafirði á þessum tíma en fermdist í
Landakotskirkju. Þetta var gríðarleg athöfn og alls
konar stælar sem maður var ekki vanur úr lútherskum
kirkjum. Eins og það að maður átti borða oblátu og
drekka messuvín, svo fór þetta auðvitað allt fram á
latínu. Ástæðan fyrir því að ég fermdist í Landakots-
kirkju var að foreldrar mínir voru kaþólskir, en ég var
aftur á móti ekki með neina sérstaka skoðun á þessu
máli. Það sem ég hins vegar græddi á þessu var að
fara til Reykjavíkur, sem var mjög spennandi fyrir
strák á unglingsaldri sem var fastur á Ísafirði. Það var
gaman að geta verið í viku, hálfan mánuð í Reykjavík
og séð alla dýrðina. Ég lærði á strætó, það var mjög
spennandi.
Veislan var haldin í Oddfellowhúsinu við Tjörnina og
í fermingjargjöf fékk ég gamalt Ludwig-trommusett
frá bróðir mínum og Sharp-hljómflutningssamstæðu
með plötuspilara, kassettutæki og útvarpi frá
foreldrum mínum og mér fannst alveg stórkostleg.“
Steindi Jr:
Fóstbræðrafrasar í kirkjunni
„Ég fermdist í lítilli kirkju uppi í Mosfellsdal,“
segir grínistinn Steinþór H. Steinþórsson,
betur þekktur sem Steindi Jr. „Ég og sjö
aðrir krakkar. Þetta var svolítið furðuleg
dagsetning og sú allra síðasta sem í boði var
því ég gleymdi að láta mömmu og pabba hafa
blaðið sem átti að skila inn.“
Steindi og einn af fermingarfélögum hans
voru til mikilla ama í kirkjunni. „Ég og félagi
minn vorum að hvísla línum úr Fóstbræðrum á
milli okkar alla athöfnina þannig að við vorum
hlæjandi meira og minna allan tímann. Faðir
Jón var ekkert sérlega hrifinn af því og fólk var
almennt farið að líta okkur hornauga þarna í
kirkjunni. Kannski ekki skrítið heldur þar sem
þetta er mjög lítil kirkja,“ segir Steindi en
hann var og er mikill aðdáandi Fóstbræðra.
Fermingarveislan sjálf var haldin í Kiwanis-
húsinu í Mosfellsbæ en Steindi man eftir því
að fermingarmyndatakan fór fram við fornbíl frænda hans. „Ég var og er frekar lágvaxinn
og ég leit eiginlega bara út eins og lítill skrítinn karl í þessum jakkafötum.“ Steindi keypti sér
sjónvarp og tvö myndbandstæki og var það upphafið að sketsa- og stuttmyndaferli hans.
„Ég notaði vídeó-tækin til að klippa myndirnar og eyddi skuggalegum tíma í það.“
Steindi Jr. Notaði fermingarpeningana til
að hefja sketsaferilinn.
Ekki trúaður sem unglingur
Geir fylgdi hópnum og lét ferma sig.
Fermdist að
kaþólskum sið
Sigurjón fékk Sharp-
hljómflutningssam-
stæðu frá foreldrum
sínum í fermingargjöf
og fannst það alveg
stórkostlegt.
Ágústa Eva:
Teiknaði typpi í sálmabækurnar
„Ég fermdist á Hvolsvelli og ég man að í fermingarfræðslunni vorum við að teikna typpi og svona í sálmabækurnar. Einu sinni mættum við líka öll í náttfötum í kirkjuna. Við vorum ekkert mjög prúð og þetta var ekkert voðalega trúarlegt hjá okkur. Þetta var meira svona partí. Það var svipaður fílingur í fermingarathöfninni sjálfri, þá vorum við mest að passa að fara ekki að hlæja. Fermingarveislan var bara frekar hefðbundin og ég fékk penna, orðabækur og fleira í þeim dúr í fermingargjöf. Pabbi gaf mér græjur og laug að mér að þær hefðu verið rosalega dýrar og ég var mjög ánægð með þær. En ég sá þær síðan seinna í Kringunni og sá að þær höfðu kostað bara fimmtán þúsund eða eitthvað.“
Ágústa Eva
Erlendsdóttir Eva
og fermingarsystkyni
hennar voru ekki mjög
prúð í fermingar-
fræðslunni