Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Qupperneq 52
52 | Fókus 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað Ekki fyrir viðkvæma Hér er á ferðinni framhald hins geysivinsæla Dead Space sem gerði allt vitlaust þegar hann kom á mark- að árið 2008. Dead Space 2 gerist þremur árum eftir lok fyrri leiksins og segir frá baráttu Isaacs Clarke við miskunnarlausar geimverur á geim- stöðinni Sprawl sem staðsett er á Títan, einu af tunglum Satúrnusar. Isaac man ekkert hvað hefur gerst á þessum þremur árum sem liðin eru frá lokum fyrri leiksins. Án þess að fara of djúpt ofan í söguþráðinn þá kemur fljótlega í ljós að ekki er allt með felldu. Dead Space 2 er virkilega flottur leikur, líklega langflottasti leikurinn sem komið hefur út í flokki hryll- ingsleikja. Grafík og hljóðsetning eru til fyrirmyndar og skapa á köflum svakalega taugatrekkjandi andrúms- loft sem er ekki fyrir viðkvæma. Það er nákvæmlega það sem Dead Space 1 gerði svo vel. Þegar lagt er huglægt mat á leik eins og Dead Space 2 er óhjákvæmilegt að bera hann saman við fyrri leikinn. Dead Space 2 virkar ekki eins ferskur og fyrri leikurinn þó svo að fjölmargar skemmtilegar nýj- ungar sé að finna í leiknum, nægir í því samhengi að nefna netspilunina, auk þess sem vopnin hafa verið tekin í gegn. Það er óhætt að mæla með Dead Space 2 fyrir alla sem spiluðu fyrri leikinn og höfðu gaman af. Dead Space 2 bætir þó í sjálfu sér ekki miklu við og er í raun aðeins meira af því sama. Það er ekki endilega nei- kvætt þar sem fyrri leikurinn situr í minningunni sem einn besti leikur sem komið hefur út á PlayStation 3. Hvað ertu að gera? mælir með... mælir ekki með... KVIKMYND 127 Hours „Frábærlega raunsönn og frumleg mynd sem á allar óskarsverðlauna- tilnefningarnar fyllilega skilið.“ – Valgeir Örn Ragnarsson KVIKMYND The King‘s Speech „Það er ekki skrýtið að The King’s Speech hafi hlotið 12 tilnefningar til óskarsverðlauna.“ – Jón Ingi Stefánsson TÖLVULEIKUR Little Big Planet 2 - Playstation 3 „Það reynir á sköpunargáfuna í þessum leik sem reynist fjölskyldumeðlimum á öllum aldri spennandi.“ – Kristjana Guðbrandsdóttir LEIKVERK Ballið á Bessastöðum „Sem bókmenntaverk er leikritið ekki nema upp á svona tvær stjörnur, ef þá það. Sýningin slagar hins vegar hátt í fjórar.“ – Jón Viðar Jónsson KVIKMYND Sanctum „Ef þú gerir lélega mynd og hún er í þrívídd þá er hún áfram ekkert annað en léleg mynd í þrívídd. Leiðindi í þrívídd eru ennþá leiðindi.“ – Erpur Eyvindarson Nadia Banine dagskárgerðarkona og flugfreyja. Hvaða tónlist ertu að hlusta á núna? „Var að uppgvöta James Blake.“ Hvaða tímarit eru í uppáhaldi og hvers vegna? „Hús og híbýli, vegna þess að ég hef endalausan áhuga á hönnun, arkítektúr og fallegum hlutum. Svo er hún Þórunn vinkona mín alltaf að gera eitthvað flott í blaðinu.“ Hvað ætlar þú að gera um helgina? „Kynna Ungfrú Reykjavík og fara að hlusta á uppáhaldshljómsveitina mína, Hjaltalín.“ Hvaða bækur eru í uppáhaldi hjá þér? „Er núna að lesa Hrossafræði Ingimars Sveinssonar.“ Er að lesa hrossafræði er hættuleg Heimskan T aílensk kona kemur til Ís- lands að hitta tilvonandi eiginmann sinn. Hún kem- ur rakleitt inn á heimili þar sem hún er afklædd og læst inni í herbergi. Maðurinn tilvonandi hef- ur boðið vinum sínum í heimsókn, sem fá að horfa á nýju konuna og gera grín. Þetta er kjarninn í stuttmynd- inni Yes yes, eftir Maríu Reyndal, sem var frumsýnd á Reykjavik Shorts & Docs kvikmyndahátíðinni fyrir réttum mánuði. María hefur getið sér gott orð fyrir handritaskrif og leik í grínþáttunum Stelpunum. Hún kveðst þó sjálf alltaf hafa al- varlegan undirtón í sínum verkum. Slíkt sé nánast óhjákvæmilegt. María Reyndal kvikmyndaleikstjóri hyggst fara með nýja stuttmynd sína, Yes yes, á milli skóla og stofnana til að vekja máls á aðstæðum erlendra kvenna sem koma til landsins til þess að giftast íslensk- um körlum. Mynd Maríu fjallar um taílenska konu sem kemur til landsins og maður hennar hefur hana til sýnis fyrir vini sína. María Reyndal „Nú ætla ég að gera heimildamynd um islenskt skólakerfi.“ M Y N D IR S Ig TR Y g g U R A R I J ó H A N N SS o N Dead Space 2 Tegund: Skotleikur Spilast á: PS3 Framleiðandi: Electronic Arts / Visceral Games Tölvuleikur Einar Þór Sigurðsson gæsahúð Dead Space 2 er virkilega flottur leikur en bætir í sjálfu sér ekki miklu við forvera sinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.