Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Qupperneq 53

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Qupperneq 53
Fókus | 53Helgarblað 25.–27. febrúar 2011 Ljósmyndasýning Þorkels Þorkelssonar opnuð um helgina: Reynir að fanga hversdagsleikann „Þetta er svona verkefni sem ég hef verið að dunda mér við þeg- ar ég hef átt aur og tíma í gegnum árin,“ segir Þorkell Þorkelsson um sýningu sína Búrma: Líf í fjötrum sem opnuð verður í Gerðarsafni á laugardag. Sýningin er safn mynda sem Þorkell tók þegar hann var staddur á vegum Alþjóðarauða- krossins í Búrma árið 2004. „Þetta verkefni er eiginlega búið að liggja niðri í skúffu sökum tímaleysis og peningaleysis en svo opnaðist þetta tækifæri til að fá að sýna og ég stökk á það.“ Þorkell segist reyna að fanga hversdagsleikann í Búrma. „Mað- ur getur nú ekki beinlínis hlaup- ið inn og myndað herforingja- stjórnina og allt það sem þeir eru að gera. Þá verður maður að beita öðrum aðferðum til að sýna það í einhverju öðru, eins og hvað vant- ar í hversdagsleikanum og öðru slíku.“ Þorkell var í um þrjár vikur í Búrma að taka myndirnar en hann var staddur þar í landi í verk- efni fyrir Rauða krossinn og nýtti í raun bara tækifærið sem gafst til að mynda þetta verkefni. „Ég tók þetta svona í leiðinni í öllum stundum sem ég átti.“ Þorkell byrjaði ungur að taka myndir og réð sig fljótt til starfa sem ljósmyndari á Morgunblað- inu. Þar starfaði hann í rúma tvo áratugi en hann hefur einnig starf- að við kvikmyndatökur hjá Sjón- varpinu. Þorkell hefur lokið meistara- gráðu í ljósmyndum frá Univer- sity College Falmouth í Bretlandi. Þorkell hefur tekið þátt í mörgum verkefnum á vegum og í samstarfi við Alþjóðarauðakrossinn, Rauða kross Íslands og Hjálparstarf kirkj- unnar. Ljósmyndasýningin verður opnuð á sama tíma og blaða- mannaverðlaun Blaðamannafé- lags Íslands verða afhent, verðlaun Blaðaljósmyndarafélags Íslands og hin árlega ljósmyndasýninga þess sama félags verður opnuð. Bæði sýning Þorkels og sýning Blaðaljósmyndarafélagsins munu standa til 10. apríl. Hvað er að gerast? n Árni í gervi kvenna í Tjarnarbíói Lab Loki sýnir Svikarann í Tjarnarbíói. Verkið er einleikur, fluttur af Árna Pétri Guðjóns- syni, en Rúnar Guðbrandsson leikstýrir. Leikgerðin er unnin upp úr verki franska rithöfundarins Jeans Genet og byggir mjög á leikverki hans Vinnukonunum (Les Bonnes). Mikið mæðir á aðalleikaranum Árna Pétri sem leikur þrjár konur í verkinu og þarf að æða um sviðið á háum hælum, undirfötum og stuttum kjólum í miklu melódrama. n Nei, ráðherra! í Borgarleikhúsinu Frumsýningarhelgi farsans Nei, ráðherra! (Out of Order) stendur yfir í Borgarleik- húsinu. Um að gera að tryggja sér miða á sýninguna á næstu vikum en fregnir berast af því að uppselt sé á 30 sýningar á verkinu nú þegar. Verkið er heimfært af Gísla Rúnari Jónssyni. n Útgáfutónleikar Ensími Ensími fagnar fjórðu plötu sinni, Gælu- dýrum, með útgáfutónleikum á Nasa á laugardagskvöldið. Aðgangseyri er stillt mjög í hóf og er aðeins 1.000 krónur. n Grín og glens í Tjarnarbíói Fjórir skemmtikraftar koma saman á sýningu þar sem grín og glens er í fyrirrúmi. Lalli töframaður sýnir töfrabrögð og er með uppistand. Einar Mikael mætir með nýtt atriði sem inniheldur meðal annars töfradúfu. Þá munu Jóhann og Jóhanna frá Sirkus Ísland sýna loftfimleika og trúðsleik en atriðið er hluti af götusýningu þeirra sem þau hafa ferðast með um Evrópu. n Fjör í Salnum Fjölskyldutónleikarnir Töfrahurð: Többa Tubu og klassískt diskótek verður haldnir í Salnum í Kópavogi. Fram koma Sigurþór Heimisson sögumaður, dansarar úr Listdansskóla Íslands og Skólahljómsveit Kópavogs. Stjórnandi er Össur Geirsson og sérstakur gestur er Tim Buzbee. Þessir fjör- ugu tónleikar hefjast klukkan 13 en frá 12.30 skemmta fjöllistamenn frá Götuleikhúsinu gestum og andlitsmálarar bjóða þeim sem vilja upp á ókeypis andlitsmálun. Börn eru beðin að koma klædd í grímubúninga á tóneikana ef þau geta. 25 feb Föstudagur 26 feb Laugardagur 27 feb Sunnudagur Viðfangsefnið í Yes yes er allt annað en gamansamt. Þar nálgast María hluta samfélagsins sem ein- kennist af fáfræði, fordómum og ekki síst ofbeldi. Best í heimi „Hugmyndin að myndinni Yes yes á rætur að rekja til leikritsins Best í heimi sem ég samdi ásamt Hávari Sigurjónssyni og leikhópnum og setti á svið í Iðnó árið 2007,“ seg- ir María. Best í heimi var tilraun til þess að lýsa íslenskum veruleika eins og hann blasir við útlending- um sem hingað flytjast. „Verkið var gamansamt, leikið af fagmenntuð- um erlendum leikurum sem höfðu flutt til Íslands og voru að fóta sig hér.“ Í undirbúningnum að Best í heimi tók María viðtöl við nokkrar taílenskar konur sem höfðu kom- ið til Íslands, meðal annars til þess að giftast íslenskum mönnum, en ekki síður í þeirri von að finna hér möguleika til þess að bæta lífs- skilyrðin fyrir börn og fjölskyldur í heimalandinu. Harðduglegar „Margar austurlenskar konur taka gríðarlega áhættu með því að yf- irgefa heimalandið. Þær koma til Íslands í algjörlega framandi um- hverfi, kunna ekki tungumálið og sumar þeirra enda beint heima hjá vafasömum náungum,“ held- ur María áfram. „Ég hreifst mjög af því hvað þessar konur voru harð- duglegar að vinna sig út úr þess- um nánast ómögulegu aðstæðum og mér þótti mikilvægt að skoða þá hlið málsins líka, án þess að gera strax ráð fyrir að þær væru fórnar- lömb hættulegra manna og erfiðra aðstæðna.“ Hins vegar megi ekki gera lít- ið úr andlegu og líkamlegu ofbeldi sem konur í þessum aðstæðum séu beittar. Hér séu til dæmi um konur sem hafi verið beittar miklu ofbeldi og síðan verið sendar fljótlega aftur heim. „Sumum þeirra hefur hrein- lega verið skilað aftur eins og hverj- um öðrum varningi.“ Ekki heimildamynd „En jafnvel þótt handritið að mynd- inni byggi á viðtölum við fjölda kvenna er þetta ekki heimildamynd á neinn hátt. Hún er hreint og klárt skáldverk. Hins vegar kom á dag- inn þegar ég var að prófa fólk í hlut- verkin að konur virtust þekkja sum- ar af þessum aðstæðum.“ María segir þetta einkum eiga við um ýmiss konar frelsissvipt- ingu. „Bíllyklarnir eru kannski gerðir upptækir og jafnvel launin tekin. Eða þeim bannað að hringja,“ segir hún. „Þarna kynnumst við viðhorfum fólks sem hefur litla eða enga samkennd eða innsýn í líðan annars fólks.“ María bendir á að hegðun eins og þessi spretti oftast nær af van- þekkingu, fordómum og jafnvel heimsku. „Maðurinn í myndinni er til að mynda ekki beinlínis ill- ur eða hættulegur. Hann er hins vegar að mörgu leyti mjög tak- markaður og það verður til þess að hann beitir ítrekað ofbeldi, fyrst og fremst andlegu.“ Rauði þráðurinn í myndinni er því fyrst og fremst um það hvað vanþekking og fordómar geta fætt af sér. „Heimskan er hættuleg.“ Áfram með umræðuna Þessa dagana er María að reyna að afla styrkja til þess að fara með myndina í skóla og á fleiri staði, sýna hana og halda erindi. „Jú, auðvitað er ég að reyna að breyta heiminum,“ segir hún og hlær. Við- fangsefnið sé rammpólitískt enda sé nánast óhugsandi að fjalla um viðkvæm mál án þess að velja sér sjónarhorn. „Þetta geri ég fyrst og fremst til þess að halda umræðunni gang- andi. En þess vegna er auðvitað planið að fá að sýna myndina í há- skólum og hjá trúnaðarmannafé- lögum og öðrum samtökum þar sem hægt er að vekja umræðuna um þessi mál. Þetta er líka mjög aktúelt. Nú var að koma út ný skýrsla um heimilisofbeldi. Nú er tíminn til þess að tala.“ Frekari kynning Næstu skrefin eru svo að koma myndinni í frekari kynningu. „Ég er auðvitað að reyna að koma mynd- inni inn á kvikmyndahátíðir vítt og breitt. Ég sæki auðvitað um á þess- um stóru hátíðum eins og Cannes og Nordisk Panorama. En það er auð- vitað ómögulegt að vita hvort mynd- in hlýtur náð og kemst að,“ segir María. „Þetta verður allt að ráðast.“ Hún segist reyndar vera kom- in vel af stað með annað hápóli- tískt verkefni. „Ég er byrjuð að gera heimildamynd um íslenska grunn- skólakerfið. Þetta er mynd sem ég byrjaði að vinna á meðan ég var í meistaranámi í kvikmyndagerð í Auckland á Nýja-Sjálandi. Þar fékk ég að fara í skóla dóttur minnar og viða að mér efni. Ég ætla að svo að halda áfram og safna efni um ís- lenska grunnskóla og gera umfjöll- un sem byggist á samanburðinum.“ Heimildamynd um skólakerfið María segist hafa áttað sig á því þeg- ar hún flutti með fjölskylduna til Nýja-Sjálands að fæstir geti nokk- urn tímann gert svona saman burð sjálfir. „Fólk þekkir yfirleitt bara eitt menntakerfi. Kerfið heima hjá sér. Þegar við svo fluttum þarna út þótti mér munurinn vera sláandi mik- ill. Ekki endilega neikvæður, heldur fyrst og fremst mikill.“ Þetta sé nokkuð sem eigi mikið erindi hér heima. „Ekki síst í allri þeirri umræðu sem nú fer fram um niðurskurð hjá ríki og sveitarfélög- um og líka vegna þess að nú eru að mótast hugmyndir um hvernig eigi að forgangsraða í samfélaginu.“ Sjálfmenntun og menntun María er að upplagi sjálfmenntað- ur leikstjóri, jafnvel þótt hún hafi nú lokið meistaragráðu í kvikmynda- leikstjórn. „Ég var í rauninni byrjuð að leikstýra í minni verkefnum strax upp úr 1990. Ég fór svo til Englands og lærði leiklist í Central School of Speach and Drama í London. Þetta var frábært nám, jafnvel þótt ég hafi oftast endað í alvarlegum hlutverk- um í skólanum, sem er á einhvern hátt andstætt gríneðlinu í mér,“ segir María. Hún hafi svo flutt til Íslands og farið beint að leikstýra. „Ég velti því ekkert fyrir mér.“ 2.500 sketsar Sína aðalþjálfun í handritaskrifum fékk María svo þegar hún tók þátt í að skrifa sex seríur af gamanþáttun- um Stelpurnar. „Þarna datt ég inn í hóp sem skrifaði handrit að meira en 2.500 grínsketsum undir stjórn Sig- urjóns Kjartanssonar.“ Hún segir Stelpurnar hafa um margt verið mikilvægar. Grínþætt- ir sem þó bentu á hið augljósa. „Það eru svo afkáralega fáar konur að vinna í sjónvarpi.“ Hún segir Sigurjón hafa orðið sinn helsta leiðbeinanda í handritagerð. „Sigurjón er ótrúlega afkastamikill og öflugur. Þá má örugglega segja að hann hafi breytt íslensku sjónvarpi með því að hafa drifið áfram þátta- raðir í íslensku sjónvarpi, sem aldrei hefðu annars orðið að veruleika.“ Hrekkjusvín Og hvað nú? „Ég er með ótrúlega mörg járn í eldinum, eins og all- ir þurfa að gera sem eru sjálfstætt starfandi. Það stendur til dæmis til að gera sviðsútgáfu við tónlist- ina af plötunni Hrekkjusvín, sem kom út snemma á níunda áratugn- um. Þetta var kjarninn úr Spilverki þjóðanna ásamt Eggerti Þorleifssyni og Leifi Haukssyni. Þarna eru mörg frábær lög sem eiga vel við í dag og fjalla um allt frá umhverfismálum til póltískrar spillingar á gamansaman hátt sem hentar bæði börnum og fullorðnum.“ sigtryggur@dv.is Þorkell Þorkelsson Heldur ljósmyndasýningu um Búrma í Gerðarsafni um helgina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.