Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Page 62
62 | Sport 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað
n Arsenal og Birmingham mætast í úrslitum enska deildarbikarsins á sunnudaginn n Arsenal
hefur ekki unnið stóran bikar í sex ár, Birmingham ekki í 48 ár n Er þetta Arsenal-liðið sem dustar
rykið af bikaraskápnum á Emirates? n Birmingham í eigu moldríks Kínverja sem vill stóra hluti
LANGRI BIÐ
MUN LJÚKA
Síðast 2005 Patrick Vieira tók við síðasta
bikar Arsenal árið 2005.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
„Við ætlum okkur
að vinna titla í ár
og það sést alveg að við
erum tilbúnir í það
Alexander Song
Miðjumaður Arsenal
Löng bið Bæði Arsenal og Birmingham
hafa þurft að bíða lengi eftir titlum.
Fyrsti bikar ársins á Englandi fer
á loft á Wembley-leikvanginum á
sunnudagskvöldið þegar Arsen-
al og Birmingham mætast í úrslit-
um enska deildarbikarsins. Ljóst er
að langri bið eftir titlum mun ljúka,
sama hvort liðið ber sigur úr býtum.
Bið Birmingham er öllu lengri en það
hefur ekki unnið stóran titil frá því
það hampaði sigri í deildarbikarn-
um árið 1963. Birmingham hefur því
ekki unnið alvöru titil í ein 48 ár. Bið
Arsenal er öllu styttri en sex ár hjá
þannig stórliði telst sem heil eilífð.
Arsene Wenger hefur verið að koma
upp liði sem á að geta barist um alla
stærstu titlana og enn sem komið er
berst Arsenal á öllum vígstöðvum.
Það er komið í úrslitaleik deildarbik-
arsins, átta liða úrslit enska bikars-
ins, leiðir einvígi sitt gegn Barcelona
í 16 liða úrslitum Meistaradeildar-
innar og er aðeins einu stigi á eftir
Manchester United í baráttunni um
sjálfan Englandsmeistaratitilinn. Að
lyfta bikar á sunnudaginn gæti ein-
mitt verið það sem Arsenal-liðið
vantar. Finna sigurtilfinninguna og
fá blóð á tennurnar.
Sex ára bið
Síðasti titill sem Arsenal vann var
enski bikarinn árið 2005. Liðið hafði
þá sigur í vítaspyrnukeppni gegn
Manchester United eftir marka-
lausan leik. Þar var það Patrick Vi-
eira sem skoraði síðasta markið sem
tryggði sigurinn. Síðan þá hefur Ars-
enal ekki unnið titil en komst þó ná-
lægt því árið 2006 þegar liðið tapaði
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
gegn Barcelona, 2–1.
Eftir að hið ósigrandi lið Arsenal
frá tímabilinu 2003/2004 fór að
leysast upp ákvað Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, að veðja
á yngri menn. „Hið efnilega lið Ars-
enal“ hefur verið orðatiltækið und-
anfarin ár og alltaf hefur verið beð-
ið eftir að þessir strákar þroskist. Í
ár virðist sú stund vera runnin upp.
Cesc Fabregas keyrir lið sitt áfram
eins og herforingi og væri það með
alvöru miðvörð væri liðið án efa
með góða stöðu á toppi ensku úr-
valsdeildarinnar.
Þó deildarbikarinn sé ekki stærsti
titillinn sem hægt er að vinna og oft
kallaður „plastbikarinn“ gæti skipt
Arsenal-liðið máli að lyfta bikar. Það
gæti verið nákvæmlega það sem lið-
ið vantar til að vita hvernig á að klára
stóra leiki.
Kínverjinn vill stóra hluti
Birmingham hefur ekki haft mikið
til að guma af á knattspyrnuvellin-
um undanfarna áratugi. Liðið hef-
ur lengi staðið í skugganum á stóra
bróður í Birmingham-borg, Aston
Villa. Félagið á þó að baki fjóra Eng-
landsmeistaratitla en sá síðasti kom
árið 1955. Síðast þegar liðið vann al-
vöru titil, að undanskildum fram-
rúðubikarnum, var árið 1963 þeg-
ar Birmingham fagnaði einmitt sigri
í deildarbikarnum. Síðan þá hefur
Birmingham þurft að sætta sig við
sigra í neðrideildar bikarkeppnum
og sigra í neðri deildum enska bolt-
ans.
Birmingham ætlar sér þó stóra
hluti á næstu árum og er gengi liðs-
ins í ár nokkur vonbrigði. Fyrir þrem-
ur árum keypti kínverskur viðskipta-
maður að nafni Carson Yeung félagið
eftir að David Gold og David Sulli-
van hrökkluðust frá borði. Yeung er
stórhuga og var ánægður með gengi
liðsins í fyrra þegar það náði að enda
tímabilið í efri hluta töflunnar.
Hann hefur verið duglegur að
dæla peningum í klúbbinn og hafði
til dæmis lítið fyrir því að henda
fimm milljónum punda í markvörð-
inn Ben Foster þegar upp kom sú
staða að liðið var markvarðarlaust
eftir síðasta tímabil. Birmingham er
sem stendur í fimmtánda sæti og á
ekki möguleika á Evrópusæti í gegn-
um deildarkeppnina eins og Yeung
stefnir á en hann hefur orðið fyrir
vonbrigðum með gengi liðsins í ár.
Annað sætið dugar
ekki í Evrópu
Til að gera deildarbikarinn stærri
var ákveðið fyrir nokkrum árum að
fyrir sigur í honum fengist sæti í Evr-
ópudeildinni, þá Evrópukeppni fé-
lagsliða. Birmingham dugar þó ekki
bara að spila leikinn til að komast
í Evrópukeppnina þó svo Arsenal
muni án efa komast í Meistaradeild-
ina og skilja þannig sætið Í Evrópu-
deildinni eftir. Í staðinn fyrir að sæt-
ið flytjist niður á liðið sem lendir í
öðru sæti deildarbikarsins fer það
í staðinn í deildarkeppnina og fær
því liðið í sjötta sæti þar keppnis-
rétt í Evrópu að ári takist Arsenal að
vinna leikinn. Sama gildir um enska
bikarinn. Vinni lið enska bikarinn
sem fær einnig keppnisrétt í Meist-
aradeildinni bætist sætið við deild-
arkeppnina og fær þá liðið í sjöunda
sæti keppnisrétt í Evrópudeildinni.
Mikilvægt að Hleb verði með
Alexander Hleb, fyrrverandi leik-
maður Arsenal, sem leikur nú með
Birmingham er tæpur fyrir leikinn
og óvíst er með þátttöku hans. „Við
erum ekki búnir að útiloka að hann
verði með. Við erum ennþá að skoða
þetta. Hnéð leit betur út en gert var
ráð fyrir en við óttuðumst að um
sködduð liðbönd væri að ræða. Það
er smá bólga í því en við munum sjá
hvernig þetta kemur út,“ segir Alex
McLeish, stjóri Birmingham.
„Hleb er mjög fljótur og getur
tekið alla varnarmenn á. Það verð-
ur okkur erfitt ef hann verður ekki
með. Hann er alveg frábær fótbolta-
maður með mikla reynslu og því væri
það okkur ómetanlegt að hann gæti
spilað. Okkur hlakkar alla til að spila
þennan leik. Það verður ekkert nema
frábært að fá að spila á Wembley.
Það er þó lykilatriði að við höldum
okkur á jörðinni því við erum að fara
spila við frábært Arsenal-lið,“ segir
McLeish.
Alexander Song, miðjumaður
Arsenal, hefur átt gott tímabil og
hann fagnar því að vera loksins kom-
inn aftur í úrslitaleik. „Við ætlum
okkur að vinna titla í ár og það sést
alveg að við erum tilbúnir í það. Þetta
gæti verið fyrsti af nokkrum í ár. Það
þarf þó að spila leikinn fyrst. Birm-
ingham er með sterkt lið sem getur
svo sannarlega varist. Mér finnst við
með betra lið en það telur ekki alltaf í
svona úrslitaleikjum.“