Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 27.–29. maí 2011 Helgarblað
Starfsmaður Vátryggingafélags Íslands
(VÍS), sem ekki vill láta nafns síns get-
ið, segir að forsvarsmenn fyrirtækisins
hafi stillt þeim starfsmönnum trygg-
ingafélagsins sem keypt höfðu hluta-
bréf í móðurfélagi þess, Exista, upp
við vegg á vormánuðum 2009 þegar
hlutabréfin voru keypt af þeim aftur.
Félag í eigu stærstu eigenda Exista,
BBR ehf., sem átti tæp 80 prósent í fé-
laginu, gerði öðrum minni hluthöfum
félagsins þá tilboð í hluti þeirra í Exista
sem hljóðaði upp á 0,02 krónur á hlut.
Eigendur BBR og ráðandi hluthafar í
Exista voru bræðurnir Lýður og Ágúst
Guðmundssynir. Síðan þetta gerðist
hafa bræðurnir misst yfirráð sín yfir
Exista til kröfuhafa félagsins.
Líkt og komið hefur fram í fjölmiðl-
um hætti forstjóri VÍS, Guðmundur
Örn Gunnarsson, hjá tryggingafélag-
inu í vikunni í kjölfar úttektar Fjár-
málaeftirlitsins á starfsemi félags-
ins. Fjármálaeftirlitið taldi eðlilegt að
Guðmundur Örn léti af störfum vegna
lána sem veitt voru til Exista, Sigurðar
Einarssonar, viðskiptafélaga Lýðs og
Ágústs og starfsmanna VÍS. Inntakið
í gagnrýninni er að VÍS hafi í of mikl-
um mæli gengið erinda eigenda trygg-
ingafélagsins og viðskiptafélaga þeirra
í einhverjum tilfellum. Sagan af upp-
kaupum þeirra Lýðs og Ágústs á hluta-
bréfum starfsmanna VÍS í trygginga-
félaginu rennir enn frekari stoðum
undir óeðlileg viðskipti á milli stærstu
eigenda Exista og VÍS.
Voru boðaðir á fund einn af öðrum
Starfsmennirnir voru boðaðir á fund
einn af öðrum á skrifstofu Exista á 5.
hæð í Ármúla 3 þar sem starfsmanna-
stjóri VÍS, Anna Rós Ívarsdóttir, tók á
móti þeim ásamt tveimur innanhúss-
lögmönnum frá Exista. Starfstöðvar
VÍS eru í sömu byggingu og skrifstofur
Exista.
Þar voru þeir beðnir um að skrifa
undir kaupsamning þar sem þeir
seldu bréf sín til BBR ehf., félags Ágúst
og Lýðs. „Maður upplifði þetta þannig
að starfið manns væri undir í þessu. Að
ef maður spilaði þetta ekki eftir þeirra
höfði væri starfið manns í hættu. Þú
lest þetta ekkert öðruvísi. Þess vegna
var starfsmannastjóri VÍS þarna þrátt
fyrir að fyrirtækið ætti enga aðild að
samkomulaginu á milli mín og Exista,“
segir starfsmaður VÍS.
Fékk ekki umhugsunarfrest
Starfsmaðurinn segist hafa beðið um
að fá að taka kaupsamninginn sem
hann var beðinn um að skrifa und-
ir með sér heim svo hann gæti hugs-
að málið til morguns. „Það voru lögð
fyrir mig gögn á borðið. Mér var boðið
að lesa þetta og skrifa undir. Ég sagðist
ekki vilja skrifa undir þar sem ég vildi
fara með gögnin heim til að bera þau
undir minn lögmann og koma með
þau daginn eftir. Ég fékk þá þau svör
að engin gögn myndu fara út úr her-
berginu og að best væri að ganga frá
sölunni sem fyrst.“
Starfsmaðurinn lét því til leiðast á
endanum því hann leit svo á að hann
gæti misst starf sitt hjá tryggingafélag-
inu ef hann skrifaði ekki undir. Með
þessu móti seldu margir fleiri starfs-
menn VÍS hlutabréf sín í Exista til BBR.
Fjármögnuð með kúlulánum
Starfsmaður VÍS segir að hlutabréfa-
kaup starfsmanna félagsins í Exista
hafi verið kynnt árið 2006 áður en
eignarhaldsfélagið var skráð á markað
sem almenningshlutafélag. Hlutabréf í
félaginu voru þá seld á genginu 21,5 á
hlut. Stjórnendur VÍS buðu hlutabréf-
in með fjármögnun frá Kaupþingi en
starfsmennirnir þurftu að leggja fram
eiginfjárframlag þar á móti. 80 starfs-
menn VÍS keyptu bréf fyrir samtals 220
milljónir króna.
Starfsmaðurinn sem um ræðir hér
ákvað að taka lán hjá Kaupþingi til að
fjármagna bréfin og lagði hann fram
nokkur hundruð þúsund krónur á
móti sem hann tapaði svo á endanum.
Lánið sem hann fékk frá Kaupþingi
var kúlulán, vaxtalaust lán til nokkurra
ára þar sem gert var ráð fyrir greiðslu
á vöxtunum ásamt höfuðstólnum í lok
lánstímans.
n Forstjóri VÍS gagnrýndur vegna óeðlilegra viðskipta n Starfsmenn VÍS seldu Bakka-
bræðrum bréf sín í Exista 2009 nBréf starfsmanna keypt með kúlánum frá Kaupþingi
Starfsmönnum VÍS
stillt upp við vegg
„Maður upplifði
þetta þannig að
starfið manns væri undir
í þessu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Forstjórinn hættur
Forstjóri VÍS, Guðmundur Örn
Gunnarsson, er hættur hjá
tryggingafélaginu eftir að
Fjármálaeftirlitið gagnrýndi
lánveitingar út úr trygginga-
félaginu til stærstu eigenda
Exista og viðskiptafélaga
þeirra. Uppkaup Bakka-
bræðra á hlutabréfum
starfsmanna VÍS renna frek-
ari stoðum undir óheppileg
tengsl á milli VÍS og stærstu
eigenda Exista.
VÍS lánaði ExiSta milljarð
Ársreikningar Vátryggingafélag Ís-
lands sýna umtalsverð viðskipti við
móðurfélagið Exista á árunum fyrir ís-
lenska efnahagshrunið. Fjármálaeftir-
litið hefur meðal annars verið gagn-
rýnið á viðskipti Vátryggingafélagsins
við eigendur þess og tengda aðila á
síðustu árum og vildi þar af leiðandi að
Guðmundur Örn hætti sem forstjóri
félagsins. Guðmundur tók við starfinu
í byrjun árs 2008.
Meðal þess sem kemur fram í árs-
reikningi VÍS er að í árslok 2007 hafi
lán til móðurfélagsins Exista numið
1.2 milljörðum króna. Einnig kemur
fram að VÍS hafi selt Exista fasteignir,
meðal annars höfuðstöðvar félagsins í
Ármúla 3, sem síðar runnu inn í dótt-
urfélagið Exista Properties. Vátrygg-
ingafélag Íslands gaf út skuldabréf til
Exista Properties vegna þessa upp á
4,5 milljarða króna. Alls kyns önnur
viðskipti áttu sér stað á milli VÍS og Ex-
ista og tengdra félaga.
Þá kemur enn frekar fram í árs-
reikningunum að á árunum 2006 til
2008 hafi arðgreiðslur frá Vátrygginga-
félagið Íslands til móðurfélags síns
Exista numið tæpum fjórum millj-
örðum króna í heildina. Þar af nam
arðgreiðslan árið 2007 1,5 milljarði
króna á meðan arðgreiðslan nam 1,8
milljarði króna ári síðar. Fjórir millj-
arðar runnu því frá tryggingafélaginu
og til Exista í góðærinu.
Arðgreiðslur út úr VÍS námu um fjórum milljörðum:
Skelin Eignarhaldsfélagið Exista hélt utan um hlutabréf í sterkum rekstrar-
félögum eins og VÍS og tók arð út úr þeim. Myndin er frá aðalfundi Exista 2007.
Safna fyrir ferð
fatlaðrar konu
„Ég gæti aldrei ferðast nema vegna
þessa stuðnings. Þessar ferðir hafa
verið mér ótrúlega mikilvægar
og eftirminnilegar,“ segir Guðrún
Jóna Jónsdóttir sem varð fyrir lík-
amsárás í miðbæ Reykjavíkur árið
1993 fimmtán ára gömul. Alla tíð
síðan hefur hún verið mikið fötluð
og bundin við hjólastól.
Fyrir nokkrum árum tóku vinir
hennar sig saman og hófu að safna
til að gefa Guggu kost á að ferðast
til útlanda. Slíkt er hvorki ódýrt né
einfalt því Guðrún þarf tvo aðstoð-
armenn á ferðalögum. Með mikilli
elju og framlögum frá góðu fólki
hefur tekist að láta draum Guggu
um ferðalög rætast.
Nú fer hún út einu sinni á ári
með hjálp ferðasjóðsins og segir
að ferðirnar séu sér mikilvægar.
„Eftirminnilegasta ferðin var
þegar ég sá Madonnu, uppáhalds-
söngkonuna mína, á tónleikum
í Lundúnum fyrir tveimur árum.
Það var alveg ótrúlegt. Ég var í
svo miklu tilfinningasjokki að ég
grét allan tímann af gleði. Í sumar
hefur stefnan verið sett á Chicago
til að fara á tónleika með U2. Það
verður örugglega alveg frábært þó
ég efist nú um að þeir toppi til-
finninguna að sjá Madonnu.“
Fyrirhugað ferðalag Guð-
rúnar Jónu til Chicago verður
það lengsta til þessa. Það kostar
töluverða peninga að láta dæmið
ganga upp og vinir Guggu hafa því
sett upp sérstaka söfnunarsíðu fyr-
ir ferðasjóð Guggu á Facebook. Þar
er hægt að lýsa stuðningi við mál-
efnið og einnig er tekið við fram-
lögum, hversu smá sem þau eru,
á söfnunarreikning Ferðasjóðs
Guggu 515-14-405952 Kt. 520511-
0910.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Steypugljái á
stéttina í sumar
SUPERSEAL
TOP COAT