Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Blaðsíða 24
24 | Úttekt 27.–29. maí 2011 Helgarblað Sunna Mjöll Magnúsdóttir var á há- degisfundi hjá tólf spora samtökum þegar Sigrún Mjöll vinkona henn- ar lést. Deginum áður hafði Sigrún Mjöll sent henni póst á Facebook þar sem hún lýsti yfir þrá sinni til að verða edrú og laus við fíknina og bað vinkonu sína um að standa sterka sér við hlið, því hún ætlaði aðeins að fara á eitt djamm í viðbót. Það fékk Sunna Mjöll aldrei tækifæri til þess að gera og lát Sigrúnar varð henni mikið áfall. Sunna Mjöll gekk í gegn- um algjört helvíti í sinni neyslu, hún gekk svo langt að hún seldi sig fyrir fíkniefni. Hún vinnur nú markvisst úr reynslu sinni og stefnir á að verða meðferðarfulltrúi. Í uppreisn gegn foreldrum okkar „Ég og Sissa kynntumst á Hlemmi. Við vorum nokkrir krakkar sem fannst gaman að hanga þar saman. Okkur fannst spennandi að vera þar og vera með eldra liði sem hékk þar. Við urðum ekki góðar vinkonur strax en svo fórum við í meðferð saman inni á Stuðlum 2007 og þá urðum við óaðskiljanlegar.“ Sunna var í neyslu með Sissu frá byrjun. „Við hittumst á Hlemmi og svo héldum við oftast til í húsi sem er kallað Dogshás og er rétt hjá Kling og Bang galleríi. Við vorum þar að gasa og drukkum hverja einustu helgi. Neyslan vatt upp á sig og við vorum líka að fá okkur á virkum dögum. Sissa byrjaði svo snemma að fikta við kannabis. Við vorum alltaf nokkr- um skrefum á eftir henni. Ég fór sjálf seint að fikta við kannabis. Ég notaði áfengi, tók stundum sjóveikispillur, mest í læknadópi.“ Spurð um andann í hópnum seg- ir hún hann hafa einkennst af mikilli uppreisn og óbilandi trú á eigin mátt. „Við vorum alltaf einhvern veginn í mikilli uppreisn gagnvart foreldrum okkar. Við ætluðum að sýna þeim að við gætum þetta. Okkur langaði til að sýna þeim að við gætum hugsað um okkur sjálfar, við værum sterkar. Jafn- vel sterkari en foreldrar okkar.“ Sóttu í eldri krakka Sunna segir þær hafa verið yngstar í þessum hópi krakka. „Við sóttumst í að vera með eldri krökkum og fannst upphefð í því. Ég var rosalega lengi að koma mér í harðari efni. Sissu fannst þetta hins vegar allt svo rosa- lega spennandi og var alltaf æst í að fá að prufa, hana langaði einhvern veginn til að prófa allt. Það kom ekki oft fyrir að hún yrði hrædd.“ Þegar á leið fór Sunna að taka sín fyrstu edrúskref og dró sig úr sam- skiptum við Sissu og félagana. Hún heyrði hins vegar fréttir af henni og hitti hana annað slagið. Eldri maður dró hana út í harða neyslu Sunna segist hafa verið slegin þeg- ar hún hitti Sigrúnu árið 2010, árið sem hún lést. „Sissa hafði alltaf verið ótrúlega glöð og það átti allt að redd- ast. Hún hafði óbilandi trú og innra með henni var sterkur lífsneisti. Ég fann ekki fyrir sömu stelpunni þegar ég hitti hana. Ég sá að hluti af henni var að hverfa. Ég fann ekki í henni það sem ég hafði alltaf áður getað fundið. Kannski sá ég þetta skýrar vegna þess að þá hafði ég verið edrú í marga mánuði en Sissa var með fallega sál og átti fallegar óskir. Hún ræddi oft um að hana langaði til þess að verða edrú og byggja upp betra samband við vini og fjölskyldu. Hún þráði að fá að hitta föður sinn aftur og eiga í reglulegum samskiptum við hann. Hún leit upp til hans, þau voru í raun afar lík.“ Sunna segir Sigrúnu hafa orðið svo langt leidda vegna kynna sinna af eldri manni sem var langt leiddur í neyslu og notaði stóra skammta af sterku læknadópi. „Ég bjóst ekki við því að Sissa væri komin í morfínneyslu. Þegar fólk hef- ur neytt mikils af læknadópi þá hætt- ir það að virka og þá tekur það mor- fín. Með morfíni ferðu alltaf í vímu, sama hvað þú ert langt leiddur.“ Héldum að við værum ódauðleg Sunna segist hafa ætlað að hjálpa Sigrúnu. Hún hafi skilið vandann sem Sigrún var í og fannst hún vera í þeirri stöðu að geta staðið sterk með henni. „Hún var vinkona vina sinna og var alltaf til staðar fyrir vini sína. Hún var alveg ótrúlega traust, það var eiginlega alveg sama hvar á land- inu hún var stödd, hún var boðin og búin til þess að veita vinum sínum skjól. Ég ætlaði að endurgjalda henni þetta þegar hún skrifaði mér bréf og sagði mér að hún vildi verða edrú. Ég ætlaði að standa sterk með henni í þessu og hjálpa henni úr fíkninni.“ En Sunna náði ekki í hana. „Ég náði ekki í hana, ég reyndi að hringja í vini hennar og ná sambandi við hana en án árangurs. Ég ætlaði að bjóða henni með mér á fund. Degi seinna var hún dáin.“ Sunna seg- ir andlát Sissu vinkonu hennar hafa markað tímamót í sínu lífi. „Ég fékk algert áfall. Það er svo oft sem maður hugsar: Ég dey ekki. Við getum ekki dáið. Við erum svo ung. Það er bara eldra, sjúskaða liðið sem deyr. Þetta hugsuðum við. Þegar Sissa dó sáum við öll hvað þetta er mikið bull.“ Féll í sorginni Sunna hafði verið edrú í nokkuð langan tíma þegar hún fékk fregnir af andláti Sissu. Hún féll í eitt skipti stuttu eftir frétt- irnar. „Ég réð ekki við þetta. Ég ein- faldlega hrundi á mjög viðkvæmum tíma á meðan ég var að byggja mig upp. Ég féll og fór á djamm eftir að ég heyrði fréttirnar og í mínum huga var ég að kveðja hana, dauðann og fíkn- ina á táknrænan máta. Þetta var svo yfirþyrmandi vont. Það var ótrúlega erfitt að takast á við þetta.“ Sunnu gengur vel í dag. Ég er í 12 spora samtökunum og er með sterkt fólk í kringum mig. Ég fór að sækja tíma hjá sálfræðingi og vinn mark- visst úr reynslu minni. Ég leyfi mér að syrgja og finna til og er ekki að bæla tilfinningar mínar niður. Mér finnst mér ganga vel. Ég hef verið edrú núna í 10 mánuði og tek einn dag í einu.“ Fékk fyrsta sopann ellefu ára hjá mömmu „Stundum ertu fæddur fíkill, þú fæð- ist inn í aðstæður sem þú verður síð- an að eyða lífinu í að breyta. Síðan er það þannig að þú getur orðið fíkill. Börn sem prófa fíkniefni verða mjög oft fíklar. Alveg sama hverjar fjöl- skylduaðstæðurnar eru. Þannig var það hjá Sissu. En ekki hjá mér.“ Sunna útskýrir fyrir blaðamanni að nán- ast allir fjölskyldumeðlimir hennar séu alkóhólistar og hún segist hafa fengið fyrsta sopann hjá móður sinni þegar hún var aðeins 11 ára. Svaf hjá karlmönnum fyrir fíkniefni „Ég byrjaði að drekka rosalega ung. Ég var bara 11 ára. Ég kem úr alkó- hólískri fjölskyldu. Mamma mín, ég, pabbi minn, afi minn og amma mín. Þau eru öll alkóhólistar en fjölskylda mín er edrú í dag. Við vorum í útilegu og það var mjög kalt. Það var hrollur í mér og mamma sagði mér að það væri fullorðinsappelsínudjús í skott- inu til að hlýja mér. Þetta var vodka með appelsínugosi. Þá fann ég fyrst fyrir frelsinu sem áfengið veitir. Eftir þetta fór að verða svona helgarhefð að hún keypti fullorðinsdjús handa mér og ég komst fljótt upp á lagið og byrjaði að drekka.“ Sunna segist hafa sogast hratt inn í heim harðari fíkniefna. „Við gerðum allt til að redda okkur fíkniefnum um tíma. Sjálf gekk ég svo langt að sofa hjá karlmönnum fyrir fíkniefni. Þá var ég bara 14 ára. Ég er enn að vinna úr því sem ég varð fyrir á þessum tíma. En ég held að það hefði ekkert getað komið í veg fyrir þetta. Þetta er sterkara en allt. Sterkara en móður- ástin eins og fyrrverandi fíkill sagði í Kastljósþætti um daginn. Ég get ekki talið kvöldin sem mamma hef- ur hringt í mig grátandi. Mér var ein- hvern veginn alveg sama.“ Fer á fund á hverjum degi Sunna hefur aðeins einu sinni farið í meðferð. Það var á Stuðlum 2007. „Ég lærði margt þar. Annars hef ég verið svo stolt að ég hef ekki viljað fara í fleiri meðferðir. Frekar hef ég verið heima hjá mér og tekið þetta út með kvölinni. Það er mikill munur á því að vera ofdrykkjumanneskja og alkóhólisti og fíkill. Fólk hættir. Eitt- hvað gerist og fólk hættir. Það eignast börn, verður veikt og hættir. En þegar maður er með þennan sjúkdóm, þá er einhvern veginn ekkert sem kem- ur í veg fyrir skammtinn.“ Sunna beitir sig hörðu til að halda sér edrú. „Ég fer á fund á hverjum degi og tek einn dag í einu. Nú eru komnir 10 mánuðir og ég er stolt af þeim árangri. Ég leyfi þessu rúlla eins og gengur og gerist.“ Ætlar að láta drauma sína rætast „Ég á mér drauma sem ég ætla að láta rætast. Ég var rekin úr grunn- skóla mjög ung og var ekki í skóla í heilt ár áður en ég fór í 10. bekk. Ég ákvað síðan að fara í Menntaskólann í Kópavogi, en það gekk illa þar sem ég var í neyslu. Ég féll í öllu. Mig lang- ar rosalega til að verða meðferðar- fulltrúi. Ég held að ég geti orðið góð í því. Ég stefni að því.“ UnglingsstúlkUr í heimi daUða, vændis og fíkniefna n Æskuvinkonur og neyslufélagar Sigrúnar Mjallar, þær Sunna, Helena og Erla Rún, eru allar edrú í dag n Þær rifja upp vináttuna og neyslusöguna öðrum til varnaðar. Sogaðist hratt inn í heim harðari fíkniefna „Við gerðum allt til að redda okkur fíkniefnum um tíma. Sjálf gekk ég svo langt að sofa hjá karlmönnum fyrir fíkniefni.“ „Við lifðum svo hratt og fíknin er svo sterk – enginn hefði getað hjálpað okkur „Fékk fullorðins- djús um helgar hjá mömmu 11 ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.