Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Blaðsíða 29
Lagarde líklegust
til að leiða AGS
Erlent | 29Helgarblað 27.–29. maí 2011
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Um helgina
Dansleikir með Hljómsveitinni SÍN
dv
e
h
f.
Flateyrarbíó gjörir kunnugt:
Siggi Björns mun sýna kvikmynd sína - "Flateyri
1985 - fyrri hluti" í Flateyrarbíó á Cafe Catalina í
Kópavogi sunnudaginn 29. maí 2011 kl. 21:00.
Nýtt og betra sýningartjald verður tekið í notkun í
Flateyrarbíói á Cafe Catalina á sýningunni hinn 29.
maí. Er tjaldið þannig upp sett að hægt er að horfa
á myndir báðum megin frá eins og var forðum í
Flateyrarbíó vestra - sælla minninga.
siggi
björns
steini jó
boltinn er
alltaf í beinni
flateyri 1985
Fyrri hluti, í Flateyrarbíó á Cafe Catalina 29. maí kl. 21:00
Flateyrarbíó
Sólbakka
Flateyri við
Önundarfjörð
Flateyrarbíó
Cafe Catalina
Hamraborg
Kópavogi
allir velkomnir og enginn aðgangseyrirFlateyrarmyndin verður til sölu á mynddiski.
n Christine Lagarde hefur lýst yfir áhuga á framkvæmdastjórastöðu AGS n Gæti orðið
fyrsta konan til að gegna starfinu n Kann að verða ákærð fyrir embættisafglöp
„Verði ég kosin til starfsins, mun
ég nýta mér alla mína sérþekk-
ingu sem lögfræðingur, sem ráð-
herra, sem framkvæmdastjóri og
sem kona,“ segir Christine Lagarde,
efnahagsmálaráðherra Frakklands,
en hún lýsti því yfir á miðvikudag að
hún myndi sækjast eftir starfi fram-
kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Fari svo að Lagarde hljóti
brautargengi til starfsins, mun hún
verða fyrsta konan sem hlýtur þann
heiður – en framkvæmdastjórastað-
an hjá AGS er eitt valdamesta emb-
ættið sem hægt er að gegna í hinu
alþjóðlega efnahagskerfi. Hún gæti
einnig orðið annar framkvæmda-
stjórinn í röð sem kemur úr röðum
Frakka, en eins og kunnugt er þá
sagði Dominique Strauss-Kahn af
sér á dögunum eftir að hafa verið
ákærður fyrir tilraun til nauðgunar,
kynferðislega árás og frelsissvipt-
ingu.
Glæsilegur ferill
Christine Lagarde er 56 ára lögfræð-
ingur sem á að baki glæsilegan fer-
il. Eftir að hafa lokið stúdentsprófi
frá menntaskóla í sjávarbænum Le
Havre stundaði hún skiptinám á veg-
um AFS í Bandaríkjunum, sem átti
eftir að leggja grunninn að ensku-
kunnáttu hennar – sem hefur kom-
ið að góðum notum í störfum henn-
ar síðar meir. Eftir ár í bandarískum
menntaskóla vann hún í eitt sumar
hjá þingmanni í fulltrúadeild Maine-
fylkis í Bandaríkjunum, William S.
Cohen, en hann átti síðar eftir að
verða varnarmálaráðherra í ríkis-
stjórn Bills Clinton.
Lagarde lauk meistaraprófi í bæði
lögfræði og ensku frá Parísarháskóla
árið 1981 og hóf störf sem lögfræð-
ingur hjá alþjóðlegu lögfræðiskrif-
stofunni Baker & McKenzie, sem
er ein sú stærsta sinnar tegundar í
heiminum. Þar var hún brautryðj-
andi, og var fyrsta konan til að verða
kosin forseti framkvæmdastjórnar
fyrirtækisins árið 1999. Það var einn-
ig vegna áhuga hennar á Evrópu-
rétti, sem Baker & McKenzie opnuðu
útibú í Brüssel – sem er eingöngu
helguð Evrópurétti.
Virtur ráðherra en með svartan
blett
Árið 2005 tók Lagarde að sér ráð-
herrastöðu í ríkisstjórn François Fil-
lon og gegndi hún stöðu iðnaðar-
ráðherra um tveggja ára skeið. Fékk
hún mikið lof fyrir að opna fyrir nýja
markaði fyrir franskan iðnað, sér í
lagi í hátæknigeiranum. Árið 2007
var hún skipuð í embætti landbún-
aðarráðherra en skömmu síðar tók
hún að sér stöðu efnahagsmálaráð-
herra, og varð þar með fyrsta kon-
an sem stýrir efnahagsstefnu Frakk-
lands.
Svartur blettur liggur þó yfir ann-
ars glæsilegum ferli Lagarde. Svo
gæti nefnilega farið, að hún gæti
verið ákærð fyrir embættisafglöp.
Árið 2008 fór franski viðskiptajöfur-
inn Bernard Tapie, sem er vægast
sagt umdeildur í Frakklandi, fram á
skaðabætur – vegna þess að brögð
hefðu verið í tafli þegar hann seldi
hlut sinn í íþróttavörufyrirtækinu
Adidas. Talið var víst að Tapie myndi
tapa málinu en þá skakkaði Lagarde
leikinn og ákvað, sem efnahagsmála-
ráðherra, að gerðardómur, skipaður
af henni, skyldi úrskurða í málinu.
Tapie fékk loks 285 milljónir evra í
skaðabætur.
Kemur í ljós í júní
Næsti mánuður verður í öllu falli ör-
lagaríkur fyrir Lagarde. Þann 10. júní
mun koma í ljós hvort hún verður
ákærð fyrir embættisafglöp og ná-
kvæmlega sama dag rennur út frest-
urinn til að sækja um starf fram-
kvæmdastjóra AGS. Það kemur svo í
hlut 24 manna stjórnar AGS að kjósa
um hæfustu manneskjuna í starfið
og ætti sú ákvörðun að liggja fyrir í
lok júní. Ljóst er að bæði Bretar og
Þjóðverjar eiga eftir að styðja Lag-
arde, og einnig Bandaríkjamenn –
vegna góðra tengsla Lagarde vest-
anhafs. Sá stuðningur gæti vegið
þungt.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Verði ég
kosin til
starfsins, mun ég
nýta mér alla mína
sérþekkingu.
Brosir til blaðamanna Lagarde
á blaðamannafundi á miðvikudag
þar sem hún lýsti yfir áhuga sínum á
framkvæmdastjórastöðu AGS.