Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Blaðsíða 45
Fókus | 45Helgarblað 27.–29. maí 2011
Hraðlygin dusilmenni
L.A. Noire er nýjasta afsprengi Rock
star Games og óhætt að segja að leiks
ins hafi verið beðið með mikilli eftir
væntingu. Sögusviðið er Los Angeles
skömmu eftir seinna stríð og ertu í
hlutverki Coles Phelps, fyrrverandi
stríðsetju, sem nú starfar sem rann
sóknarlögreglumaður í borg sem ein
kennist af glæpum og spillingu. Phelps
vinnur sig upp metorðastigann inn
an lögreglunnar og þarf að leysa ýmis
svæsin sakamál með því að finna vís
bendingar, yfirheyra vitni og hugsan
lega gerendur.
Grafíkin í leiknum er nánast óað
finnanleg og er ljóst að mikil vinna
hefur verið lögð í að gera borgina, eins
og hún leit út á fimmta áratug liðinn
ar aldar, sem raunverulegasta. Eins
og nafn leiksins ber með sér er hann
í anda svokallaðra filmnoire kvik
mynda þannig að stemningin í leikn
um er dálítið öðruvísi en tölvuleikja
spilendur eiga að venjast.
Sá hluti leiksins þar sem spilar
ar yfirheyra grunaða einstaklinga og
finna vísbendingar á vettvangi glæpa,
er án efa sterkasti hlutinn. Þú þarft að
meta það sjálfur hvort meintir gerend
ur séu að segja þér sannleikann eða
ljúga blákalt fyrir framan nefið á þér.
Þetta getur á köflum verið dálítið flók
ið, á jákvæðan hátt, því þú þarft að hafa
allar sannanir á hreinu áður en þú
ásakar fólk um hluti sem það framdi
eða framdi ekki.
Þó svo að leikurinn sé hlaðinn
ferskleika eru ákveðnir þættir sem
hefðu getað farið betur. Stundum
þarftu að elta grunaða einstaklinga,
annaðhvort á hlaupum eða á bíl, og
eru þær senur oft á tíðum eins og þær
séu í fyrirframmótuðum skorðum. Þá
hefði mátt gera meira úr þessu glæsi
lega umhverfi. Fyrir utan störf Phelps
í glæparannsóknum er afar lítið um að
vera fyrir utan beinan söguþráð leiks
ins. Það hefði mátt víkka sjóndeildar
hringinn. Leikurinn bætir þetta upp
með frábærum söguþræði og magn
aðri grafík svo ekki sé talað um yfir
heyrslurnar sem setja ný viðmið í
persónusköpun í tölvuleikjum. Það er
alveg óhætt að mæla með L.A. Noire
fyrir alla tölvuleikjaunnendur; hann
er frábær skemmtun og rígheldur í þig
þangað til öll dusilmenni borgarinnar
eru komin á bak við lás og slá.
Hvað er að gerast?
n XXX Rottweiler á Sódómu
Rapphundarnir halda 12 ára afmælistón-
leika með yfirskriftinni White Trash Royale.
Þeir sem mæta á hvítum hlýrabol fá Havana
Club kokteil. Miðaverð er 1.300 krónur og
húsið er opnað klukkan 23.00.
n Hátíðartónleikar Sveins Dúu
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór heldur
tónleika í Hömrum í Hofi á Akureyri 27. maí
klukkan 20.00. Hjörtur Ingvi Jóhannsson
mun sjá um píanóleik. Miðaverð er 2.000
krónur.
n Bob Dylan 70 ára
Stórtónleikar í Hörpu til heiðurs Bob
Dylan í tilefni af 70 ára afmæli og 50 ára
starfsafmæli hans. Meðal söngvara eru
Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens,
Helgi Björnsson, KK og Sigurður Guðmunds-
son. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og
miðaverð er 5.500 krónur.
n Högni, Davíð og Karlakórinn Fóst-
bræður
Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín
flytur nýja tónlist sem hann samdi ásamt
Davíð Þór Jónssyni og hljóðstjóranum Presi-
dent Bongo. Þeir flytja hana í Norðurljósasal
Hörpu ásamt karlakórnum Fóstbræðrum
undir stjórn Árna Harðarsonar. Klukkan
20.00 og miðaverð er 2.900 krónur.
n Samruni og Leikur með línu
Laugardaginn 28. maí klukkan 14.00 verða
tvær myndlistarsýningar opnaðar í Kaolin
- gallerý Ingólfsstræti 8, Reykjavík. Annars
vegar Samruni þar sem Dóra Kristín Hall-
dórsdóttir sýnir expressionískar vatnslita-
myndir. Hins vegar Leikur með línu þar sem
Ingiríður Óðinsdóttir sýnir textílverk úr ull.
n Heimspekileg listsmiðja fyrir börn
Efnt verður til fjölbreyttrar dagskrár í
tengslum við sýninguna Sjónarmið - Á
mótum myndlistar og heimspeki í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi, sunnudaginn 29.
maí. Heimspekileg listsmiðja fyrir börn á
aldrinum 8 til 11 ára klukkan 13.00.
27
maí
Föstudagur
28
maí
Laugardagur
29
maí
Sunnudagur
L.A. Noire
Tegund: Hasarleikur
Spilast á: PS3 og Xbox 360
Tölvuleikur
Einar Þór
Sigurðsson
Satt eða ósatt? Yfirheyrslurnar geta verið
sérlega athyglisverðar og skemmtilegar.
Varð grimmur
strax í móðurkviði
spennandi að skoða. Á sama tíma
séum við heilluð af því óheflaða
og óbeislaða og gerum það jafnvel
rómantískt.
„Á rómantískan hátt tölum við
Íslendingar oft um að eðli okkar
sé svo villt. Að við séum hvatvís og
óbeisluð. Við erum óþolinmóð og
stærum okkur jafnvel af því og það
er kannski bara í góðu lagi? Maður
sér þetta líka betur þegar maður
er í stærri samfélögum hvað fólkið
sem þar elst upp er meira partur
af púslinu. Það er kannski ekkert
rosalega drífandi element í því að
vera partur af púsli? Normið getur
líka verið skrítið. Það er í sjálfu
sér skrítið að geta beislað sig svo
mikið niður, að verða eins og vel
þjálfað hross.“
Vill að sýningin nái andlegum
tökum á áhorfendum
Þegar minnst er á óheflaða Ís
lendinga er gaman að setja það í
samhengi við afkomendur Axlar
Bjarnar en talið er að tæplega
20.000 Íslendingar séu afkomend
ur hans eða fjórtándi hver Íslend
ingur. Þar sem Björn Hlynur rekur
ættir sínar á næsta bæ við Öxl má
leiða góðar líkur að því að hann sé
í þessum stóra hópi afkomenda.
Hann segist hlakka til að koma
verkinu á fjalirnar enda sé mark
miðið að skapa nýja upplifun í
leikhúsinu. Upplifun sem ein
kennist af drunga og sálfræðilegri
spennu.
„Ég hef aldrei upplifað svona
sálfræðitrylli í leikhúsi og furða
mig í raun á af hverju það hefur
ekki verið gert meira af því að setja
upp slíkar sýningar. Það sem ég
hef í huga er ekki svona hryllings
„splatter“sýning heldur vil ég að
hún nái andlegum tökum á áhorf
endum, meðal annars með mikilli
og sterkri hljóðmynd sem verður
í höndum Kjartans Sveinssonar
úr Sigurrós. Ég man ekki eftir því
að hafa séð sýningu sem er eins
og sú sem ég sé fyrir mér þannig
að ég hlakka mikið til,“ segir Björn
Hlynur að lokum en líklegast má
telja að honum takist þetta vel
enda drunginn í blóð borinn þar
sem hann rekur ættirnar vestur að
næsta bæ við nafna sinn á Öxl.
margret@dv.is
Björn Hlynur
Vesturport setur
upp sýningu um
fyrsta og eina
fjöldamorðingja
Íslands.