Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Blaðsíða 28
28 | Erlent 27.–29. maí 2011 Helgarblað
Wikileaks mun
halda sínu striki
„Hann hefur það bara þokkalegt
miðað við allt. Til langframa eru
þetta auðvitað frekar óyndislegar
kringumstæður, að hafa ekkert ferða-
frelsi og geta ekki athafnað sig eins og
maður vill,“ segir Kristinn Hrafnsson,
talsmaður uppljóstrunarsíðunn-
ar Wikileaks, um líðan Jul ians Ass-
ange, aðalritstjóra síðunnar. Assange
er enn staddur á sveitasetrinu Ell-
ingham Hall í Norfolk þar sem hann
bíður málsmeðferðar í framsalskröfu
Svía – en þar hefur hann verið sak-
aður um kynferðisglæpi. Mál hans
verður tekið fyrir þann 12. júlí næst-
komandi en þangað til þarf hann að
ganga um með ökklaband með stað-
setningarbúnaði og er í raun í stofu-
fangelsi.
Lítið hefur verið fjallað um mál-
efni Wikileaks í vestrænum fjölmiðl-
um að undanförnu, og því ákvað
blaðamaður að slá á þráðinn til
Kristins og athuga gang mála.
Starfsemin gengur vel
„Hún fer auðvitað fram í gegnum
tölvusamskipti, þannig að skert
ferðafrelsi hefur í raun ekki stórkost-
leg áhrif á starfsemina,“ segir Krist-
inn, aðspurður hvort starfsemi Wiki-
leaks gangi hnökralaust fyrir sig.
„Þetta hefur verið að ganga sinn gang
– hægt, hljótt og örugglega. Ekkert
sérstaklega hljótt reyndar í ýmsum
heimshlutum, við höfum verið að
byggja upp samstarfsnet við æ fleiri
fjölmiðla um allan heim í tengslum
við birtingu á sendiráðsskeytunum.
Um er að ræða rúmlega 70 fjölmiðla,
þar á meðal annars eitt af stærstu
blöðum Indlands, The Hindu, sem
kemur út daglega í 1,5 milljónum
eintaka. Birting The Hindu á sendi-
ráðsgögnunum hefur nú þegar vald-
ið miklu fjaðrafoki enda ljóstruðu
þau upp um mikla spillingu á æðstu
stöðum í stjórnsýslu Indlands. Þá
höfum við einnig gert samning við
japanska blaðið Asahi Shimbun, sem
er gefið út í tíu milljónum eintaka
daglega, og því eitt stærsta dagblað í
heimi. Þannig að þrátt fyrir að starf-
semin sé ekki áberandi á Vesturlönd-
um um þessar mundir, þá sitjum við
fjarri því auðum höndum.“
Svört mynd máluð í Bandaríkj-
unum
Bandaríska sjónvarpstöðin PBS
sýndi á þriðjudagskvöld fréttaskýr-
ingarþáttinn Frontline, sem hefur
verið talsvert í umræðunni vestan-
hafs. Umfjöllunarefni þáttarins var
Wikileaks, og fékk þátturinn titilinn
„Wikisecrets“ eða Wiki-leyndarmál.
Í þættinum er máluð talsvert svört
mynd af Wikileaks og Julian Assange,
og látið að því liggja að uppljóstrun-
arsíðunni hafi mistekist að vernda
heimildamenn sína. Assange hefur
þó alltaf haldið því fram, að síðan búi
yfir tæknilegum búnaði sem trygg-
ir ætíð nafnleysi uppljóstrara – svo
ómögulegt sé að starfsmenn Wiki-
leaks viti hverjir uppljóstrararnir
séu. Kristinn tekur í sama streng: „Já,
ég verð að segja að mér fannst þessi
þáttur ekki merkilegur. Satt best að
segja hefur verið máluð mjög svört
mynd af Wikileaks í Bandaríkjun-
um og þetta er engin undantekning.
Gæti það verið til að þóknast stjórn-
völdum eða öðrum hagsmunaaðil-
um. Staðreyndin er hins vegar sú að
nýlega var gerð könnun í 20 löndum
um afstöðu fólks til Wikileaks og kom
þar í ljós, að mikill meirihluti í 19 af
20 löndum lýsti sig ánægðan með
starfsemi Wikileaks. Aðeins í Banda-
ríkjunum var hlutfallið okkur ekki í
hag, en þrátt fyrir það mældist þar 40
prósenta stuðningur. Sem er í raun
ótrúlegt miðað við fréttaflutninginn
sem þaðan berst.“
Viðurkenning Amnesty
Kristinn benti einnig á að þegar 50
ára afmælisskýrsla Amnesty Int-
ernational var gefin út á dögun-
um, var nær einvörðungu fjallað
um Wikileaks. „Í skýrslunni var eitt
meginumfjöllunarefnið Wikileaks,
og hvernig síðan hefur verið hreyfi-
afl í þeim umskiptum sem við horf-
um upp á í dag í Norður-Afríku og
Arabaheiminum öllum. Við höfum
svona haldið því varfærnislega fram,
en fáum það nú staðfest af hálfu
Amnesty, að birting gagna frá Tún-
is hafi ýtt töluvert undir þróun mála
þar – allt frá því að byltingarneist-
inn kviknaði uns Ben-Ali og einræð-
isklíka hans var horfin frá völdum.
Boltinn barst síðan til Egyptalands
og heldur auðvitað áfram að rúlla í
dag, eins og við höfum fylgst með í
fréttum.“
Heiður fyrir Assange
Af Julian Assange er það annars að
frétta, að hann hlaut á dögunum
gullverðlaun Friðarstofnunarinnar
í Sydney, Sidney Peace Foundation,
sem er hluti háskólans í Sydney. „Já,
fyrir utan þessa viðurkenningu sem
við teljum okkur hafa fengið frá Am-
nesty International, eru þessi verð-
laun auðvitað kærkomin. Á síðast-
liðnum 14 árum hafa þau aðeins
verið veitt fjórum sinnum – en þau
eru aðeins veitt þegar tilefni þykir
til. Aðrir verðlaunahafar eru til að
mynda Nelson Mandela og Dalai
Lama, þannig að þetta verður að telj-
ast ágætis félagsskapur,“ segir Krist-
inn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks.
n Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, segir að uppljóstrunarsíðan sitji síður en svo
með hendur í skauti n Lítil umfjöllun um síðuna á Vesturlöndum
Verðlaunahafi Julian Ass-
ange vígreifur með gullverðlaun
Friðarstofnunarinnar í Sydney.
Nóg að gera Kristinn Hrafnsson starfar
sem talsmaður uppljóstrunarsíðunnar
Wikileaks.
„ ... mikill meirihluti
í 19 af 20 löndum
lýsti sig ánægðan með
starfsemi Wikileaks.
Líkir samkyn-
hneigðum við dýr
Samkynhneigðir í Frakklandi eru
vægast sagt hneykslaðir eftir að þing-
maðurinn Brigitte Baréges líkti þeim
við dýr. Á fimmtudag voru umræð-
ur á franska þinginu um hjónabönd
samkynhneigðra, þegar Baréges tók
til máls, en hún er meðlimur í UMP-
flokki Nicolas Sarkozy. „Ef við leyfum
það, eru þá dýrin ekki næst á dagskrá?
Eða fjölkvæni?“ Er þetta enn ein vís-
bendingin um hina íhaldsömu átt
sem UMP-flokkurinn virðist vera að
taka, jafnvel til að hrifsa aftur til sín at-
kvæði sem hann hefur misst til Þjóð-
fylkingar Marine Le Pen. Aðrir flokkar
hafa hins vegar farið fram á opinbera
afsökunarbeiðni frá Baréges.
Mladic
handsamaður
„Í dag, snemma í morgun, handtók-
um við Ratko Mladic. Við höfum hafið
vinnu að framsali hans nú þegar.“
Þetta sagði forseti Serbíu, Boris Tadic,
á fimmtudag. Tadic tilkynnti að einn
eftirsóttasti stríðsglæpamaður síðari
tíma, Ratko Mladic, hefði verið hand-
tekinn í Serbíu. Líklega verður hann
framseldur til sérstaks dómstóls Sam-
einuðu þjóðanna sem fer með stríðs-
glæpi í stríðinu á Balkanskaga sem átti
sér stað á síðasta áratug síðustu aldar.
Mladic er meðal annars talinn hafa
verið á bak við fjöldamorðin í Srebre-
nica, þar sem Serbar myrtu um 10
þúsund Bosníumenn í einum alvar-
legustu þjóðernishreinsunum síðari
tíma. Samkvæmt fréttum frá Serbíu
hefur DNA-rannsókn staðfest að mað-
urinn sem var handtekinn sé í raun
Mladic.
Edwards verður
ákærður
Bandaríski stjórnmálamaðurinn John
Edwards, sem margir muna eftir sem
varaforsetaefni Johns Kerry í forseta-
kosningunum árið 2004, verður lík-
lega ákærður fyrir fjármálamisferli.
Edwards sóttist einnig eftir tilnefningu
demókrata fyrir forsetakosningarnar
árið 2008 og veitti þá Barack Obama
og Hillary Clinton harða samkeppni.
Á þeim tíma barðist eiginkona hans,
Elizabeth, við brjóstakrabbamein –
en hún hafði þangað til stutt eigin-
mann sinn dyggilega og verið hans
helsti ráðgjafi. Edwards sýndi þakk-
læti sitt ekki betur en svo, að hann tók
sér ástkonu á meðan eiginkona hans
barðist við krabbamein. Ástkonan
var úr starfsliði Edwards og fór svo
að þau eignuðust barn á laun árið
2008. Edwards er gefið að sök að hafa
borgað konunni fyrir þagmælsku, og
notað til þess fjármuni úr opinberum
kosningasjóðum sínum. Þess má geta
að Elizabeth Edwards lést úr brjósta-
krabbameini síðla árs 2010, en hálfu
ári áður sagði hún skilið við eigin-
mann sinn.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is