Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Side 30
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra spilling-arafla Sjálfstæðisflokksins,
hefur skilað af sér bók um Baugs-
mál. Í bókinni eru dregnar saman
upplýsingar um þetta eitt mesta
átakamál stjórnmála og viðskipta.
Margt er í bókinni sjálfgefið og ágæt-
lega unnið. Annað er ósagt, sem er
bagalegt. Það á sérstaklega við um
upphaf málsins og aðild Björns að
því. Margoft hefur komið fram að
sterk taug var á milli athafnakon-
unnar Jónínu Benediktsdóttur og
Björns en Jónína var aðalleikari í
upphafi málsins og hafði beinan að-
gang að ráðherranum. Hún segir frá
því í lífssögu sinni þegar Björn ætl-
aði eitt sinn heim til hennar í hádeg-
ismat en hún gleymdi stefnumótinu
og hann kom að luktum dyrum. Í
bók Björns vantar einlægt uppgjör
á hans hlut í málinu. Verkið hefði
getað markað þau tímamót að fyrsti
ráðherrann hefði lagt spilin á borð-
ið. Hvað með allar þær pólitísku
skipanir sem áttu sér stað á dóm-
urum? Ekki er trúverðugt að hann
skuli eingöngu fjalla um óvini sína
með sök að leiðarljósi en hvítþvo
sjálfan sig og sína menn.
Það þarf enginn Íslendingur eitt
andartak að halda að upphaf og
endi alls ills sé að finna hjá feðgun-
um Jóhannesi Jónssyni í Bónus og
syni hans Jóni Ásgeiri, eins og Björn
ráðherra lætur liggja að. Hann hef-
ur aldrei ýjað að sök annarra útrás-
arfeðga, Björgólfs Guðmundssonar
og Björgólfs Thors. Flestir útrásar-
menn eiga einhverja sök á hruni ís-
lenska efnahagskerfisins. En það er
óboðlegt að klína sök á örfáa hand-
valda eins og Björn og klíkubræður
hans gera.
Bók Björns er öðrum þræði upp-
gjör stjórnmálamanns sem steytti á
skeri. Biturleikinn brýst fram í frá-
sögninni þegar Guðlaugur Þór Þórð-
arson, alþýðumaður úr Borgarnesi,
felldi Björn úr oddvitasæti og þar
með úr forystusveit í Sjálfstæðis-
flokknum. Þar ber til þess að líta
að Björn er sonur eins áhrifamesta
stjórnmálamanns lýðveldissögu Ís-
lands, Bjarna Benediktssonar, fyrr-
verandi forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins. Björn
var alinn upp í aftursæti ráðherra-
bíls og átti sér örugglega draum um
að komast til sömu metorða og faðir
hans og uppskera sömu viðurkenn-
ingu. Það varð ekki eins og við öll-
um blasir. Hann er þvert á móti eitt
af andlitum íslenskrar spillingar
og hefur hrakist út úr stjórnmálum
með skömm. Alla sína upphefð fékk
Björn frá Davíð Oddssyni, einráð-
um forsætisráðherra. Spor Björns
í stjórnmálasögunni eru nær eng-
in og eftir hann stendur fátt annað
en spillingarímyndin. Hann kennir
Baugsmönnum og leiguþýi þeirra
um það hvernig komið er fyrir hon-
um. Þeir sem nenna að lesa bók
hans verða að hafa harm Björns
hugfastan. Hann er forsmáður son-
ur valdsins á endastöð ömurlegs
stjórnmálaferils. Bókin er mörkuð
þeim tárum sem fallið hafa vegna
illsku örlagadísa sem ekki gátu unnt
syninum þess að feta alla slóð föður
síns.
Já, kæru vinir, útgerðin er ekki geðs-leg þessa dagana. Þar tala menn einsog fiskveiðar séu trúarbrögð.
Og þar sem hreinu trúboði sleppir,
tekur lygin við. Nú auglýsa útgerðar-
menn og segja okkur að ef þeir hætta
að fá beingreiðslur í formi gjafakvóta,
þá muni útgerð leggjast af í landinu.
Til stuðnings útgerðinni hljómar
svo grátkór, þar sem enn einn kján-
inn, hún þarna Nordal eða hvað hún
nú heitir sú ágæta kúlulánakona, Sig-
urður klári og ónafngreindar fasista-
beljur grenja frá sér rænuna og sverja
af sér slagtog við LÍÚ-mafíuna. Samt
er alltaf einsog allt þetta sóðapakk
þarna í Sjálfstæðisflokknum sé á laun-
um, og hafi alltaf verið á launum hjá
mafíunni, við að ljúga að þjóðinni.
Undir söng vælukjóanna taka svo
mauksoðnar fiskbollur á frívaktinni á
ÍNN og vel steiktir kæfuhausar á AMX
. Kórnum er svo stjórnað af einu of-
metnasta lukkutrölli stjórnmálasögu
veraldar, sjálfum Dabba litla blaðbera.
Ágætur maður, Styrmir Gunnars-
son, sem þekkir innstu koppa í búri
innmúraðra þrjóta, hefur haldið því
fram að Sjálfstæðisflokkurinn og
LÍÚ-mafían hafi verið í einni sæng
í áraraðir. Reyndar þurfti ekki fróð-
an mann um glæpasögu flokksins til
að segja okkur hinum þennan sann-
leika. Þetta hefur allt legið ljóst fyrir
um langa hríð.
Hvers vegna ætli flokkurinn vilji
ekki segja okkur hvaðan stóru styrk-
irnir koma í kosningasjóð? Jú, það er
vegna þess að við megum ekki fatta
að útgerðin er það tól sem fullnægir
þeim sem í fálkahreiðrið leggjast.
„Enginn flokkur kemst upp með
að vera strengjabrúða hagsmuna-
aðila og það hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn ekki verið,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir vegna ummæla sem
höfð eru eftir Styrmi Gunnarssyni.
Ekki fylgir sögunni hvort menn sáu
hvítan blett á tungu Þorgerðar Katr-
ínar.
Og svo gerðist það að Adolf Guð-
mundsson, formaður LÍÚ, lét hafa
eftir sér: „Við eigum í góðum sam-
skiptum við aðila innan allra flokka.“
En þetta sagði hann eftir að hafa lýst
því yfir að LÍÚ-mafían og Sjálfstæðis-
flokkurinn væru ekki eitt og hið sama.
Kæra þjóð, hræðsluáróður út-
gerðarinnar er einungis settur fram
vegna þess að örfáir vellauðugir sæ-
greifar eru hræddir um að þurfa að
borga eitthvað lítilræði til samfélags-
ins. Já, til þess samfélags sem gaf
þeim kvótann.
Vor útgerð styður inn á þing
alla menn sem skæla
en enginn grætur Íslending
sem alltaf þarf að væla.
30 | Umræða 27.–29. maí 2011 Helgarblað
„Það fór allt í fokk ef ég á
að segja eins og er.“
n Kári Kristján Kristjánsson,
línumaðurinn öflugi sem leikur hand-
knattleik með þýska liðinu Wetzlar, hefur
náð sér eftir 20 daga lungnasýkingu.
Hann er kominn á ról á nýjan leik. – Vísir
„Ég mun vernda
regnskógana
– sama hvað.
Þess vegna gæti
ég fengið byssukúlu í
höfuðið hvenær sem er,“
n Sagði Jose Cláudio Ribeiro da Silva,
þekktur baráttumaður gegn skógarhöggi
í Amazon-regnskógunum í nóvember.
Hann var myrtur á mánudag.– The
Guardian
„Við erum bara farin að
anda að okkur fersku lofti
hérna.“
n Þórunni Júlíusdóttur, leikskólastjóra
á Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri, var létt
þegar rofaði til eftir öskufall síðustu
daga. – DV.is
„Ég á 25 þúsund krónur
eftir til að nota í mat og
aðrar nauðsynjar eftir að
ég er búin að borga reikn-
inga.“
n Einstæð móðir á fertugsaldri sem
vinnur við aðhlynningu fær 150 til 190
þúsund krónur útborgaðar á mánuði auk
20 þúsund króna mæðrastyrks. – DV
Baugur og Björn
Leiðari
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Björn var alinn
upp í aftursæti
ráðherrabíls.
Ógeðsleg útgerð
Skáldið skrifar
Kristján
Hreinsson
„Samt er alltaf eins-
og allt þetta sóða-
pakk þarna í Sjálfstæðis-
flokknum sé á launum, og
hafi alltaf verið á launum
hjá mafíunni, við að ljúga
að þjóðinni.
Gullinu hafnað
n Margrét Tryggvadóttir, alþingis-
maður og formaður Hreyfingarinn-
ar, er sjálfri sér samkvæm og lætur
ekki gullið glepja
sig. Sú sjálftaka
tíðkast meðal
þingmanna að
formenn stjórn-
málaflokka eiga
rétt á rúmlega
þremur millj-
ónum króna á
ári í launaupp-
bót. Margrét stenst freistinguna og
afþakkar að fá rúmlega 260 þúsund
krónur aukalega á mánuði. Þetta er
afar sjaldgæft á meðal þeirra sem lifa
á fólkinu í landinu.
Píreygur og nefmæltur
n Meðal þeirra fréttamanna sem
hafa baðað sig í frægð gossins úr
Grímsvötnum er Andri Ólafsson
á Stöð 2. Andri
hefur átt nokkr-
ar óborgan-
legar senur þar
sem hann hefur
staðið píreyg-
ur, rámur og
nefmæltur með
ösku í hverjum
andlitsdrætti og
lýst þeim ósköpum sem gengið hafa
yfir Sunnlendinga. Hörð keppni hef-
ur verið milli hans og Kristjáns Más
Unnarssonar um senur í öskunni.
Samanlagt hafa þeir gjörsigrað Ríkis-
sjónvarpið.
Vinalaus og einn
n Einhver umdeildasti viðskiptajöf-
ur síðari ára er Guðmundur A. Birgis-
son, kenndur við Núpa í Ölfusi. Guð-
mundur átti ásamt viðskiptafélaga
sínum, Aðalsteini Karlssyni, fyrir-
tækið Lífsval sem hafði náð undir sig
flestum jörðum á Íslandi. Voru þeir
félagar á tíma stóru bólunnar taldir
ósigrandi. En nú er allt í klessu og
Landsbankinn búinn að hirða Lífs-
val og allar jarðirnar. Algjör vinslit
eru sögð hafa orðið með félögunum.
Sjálfur var síðan milljarðamæringur-
inn lýstur gjaldþrota en tókst að fá
þeirri gjörð rift. Nú er hann kominn
í greiðsluaðlögun til að bjarga ein-
hverju af auðævum sínum.
Hjón ákærð
n Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri
ÍNN, og eiginkona hans, Ragnheiður
Sara Hafsteinsdóttir, eru í vondum
málum vegna ásakana lögreglu um
svik á virðis-
aukaskatti. Ingvi
er ævareiður
vegna máls-
ins og kennir
um Landsbank-
anum og öðrum
utanaðkomandi.
Þá telur hann að
um sé að kenna
vondum endurskoðendum. Þess
er krafist að hjónin greiði rúmar tíu
milljónir króna. Hjónin eiga og reka
Langárveiði ehf., sem var rekstrar-
aðili Langár á Mýrum til ársins 2009,
en áin var vinsæl meðal banka-
manna í góðærinu. Reiknað er með
að hinn ákærði fari hamförum á stöð
sinn vegna aðfararinnar.
Sandkorn
tryggvAgötu 11, 101 rEyKJAvíK
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
Jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Enginn getur ætlast til þess að komast tjónlaust frá margfaldri kreppu sem reið yfir íslenska
þjóðfélagið haustið 2008: Bankahrun
og fjármálakreppa, gjaldeyriskreppa
og verðbólga, stjórnmálakreppa og
siðalos, atgervishnignun og þverr-
andi traust til stofnana samfélagsins
er upptalning sem er mönnum töm.
Orðin lýsa vandanum sem brennur
á mörgum, ekki síst skuldsettum fjöl-
skyldum.
Stjórnvöld hafa ekki lagt sig sér-
staklega eftir því að efla trúnaðar-
sambandið við almenna kjósendur,
fjölskyldurnar í landinu. Þeim hefur
reynst um megn að eyða grunsemd-
um um stjórnlausa fyrirgreiðslu við
forréttindahópa og sjálftöku eigna-
fólks á kostnað almennings. Raddir
um að efna verði til nýrrar búsáhalda-
byltingar, til þess að fá stjórnmála-
stéttina til að skilja, hækka ef eitthvað
er. Auðvelt er fyrir stjórnarandstæð-
inga að nýta sér ástandið, berja á
stjórnvöldum, til dæmis í þágu stór-
útgerðarinnar.
Ofureflið
Ríkisstjórn jafnaðar- og vinstrimanna
er eiginlega minnihlutstjórn sé mið-
að við gamalkunna meirihlutareglu
lýðræðisins. Hún þarf að semja sig
í gegnum margvísleg mál. Drjúgur
meirihluti er engu að síður fyrir því að
fylgja aðildarumsókninni að ESB allt
til enda og leggja málið í dóm þjóðar-
innar. Meirihluti er einnig fyrir því á
þingi að verja störf stjórnlagaráðs og
að störf þess verði ekki trufluð með
þingkosningum. Meirihluti er einnig
fyrir því á Alþingi að breyta kvótakerf-
inu þótt frumvörp þar að lútandi mæti
nú harðri gagnrýni. Sú gagnrýni er
ekki ástæðulaus; kaflar þess eru hreint
klastur sem þinginu tekst vonandi að
lagfæra.
Þegar horft er á þetta frá öðrum
sjónarhóli sést æði skýrt að ríkis-
stjórnin glímir við ofurefli seigfljót-
andi valdakerfis gamla tímans. Hæsti-
réttur hefur brugðið fæti fyrir hana.
Forsetinn hefur lagt stein í götu henn-
ar og tekið sér völd. Landssamband
íslenskra útvegsmanna beitir atvinnu-
rekendum þjóðarinnar fyrir sig í bar-
áttunni gegn breytingum á kvótakerf-
inu. Í lykilstöðum stjórnkerfisins eru
víða flokksgæðingar sem þáðu emb-
ætti sín að launum fyrir dygga þjónk-
un við gamla Ísland og gamla klíku-
siðferðið. Með duldum hætti tefja
þeir mál eða setja þau út af sporinu. Á
þingi berjast stjórnarliðar ekki aðeins
við stjórnarandstöðuna heldur einnig
undanvillinga úr eigin röðum.
Skuldaveggur og greiðslufall
Á Írlandi varð fjármálakreppan þess
valdandi að um 340 þúsund heim-
ili skulda nú meira en þau eiga. Sér-
fræðingar telja litla von til þess að fast-
eignaverð hækki svo mjög á næstu
árum að fasteignir standi á ný und-
ir lánum sem tekin voru til að kaupa
þak yfir höfuðið á uppsprengdu verði.
Eignabruninn er því mikill hjá ná-
grönnum okkar og reiðin eftir því.
Hér eru stjórnvöld daglega sök-
uð um að ganga erinda eignafólks og
fjármálastofnana. Þau gangi með öðr-
um orðum erinda kröfuhafa á kostn-
að skuldara. Verst er að enginn veit
hver sannleikurinn er eða raunveru-
leg staða. Þeir sem starfa á fjölmiðlun-
um heyra daglega sögur af fólki sem
sætir afarkostum hjá innheimtufyrir-
tækjum, bönkum, lánastofnunum eða
sveitarfélögum. Þetta er fólk sem sá
skuldavegginn hækka með ofurhraða
eftir hrun.
Þeir sem fá upplýsingar, fá að vita
og skilja, eru líklegri en hinir til þess
að sýna þolinmæði og bera réttlátan
hluta byrðanna.
Ætli ríkisstjórnin sér að halda velli
verður hún að sýna hreinskiptni og
ástunda vægðarlaust gagnsæi.
Vægðarlaust gagnsæi
Kjallari
Jóhann
Hauksson