Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Síða 52
52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 27.–29. maí 2011 Helgarblað
H
lutirnir gerast hratt hjá
Microsoft þessa dagana.
Í kjölfar samstarfsins við
Nokia og kaupanna á Skype
hefur fyrirtækið nú upplýst að næsta
stóra uppfærsla Windows Phone-
stýrikerfisins komi á haustdögum
og fyrstu Windows Nokia-símarnir
verði komnir á markað í nóvember
eða desember á þessu ári.
Þetta er nokkuð fyrr en áður hafði
verið upplýst af hálfu fyrirtækisins og
ekki var búist við Nokia Windows-
símum í hillur verslana fyrr en ein-
hvern tíma á næsta ári.
500 nýjungar
Þessi fyrirhugaða uppfærsla á
Windows Phone-stýrikerfinu, köll-
uð Mango, mun marka tímamót
fyrir Microsoft og Nokia. Fimm
hundruð nýjungar hafa þegar
verið innleiddar í Mango að sögn
Microsoft og mun fleiri forrit er
nú hægt að sækja fyrir kerfið eða
um átján þúsund. Þetta er gífurleg
breyting frá því Windows Phone
kom á markað fyrir um hálfu ári en
þá voru engin forrit nema þau sem
fylgdu kerfinu. Á meðal nýrra for-
rita sem von er á í haust er Skype-
spjallforrit en enn er óljóst hvernig
Microsoft nýti sér kaupin á Skype í
markaðsherferð Windows Phone-
stýrikerfins og Nokia Windows-
síma.
Þrjú ráðandi kerfi
Stephen Elop, fyrrverandi yfir-
maður hjá Microsoft, sem tók við
stjórnartaumum Nokia í septem-
ber síðastliðnum, sagði fyrr á þessu
ári að með tíð og tíma myndu að-
eins þrjú meginkerfi standa upp
úr fyrir snjallsíma og spjaldtölv-
ur – Windows Phone, Android frá
Google og iOS frá Apple.
Microsoft ætlar sér næstu miss-
erin að fylla fyrst það tómarúm
sem fráhvarf Symbian frá Nokia
skapar en herja einnig á fyrirtækja-
markaðinn þar sem Blackberry frá
RIM hefur haft töglin og hagldirnar
hingað til. Afkomutölur og mark-
aðshlutdeild RIM hafa farið versn-
andi undanfarið og ef tekið er tillit
til þess að fyrirtækjageirinn hef-
ur frá upphafi verið hálfgert sér-
svið Microsoft varðandi hugbún-
aðarlausnir, skyldi engan undra að
þar tækist að ná verulegri fótfestu
á skömmum tíma. Framleiðslu-,
dreifingar- og birgjakerfi Nokia
hafa um langa hríð verið þau öfl-
ugustu á farsímamarkaðnum og
ættu að tryggja Microsoft og Nokia
verulegt forskot í markaðssetningu
næsta misserið.
Nýjungar í Mango
Fjölmargar áhugaverðar nýjungar
sem lúta að skilaboðum, spjalli,
pósti og samskiptavefjum er að
finna í Mango.
Meðal annars má nefna svo-
kallaða „Þræði“ sem samræma á
einum stað samskipti með SMS,
Facebook-spjalli og Messenger-
spjalli. Notandinn getur þann-
ig sem dæmi sent í byrjun SMS á
annan aðila en haldið síðan áfram
sama þræðinum í spjallforriti eins
og Messenger.
Í Mango er einnig hægt að
stofna hópa eða „grúppur“, til
dæmis fjölskyldu eða vinahóp og
sjá stöðuuppfærslur hópsins á skjá
símans (start screen) og senda
skilaboð á einfaldan og fljótlegan
máta, með SMS, pósti eða í gegn-
um spjallforrit, á allan hópinn.
Samræmt pósthólf mun eflaust
gleðja marga en í Mango verður
hægt að tengja saman marga að-
ganga í einu og sama pósthólf-
inu. Straumar (feeds) frá Twitter
og Linked In eru nú innbyggðir í
nafnspjöld (contact cards).
Mango verður með innbyggðan
andlitsgreiningarhugbúnað fyrir
ljósmyndir sem auðveldar merk-
ingar á myndum (tags) sem sendar
eru inn á Facebook.
Mango verður búinn Internet
Explorer sem byggir á HTML5-
staðli en Microsoft hefur enn ekki
gefið upp hvort kerfið muni styðja
Flash.
Fyrir utan Nokia hefur verið
greint frá því að Acer og Fujitsu
komi til með að bjóða upp á Win-
dows Phone-síma auk kínverska
fyrirtækisins ZTE. Samsung, LG og
HTC munu eins verða samstarfs-
aðilar Microsoft í Windows Phone-
væðingunni.
palli@dv.is
-sælureitur innan seilingar!
Svalaskjól
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær | Sími: 554 4300 | Fax: 564 1187 | www.solskalar.is
YFIR 40
LITIR Í
BOÐI!
Engir póstar
Innbyggðar vatnsrennur
Frábært skjól
gegn vindi og regni
A4_svalaskjol.indd 1 2/17/11 2:12 PM
„Fjölmargar áhuga-
verðar nýjungar
sem lúta að skilaboðum,
spjalli, pósti og sam-
skiptavefjum er að finna í
Mango.
n Mango kemur í haust n Windows Nokia-símar í lok
árs n Acer, Fujitsu og ZTE ganga til liðs við Microsoft
Microsoft
á siglingu
Upphafið Steve Ballmer, forstjóri Microsoft,
kynnir Phone 7 í október síðastliðnum.
Ársfundur Nokia Forstjórinn Stephen Elop og stjórnarformaðurinn Jorma Ollila glað-
hlakkalegir á ársfundi Nokia í Helsinki fyrr í mánuðinum.
Þræðir Allt á einum stað fyrir samskipti
með SMS, Facebook-spjalli og Messenger-
spjalli.
Hópar Hægt er að skoða stöðuuppfærslur
og senda skilaboð á allan hópinn á fljótan
máta.